Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 TlV ég á mér draum Atta borð á Sikiley Sigursteinn Másson, fréttastjóri á Skjá 1, vildi breyta heiminum þegar hann var barn og núna langar hann til að koma sér upp litlu kaffihúsi þar sem hann getur stúderað kúnnana og tekið sína síestu með flösku af góðu rauðvíni. Rannsóknarblaðamaðurinn Sigur- steinn Másson er nýtekinn við stöðu fréttastjóra á Skjá 1 sem ætlar að heíja íréttaútsendingar í fyrri hluta október- mánaðar. Segja má að þar með sé Sig- ursteinn kominn í draumastarfið en það þýðir ekki að allir hans draumar hafi ræst. „Það er nú ekki ailur hasarinn kom- inn í gang enn þá,“ segir Sigursteinn, „en þegar það gerist mun ég leggja mig út af þegar ég hef til þess næði, loka augunum og láta mig dreyma um að opna lítið kaffihús, ekki með meira en átta borðum, einhvers staðar á Sikiley. Ég get hins vegar ekki hugsað mér að hverfa alveg inn í endaiaus rólegheit, og því myndi ég vilja vera í einhverju þorpi á Sikiley þannig að ég gæti að- eins velt því fyrir mér hvaða bakgrunn kúnnamir hefðu; hvort þeir væru í maflunni eða hvort þeir væru tengdir. Þannig gæti ég sinnt mínu áhugamáli sem rannsóknarblaðamaður um leið og ég bara lokaði kafiihúsinu, tæki mér síestu og rölti niður á strönd með stóran kút.“ Vill lifa í spennu og slökun í senn Hvers vegna Sikiley? „í fyrsta lagi út af veðurfarinu og stemningunni sem ég ímynda mér að sé þar en hef bara kynnst í gegnum kvikmyndir og í öðru lagi út af mafi- unni. Mér finnst mjög gaman og áhugavert að leita eftir upplýsingum og lifa í ákveðinni spennu, um leið og mér fmnst yndislegt að geta kúplað frá og slakað á í hita, sól og ólífuoliu, með gott Chianti-rauðvín." Hefúrðu látið drauma rætast? „Já, já, auðvitað hef ég látið drauma mína rætast, bæði í einkaltíi og líka faglega drauma. Þótt það hafi verið mjög erfitt og margar hindranir á veg- inum var það draumur sem rættist þegar Geirfinnsþættimir urðu til og öll viðbrögðin sem þeir ollu. Það var minn hápunktur í fréttamennsku. Ég hafði ekki átt þann draum lengi, en eft- ir að ég byrjaði að skoða málið vissi ég að ég yrði að gera þessa þætti, sama hvað þeir kostuðu." Hvað langaði þig til að verða þegar þú varst bam? „Ég gekk einhvem veginn með þann undarlega draum þegar ég var bam að þegar ég yrði stór vildi ég breyta heim- inum. Ég var dálítið skrýtið bam að því leytinu til að ég tók ógurlega nærri mér allt sem mér fannst vera óréttlæti og mig langaði til að ná ffarn breyting- um. Ég varð mjög snemma upptekinn af því og ailir mínir leikir snemst um að hið góða sigraði að lokum. Og ég vildi taka þátt í því. Hvemig ætlaðirðu að fara að því? „Ég held að það hafi ekki verið mjög úthugsað en það hvarflaði ekki að mér að þetta yrði auðvelt." Langaði þig til að verða einhvers konar Kristur? „Nei, mér datt hann ekki einu sinni í hug, en mér fannst að ég og ailir aðr- ir hefðu eitthvert ákveðið hlutverk. Ég ólst upp einn með móður minni, sem er óskaplega góð og heilsteypt mann- eskja, við þröngan kost og einhvem veginn var hún, ásamt afa, svo dugleg við að innræta mér réttlætiskennd sem mótaði mig mjög sterkt til að byija með. Nálgast að láta æskudrauminn rætast Þegar maður fer svo að vinna sem fféttamaður, með þessa innrætingu og þessar hugmyndir um að allt sem mað- ur geri eigi á einhvem hátt að leiða fram sannleika og leiða til réttlætis, þá er auðvelt að misstíga sig. Og það hef- ur gerst. Engu að siður er ég mjög upp- tekinn af því að það skipti mjög miklu máli hvernig maður breytir. Mér fmnst ég alltaf vera að nálgast það meira og meira að minn æskudraum- ur rætist." Heldurðu að heiminum sé við bjarg- andi? „Já, algerlega. Öfugt við marga hef ég fulla trú á mannskepnunni." Hvað er það fyrsta sem þyrfti að koma tfi skila til þeirrar mannskepnu? „Eitt af því fyrsta sem hægt væri að gera, og væri tiltölulega einfalt, væri að skipuleggja túristaferðir til Kosovo í staðinn fyrir Benidorm. Það þarf til að byrja með að hugsa þetta í einfóld- um lausnum. Ég er sannfærður um að ef aimenningur á Vesturlöndum - þar sem mikilvægustu ákvarðanir um heiminn í heild sinni eru teknar - fengi að kynnast því sem er að gerast i þriðja heiminum færi margt að breyt- ast. í fyrra fór ég til Kosovo, sem var mjög erfitt og sársaukafullt. Til dæmis það að horfa í augun á eliefu ára gam- aili stúlku sem hafði misst alla fjöl- skylduna sína í vikunni áður og kom- ist lífs af með því að fela sig í líkum systkina sinna í rústunum. Maður verður algerlega vamarlaus, brotnar saman og grætur. Eftir að hafa kynnst þessu lít ég lífið allt öðrum augiun. Þessi flötur þarf að sjást meira í frétt- unum. Það þarf að nálgast hlutina á persónulegan hátt, þannig að fólk geti skilið þessar aðstæður." -sús fimm breytingar Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er aö gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum ver- ið breytt. Finnir þú þessi fimm at- riði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okk- ur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigur- vegaranna. 