Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 JL>V fakamál „Bermúdaþríhymingurinn íMame Sabrina er átján ára en var enn á fóst- urstiginu þegar faðir hennar hvarf spor- laust. Hann hét Serge Havet og var tutt- ugu og eins árs. Þá gegndi hann skyldu- herþjónustu í Mailly-le-Camp, um fjöru- tíu kílómetrum sunnan Chalons-sur- Mame í norðausturhluta Frakklands. Föstudaginn 21. febrúar 1981 hafði hann þrjá mánuði og níu daga að baki í hem- um og hlakkaði til að snúa aftur til borgaralegs lífs en hann sá um vöm- birgðadeild stórs fyrirtækis. Unnusta hans, Gislaine, hafði sagt honum nokkrum vikum áður að hún ætti von á bami með honum. Þau höfðu ákveðið að ganga í hjónaband um sum- arið. En af því varð ekki. Af stað heim Það var siðdegis umræddan fóstudag sem Serge ætlaði í helgarleyfi til Reims, þar sem unnusta hans og foreldrar bjuggu. Einn félaga hans í herdeildinni ætlaði einnig í leyfi og bauð honum far hluta leiðarinnar í bíl sínum. Síðasta áfangann til jámbrautarstöðvarinnar í Chalons yrði Serge þó að ganga, þvi þangað átti félagi hans ekki leið. En Serge kom aldrei heim. Unnusta hans og foreldrar biöu hans án árangurs. Fé- lagi hans í hemum, sá sem hafði gefið honum far, sagði síðar að hann hefði séð hann nærri Chalons en þegar farið var að spyrjast fyrir um Serge á jám- brautarstöðinni þar og við veginn sem hann hefði átt að fara um kannaðist enginn við að hafa séð hann. Móðir Serges hefur ætíð verið þeirrar skoðunar að hann hafi verið myrtur. En það liðu mörg ár þar til henni og öðrum í fjölskyldunni tókst að fá lögregluna tif að sýna málinu áhuga. Fjöldahvarf Á árunum 1980-1987 hurfu átta ungir menn á tiltölulega litlu svæði í Marne-daln- um, miUi Ma- iily-le-Camp, Suippes og Mourmelon. Þar er dimm- ur skógur, djúpar grafir og leifar af virkjum frá fyrra stríði, er þar var barist í skot- gröfúm. Stað- urinn er oft nefndur „Bermúdaþrí- hymingur" Mame. Sá sem fyrstur hvarf var hermaður, Patrick Dubois að nafhi. Til hans sást síðast 4. janúar 1980.20. febrúar 1981 var það Serge Hevets, 7. ágúst sama ár hvarf hermaðurinn Pascal Sergentog þrettán dögum síðar Manuel Carvalho. 30. sept- ember 1982 hvarf svo hermaöurinn Oli- vier Donner en lík hans fannst 30. októ- ber sama ár. 23. ágúst 1985 hvarf ungur starfsmað- ur póstþjónustunnar, Patrice Denis, og 30. apríl 1987 hermaður að nafni Patrick Gache. 30. ágúst 1987 fannst svo iila leikið lík ungs íra, Trevors O’Keefe, en hann hafði verið í skógarferð á þessum hættu- legu slóðum. O’Keefe hafði verið á leið til Calais, þar sem hann ætlaði að taka ferju til Englands. Rannsókn leiddi í ljós að 8 mm svem reipi hafði verið bragðið um háls hans og hann kyrktur. Nokkrir af þeim sem hurfu höfðu ver- ið á leið til jámbrautarstöðvar- innar í Chalons eftir göngustíg- um í Mourmelon-skóginum. Liðhlaupar? í byrjun sýndu yfirvöld hvarfi ungu mannanna lítinn áhuga. Bæði lögreglan og her- inn héldu því fram að flestir heföu gerst liðhlaupar. Á þeim tíma struku 6000-7000 menn ár- lega úr herþjónustu i Frakk- landi, og var einkum um kennt hve heraginn væri mikill. Yfir- menn heijanna vildu lítið ræða þessi mál og tjáðu sig helst ekki um þau. Það varð aftur til þess að vamarmálaráðuneytið í Par- ís bar til baka fréttir í blöðum um að geðsjúkur morðingi héldi til í skóginum I „Bermúdaþrí- hymingnum" í Mame. Sagði ráðuneytið að um væri að ræða æsifréttir. Aðrar sögur gengu einnig. Þær vora á þá leið að útsendar- ar óvina ríkisins, það er menn á vegum Varsjárbandalagsins, sætu fyrir ungum hermönnum i leyni og réðu þeim bana. Breytíng verður á Dag einn var nýr maður, Joel Vailla- int, höfuðsmaður í herlögreglunni, skip- aður yfirmaður þeirrar deildar lögregl- unnar í Reims sem hafði það að verk- efni að upplýsa mannshvörf. Hann ákvað að hefja sérstaka rannsókn á hvarfi hermannanna. Vaiflaint fékk tO liðs við sig aðstoðarforingja, Marie Tabes. Var nú farið gaumgæfilega yfir allt sem tengdist hverju máli fyrir sig. Pierre Chanal Að ofan má sjá Serge He- vet með unnustu sinni. Rætt var við ættingja hinna horfnu og reynt að afla upplýsinga sem leitt gætu í ljós hvort um morð væri að ræða eða ekki. „Ef þeir hefðu gerst liöhlaupar hefðu þeir komið fram,“ sagði Vaillaint. „Venjulega láta þeir frá sér heyra þegar þeir telja að herinn hafi hætt að sýna þeim áhuga.