Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Halldór Traustason
/ \
Halldór Valdimar Traustason vél-
stjóri, Hjallavegi 1, Flateyri, er fer-
tugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist í Reykjavík en
ólst upp í foreldrahúsum á Flateyri.
Hann var í barna- og unglingaskóla
á Flateyri, lauk gagnfræöaprófi á
Núpi viö Dýrafjörð, stundaði nám
viö Vélskólann í Reykjavík og lauk
þaðan 4. stigs vélstjóraprófi 1982.
Halldór fór ungur til sjós og hefur
stundað sjómennsku alla tíð, fyrst á
bátum frá Flateyri. Hann var vél-
stjóri á farskipum um skeið en hef-
ur lengst af verið vélstjóri á togar-
anum Gylli frá Flateyri sem nú heit-
ir Stefnir ÍS. Þá vann hann við
beitningu og stundaði eigin útgerð
um skeið.
Fjölskylda
Bræður Halldórs eru Reynir
Traustason, f. 18.11.1953, fréttastjóri
DV, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Halldóru Jónsdóttur, starfsmanni
við Skálatún í Mosfellsbæ, og eru
börn þeirra Róbert, f. 26.7. 1974,
starfsmaður ljósmyndastofu Bonna
í Reykjavík, Hrefna Sigríður, f. 27.9.
1977, starfsmaður við
leikskóla á Flateyri; Jón
Trausti, f. 11.4. 1980,
menntaskólanemi við
MS; Símon Öm, f. 6.4.
1988, og Harpa Mjöll, f.
31.10. 1996; Bjöm Jakob
Traustason, f. 22.2. 1961,
d. 25.5. 1961; Þorsteinn
Traustason, f. 16.6. 1962,
verkamaður á ísafirði,
sambýliskona hans er
Jóna Símonía Bjarna-
dóttir sagnfræðingur;
Þórir Traustason, f. 2.12. 1977, nemi
og sjómaður.
Foreldrar Reynis: Jón Trausti
Sigurjónsson, f. á Húsavik 14.10.
1932, d. 16.7.1978, verslunarmaður á
Flateyri, og Sigríður Sigursteins-
dóttir, f. 3.3. 1936, starfsmaður við
gmnnskóla Flateyrar.
Ætt
Jón Trausti var sonur Sigurjóns
Jónssonar, organista á Húsavík, og
Guðrúnar Valdimarsdóttur, verka-
konu þar.
Sigríður er dóttir Sigursteins, b. á
Búrfelli í Hálsasveit, bróður Frey-
móðs, fyrrv. bæjarfógeta í Vest-
mannaeyjum. Sigur-
steinn var sonur Þor-
steins, b. á Höfða i Þver-
árhlíð, Jónssonar, b. í
Síðumúla, Þorvaldssonar,
b. á Vilmundarstöðum í
Reykholtsdal, bróður Vig-
dísar, ömmu Hannesar
bankastjóra, Zóphaniasar
skipulagsstjóra, Páls Agn-
ars dýralæknis og Hjalta,
fyrrv. forstjóra innflutn-
ingsdeildar SÍS, og Vig-
dísar, móður Páls Bald-
vins leiklistarfræðings og Ingu
Láru, deildarstjóra við Þjóðminja-
safnið. Baldvinsbarna. Þorvaldur
var sonur Jóns, ættföður Deildar-
tunguættarinnar, Þorvaldssonar.
