Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1999, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
Fréttir
sandkorn
Alvarlega vegiö aö Kaupþingi vegna viöskipta með hlutabréf í FBA:
Kennitölubrask
- og afleiðingar þess, segir reyndur Qármálamaöur og fagnar skarpari reglum
Spurningar hafa vaknað um hvort tilefni sé til opinberrar rannsóknar á viðskiptum
Kaupþings með hlutabréf í FBA.
Yfirlýsingar Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra um að viðskipti Kaup-
þings með hlutabréf í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins, FBA, fyrir hönd
umbjóðenda sinna jöðruðu við siðleysi
og jafhvel lögbrot hafa komið umræð-
unni um sölu á meirihlutaeign ríkisins
í FBA í nýjan farveg.
Menn í verðbréfaviðskiptum sem
DV hefur rætt við eru sammála um að
með orðum forsætisráðherra hafi ver-
ið vegið alvarlega að Kaupþingi sem
megi ekki við því, frekar en önnur slík
fyrirtæki, að traust þess og trúnaður
gagnvart viðskiptavinum sé dreginn i
efa. Sagði Davíð að hann teldi það sið-
laust og jatnvel löglaust ef Kaupþing
hefði keypt hlutabréf í FBA í nafhi að-
ila sem hefðu falið fyrirtækinu íjár-
vörslu með almennu umboði og siðan
látið sömu aðOa selja sjálfu sér bréfin
svo að fyrirtækið gæti hirt meginhluta
þess hagnaðar sem það hefði talið sig
sjá fram á að yrði vegna verðhækkun-
ar bréfanna. Og það án vitundar við-
skiptavina þess. Með öðrum orðum:
Kennitala viðskiptavina var notuð til
kaupa og sölu hlutabréfa í FBA án vit-
undar þeirra og fyrirtækið stórgræddi
á gengishækkunum í FBA.
Sala á meirihluta ríkisins í FBA
komst fyrst í uppnám þegar Orca AS
keypti 26% hlut Scandinavian Hold-
ings AS, eignarhaldsfélags Kaupþings
og sparisjóðanna, í FBA fyrr í þessum
mánuði. t kjölfarið viðraði Davíð þann
möguleika að selja bæri 51%, hlut rík-
isins í FBA í einu lagi. Yfirlýst stefna
ríkisstjómarinnar um dreifða eignar-
aðild að bankanum hefði verið
eyðilögð og úr því sem komið væri
fengist meira fyrir hlut ríkisins í einu
lagi en í dreifðri sölu. Síðan beindust
spjótin að Kaupþingi eins og kunnugt
er af fréttum.
Ekki verðbréfaviðskipti
Þegar 49% hlutabréfa í FBA voru
boðin til sölu í fyrrahaust var það jafn-
framt umfangsmesta einkavæðing sem
fram hafði farið á tslandi. Nafnverð
bréfanna var 3.332 milljónir króna og
sölugengið 1,4. Mikil viðskipti voru
með kennitölur fólks í þessu útboði og
tóku flest verðbréfafyrirtækin þátt í
kapphlaupi um þær. fVrstu dagana eft-
ir að FBA var skráð á Verðbréfaþingi,
í lok nóvember, fór gengið í 1,85. Gengi
bréfa í FBA varð hæst um 2,9 í sumar
en var 2,6 í gær. En hagnaðarhorfur
FBA em hins vegar góðar og búist við
að gengið eigi eftir að hækka.
Fjármálamaður sem DV ræddi við
sagði að nú sypu menn seyðið af
kennitölubraskinu í tyrravetur. Fyrir-
tæki sem vildu standa vörð um virð-
ingu sina og traust tækju ekki ekki
þátt í viðskiptaaðferðum sem væra
bannaðar I Bret-
landi og víðar, þ.e.
kennitöluviðskipt-
um í gegn um þriðja
aðila sem annars
kæmi ekkert við
sögu. Breytti engu
um þá afstöðu þótt
allt varðandi slík
viðskipti væri uppi
á borðinu.
“Þetta era einfaldlega ekki verð-
bréfaviðskipti," sagði reyndur fjár-
málamaður við DV og tók í sama
streng og hinn.
í þessu sambandi er forvitnilegt er
að skoða almenna afstöðu til gagnrýni
forsætisráðherra á Kaupþing. í at-
kvæðagreiðslu á Viðskiptavefnum á
Vísir.is segja 9 af hverjum 10 að gagn-
rýni Davíðs sé réttmæt? Er þá miðað
við tölur frá í gærkvöld. Flest fjármála-
fýrirtækin bjóða upp á svokallaða fiár-
vörslu. Sú þjónusta er einkum fyrir
fiársterka aðila sem hafa hið minnsta
nokkrar milljónir milli handanna.
Þessi þjónusta, sem Eignastýring
Kaupþings annast í umræddu tÚfelli,
gengur þannig fyrir sig að fjármálafyr-
irtæki fá umboð einstaklinga til að
stunda viðskipti í þeirra nafni. Við-
skiptavinir móta fiárfestingastefnu í
samráði við ráð-
gjafa. Eignastýr-
ingarsvið fyrir-
tækjanna annast
síðan eignastýring-
una. í samtölum
við fiárfestingaráð-
gjafa kom fram að
aldrei era gerðar
róttækar breyting-
ar á eignasafni einstaklinga nema með
fúllu samráði við viðskiptavini. Gerðir
era skriflegir samningar milli fyrn-
tækisins og umbjóðanda þess um fiár-
vörsluna en afar misjafnt er hins veg-
ar hve vel viðkomandi vill fylgjast með
gangi mála.
Uppnám á mörkuðum
þings, segir að viðskipti Kaupþings
fyrir hönd fiárvörsluþega hafi numið
um einu prósenti af heildarhlutafé
FBA, um 64 milljónum króna, og hafi
verið ótengd breytingum á eignarhaldi
í bankanum. Fullyrðingar um að
Eignastýring Kaupþings hafi bragðist
umboðsskyldu væra ósannar.
Varðandi sölu FBA-bréfa úr vörslu-
sjóðunum, vitnar Sigurður til upp-
náms á fiármagnsmörkuðum heimsins
þegar salan fór fram og þess mats
starfsfólks Eignastýringar að hags-
munum margra eignasafha hefði verið
betur borgið með þvi að selja hluta
þeirra bréfa sem keypt höfðu verið í
FBA.
Stefna Kaupþings og sparisjóðanna
var að ná bankanum til sín og fyrir
áramót hafði Kaupþing eignast ríflega
fiórðungshlut í FBA, hlut sem reyndar
var seldur Orca SA á dögunum.
Hreinn Loftsson, formaður fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu,
segir á Vísi.is í gær að hvergi hafi
komið fram að sparisjóðimir og Kaup-
þing hafi fallið frá stefhu sinni að ko-
mat yfir FBA.
“Því verður að líta svo á, að þau
áform séu enn uppi og að sparisjóðim-
ir og Kaupþing muni vinna að því
markmiði með eigendum Orca SA.
Þessi þróun hlýtur að leiða til þess að
ríkisstjómin endurskoði áform sín um
sölu 51% hlutafiáreignar ríkissjóðs í
FBA,“ segir Hreinn.
Spurningar hafa vaknað um hvort
tOefni sé til opinberrar rannsóknar á
viðskiptum Kaupþings með hlutabréf í
FBA fyrir hönd umbjóðenda sinna.
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra
sagði í DV í gær að það væri Fjármála-
eftirlitsins að taka slíka hluti til skoð-
unar og Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður sagði eðlilegt að
einhver sem teldi sig vera hlunnfarinn
vegna þessara viðskipta mundi óska
eftir rannsókn á þeim.
En kallar þessi uppákoma á endur-
skoðun laga og reglna um fiárvörslu
fyrirtækja fyrir einstaklinga?
