Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 33
tolgarviðtalið LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 %slgarviðtalið gengur og gerist. Annars er það mikill misskilningur á Vesturlönd- um að aUar þjóðimar í Miðaustur- löndum séu ofstækisfullir arabar og að allir múslímar séu arabar. Múslímar í heiminum eru 1,2 millj- arðar og af þeim em aðeins um 200 milijón arabar. Fréttaflutningur á Vesturlöndum er svo einlitur. Eftir að Khomeini komst til valda er eins og allir haldi að hans ofstæki nái til allra Miðausturlanda en það er ekki þannig. „ „Engu að síður var siðferðið mjög strangt þarna í upphafi níunda ára- tugarins," segir Bima. Ég man til dæmis eftir því að þegar Samir var að fara í viðskiptaferðir áður en við giftum okkur, þá ílutti ég til mömmu hans á meðan. Ég mátti Árið 1980 fór ung ís- lensk stúlka, Birna Hilmarsdóttir, til Jórdaníu til að vinna sem flugfreyja hjá Arn- arflugi. Þar kynntist hún manni af yfirstétt, Samir Hasan. Þrátt fyrir andstöðu umhverfisins og for- dóma eru þau gift enn í dag, eiga þrjú börn og hafa náð að samhæfa ólíkan bakgrunn, siði og venjur. alls ekki vera ein í húsinu. En móð- ir hans fékk hringingar þar sem fólk spurði hvemig hún gæti leyft mér að koma i sitt hús. Fólk spurði hvort hún vissi ekki. að ég byggi með syni hennar.“ Flutt til íslands Eftir brúðkaupið bjuggu þau Samir og Bima í Amman, en vorið 1993 var von á fyrsta bami þeirra - og Bima vildi fæða það á íslandi. Það var Ægir Amin og fæddist hann á Akranesi þar sem systir Bimu og mágur bjuggu. „Við vorum á Akra- nesi allan júnímánuð, kaldasta mánuð sem ég hef nokkum tímann lifað,“ segir Samir, „Þetta var ægi- lega kalt sumar og hitinn í júní fór aldrei upp fyrir fimm stig. Á þeim tíma vissi ég ekki að ég ætti eftir að ákveða að flytjast til íslands." Hvenær gerðist það? „Það var árið 1991 og ástæðan var Persaflóastríðið. Ég ólst upp í þeim hluta heimsins þar sem einhvers konar stríð var í gangi annað hvert ár. Því er oft haldið fram að slíkt hafi ekki áhrif á böm en það er ekki satt og ég vildi ekki ala mín böm upp við slíkar aðstæður. Við Bima urðum sammála um að það besta í stöðunni væri að flytja til íslands. Ægir Amin var átta ára, Kolbrún Amanda sjö ára og Inga Amal eins árs.“ Fjölskyldan flutti til íslands og Samir, sem stundaði verðbréfamiðl- un, flutti fyrirtæki sitt til London nýtt verkefni í Sádi-Arabíu. Stríð hafði brotist út milli íraks og írans og mikill fjöldi flóttamanna, aðal- lega verkamenn frá Egyptalandi, var að flýja land. „Ég segi oft að Saddam Hussein hafi orðið þess valdandi að ég endaði í Jórdaníu," segir Bima, „en líka orðið til þess að ég „flúði" þaðan“, og á þá við stríðið milli íraks og Kuweit. Amarflug átti upphaflega að vera i Amman í þrjá mánuði, frá júní og fram í ágúst, til að flytja kennara, sem er ein af útflutningsvörum Jórdana, frá Flóaríkjunum og heim. En vegna stríðsins jukust verkefnin og við vorum þama í alls níu mán- uði. Arnarflug hafði sérstöðu á þessu svæði, vegna þess að flugvél- in okkar var hvít og græn, með ís- lenskum fána og okkar var minnst sem friðardúfu. Viö lentum aldrei í neinum vandræðum." Undir haustið kom Bima ciftur til