Móðir Jóns í Síðumúla var Guðrún
Finnsdóttir. Móðir Þorsteins var
Helga Jónsdóttir, b. á Signýjarstöð-
um í Hálsasveit, bróður Vigdísar og
Þorvalds. Móðir Helgu var Guðrún,
systir Helgu, langömmu Guðmund-
ar Amlaugssonar, rektors og skák-
dómara, og Önnu, móður Flosa
Ólafssonar leikara. Guðrún var
dóttir Böðvars, b. í Skáney, Sigurðs-
sonar. Móðir Guðrúnar var Ástríð-
ur, systir Jóns, Þorvalds og Vigdís-
'
ar. Móðir Sigursteins var Sigríður
Jónsdóttir, b. í Steindyrum á Látra-
strönd. Einarssonar. Móðir Sigríðar
var Ingibjörg Benediktsdóttir frá
Hringsdal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Móðir Sigríðar var Jakobína Guð-
rún Jakobsdóttir, b. í Stóra-Dal í og
trésmiðs í Vík í Mýrdal, bróður Er-
lends, trésmiðs í Vík, afa Erlends
Einarssonar, fyrrv. forstjóra SÍS.
Jákob var sonur Björns, b. í Holti í
Mýrdal, Bergsteinssonar, bróður
Þuriðar, langömmu Bergsteins
brunamálastjóra og Sigurðar hrl.
Þuríður var einnig langamma Ólafs
G. Einarssonar, fyrrv. alþingisfor-
seta og ráðherra. Móðir Jakobs var
Ólöf Þorsteinsdóttir, b. í Eystri-Sól-
heimum, Þorsteinssonar, bróður
Finns, langafa Péturs Guðfmnsson-
ar, fyrrv. framkvæmdastjóra ríkis-
sjónvarpsins. Móðir Ólafar var Elín
Jónsdóttir. Móðir Jakobínu var
Guðríður Pétursdóttur, b. í Vatns-
skarðshólum, Erlendssonar. Móðir
Guðríðar var Guðríður, systir
Ólafar í Holti.
Halldór er að heiman á afmælis-
daginn. s .
Halldór Traustason.
Grindavík:
Refur olli
útafkeyrslu
Maður ók á staur í Grindavík
aðfaranótt fóstudags. Kvað hann
tófu eða mink hafa hlaupið fyrir
bílinn og beygði hann til að
forða rebba frá meiðslum. Tókst
ekki betur til en svo að hann ók
á staur og em bæði staurinn og
bíllinn ónýtir. Var maðurinn
fluttur á Sjúkrahús Reykjavík-
ur. Reyndist hann skorinn á
hálsi. -EIS
H
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Áhugamenn um lagningu nýs vegar yfir Vatnaheiði afhentu í síðustu viku áskorun um að vegurinn verði lagður. Þeir
telja ekki neina hættu vera á umhverfisspjöllum svo sem haldið hefur verið fram af hópi náttúruverndarsinna. Hér
tekur Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, við áskorun heimanna í Stykkishólmí og Grundarfirði.
Ingveldur Yr
Söngstúdíó
Sími 898 0108
Longor þig að læro oð syngjo?
EinkQtímor, hóptímor með undirleik.
Söngnómskeið fyrir byrjendur,
unglingonómskeið.
■fiWMvawaMViW——1—.. 1
Flugleiðir hafa haldið fyrsta uppboðið á ferðum sem vitað er um á íslandi og
20 heppnir þátttakendur fara til Barcelona sfðar í mánuðinum.
Flugleiðir með nýjung á Netinu:
Barcelona á uppboði
„Eftir því sem ég kemst næst er
þetta fyrsta skipti sem haldið er upp-
boð á ferðum á íslandi," segir Guðni
Hreinsson, í sölustjóm Flugleiða, en
Netklúbbur Flugleiða hélt á fimmtu-
dag uppboð á 20 sgetum í þriggja
daga pakkaferð til Barcelona. Að
sögn Guðna var þátttakan vonum
framar en hátt í 300 manns sendu
inn tilboð í sætin 20. Lágmarksboð
var 19.000 krónur en lægsta tilboð
sem var tekið var 31.100 krónur en
hæsta boöið 35.000 krónur. Guðni
segir ljóst að viðkomandi væru að fá
mikið fyrir peningana en ferðirnar
kostuðu upphaflega frá 45.000 til
50.000 krónur, eftir því hvaða gisti-
staði var um að ræða. Þeim sem
buðu hæst voru síðan boðin dýrustu
hótelin.
„Við höfum áður boðið ferðir á
niðursettu verði í Netklúbbnum en
datt i hug að breyta til og halda upp-
boð. Fólki virtist líka þetta mjög vel
enda er þetta skemmtileg tilbreyting
og við erum alveg ákveðnir í að end-
urtaka leikinn þótt við vitum ekki
hvenær eða hvernig," segir Guðni.
DV
Ti\ hamingju með afmælið 6. september
90 ára
Sigurveig Guðmundsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði.
85 ára
Þórimn Lárusdóttir, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ.
80 ára
Kristbjörg Ingvarsdóttir, Norðurbyggð 18, Akureyri. Ragnar H. Sæmundsson, Hátúni 10 B, Reykjavík. Valgerður Ólafsdóttir, Hlíðargötu 23, Fjarðarbyggð.
75 ara
Ingibjörg Jóhannsdóttir, Ránargötu 3, Reykjavík. Kormákur Sigurðsson, Rauðalæk 16, Reykjavík. Svandís Guðmundsdóttir, Norðurbrún 1, Reykjavík.
70 ára
Ásdís Helgadóttir, Þóroddakoti 4, Bessastaðahr. Sverrir Magnús Gíslason, Miövangi 99, Hafnarfirði. Þorsteinn Jónsson, Árkvöm 2 B, Reykjavik.
60 ára
Anna Þorkelsdóttir, Álfhólsvegi 54, Kópavogi. Dóra Hervarsdóttir, Laugateigi I, Borgarfirði. Guðni Þórðarson, Nesvegi 105, Seltjarnarnesi. Helga M. Kristjánsdóttir, Urðarvegi 15, Ísafírði. Jóhannes Sigurjónsson, Grundargerði 2 H, Akureyri. Magnús Pálsson, Engjaseli 35, Reykjavík.
50 ára
Ágúst Tómasson, Fífuseli 37, Reykjavik. Guðrún Svavarsdóttir, Heiðargerði 5, Húsavík. Herdís María Júlíusdóttir, Stórageröi 17, Akureyri. Kristinn Þórarinsson, Túngötu 56, Eyrarbakka. Laufey Dagmar Jónsdóttir, Efstahrauni 10, Grindavík. Ludy Ólafsdóttir, Digranesvegi 22, Kópavogi. Olaf Arild Engsbraten, Fannafold 46, Reykjavík. Sólrún Aradóttir, Gaukshólum 2, Reykjavík. Stefanía Óskarsdóttir, Skólavegi 37, Fáskrúðsfirði.\
40 ára
Aðalheiður Auður Ploder, Brekkugötu 10, Hafnarfirði. Ágústa G. Sigurðardóttir, Móasíðu 8 B, Akureyri. Ámi Anton Júlíusson, Hólavegi 17, Dalvík. Brynjar Ragnar Ingvason, Þórustíg 28, Njarðvík. Guðfinna Guðnadóttir, Steindórsstöðum, Borgarfirði. Guðmundur K. Þórðarson, Blikahólum 2, Reykjavík. Guðrún G. Guðbjartsdóttir, Keflavíkurg. 15, Hellissandi. Gunnar Ármannsson, Leirubakka 24, Reykjavík. Hafsteinn Sveinsson, Vallholti 1, Vopnafjarðarhr.. Hallfríður Traustadóttir, Amarhrauni 1, Grindavik. Kristín Vilborg Helgadóttir, Lindarbergi 78, Hafnarfirði. Óttar Þór Jóhannsson, Eyvík, Grímsey. Rut Bergsdóttir, Miðtúni 28, Reykjavík. Sigríður Ingólfsdóttir, Hátröð 2, Kópavogi. Vigdís Helga Jónsdóttir, Botnahlíð 4, Seyðisfirði. Þónmn Daðadóttir, Safamýri 38, Reykjavík.