Viðmælendur DV sögðu að slíkt ætti
auðvitað að vera óþarfi en í ljósi ofan-
greinds væri kærkomið ef löggjafmn
vildi skerpa á reglunum. Slíkt væri
einungis fagnaðarefni og mundi, ef
eitthvað væri, ýta fekar imdir traust
almennings á fiármálafyrirtækjum.
Sigurður Einarsson, fostjóri Kaup-
Pólitísk þrengsli
yÆnf1
Frétlaljós
Haukur Lárus Hauksson
Þverpólitísk sam-
staða hefur náðst um
að ráðhúsiö í Reykja-
vík sé of lítið. Þess
vegna hefur verið
ákveðið, með þverpóli-
tískri samstöðu, að
innrétta skrifstofur fyr-
ir borgarráðsfulltrúa í
leiguhúsnæði í Kirkju-
hvoli. Þessi staðreynd,
að ráðhúsið sé of lítið,
blasir viö fulltrúum
borgeu'búa í Ráðhúsinu
sem eiga einskis ann-
ars úrkosti í þverpóli-
tískri armæðu sinni en
að leggja saman krafta
og leigja úti í bæ. Dag-
fari vissi að þegar ráð-
ist var í byggingu ráð-
hússins, í andstöðu við
andavini og fleira fólk,
var ekki verið að
sólunda peningum
skattborgaranna í neinn óþarfa. Enda var engin
þverpólitísk samstaða um slíkt. Pólitísk samstaða
var hins vegar í huga borgarstjóra um að fara
sparlega með fé borgaranna. Hönnuðir virðast að
auki hafa gert sér fyllilega grein fyrir að árum
saman hafði einungis þurft einn mann til að
stjóma borginni og því alger óþarfi að innrétta
hvert herbergið á fætur öðru fyrir aðra kjörna
fulltrúa borgaranna. Þeir hefðu hvort eð er ekk-
ert að segja. Ef þeir voru ekki í skugga meiri-
hluta borgarstjórans voru þeir í minnihluta gagn-
vart meirihlutanum. Þverpólitísk samstaða um
aðra pólitíska stöðu fulltrúanna náðist ekki. Og
því voru ekki innréttaðar borgarráðsfulltrúa-
skrifstofur. Engin ástæða var til að púkka upp á
slíkt lið. Skrifstofa borgarstjóra skyldi hins vegar
vera rúmgóð með forstofu og fataherbergi, vítt
yröi til veggja í fundarsalnum þar sem rödd
valdsins skyldi óma og hátt til lofts í sölum þar
sem glaumur og gleði yrði við völd.
Hönnuðirnir hafa verið óvenju framsýnir því
þótt meirihluti yrði minnihluti og minnihluti
meirihluti þurfti ekki fleiri til að stjórna borg-
inni en áður. Enn var meirihlutinn í skugga
meirihluta borgarstjórans og minnihlutinn í
skugga meirihlutans. Því þá að innrétta borgar-
ráðsfulltrúaskrifstofur með nauðsynlegum bún-
aði?
En nú eru blikur á lofti. Minnihlutinn, það sem
eftir er af honum, er með meirihlutastæla og
meirihlutinn, það sem eftir er af honum, er úti
um víðan völl. Ný andlit hafa gefið gömlu fulltrú-
unum þá hugmynd að þeir geti farið að ráða og
nýju andlitin vita að gömlu andlitin hafa aldrei
ráðið neinu og vilja því láta til sín taka. Að auki
hefur borgarstjóri látið í það skína að kannski
verði samfylking um þann möguleika að hann
geti jafnvel hugsað sér aðra skrifstofu. í þeirri
stöðu eru góð ráð dýr.' En ekki of dýr. 8-10 fer-
metrar með nauðsynlegum búnaði verða að
nægja. Án fataherbergis og forstofu.
Nú óttast Dagfari að hönnuðir við Austurvöll
standi í þeirri trú að þverpólitísk samstaða sé um
að einungis einn mann þurfi til að stjórna land-
inu.