Amman og þau Samir hittust aftur. Kynni þeirra gengu hægt og rólega fyrir sig næstu níu mánuðina og segir Bima það hafa valdið skelf- ingu meðal annarra íslendinga á staðnum og meira að segja var talað um að senda hana heim til að vernda hana. „Það merkilega var að ég hafði samskipti við nokkra ís- lendinga á þessum tíma,“ segir í fljótu bragöi virðist ólíklegt aö leiðir ungrar stúlku frá Neskaupstað og verðbréfamiðlara í Jórdaníu geti legið saman. En ef það gerist er lík- legt að fáir myndu spá þeim hjónabandsgœfu. Hún kristin, hann múslími. Hún sjómannsdóttir, hann úr yfirstétt. Menningar- og trúarlegur bakgrunnur í meira lagi ólíkur. Engu að síður hittust þau Birna Hilmarsdóttir og Samir Hasan. Það var árið 1980. Bima var flug- freyja hjá Arnarflugi og júlímánuði hitti hún Samir. Júlímánuður var að þessu sinni ramadan, sem er fóstumánuður. I Ramadan er bann- að er að neyta nokkurs, selja eða bera fram veitingar til múslíma frá sólarupprás til sólarlags, eða réttara sagt, þá er bannað að setja nokkurn hlut upp í munninn á þessu tímabili og þar með talið sígarettur og tyggjó. Tilgangurinn með fóstunni er að hreinsa sálina og flnna til samlíðunar með þeim sem fátækir eru og þurfandi. I dag hafa þau verið gift í sautján ár, eiga þrjú böm, búa á íslandi og hefur tekist að samhæfa sína ólíku menningarheima. Fyrstu kynnin Þegar þau eru spurð hvar þau hafi hist í ramadan þegar hvorki má bragða vott né þurrt, segja þau: „Á bar,“ og bæta við: „Það er ákaf- lega órómantískt." Á bar? í fóstumánuði? „Já, já,“ segir Samir. „Það er bara bannað að boröa og drekka frá sól- ampprás til sólarlags. Eftir sólsetur má borða fyrstu máltíðina. Hún á að vera eitthvað létt, til dæmis súpa, en því miður hefur ramadan, rétt eins og jólin, breyst í neysluhátíð. Sumir sofa á daginn, vakna um sól- setur, fara í heimsóknir og opna búðimar sínar og skrifstofur langt fram á nótt.“ íslensku áhöfnunum hjá Arnar- flugi var ráðlagt að blanda sem minnst geði við innfædda. Þeim vom sagðar sögur um afdrif ann- arra áhafna í Sádi-Arabíu sem átti að hafa verið rænt, farið með þær út í eyðimörkina og þeim nauðgað. „Ég veit ekki hvort þetta gerðist í raun og veru, eða hvort þetta var sagt til að hræða okkur," segir Birna. „Við vorum hræddar með öllu mögulegu, meðal annars með hvítri þrælasölu og kvennabúmm. Okkur var ráölagt að fara aldrei neitt einar heldur fara í hópum og reyna auðvitað að hafa íslenskan víking með, okkur til vemdar. Þeg- ar litið er til baka er ég mjög fegin þessu veganesti því sannleikurinn er sá að það tekur ákveðinn tíma að átta sig á aðstæðum. Við stelpurnar hjá Amarflugi urðum fljótt þekktar einmitt fyrir það að vera „hard to get“ sem virkaði eins og vítamín- sprauta á piparsveinana í Jórdaníu. Einu fréttimar sem við fengum á íslandi um araba vom neikvæðar og aðallega um hryöjuverkamenn. Við vissum ekkert um Palestínu- menn eða Jórdani þar fyrir utan - og vitum varla enn.