Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
7
JDV
Fréttir
Vegstæöi um Kerlingarskarö eða Vatnaheiði?
Báðir kostir
vekja deilur
- ákvörðunar skipulagsstjóra að vænta á föstudag
DV, Vesturlandi:
Úrskurður skipulagsstjóra um
vegabætur á Snæfellsnesi er vænt-
anlegur á föstudag. Hvor leiðin sem
valin verður mun verða kærð sam-
kvæmt heimildum DV og vekja
heiftarlegar deilur. Verði Kerlingar-
skarðsleiðin ofan á munu íbúar á
Snæfellsnesi kæra og ef vegur yfir
Vatnaheiði verður valinn þá munu
umhverfissinnar, bændur og fleiri
kæra. Þvi getur farið svo að Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
fái það verkefni að úrskurða í mál-
inu.
Vegagerðin hefur undanfarið
unnið að undirbúningi vegafram-
kvæmda yfir Vatnaheiði. Um er að
ræða nýjan veg sem myndi leysa af
hólmi veginn um Kerlingarskarð.
Mai'kmiðið með nýju vegstæði yfir
Vatnaheiði er að bæta samgöngur
og auka umferðaröryggi vegfar-
enda, Snæfellinga sem annarra.
Sveitarstjórnarmönnnum vestra
þykir enginn vafi leika á að Vatna-
heiðin, sem liggur eilítið vestar, sé
mun betri kostur, 90 metrum lægri
leið og brekkur ekki jafn hrikalegar
og á Kerlingarskarði.
Vegurinn um Kerlingaskarð ligg-
ur hátt, mesta hæð er 320 metrar
yfir sjávarmáli, á honum eru krapp-
ar beygjur, blindhæðir og brattar
brekkur. Vegurinn er sérlega erflð-
ur yfirferðar á vetrum. Nýr vegur
um Vatnaheiði þykir mikið hags-
munamál meðal margra Snæfell-
inga, Vestfirðinga og annarra veg-
farenda sem eiga leið með ferjunni
Baldri yflr Breiðafjörð. -DVÓ
Yfirdýralæknir vegna hugsanlegs Kötlugoss:
Skrásetja verður öll
dýr á hættusvæðum
DV, Selfossi:
Yfirdýralæknir hefur sent frá sér
tilkynningu um viðbrögð embættis-
ins gagnvart hugsanlegu eldgosi. í
henni segir að fyrstu viðbrögð skuli
vera að kalla saman dýralækna á
fund í gosráði og gera strax ráðstaf-
anir til að sýni verði tekin af ösku
til flúormælinga. Til þess eigi að
hafa samband við jarðfræðinga og
aðra gosmenn og virkja þá til sýna-
töku, einnig eigi að fá veðurathug-
unarfólk til verksins og hvetja al-
menning til að fylgjast með ösku-
falli með því að setja út hvíta diska.
Fylgjast eigi með og skrá atburða-
rás og það hvernig áhrif hún hafi á
land og skepnur.
Fylgjast verði grannt með veður-
spá og samkvæmt henni á að ráða í
horfur á öskufalli.
Finna þarf út hvaða skepnur
verði hugsanlega í hættu og miða
leiðbeiningar við það. Athuga verði
drykkjarvatn á væntanlegum ösku-
fallssvæðum og benda sérstaklega á
Mýrdælingar eru að verða við öllu
viðbúnir og menn gleyma ekki bú-
stofni sínum og gæludýrum.
Mynd Njörður
hugsanlega hættu af grunnum vötn-
um og pollum ef öskufall verður. Þá
segir að ef búfé verði fyrir eitrun
verði að leggja mat á hollustu af-
urða af þeim svæðum.
í tilkynningu yfirdýralæknis segir
að hluti af gosviðbúnaði sé að skrá-
setja fjölda búijár á hugsanlegum
hættusvæðum og gera gæludýratal.
Hafa verði tilbúnar leiðbeiningar til
bænda og annarra sem eiga fénað úti
og aðrar skepnur í hættu. Þær leið-
beiningar yrðu mismunandi eftir
árstíð, hvaða skepnur væri um að
ræða og aldur þeirra, magn flúors i
öskunni, hvernig gos hagi sér og
hvert askan frá því berist.
Leiðbeiningamar mundu snúast
um smölun búpenings, hýsingu,
fóðrun og drykkjarvatn sem meng-
ast gæti. Þá ráði einkenni bráðrar
og langvinnrar eitrunar af flúori og
öðrum gosefnum viðbúnaði. Einnig
þurfl að huga að meðferð annarra
dýra (til dæmis gæludýra) ef þarf að
flytja af staðnum menn og dýr.
Sameinaði lifeyrissjóðurinn
Að lokum segir að ungviði sé í
mestri hættu vegna langvinnra
áhrifa. Þá sé kvendýrum hætt við
doða á seinni hluta meðgöngu og
um burð. -NH
Vegagerðarmenn að vinnu í Kerlingarskarði fyrir nokkrum dögum. DV-mynd S.
I swöfelai
og viðskiptavina
| Afgreiðslutími
Frá 16. september - 1. maí er skrifstofa sjóðsins opin frá kl. 9.00 - 17.00 alla virka daga.
| Yfirlit send til sjóðfélaga
Hinn 17. september 1999 voru send yfirlit til allra greiðandi sjóðfélaga yfir skráð iðgjöld frá
1. janúar 1999 til 31. ágúst 1999. SjóðféLagar eru hvattir til að bera þau saman við Launaseðla.
Beri þeim ekki saman er áríðandi að hafa strax samband við sjóðinn því dýrmæt réttindi geta
gLatast vegna vanskiLa á greiðsLum.
| YfirLit í Séreignardeild
YfirLit hafa veriö send tiL aLlra aðiLa sem greiddu í séreignardeild Sameinaða Lífeyrissjóðsins fyrir
tímabiLið 1. janúar 1999 tiL 1. júlí 1999. AðiLar eru hvattir til að bera þau saman við LaunaseóLa.
Beri þeim ekki saman er áríðandi að hafa strax samband við atvinnurekanda eða sjóðinn.
[p | Ný heimasíða
Á síðunni er að finna fLestar uppLýsingar um Lífeyrissjóðinn. Hægt
er að sækja um Lífeyri og sjóðféLagaLán, reikna út væntanLegan
Lífeyri, finna greiðsLubyrði af sjóðféLagaLánum og fyLLa út umsókn
um séreignarsparnað.
Ufeyrir
Sameinaði
lífeyrissjóðurinn
Sími: 510 5000
Fax: 510 5010
Grænt númer: 800 6865
Heimasíða: lifeyrir.is
Netfang: mottaka@lifeyrir.is
Vinsamlegast athugið nýtt heimilisfang okkar að Borgartúni 30.