Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Síða 36
^inningstölur laugardaginn: 28. 08.
18 <21 <28 <30/3
sHw, V , - V . , Sí
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5 af 5 0 8.129.980
2. 4 af 1 542.120
3. 4 af 5 89 10.500
4. 3 af 5 3.318 650
Jókertölur
vikumiar:
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
Básafell:
Rætt um
jippskipti
„Guðmundur situr yfir fyrirtæk-
inu ásamt fleiri aðilum og munu
málin skýrast í byrjun október.
Menn eru að
fara yfir stöðuna
og athuga hvern-
ig best muni að
haga framtíðar-
skipulagi Bása-
fells,“ segir Ein-
ar Oddur Krist-
jánsson, alþing-
ismaður og einn
hluthafa í Bása-
felli. Mikið hefur
verið rætt um
málefni Básafells
áéFestfjörðum og hafa sögur gengið
um að uppskipting sé í vændum hjá
fyrirtækinu. Þannig fengju fyrrum
eigendur Kambs á Flateyri rekstur-
inn þar að því tilskildu að þeim
tækist að fjármagna kaupin. Þetta
þýddi í raun að sameining sem varð
fyrir tveimur árum gengi til baka.
Að sögn Einars Odds eru menn að
skoða stöðuna og fara yfir öll mál
fyrirtækisins. Það tekur tíma og
mun því ekki skýrast strax, að hans
sögn. Guðmundur M. Kristjánsson,
Éórnarformaður og aðaleigandi
safells, vildi i samtali við DV
ekki tjá sig um málið.
-EIS
Maður áreitti
stúlkur
Lögreglunni í Reykjavík barst til-
kynning frá foreldrum barna í Bú-
staðahverfi um að maður hefði
áreitt stúlkubörn. Átti maðurinn að
hafa boðið stúlkunum sælgæti og
dregið þær afsíðis. Ekki er vitað
hve mikið maðurinn áreitti stúlk-
urnar en málið er í rannsókn. Mað-
urinn er enn ófundinn.
-EIS
Hestamiðstöð:
Gróf mis-
munun
„Þetta er auðvitað ekkert annað
en gróf mismunun þar sem á að
taka einn landshluta fram yfir
aðra,“ segir Anders Hansen, hrossa-
ræktandi að Árbakka í Holtum, við
DV um þau áform
landbúnaðarráðherra að leggja 150
milljónir af almannafé til
miðstöðvar íslenskra hestins í
''áKagafiröi. Nánar á bls. 2 -SÁ
ERU SKAGFIRÐINGAR MED
EINKALEYFI Á HROSSUM?
Séra Örn Bárður Jónsson söng sína fyrstu sunnudagsmessu í Neskirkju í gaer en hann tekur tímabundið við prestsstarfi sr. Halldórs Reynissonar. Sr Erni
Bárði var vel fagnað í messulok og á myndinni faðmar eitt sóknarbarnanna hann að sér og annaö heilsar sr. Frank M. Halldórssyni. DV-mynd Hilmar Þór
Tjáir sig ekki
um vanhæfi
Bifreiðaeigendur krefjast lækkunar bensínsverðs:
Veggjaldið lækki
um 2-3 krónur
- segir Árni Sigfússon sem fundar með fjármálaráðherra í dag
„Ég á von á
samtali við fjár-
málaráðherra.
Við leggjum til
að veggjald
verði lækkað
um 2 til 3 krón-
ur,“ segir Ámi
Sigfússon, for-
maður Félags ís-
lenskra bifreiða-
eigenda, um
baráttu félags-
ins og annarra hagsmunafélaga
bifreiðaeigenda fyrir lækkun bens-
ínverðs. Undanfarna daga hafa
mótmæli streymt frá hugsmunafé-
lögum vegna hækkananna sem
kosta meðalfjölskyldu á annað
hundrað þúsund á ári ef miðað er
við þann verðtopp sem nú er. Eins
og fram hefur komið í DV hefur
lítrinn af 95 oktana bensíni hækk-
að um 25 prósent. Mesta hækkun-
in varð í síðustu viku þegar hækk-
unin varð 5 krónur á einu bretti.
Árni segir að ljóst sé að kröf-
unni um lækkun sé beint að rík-
inu. Olíufélögin hafi aðeins hækk-
að í hlutfalli við heimsmarkaðs-
verð og þjónustuhækkanir innan-
lands.
„Hækkanir olíufélaganna eru
mjög í samræmi við verðþróun
hér heima. Við gagnrýnum auðvit-
að þeirra þátt þegar við á en þær
væri rangt að kenna olíufélögun-
um um þessar hækkanir," segir
Árni.
Hann segist bjartsýnn á að fjár-
málaráðherra taki erindinu vel og
leysi málið farsællega.
„Við hljótum að leysa þetta mál
með skynsemi. Það eru fordæmi
fyrir því að stjórnvöld hafa áður
gripið inn í hátt bensínverð og
lækkað veggjald veruiega," segir
hann.
Árni segist ekki hlynntur því að
stofnaður verði sveiflujöfnunar-
sjóður til að fyrirbyggja þá miklu
toppa sem verða á bensínverðinu.
„Ég er ekki mikið fyrir sjóði og
tel reyndar að slíkt fýrirkomulag
eigi að tilheyra fortíðinni. Það
hlýtur vera hægt að finna leið til
að breyta skattlagningu ríkisins á
bensín þannig að um verði að
ræða fasta krónutölu," segir Ámi.
-rt
„Ég fer ekki í umræður við DV á
þessu plani,“ segir Tryggvi Pálsson,
stjórnEirformaður Verðbréfaþings ís-
lands, aðspurður hvort hann teldi
að Þorkell Sigurlaugsson frá Eim-
skip og Einar Sigurðsson frá Flug-
leiðum hefðu verið vanhæfir til að
sitja fund stjómar Verðbréfaþings-
ins á fimmtudag í síðustu viku þar
sem málefni Skagstrendings vora
rædd. Dótturfélag Eimskips á þar
stóran hlut og þá á Eimskip þriðj-
ungshlut í Flugleiðum. Komið hefur
fram að Þorkell tók ekki þátt í af-
greiðslu málsins.
Stefán Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfaþings, sagði í blaða-
viðtali 12. ágúst sl. að breyta þyrfti
ákvæðum í samþykktum Skag-
strendings sem kveða á um Höfða-
hreppur eigi hverju sinn tvo full-
trúa í stjóm félagsins, ætti félagið
að uppfylla skilyrði fyrir skráningu
á Verðbréfaþinginu. Stjóm þingsins
komst að þveröfugri niðurstöðu á
fundinum á fimmtudag.
“Ég ætla ekki að vera með neinar
opinberar vangaveltur um þetta mál
og vil ekki gefa nein komment til
eða frá,“ segir Tryggvi, aðspurður
um áhrif þess að framkvæmdastjóri
þingsins hefði gefið slíka yfirlýs-
ingu.“ -GAR
Árni Sigfússon,
formaður FÍB.
Veðrið á morgun:
Rigning víð-
ast hvar á
landinu
7 hiti 5-12 stig
Á þriðjudag verður norðaust-
anátt, 13-18 m/s, um norðvestan-
vert landið en austan- og suðaust-
anátt, 8-13 m/s, annars staðar á
landinu. Rigning verður víðast
hvar og hiti 5-12 stig.
Veðrið 1 dag er á bls. 45.
MERKILEGA MERKIVELIN
bfOther PT-210E nvvél
fslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aöeins kr. 10.925
n
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport