Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Blaðsíða 9
MANUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
9
dv__________________________________________Útlönd
Gamalkunnur skuggi yfir friöarferli i Mið-Austurlöndum:
$ SUZUKI
-✓///..
Múslímum kennt
um bílsprengjur
Sprengjur sprungu i tveimur bíl-
um í norðanverðu Israel í gær og
urðu að minnsta kosti þremur
mönnum í bílunum að bana. Ekki
var liðinn nema tæpur sólarhringur
frá því að ísraelar og Palestínu-
menn undirrituðu nýtt samkomulag
til bjargar friðarferlinu fyrir botni
Miðjarðarhafsins þegar sprengjurn-
ar sprungu. Undir kvöld í gær hafði
enginn lýst ábyrgð sinni á spreng-
ingunum.
Lögreglan segir að sprengjumar
hafi borið öll einkenni hryðjuverka-
árása harðlínumúslíma. Þær varpa
kunnuglegum skugga yflr friðarferl-
ið í Mið-Austurlöndum sem hefur
stöðvast margsinnis vegna sams
konar og annarra árása á Israela.
Sprengjurnar sprungu aðeins
nokkrum mínútum eftir að stjóm
Ehuds Baraks samþykkti friðar-
Yasser Arafat, forseti Palestínuaraba,
faðmar Símon Peres, fyrrum forsætis-
ráðherra ísraels, að sér þegar hann
kom til Ítalíu í gær eftir undirritun frið-
arsamningsins við ísrela.
Bandarískur hermaður, Brian Kuhn frá Chicago, smellir kossi á litla tyrk-
neska stúlku sem komst lífs af úr jarðskjálftanum mikla á dögunum. Stúlk-
an dvelur nú í stórri tjaldborg í borginni Izmit sem varð illa úti.
Erfitt hjá börnum á A-Grænlandi:
Grænlendingar vilja
sjálfir leysa vandann
Grænlendingar vilja sjálfir leysa
þann mikla vanda sem steðjar að
mörgum börnum á Austur-Græn-
landi og frábiðja sér afskiptasemi
Dana af málinu. Greinilegt er að
mikill pirringur er í grænlenskum
yfirvöldum vegna umræðna um
þessi mál í Danmörku. Það eru
einkum börn í Ammassalik og Itt-
oqqoortoormiut sem hafa það skítt.
„Það er rétt að mörg vandamál
eru til staðar í þessum tveimur bæj-
um. En ég tel að það hafi mikla þýð-
ingu að gripið hefur verið til að-
gerða á stöðunum til að leysa þau,“
segir Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar, í
samtali við danska blaðið Politiken.
Hann bendir á að Grænlendingar
fylgist af athygli með umræðunum
um erfiðleika innflytjenda í Dan-
mörku en reiknar með að Danir
leysi þann vanda sjálfir, rétt eins og
Grænlendingar leysi eigin vanda.
Motzfeldt segir að Grænlendingar
vilji gjaman ræða við til dæmis
danska félagsmálaráðherrann um
reynslu Dana af vanrækslu barna,
ofbeldi og sifjaspellum í fiölskyldum
sem eiga erfitt. Hann vill þó ekki
frekari fiárframlög.
Umræðan nú hófst þegar danskir
sérfræðingar í málefnum barna
gagnrýndu fyrir stuttu aðstæður
bama á Austur-Grænlandi og sagði
einn þeirra að vissulega væri
ástæða til að reka upp neyðaróp.
Bæjarstjórinn í Ammassalik
sagði fyrir stuttu að bæjarfélagið
fengi minna fé en önnur þaf beinum
fiárstyrk danska ríkisins.
samkomulagið sem Yasser Arafat,
forseti Palestínumanna, og Ehud
Barak, forsætisráðherra ísraels,
undirrituðu í Egyptalandi á laugar-
dagskvöld eftir langt samningaþóf.
Samkomulagið hleypir nýju lífi í
Wye friðarsamningana sem gerðir
vora í Bandaríkjunum í fyrra þar
sem kveðið er á um að ísraelar af-
hendi Palestínumönnum ellefu pró-
sent lands til viðbótar á Vestur-
bakkanum.
ísraelskir embættismenn hafa
varað við endumýjuðum árásum
harðlínumúslíma í kjölfar frekari
samningagerðar við Palestínumenn.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
reynir nú að binda enda á þriggja
ára þrátefli i samningaviðræðum
ísraela við Sýrlendinga og finna
leiðir til að semja um varanlegan
frið, að sögn sendimanns hans.
