Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 Útlönd Stuttar fréttir r>v Gorbatsjov átti erfitt meö aö stööva táraflóö Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum Sovétleiðtogi, átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann sneri heim til Moskvu í gær með lík Raisu eiginkonu sinnar. Raísa lést á sjúkrahúsi i Þýska- landi í fyrradag. Banamein henn- ar var hvítblæði. Hún var 67 ára. „Við fórum héðan fyrir meira en tveimur mánuðum með miklar vonir í farteskinu. Við vorum enn vongóð fyrir þremur eða fjórum dögum. Núna er þetta allt horfið," sagði Gorbatsjov, umvafmn fjöl- skyldu dóttur sinnar og öðrum vinum. Raísa verður jarðsett í Moskvu á morgun, fimmtudag. Noröur-írskir leiötogar mildir Leiðtogar stríðandi fylkinga á Norður-írlandi ræddust við í tvo tíma i gær, að undirlagi Georges Mitchells, sáttasemjara Banda- ríkjastjómar, og var mildari tónn í þeim á eftir en oft áður. Þeir sögðu að frekari fundahöld væm fyrirhuguð á næstunni. Fylkingamar tvær höföu fyrir fundinn skipst á ásökunum um að bera ábyrgð á þeirri sjálfheldu sem friöarviðræðumar væm komnar í. FBI segir menn Jeltsíns viöriöna peningaþvott Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur fundið samband á milli náinna samstarfsmanna Borís Jeltsíns Rússlandsforseta og New York-banka þar sem þvegnir hafa verið peningar. Hefur FBI upp- götvað aö tengdasonur Jeltsíns, Leonid Dytsjenko, eiginmaður Tatjönu, dóttur Jeltsíns, og Pavel Borodin, forstjóri fyrirtækisins sem hefur mnsjón með eignum Rússlandsforseta, hafi fært pen- inga gegnum New York-banka. Þetta kemur fram í dagblaðinu New York Times. FBI getur ekki sagt hvort tengdasonur Jeltsins á reikning í bankanum. Upphæðirn- ar, sem bæði tengdasonurinn og Borodin millifærðu, eru sagðar umtalsverðar. Vladimir Pútín, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, segir að bandarískum rannsóknarmönnum hafi ekki tekist að sanna að Rúss- land tengist peningaþvotti. FuUyrt var í síðasta mánuði að Rússar væru viðriðnir peningaþvott eftir að sannanir fundust fyrir því að 15 milljarðar dollara höfðu verið þvegnir í bandarískum bönkum. Peningarnir eru sagðir koma frá rússnesku mafíunni og rússnesk- um embættismönnum. Er jafnvel taliö að um sé að ræða lán frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Sérfræðingar í rússneskum mál- efnum vöruöu í gær bandaríska þingið við því að hin víðtæka spill- ing og skipulagða glæpastarfsemi í Rússlandi gæti ógnað Bandaríkj- unum og öllum heiminum yrði ekkert að gert. Segja sérfræðing- arnir að spillingin hafi náð fót- festu meðal ráðamanna og í við- skiptalífinu í Rússlandi löngu fyr- ir hrun Sovétríkjanna. Rúmlega sautján hundruð látnir á Taívan: Eftirskjálftarnir torvelda björgun Öflugir eftirskjálftar skóku Taív- an í morgun og torvelduðu mjög ör- væntingarfullar tiiraunir leitar- sveita til að bjarga þúsundum manna sem enn eru undir rústum hruninna húsa. Tala látinna eftir jarðskjálftann á þriðjudagsmorgun, þann öflugasta sem skekið hefur Taívan, var kom- in í 1.712 í morgun. Óttast er að hátt í þrjú þúsund manns séu enn grafin í húsarústum, flestir í tveimur sýsl- um um miðbik eyjarinnar. Stærstu eftirskjálftarnir í morgun mældust 6,8 og 6,3 stig á Richter. Skjálftinn i gærmorgun mældist 7,6 stig. Meira en tvö þúsund eftir- skjálftar hafa komið. Heilsugæslustöðvar á Taívan voru yfirfullar af fólki sem þurfti á læknishjálp að halda eftir skjálft- ann. Um fjögur þúsund slösuðust í hamfórunum. Gefin var út áskorun til allra lækna um að gefa sig fram við næsta sjúkrahús til að annast hina slösuðu. Sjónvarpið á Taívan sýndi átak- anlegar myndir þar sem verið var að bjarga fólki úr hrúgum af undnu stáli og steinsteypu í höfuðborginni Taipei og i borginni Taichung í mið- hluta landsins. Björgunarsveitir og leitarhundar frá Bandaríkjunum, Þýskalandi, Rússlandi, Singapore og Tyrklandi eru komnar til Taívans til að að- stoða við leitina. Ágætisveður hefur verið á Taívan frá því skjálftinn reið yfir og hefur það gert þeim auðveldara fyrir sem þurfa að hafast við úti. Tugir þús- unda manna ýmist þora ekki að snúa aftur til síns heima eða hafa misst heimili sín. Unnið hefur verið að þvi að koma rafmagni aftur á en víða var þó ekk- ert slíkt að hafa. Aðeins tveir af sex kjarnaofnum á Taívan gengu eðli- lega í morgun. Ekki er enn Ijóst hversu mikið tjón efnahagslífið á Taívan verður fyrir af völdum skjálftans. Helsti efnahagsspekingur stjórnvalda sagðist í morgun óttast að ekki tæk- ist að ná áætluðum hagvexti á þessu ári. Hann sagði þó að nægir pening- ar væru til í sjóðum til að leggja í björgunar- og uppbyggingarstarf. Allir helstu flugvellir og hafnir landsins störfuðu eðlilega í morgun og viðskipti í kauphöllinni urðu ekki fyrir miklum truflunum af völdum jarðskjálftans. íbúar í Chai-I á Taívan brustu í grát eftir að hús þeirra hrundu til grunna í jarðskjálftanum mikla í gærmorgun. Tæp- lega tvö þúsund manns eru látin og um þrjú þúsund eru enn grafin undir húsarústum. Vegir urðu illa úti í skjáiftanum og rafmagnslaust varð mjög víða. Erlendar björgunarsveitir eru komnar til eyjarinnar til að aðstoða heimamenn. Tugir þúsunda kröfðust afsagnar Milosevics Yfir 25 þúsund manns söfnuðust saman í gærkvöld í miðborg Belgrad í Serbíu til þess að krefjast afsagnar Slobodans Milosevics Júgóslavíuforseta. Sams konar fiöldafundir voru haldnir í 20 borg- um víðs vegar um Serbíu. ÍNovi Sad tóku 7 þúsund þátt í mótmæla- fundi og 10 þúsund voru sögð hafa komið saman í Nis. Skipuleggjendur fundanna hvöttu almenning til að halda áfram daglegum mótmælum þar til Milosevic og stjóm hans færi frá. „Þið verðið að vekja áhuga hinna. Talið við nágranna ykkar og hring- ið í ættingja ykkar og fáið þá til að koma hingað," sagði Zoran Djindjic, leiðtogi Lýðræðisflokks- ins, við mannfiöldann sem safnast hafði saman í rigningunni í Belgrad. Sagði Djindjic hættu á að mótmælin rynnu út í sandinn yrði Mótmælandi í Belgrad með grímu sem á að tákna Milosevic. þátttakan ekki næg. Ekki eru allir bjartsýnir á að mótmælagöngurnar hafi áhrif. „Milosevic fer ekki frá fyrr en Vesturlönd hafa tekið ákvörðun um að fiarlægja hann,“ sagði ungur námsmaður sem tók þátt i mótmæl- unum í Belgrad í gær. J..öiTeglan hefur ekki bannað fióidunióf:.r:.