“ En þetta örlagaríka kvöld fór hóp- ur íslendinga á bar eftir sólsetur. Þar var Samir með vinahópi sinum. Einn þeirra þekkti stúlku í íslenska hópnum og því gáfu þeir sig á tal við íslendingana. Birna og Samir drógust hvort að öðru og töluðu mikið saman þetta kvöld en frekari kynni stóðu ekki til þar sem Birna var aö fara í burtu. Amarflug fékk í Jórdaníu búa 4-4 1/2 milljónir manna og er stór hluti þeirra Palest- inumenn. Samir segir að þjóðirnar sem byggja landið hafi átt í ýmsum menningarværingum í gegnum aldrinar en hafi smám saman bland- ast og í dag séu sumar af stærstu jórdönsku ættunum frá Palestínu. En hvemig tók fjölskylda Samirs Bimu? „Fjölskyldan mín elskaði hana al- veg frá byrjun,“ segir Samir, ,jafn- vel meira en mig. Móðir mín er sænsk, kynntist föður mínum í London þar sem hann lærði lög- fræði og ég er því alinn upp við Birna og Samir segjast fremur vilja búa á Islandi en Jórdaníu. DV-mynd ÞOK mun mejra frjálslyndi í hugsun en þar sem hann starfaði til 1994 og kom heim í eina viku í mánuði til að vera með fjölskyldunni. Þá segist hann hafa verið búinn að fá nóg af því að vera fjarri konu og bömum, seldi fyrirtækið og fluttist alfarið til íslands og stofnaði hér hugbúnaðar- fyrirtækið ADCALL ehf. Ólík trúarbrögð, sameig- inleg sjónarmið Nú hljóta ólik trúarbrögð að hafa verið málefni sem þið þurftuð að ná samkomulagi um. Hvernig leystuð þið það? „Það var ekki erfitt," segir Birna. „Við ákváðum að bömin skyldu bæði læra kristna trú og múslíma- trú og síðan gætu þau sjálf valið þegar þau verða átján ára.“ „Trúarbrögð hafa aldrei verið stórmál í mínum huga,“ bætir Sam- ir við. „ Móðir mín er kristin og fað- ir minn múslími og það var mikil- Börnin læra trúarbrögð beggja foreldra og velja síðan sjálf þegar þau verða 18 ára, hvort þau vilji játa kristna trú eða vera múslimar. DV-mynd ÞÖK Strangt siðferði en ekki ofstæki Islenska kvenfrelsið er þrældómur alltaf, og það er stolt okkar að geta séð 'Vel fyrir henni." Er þetta ekki bara gamla karl- remban? „Nei, þetta heitir ást, virðing og umhyggja," segir Samir. Birna segir það hafa verið hálf- gert áfall að flytjast aftur til íslands. Hún segist sammála því að konur á íslandi séu ofurseldar kröfunni um þrældóm sem kallaður er frelsi. Sjálf var hún heimavinnandi fyrstu árin eftir heimkomuna og segir það hafa verið dálitið erfitt, vegna þess að það hafi ekki verið hægt að gera neitt skemmtilegt með vinkonunum þegar börnin voru i skólanum. „Þær voru allar að vinna og á kvöldin og um helgar voru þær á þönum við að sinna skyldum sínum. Ég sá líf þeirra sem eina allsherjar skyldu; skyldu við vinnuveitendur, skyldur við fiölskylduna og lítill tími til að njóta lífsins - og allt gert á ógnar- hraða. Þar af leiðandi fannst mér oft einmanalegt að vera heimavinn- andi,“ segir Birna sem núna er nemandi í Kennarháskóla íslands. „Þegar ég fór að búa í Jórdaníu hafði ég unnið á sumrin á Neskaup- stað frá því að ég var átta ára og.síð- ar með skólanum. Núna var ég i fyrsta sinn komin í stöðu þar sem enginn ætlaðist til neins og það var dásamlegt. Margar konur sem kynntust mér vildu fá að vita hvem- ig það væri að vinna. Þær langaði Samir, Birna og börnin þrjú, Kolbrún Amanda, Inga Amal og Ægir Amin á fermingardegi Kolbrúnar. tií að prófa það. Ég sagði þeim að njóta þess að fá að vera heima en ráðlagði þeim jafnframt að staðna ekkij heldur fara á þá fyrirlestra og námskeið um allt mögulegt sem í boði voru.“ vægast í mínum huga að börnin lærðu það besta úr báðum trúarbrögð- um. Birna var því sammála. Það var hún sem lærði múslímatrú til að kenna börnunum hvað væri rétt og rangt samkvæmt henni.“ „Ég bjó í múslímaríki og varð að læra hvað ég mætti og hvað ekki og kenndi börnunum það. Þau urðu að þekkja hvor tveggja trúarbrögðin af reynslunni, til dæmis föstusið- inn. Samir stundar ekki föstur en ég hjálpaði mínum börnum að fasta með því að vekja þau kl. 4 um nótt og gefa þeim morgunmat. Síðan fór- um við aftur að sofa og þau föstuðu síðan allan daginn, til klukkan 18. Þau stóðu sig frábærlega og hefur ekki orðið meint af, held ég.“ „Það er alveg hægt að heilaþvo börnin frá upphafi." segir Samir, „og gera þau að trúarlegum vél- mennum, en ég gat ekki hugsað mér slíkt fyrir mín böm. í Jórdaníu gilda þau lög að ef börn eiga föður sem er múslími, þá verða þau múslímar. En bæði eldri börnin okkar eru fermd samkvæmt krist- inni trú. Við höldum upp á jól og páska, auk þess að halda upp á múslímahátíðir. Þannig var það á mínu heimili. Móðir mín er kristin, eins og ég sagði, og hefur aldrei skipt um trú. Okkur systkinunum fannst þetta mjög gott fyrirkomulag. Við fengum fiórar hátíðir á ári. Ég trúi á Guð en mér er alveg sama um trúarbrögð. Trúarbrögð eru orðin svo skemmd vegna þess að þau hafa verið notuð sem afsök- un fyrir pólitískum styrjöldum." Vesturlandabúar matað- ir á neikvæðum upplýs- ingum „En í grundvallaratriðum snúast öll trúarbrögð um það sama og mín trúarbrögð fela ekki í sér neinn hættulegan boðskap," segir Samir. Grundvallaratriðið í þeim er: Vertu góður, láttu gott af þér leiða, vertu heiðarlegur. Tilgangur þeirra er að gera fólk að betri manneskjum. í Jórdaníu er mjög alþjóðlegt samfélag. 22-23% þjóðarinnar eru kristin en því miður er erfitt að koma þessum stað- reyndum tO skOa á Vesturlöndum. Neikvæðar upplýsingar um Miðaust- urlönd hafa verið eins og skipulagður hernaður og fólkið matað á þeim með teskeið. Um leið og minnst er á Mið- austurlönd dettur fólki alltaf ofbeldi fyrst i hug. Vissulega eru hópar í mínum heimshluta sem hafa gert skelfdega hluti, en þannig hópar eru til í öflum heimsálfum. Það þýðir ekki að tvö hundruð mflljón arabar séu glæpa- menn, ekki frekar en allir kristnir menn glæpamenn vegna þess að kaþ- ólikkar og mótmælendur komast ekki að samkomulagi á írlandi." En nú er Persaflóastríðinu lokið og allt með kyrrum kjörum í Miðaustur- löndum. Ætlið þið ekki að flytja þang- að aftur? „Nei,“ segja þau Samir og Bima einum rómi. Hvers vegna ekki? „Aðallega bamanna vegna. I þess- um tveimur löndum eru mjög ólíkir siðir, venjur og samskiptamynstur. í Jórdaníu er allt mjög formfast. Ef maður þekkir reglurnar og fer eftir þeim gengur dæmið upp. Við Samir þekkjum þær en ættingjar og vinir líta eflaust á börnin okkar og hegðun þeirra í dag eins og þau væru óuppal- in. Við teljum líka að lífið hér gefi þeim meiri möguleika á að verða sjálfstæð, læri að standa á eigin fót- um. í Jórdaníu tilheyra þau yfirstétt sem óneitanlega veitir þeim ftfllt af tækifæmm sem þau ganga ekki eins greiðlega að hér, en enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Á íslandi verða þau sjálf að velja og hafna, berj- ast og búa sig undir það líf sem þau vflja lifa. Það teljum við best gert með því að styðja þau og styrkja en um- fram allt að hafa eins margar leiðir opnar og mögulegt er.“ Samir er sammála Bimu og bætir við: „Ég er hamingjusamur hér. Lífið hér er öruggt og kyrrlátt og slíkt verður aldrei metið til fiár. Krakkarn- ir hafa fleiri tækifæri tO menntunar og hér alast þau upp við heObrigðari lífsstíl." sús Að morgni brúðkaupsdagsins árið 1982. Samir, „en þeir umgengumst okkur Bimu ekki saman á meðan við vor- um að kynnast. Það kom ekki tfl greina." „Að hluta til var það vegna þess að fæstir höfðu áhuga á að kynnast landi og þjóð,“ bætir Birna við. „Við vorum þarna þrjátiu tO fiörutíu ís- lendingar sem flestir sóttu helst ferðamannastaði þar sem lítfl hætta var á að hitta heimamenn. Við vor- um innan við tíu sem gerðum eitt og annað til að kynnast þjóðinni og landinu sem við bjuggum í mánuð- um saman.“ Það fer sem fer Birna lét auðvitað ekki senda sig heim en í byrjun árs 1981 kom hún heim og var hér fram í september. Þá tók hún sig upp og flutti tfl Sam- irs í Amman. Útlend kona, í óvígðri sambúð í arabaríki. Er það hægt? „Já, það er hægt, en það var á þessum tíma álitið mjög slæmt og samfélagið viðurkenndi ekki óvígða sambúð," segir Samir og Birna bæt- ir við: „Það var stöðugt verið að segja mér að hann myndi aldrei kvænast mér og almennt er álitið að karlmenn á þessum slóðum líti nið- ur á þær konur sem búa með þeim í óvígðri sambúð. En það er ekki einhlítt frekar en annað og þar fyrir utan var ég ekkert að leita að hjóna- bandi. Fyrir mér var þetta ævintýri og ég hugsaði með mér: Það fer sem fer.“ Samir segir þessa afstöðu múslíma eiga sér fleiri for- sendur en þær er snúa að hjónabandinu. „í Jórdaníu þótti á þeim tíma jafnvel óeðlOegt fyrir mig sem karl- mann að búa einn, en það hafði ég gert um langt skeið. Fólk bjó hjá foreldrum sínum þar tfl það stofnaði sjálft heimfli en það hefur þó breyst á síðustu tíu tfl fimmtán árum.“ Það var svo í september 1982, eft- ir eins árs sambúð, að þau Samir og Birna ákváðu að gifta sig. Minnstu munaði þó að aflýsa þyrfti brúð- kaupinu. „Viku áður urðu fiöldamorðin í Befrút í Líbanon," segir Birna. „ísraelski herinn hjálp- aði kristnum falangistum að fara inn í flóttamannabúðir Palestínu- manna, Sabra og Chatila, og drepa varnarlaust fólkið um miðja nótt. Þar sem Samir er Palestínumaður, þótt hann sé uppalinn í Jórdaníu, hefði verið mjög óviðeigandi að blása til mikillar brúðkaupsveislu í upphafi slíkra hörmunga. En undir- búningur brúðkaupsins var í fullum gangi og hluti af boðskortunum hafði þegar verið sendur út. Það var ákveðið að hafa lítið og látlaust brúðkaup og litið á það sem eðlileg- an hlut að við gætum ekki hætt við í ljósi liðinna atburða." „Það er beinlínis hættiflegt að bjóða ekki rétta fólkinu í brúð- kaup,“ segir Samir. „Ég er úr fiöl- skyldu sem er milli-yfirstétt og við urðum að fara mjög varlega tfl þess að brúðkaupið yrði ekki hneisa fyr- ir fiölskylduna. Það er ekki nóg með að þurfa að bjóða helstu ættingjum og vinum. Það þarf að bjóða ættingj- um ættingja og jafnvel þeirra ætt- ingjum. Síðan þarf að bjóða vinum foreldra og síðan þeirra vinum, að ekki sé minnst á ríkisstjómina og þeim sem henni tflheyra. Þetta geta orðið margar, flóknar og æðflangar keðjur og veisla með tvö tfl þrjú þúsund manns. En vegna ástands- ins í Líbanon þótti mjög viðeigandi að við Bima héldum bara lítið brúð- kaup og það var litið á það með vel- þóknun að við skyldum halda veisl- una í húsi foreldra minna með að- eins um hundrað gesti.