1. verðlaun: United-sími með símanúmerabirti frá Sj ón varpsmiðstöðinni, Síöumúla 2, að verðmæti kr. 6.990. Finnur þú fimm breytingar? 532 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kólibrísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir veróa sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 532 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Æðislegt, ekki satt? Þetta er það nýjasta í bransanum. Þegar bensínverð rýkur upp úr öllu valdi fórnar bíllinn sér til þess að þú farir ekki á hausinn. Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir getraun númer 530 eru: 1. verðlaun: Svandís Björk Ólafsdóttir, Starengi 24, 112 Reykjavík. 2. verðlaun: Auður Jónsdóttir, Stjörnugróf 27,108 Reykjavík. BRETLAND SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Tom Clancy: Rainbow Six. 2. Danielle Steel: The Klone and I. 3. J.K. Rowllng: Harry Potter and the Philosopher's Stone. 4. Sebastlan Faulks: Charlotte Grey. 5. J.K. Rowllng: Harry Potter and the Chamber of Secrets. 6. James Patterson: When the Wind Blows. 7. Charlotte Blngham: The Kissing Garden. 8. Nlcholas Evans: The Loop. 9. Elvi Rhodes: Spring Music. 10. Jane Green: Mr Maybe. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Alex Ferguson: Managing my Life: The Autobiography. 2. Collins Gem English Dictionary. 3. Oxford Popular Dictionary. 4. Chris Stewart: Driving over Lemons. 5. Amanda Foreman: Georgina, Duchess of Devonshire. 6. Collins Gem French Dictionary. 7. Anthony Beevor: Stalingrad. 8. Oxford Popular French Dictionary. 9. Frank McCourt: Angela's Ashes. 10. Angus J. Kennedy: Internet: The Rough Guide. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. J.K. Rowllng: Harry Potter and the Prisoner of Azkaban. 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Danielle Steel: G'ranny Dan. 4. lain Banks: The Business. 5. Elizabeth George: In Pursuit of the Proper Sinner. 6. Kathy Relchs: Death Du Jour. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Alex Ferguson: Managing My Life. 2. David West Reynolds: Star Wars Episode 1: The Visual Dictionary. 3. Robert Lacey & Danny Danziger: The Year ÍOOO. 4. Rlchard Holmes: The Western Front. 5. Matt Groening: Bart Simpson's Guide to Life. 6. Lenny McLean: The Guv'nor. ( Byggt á The Sunday Tlmes) BANDARÍKIN SKÁLDSÖGUR - KIUUR: SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha. 2. Anita Shreve: The Pilot’s Wife. 3. Tom Clancy: Rainbow Six. 4. Judy Blume: Summer Sisters. 5. Margaret Truman: Murder at Watergate. 6. Helen Fieldlng: Bridget Jones' Diary. 7. John Irving: A Widow for One Year. 8. Sandra Brown: Unspeakable. 9. Bernard Schllnk: The Reader. 10. Patricia Cornwell: Point of Origin. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Frank McCourt: Angela's Ashes. 2. John Berendt: Midnight in the Garden of Good and Evil. 3. Robert C. Atklns: Dr. Atkins' New Diet Revolution. 4. Jared Dlamond: Guns, Germs and Steel. 5. J. Canfield o.fl.: Chicken Soup for the College Soul. 6. lyanla Vanzant: Don’t Give it Away. 7. Adellne Yen Mah: Falling leaves 8. Stephen R. Covey: The Seven Habits of Highly Effective People. 9. William Pollack: Real Boys 10. Kenneth H. Pollack o.fl.: The One Minute Manager. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Patricla Cornwell: Black Notice 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Mellssa Bank: The Girl’s Guide to Hunting and Fishing 4. Catherine Coulter: The Edge. 5. Tim F. LaHaye: Assasins. 6. Jeffery Deaver: The Devil s Teardrop. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Mltch Albom: Tuesdays with Morrie. 2. Bob Woodward: Shadow: Five Presidents and the Legacy of Watergate. 3. Chrlstopher Andersen: Bill and Hillary: The Marriage 4. Tom Brokaw: The Greatest Generation. > 5. lyanla Vanzant: Yesterday I Cried. G. Blll Philips: Body for Life. ( Byggt á The Washlngton Post)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.