Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 13 DV Fréttir Lögreglan á Seyðisfirði segir olíuna sífellt streyma upp frá E1 Grillo: Er orðinn óþolinmóður - aö bíða eftir framkvæmdaaðilum, segir bæjarstjóri - enn unnið í tilboðum Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, kveðst orðinn óþolin- móður eftir að fara að sjá fram- kvæmdaaðila á vegum umhverfis- ráðuneytisins koma til að freista þess að stöðva lekann í E1 Grillo sem liggur á botni fjarðarins og gera ástandskönnun við flakið. Hann segist reyndar hafa vonað að framkvæmdir hefðu getað hafist í síðustu viku en allt hafl komið fyr- ir ekki. Ekki er útlit fyrir að fram- kvæmdir hefjist fyrr en í septem- ber. Lögreglan á Seyðisfirði sagði við DV í gær að „olían streymi sí- fellt upp“ frá E1 Grillo. Einar Sveinbjörnsson, aðstoðar- maður umhverfisráðherra, sagði við DV að niðurstaða í tilboðsmál- um vegna verksins gæti komið í vikunni - þ.e hver af þremur hugs- anlegum framkvæmdaaðilum fái verkið og þá ekki síst hvernig verkþáttum verði hagað. Ekki liggi hins vegar fyrir hvort fram- kvæmdaaðilar geti hafið störf strax þar sem þeir eru í öðrum verkefnum. Ríkisstjórnin ákvað að verja 6 milljónum króna til verkefnisins, sem í raun er einungis fyrir bráða- birgðaframkvæmdir - að kanna legu flaksins og ástand og stöðva þann leka sem nú á sér stað. Rýnt í upþdrætti. Einar Sveinbjörnsson, aöstoðarmaður utanríkisráðherra, og Davið Egilsson frá Hollustuvernd ríkisins. Sprengjur flækja málið Flakið liggur á 30-40 metra dýpi í Seyðisfírði. Þetta þýðir að kafar- ar geta einungis athafnað sig í skamman tíma niðri í einu, verða síðan að fara upp á yfirborðið og geta ekki kafað aftur þann daginn, að sögn Einars Sveinbjörnssonar. Hann sagði að niðri við flakið séu einnig sprengjur. Það þýðir að framkvæmdaaðilar séu háðir Landhelgisgæslunni þaðan sem sprengjusérfræðingar koma. Nefnd á vegum ráðuneytisins sem Einar stýrir átti fund á mánudag með tilboðshöfum. Einar sagðist engu geta svarað til um hvenær framkvæmdir hefjist enda eigi enn eftir að ganga frá grunnat- riðum hvað varðar tilhögun fram- kvæmda í Seyðisfirði. Ólafur bæjarstjóri sagði við DV að talið sé að a.m.k. 1.500 tonn af olíu, og jafnvel meira en 2.000 tonn, séu enn þá í flaki E1 Grillo. Þetta er því mik- ið magn og ljóst að endanlegar fram- kvæmdir við að fjarlægja olíima og hugsanlega flakið verða gríðarlega kostnaðarsamar. Talið er líklegast, að sögn Ólafs, að leita þurfi út fyrir landsteinana með framkvæmdaaðila í því sambandi. -Ótt Nýr framkvæmda- stjóri Clic-On DV, Skagafirði: Birgir Guðjónsson, markaðsfræð- ingur úr Reykjavík, hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri Clic-On ís- land á Sauðárkróki. Birgir hefur þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. Hann starfaði áður sem aðstoðar- innkaupastjóri hjá Landsvirkjun. Clic-On ísland hf. var stofnað snemma á þessu ári. Það sérhæfir sig í framleiðslu á leðurtöskum fyr- ir farsíma og var búnaður til fram- leiðslunnar fluttur frá Svíþjóð. Ekki hefur verið starfandi framkvæmda- stjóri heldur hafa tveir stjórnar- menn fyrirtækisins verið í forsvari fyrir það þar til Birgir kom til starfa um síðustu mánaðamót. -ÖÞ Kópasker: Gefla endurreist SUS-þing í Vestmannaeyjum: Feður fái aukinn rétt DV, Akureyri: „Ég