“ „Ég var mjög fegin aö veislan yrði fámenn en góðmenn," segir Bfrna, „sérstaklega vegna þess að enginn úr minni fiölskyldu var við- staddur, aðallega vegna þess að dag- inn eftir brúðkaupið fórum við í brúðkaupsferð og mitt fólk hefði þá verið upp á aðra komið.“ „Það voru mikfl viðbrigði að flytja heim,“ segir Birna. „í Amman hafði ég þjóna, garðyrkjumann og bílstjóra. Ég vaknaði klukkan sex á morgnana, borðaði morgunmat með krökkunum og kom þeim í skólann. Síðan fór ég í líkamsrækt eða nudd eða handsnyrtingu, eða eitthvað skemmtflegt til að dekra við sjálfa mig. Það má þó ekki skilja það þannig að ég hafi bara leikið mér. Auðvitað voru skyldur þar eins og annars staðar en það fannst alltaf tími til að sinna sjálfum sér, sem ég tel nauðsynlegt til þess að geta byggt upp sálartetrið. Eftir sjálfsræktina fór ég að versla og kom síðan heim tfl að borða hádegisverð með Samir og krökkunum. Hann var alltaf heima frá tvö til fiögur á daginn. Milli fiög- ur og sjö sinnti ég krökkunum með nám og áhugamál. Klukkan átta voru þau sofnuð. Á kvöldin fórum við svo út, sex kvöld í viku. Þá var yfirleitt hist hjá vinafólki um hálftíu- leytið, við borðuðum eitt- hvað létt og fengum okkur vínglas og síðan vorum við komin heim um hálf- tólf. Þetta var alveg yndis- legt líf. Það var svo gott að fá að njóta lífsins og þurfa ekki að vera á sífelldum þönum með nístandi sam- viskubit út af ókláruðum hlutrnn, uppeldi barnanna og tímaleysi." Þau Samir og Bima ræða um ólika stöðu kvenna á íslandi og í Jórdaníu og undrast is- lenska kvenfrelsið stórum. „Þetta er þrældómur en ekki frelsi,“ segir hann, „og ég hef enga trú á því að hver og ein kona „velji" sér þennan þrældóm. Eins og ég sé það, þá eiga ís- lenskar konur ekki val. Samfélagið krefst þess að þær vinni út og það sést best á því að það er eigin- lega litið niður á konur sem vOja vera heimavinn- andi. Meira að segja konur sem hafa efni á því veigra sér við því. Þetta er óbein kúgun." Eiginkonan er dýrgripur En okkur finnst þið kúga ykkar konur og hafa Kóraninn tfl þess. „Það er engin kvennakúgun í Kóraninum. Hins vegar hafa ýmsir trúarleiðtogar, eins og Ayatollah Khomeini, túlkað Kóraninn tfl að kúga konur. Það þýðir ekki að öll múslímaríki api það eftir honum. Konum í Jórdaníu er ekkert bannað að læra og vinna og fiöldi kvenna gerir það. Og ef við skoðum afstöðu múslímskra karlmanna tfl þessara mála, þá er eiginkonan dýrgripur sem á að fara vel með. Hún er móð- ir barnanna og við lítum á það sem mikinn kost að hún sé vel menntuð. Því betur er hún í stakk búin tfl að byggja upp gott gildismat þeirra og víösýni. Við leggjum mikið upp úr því að eiginkonunni líði vel, helst Ástarsaga frá Jórdaníu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.