Dagfari
Hvert stefnir
Sigrún Stefánsdóttir, fyrram
fréttamaður á Sjónvarpinu, lektor í
fiölmiðlafræði við Háskóla íslands, frá-
farandi rektor Norræna blaðamanna-
háskólans í Árósum í Danmörku og
nýráðin yfirmaður
upplýsinga- og útgáfu-
mála hjá Norrænu
ráðherranefndinni í
Kaupmannahöfn, er
þessa dagana að efiia
til mikillar ráð-
stefnu í Reykholti í
Borgarfirði um fiöl-
miðla á Norður-
löndum, eignarhald
á þeim og hvert þeir stefna. Ráðstefn-
an verður haldin í októbermánuði og
nú þegar er orðið Ijóst að í kring um 70
blaða- og fréttamenn, allir helstu
fréttahaukar á Norðurlöndum, sækja
ráðstefnuna. Menn eru að gera því
skóna að það stefni í hálfgert hallæris-
ástand á ritstjórnum stærstu fiölmiðl-
anna vegna mannfæðar meðan ráð-
stefnan stendur yfir...
Hjálpa Jóni
Nokkrum íbúum í blokk Öryrkja-
bandalagsins að Hátúni 10 rann til
rifia að sjá í fréttum i sumar hve lág-
ar mánaðartekjur Jóns Ólafssonar í
Skífunni eru samkvæmt skattskrá,
eða aðeins 79 þúsund
kall. Öryrkjarnir
hafa því efnt til fiár-
söfnunar til að létta
honum og konu
hans framfærslu
þriggja barna
þeirra. Hafa þeir
nú opnað söfnun-
arreikning nr.
267693 í Lands-
bankanum. í tilkynningu í anddyri
Hátúns 10 segir að Jón hafi svipaðar
tekjm- og flestir þeirra sem í húsinu
búa. Óþarfi sé hins vegar að allir líði
skort og fólk því beðið að gauka ein-
hveiju inn á reikninginn...
Umhverfisvernd fyrir lítið
Úti í Viðey er umhverfisins gætt
vel svo það spillist ekki af umferð
fólks sem þangað flykkist gjarnan á
góðviðrisdögum og nýtur fegurðar-
innar og náttúrufarsins í þessari úti-
vistarvin borgarbúa. í
þessu augnamiði er
þess vandlega gætt
að ekki fari neinn
óþverri í sjóinn um-
hverfis eyna og hef-
ur því verið komið
upp rotþróm til að
taka við öllu slíku.
En rotþrær eiga
það til að fyllast og
ferðamanni sem var í eynni í sumar
brá nokkuð og fannst umhverfis-
verndin fara fyrir lítið þegar hann
kom að þar sem starfsmenn frá
Reykjavíkurborg vora að dæla upp
úr einni rotþrónni - beint í sjóinn...
Skyldi Ingibjörg vita af þessu?
Fangi frægðarinnar
í leiöara nýjasta tölublað Mannlífs
gerir ritstjórinn, Gerður Kristný,
upp það ár sem hún hefur stýrt tíma-
ritinu. Þetta hefur verið gott ár fyrir
Mannlíf, að sögn ritstjórans, og salan
aukist um 75%. En
eins og þeir sem skara
fram úr hefur Gerður
Kristný að eigin sögn
fengið að kenna á öf-
und, rógi og jafnvel
ofbeldi frá öfund-
sjúkum starfs-
bræðrum á öðrum
fiölmiðlum: Hún
segir DV hafa nýlega sagt
hana fýlda og neikvæða, starfsmenn
Bylgjunnar talað svo niðrandi um
hana, að orðinu „flengriða" brá fyrir
og bróðir eins Bylgjumanna, sem
fiallað hefur um hana á þessum nót-
um, sparkaði í hana á balli í Iðnó. En
hann fékk til tevatnsins fyrir þvi að
ritstjórinn knái svaraði fyrir sig með
tveimur fyrirtaks löðrungum og
...“sparkglaða manninum brá svo
mikið við að ég skyldi svara i sömu
mynt að hann emjaði af kvölum eins
og aukaleikari í Bráðavaktinni."
Umsjón: Stefán Ásgrímsson
Netfang: sandkom @ff. is