í;in. Nokkrir náms- menn vora jió iiandteluiir nýlega þegar þeir reyndu að sat'na fé til stuðnings baráttunni fyrir afsögn Milosevics. Stjórnin í Belgrad hefur hafið áróðursherferð gegn stjórnarand- stöðunni. Er stjórnarandstaðan með- al annars, ásamt albönskum aðskiln- aðarsinnum, sökuð um að reyna að sundra landinu. Samtímis hófu yfir- völd greiöslu á lífeyri sem dregist hafði lengi. Var það tilraun stjórn- valda til að bæta ímynd sína. Harðger alnæmisveira Vísindamenn hafa áhyggjur af því að æ algengara verður að lyf vinni ekki á afbrigði af alnæm- isveirunni. Njósnir rannsakaðar Jack Straw, innanríkisráðherra Bretlands, kvaðst í gær hafa skipað rannsókn á njósnahneyksl- inu sem skekið hefur bresku þjóðina. 87 ára gömul kona og fyrrverandi lög- reglumaður hafa nýlega viður- kennt njósnir fyrir rússnesku leyniþjónustuna, KGB. Háskóla- kennari hefur einnig viðurkennt njósnir fyrir austur-þýsku leyni- þjónustuna, Stasi. Melluskóli í Belgiu Hagsmunasamtök vændiskvenna í Belgíu hafa stofnað skóla. í hon- um á að kenna kynlífstækni, hrein- læti, bókfærslu og markaðssókn. Skólinn verður opinn fyrir alla. Skólp í dýrafóðri Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins íhugar að setja strangari reglur um dýrafóður vegna upp- ljóstrana um skólp og eiturefni í fóðrinu. Bílar í banni I dag loka yfir 150 borgir í Frakk- landi og á Ítalíu götum sínum fyrir bílaumferð. Hvetja á ökumenn til að nota almenningsfarartæki. Minnismerki reist Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir í blaðaviðtali í dag að minnismerki verði reist til heiðurs Diönu prinsessu. Um verður að ræða gosbrunn í einum af konunglegu görðunum i London. „Það er mikilvægt að við heiðrum minn- ingu þess sem var ekki aðeins kær þjóðinni heldur kom einnig miklu til leiðar. Svíi særist í loftárás Sænskur blaðamaður særðist í gær þegar hann fékk glerbrot i brjóstið er sprengja féU fyrir fram- an bil hans við bæinn Ur í írak. Sprengjunni var varpað úr flugvél bandamanna. Mótmæli hjá NATO Um eitt þúsund manns efndu til mótmælaaðgerða fyrir utan hótel í Toronto í Kanada í gær þar sem varnarmálaráðherrar NATO snæddu saman. Fólkið vildi mót- mæla loftárásum bandalagsins á Kosovo I vor. Tafir á eldsneyti Slæmt veður kom í veg fyrir það í morgun að annað tveggja breskra skipa með farm af geislavirku elds- neyti gæti lagst að bryggju í Japan. Flutningur skipanna hefur komið af stað miklum mótmælum um heim aUan. Dýr ferðalög Clintons Bandaríska rikisendurskoðunin greindi frá þvi í gær að þrjár utan- landsferðir BiUs Clintons Banda- ríkjaforseta . hefðu kostað skattgreið- endur sem svarar rúmum fimm milljörðum ís- lenskra króna. Ferð Clintons tU Afríku kostaði um þijá miUjarða, til ChUe um átta hundruð mUljónir og um þrettán hundruð miUjónir króna kostaði ferð forsetans tU Kína. Ekki í forsetaslag Sauh Niinisto, vinsæU fiármála- ráðherra Finnlands, sagðist í gær ekki ætla að bjóða sig fram í for- setakosningunum á næsta ári. Útlit er því fyrir að baráttan standi miUi tveggja öflugra kvenna, Elisabethar Rehn og Törju Halonen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.