fagna þessum málalokum auð- vitað því í stað þess að rækjuvinnsla leggist hér af verður haldið áfram að vinna rækju. Við munum í nýja fyrir- tækinu vinna áfram innQarðarrækju úr Öxarfirðinum og þar fyrir utan virðist vera gott að ná í annað hrá- efni. Ég er því bjartsýnn á framhald- ið,“ segir Steindór Sigurðsson, sveit- arstjóri á Kópaskeri, en þar hefur rækjuvinnslufyrirtækið Gefla hf. ver- ið endurreist og komið í veg fyrir að vinnsla á rækju legðist af á staðnum. Fiskiðjusamlag Húsavíkur yfirtók rekstur Geflu á sínum tíma en hugð- ist leggja af vinnslu þar. Mikil óvissa hefur ríkt á Kópaskeri frá því i vor þegar fréttist að Fiskiðjusamlagið hygðist loka rækjuvinnslunni um tíma a.m.k. en endurreisn Geflu er orðin staðreynd. Stærstu hluthafar nýja fyrirtækisins eru Fiskiðjusam- lag Húsavíkur, Hólmsteinn Helgason hf. á Kópaskeri og Öxarfjarðarhrepp- ur með 15 milljónir hver aðili og aðr- ir eiga minna. Heimild er fyrir 80 milljóna króna hlutafé. Einar Svans- son, framkvæmdastjóri Fiskiðjusam- lags Húsavíkur, er stjórnarformaður en aðrir í stjórn Hólmsteinn Helgason og Steindór Sigurðsson. Hjá Geflu munu starfa 30-40 manns yfir vetrar- mánuðina, þegar innijarðarrækjan er unnin, en eitthvað færra á öðrum árs- Steindór Sigurðsson: „Bjartsýnn á framhaldið." DV-mynd -gk Á þingi Sambands ungra sjálf- stæðismanna í Vestmannaeyjum var samþykkt að skora á stjórnvöld að jafna rétt feðra og mæðra. Báðir foreldrar skulu hafa félagslegt og efnahagslegt svigrúm til að taka fæðingarorlof. í ályktuninni segh' að hingað til hafi réttur karla verið verulega skertur að þessu leyti. Hagsmunir karla og kvenna fari saman þegar um jafnan rétt og ábyrgð þeirra gagnvart heimili og bömum er að' ræða. SUS leggur því áherslu á að báðir aðilar fái sama lagalega rétt til töku fæðingarorlofs. „Börn eiga á sama hátt rétt á því að njóta umgengni við báða foreldra sína. Til að réttur beggja kynja til töku fæðingarorlofs verði raunveru- legur, leggur SUS til að fæðingaror- lof verði lengt í 9 mánuði. Verði þrír mánuðir bundnir fóður, þrir mánuðir móður en þremur mánuð- um geti foreldrar skipt á milli sín,“ segir í ályktuninni. Tekjutenging SUS leggur einnig til að greiðslur i fæðingarorlofi verði tekjutengdar og verði 80% af launum en sett verði ákveðið hámark. Fyrir flesta foreldra er það mikil tekjuskerðing þegar annað foreldrið hrapar ijekj- um vegna töku fæðingarorlöfs. Þar sem laun karla em enn í dag hærri en laun kvenna verður tekjuskerð- ingin enn meiri ef faðirinn ætlar sér að taka fæðingarorlof. Tekjutengdar greiðslur þurfa því að koma til eigi báðum foreldrum að vera efnahagslega kleift að taka fæðingarorlof. Hið opinbera mun áfram greiða foreldrum, óháð kyni, fæðingarstyrk og fæðingarorlof. Viðbótina mætti til dæmis fjár- magna með svipuðum hætti og líf- eyriskerfið eða að fyrirtæki sem borgi fæðingarorlof fái skattaíviln- anir til móts við hluta útlagðs kostnaðar. /------------------^ Atvinna Fyrirtæki sem sérhæfir sig í húsaviðgerðum óskar að ráða verkamenn og nema í múriðn. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Góð laun í boði fyrir rétta menn.Umsóknir sendist augld. DV fyrir 1. sept., merkt. „Atvinna - 34199“. v___________________________________________)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.