“ Leit var nú gerð í skóginum við þann stað þar sem mennimir voru taldir hafa horfið. En þrátt fyrir að hún stæði nokkuð lengi og væri nákvæm fúndust aðeins lík tveggja af mönunum átta. gögnin sem hann hafði safnað um mannshvörfm fylltu möppur sem vora sumar jafnþykkar og simaskrár. 9. ágúst 1988 urðu þáttskil í rannsókn- inni. Þá reyndi sterkvaxinn, ljóshærður maður í grænum Volkswagen-bíl af komast framhjá vegatáima lögreglunnar við Macon í Bourgogne. Hann afsakaði hegðun sína með því að hann væri und- irliðsforingi og á hraðferð til herbúða sinna. Hann var beðinn að sýna skílríki og kom þá fram að hann hét Pierre Chanal og var næstæðsti maður reið- skóla hersins í Fontainbleu utan við garísf NLögregluþjónamir sem stöðvuðu hann heyrðu undar- legt hljóð aftan í bílnum. Það reyndist koma frá ungum manni sem lá þar undir teppi, hlekkjaður með jámkeðju. Hann haföi verið keftaður með vasaklút svo hann gæti ekki hrópað. Leit tæknideildarmanna Ljóst var að hér var eitthvað óvenjulegt á ferð. Er ungi mað- urinn í aftursætinu hafði verið tekinn úr hlekkjunum og gat farið að tala skýrði hann svo frá að hann væri Ungveiji og héti Balazs Falvay. Hann sagði Chanal hafa ráðist á sig og síð- an nauðgað sér, eftir að hafa boðið sér far. í íbúð Chanals fundust hlekkir, spor- ar og pískar, en einnig myndbandstöku- vél. Frekari leit leiddi i ljós um fimmtíu sundskýlur af ýmsum stærðum. Fyrir lá nú að eitthvað verulega athugavert var við þennan hermann sem hafði reynt að aka hjá vegatálma lögreglunnar. Var því ákveðið að kalla til tæknideildar- menn hennar. Var þeim meðal annars Hér tll hægrí, í réttri tímaröó, má sjá mennina sem hurfu. fengið það verkefni að rannsaka bíl Chanals. Allt var til tínt sem i bílnum fannst og mátti í raun segja að farið væri yfir hann með smá- sjá. Afraksturinn varð meðal annars rúmlega ftögur hundrað og fimmtíu höfuð- og líkamshár af ýmsum mönnum. Skýringin Chanal gaf þá skýringu að hann væri hommi og haldinn kvalalosta. Hann vildi kvelja karlmenn en eiga siðan með þeim ástarleik. Hann sagðist hins vegar geta fullvissað lögregluna um að hann væri ekki morðingi. Málið var sent saksóknara sem ákvað að ákæra Chanal. Hann fékk síðan tíu ára fangelsi fyrir að hafa rænt og nauðg- að Falvay. Margt þótti hins vegar komið fram sem benti til þess að Chanal væri morðing- inn úr Mourmelon-skógi. Sýnt hafði verið fram á að for eftir bíl hans fundust á bfla- stæði við skóginn, skammt frá þeim stað þar sem lík Irans O’Keefes hafði fúndist. Þá sýndi athugun að á áranum 1977- 85 hafði Chanal gegnt herþjónustu í sveit í Mourmelon, ekki ftarri þeim stað þar sem ungu hermennimir höfðu horfið. í þriðja lagi var hinn grunaði þekkt- ur fyrir afbrigðilegar hvatir og í fjórða lagi hafði hann oft verið staðinn að ósannindum. Bíður nýrra réttarhalda DNA-sýni af háram sem fundust í Volkswagen-bílnum hafa sýnt að nokkr- ir mannanna sem hurfu vora farþegar í honum. Allt það sem fram hefur komið eftir hand- töku Chanals og dóminn yfir honum hefur orðið til þess að búist er við að hann komi fyrir rétt Reims á næsta ári. Hann hefur afþlánað dóminn sem hann fékk, er nú frjáls maður, býr hjá systrum sinum og fær eftirlaun frá hemum. Ættingjar hinna horfnu hafa gagn- rýnt frönsku lögregluna fyrir að hafa staðið illa að málinu. Lítill vafi leiki á að mennimir átta hafi allir verið myrt- ir. Þá leiki jafnvel granur á að lögreglan hafi leynt vissum gögnum sem gætu orðið tfl þess að koma sök á Chanal. „Það er eins og lögreglan hafi viljað horfa hjá því að maður úr hemum geti verið morðinginn," segir Gerard Schemla en hann er lögmaður ættingja margra hinna horfnu. Pascal Sergent Afstaða Chanals Leitað hefur verið til Pierres Chanals vegna líkanna á að hann verði á ný dreginn fyrir rétt, í þetta sinn til að svara til saka fyrir allt að átta morðum. Hann hefur ekki verið margmáll í svörum en lét þó þau orð falla að hann myndi ekki koma fyrir rétt þó honum yrði skipað það. „Frekar myndi ég fremja sjálfsvig en gangast við morðum á átta mönnum," sagði hann. Handtaka Vaillaint fékk ákúrur yfir- manna fyrir að sóa tíma og fé í að leita líkanna. Hann taldi sig þó hafa haft næga ástæðu til þess að fyrirskipa leitina því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.