Arvekni varð
stórþjófi að falli
Árvökull starfsmaður skand-
ínavíska flugfélagsins SAS á
Kastrupflugvelli við Kaupmanna-
höfn var til þess að lögreglan
handsamaði eftirlýstan stórþjóf,
að sögn dönsku fréttastofunnar
Ritzau.
Þjófurinn, sem er 28 ára erlend-
ur flóttamaður, var á leið úr land-
inu í gær þegar starfsmaðurinn
bar kennsl á hann. Þjófurinn
hafði meðal annars verið eftirlýst-
ur í danska sjónvarpinu. Lögregl-
an var til kölluð og gómaði hún
manninn. Þjófurinn stal meðal
annars hálfri annarri milljón ís-
lenskra króna frá ferðamanni á
járnbrautarstöðinni í Kaup-
mannahöfn fyrir skömmu.
Suzuki Baleno GL, skr. 9/97,
ek. 34 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 1.040 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 3/96,
ek. 17 þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 800 þús.
Suzuki Baleno WG, skr. 1/98,
ek. 35 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 1.320 þús.
Suzuki Baleno WG, 4x4, skr.
4/97, ek. 63 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 1.220 þús.
Suzuki Swift GLX, skr. 6/98,
ek. 26 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 840 þús.
Opel Astra ST, skr. 3/98, ek.
30 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 1.195 þús.
Volvo S40, skr. 5/97, ek. 32
þús. km, ssk., 4 d.
Verð 1.740 þús.
Ford Escort CLX, skr. 9/96,
ek. 46 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 970 þús.
TILBOÐ Hyundai Accent
GSi, skr. 7/97, ek. 24 þús. km,
beinsk., 3 d. Verð 790 þús.
Lada Sport, skr. 4/96, ek.
26 þús. km, 3 d.
Verð 480 þús.
Ford Escort CLX, skr. 6/94,
ek. 39 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 590 þús.
Toyota Corolla XL, skr. 3/96,
ek. 60 þús. km, ssk.
Verð 990 þús.
Opel Corsa, skr. 10/97, ek.
36 þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 880 þús.
Subaru Legacy, árg. '95, ek.
98 þús. km, 4 d., ssk.
Verð 1.050 þús.
Toyota Corolla XL, skr. 6/95,
ek. 85 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 850 þús.
Einnig nokkrir bílar
á gjafverði.
Kynntu
þér málið!
SUZUKI BILAR HR
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
mmmmmmmmmmmmmmm
Bad English can mean bad bnsiness!
But if you can easily spot U English no-nos in the sample paragraph below, you
don't need us.
*Woolover is one of Iceland's oldest, largest and most respected wool producers. Our ambition is to offer
high-quality wool to our customers. In fact, we deal in more than 50.000 pounds a month! From the farmers
which tend our sheeps in the fields to the people that staff the 28 offices in our new house located in one of
j the most beautiful parts of Iceland, we welcome your business. A dearth of customer service here is none-
existent. As President, I invite you to call me personally for a copy of our new video brochure and price list
- or just to say hello! If I'm out of town or on a meeting, ask my secretary to page me and I'll retum your
call after one hour. I'm one of those people who is determined to make your call worth your while.
Unsure?
If you're dealing with the world - or would like to - don't let flawed or
awkward English distract the world from your message!
Iceland finally has one authoritative central stop for English! Be it British,
American or generic. Everything from translation to proof-reading to
polishing to copywriting to localization to narration.
* A list of 11 instances of unsound English usage in the sample paragraph above is available
for the asking. If you caught them all correctly, ask us for a job.
The English Language Center/re • Ensk málstöð ehf.
Hafnarstæti 19 • 101 Reykjavík • SímiJPhone: (+354) 552 3900
english@islandia.is • www.englishwise.com
Slæm enska getur jafngilt slæmu gengi í viðskiptum!
Ef þú getur auðveldlega lundið 11 dæmi um vonda enska málnotkun í efnisgreininni hér fyrir ofan þarft
þú ekki á þjónustu okkar að halda.
Ertu ekki viss?
Ef þú vilt ná til fólks ættir þú ekki að láta slæma ensku eða stirðbusalega málnotkun draga athyglina
frá því sem máli skiptir, skilaboðunum sjálfum!
Heildarlausn á ensku er nú loks fáanleg á Islandi, hvort sem um er að ræða ameríska, breska eða almenna
ensku. Við þýðum, prófarkalesum, fínpússum og 1 agfœrum, skrifum auglýsinga- og kynningartexta og
aðlögum texta að málsvceðum. Auk þess höfum við afar færa þuli og upplesara.
j * Þú getur fengið lista hjá okkur yfir gildrumar 11 úr efnisgreininni hér að ofan. Ef þú varst með allt
rétt getur þú sótt um starf hjá okkur.