Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
9
Utlönd
Breskir Qölmiölar um deilu Sophie og drottningar:
Vígasveitir aftur á kreiki í Dili:
Sophie neitar
að láta undan
Bresku æsifréttablöðin greindu
frá því í morgun að risin væri
hörkudeila milli Sophie, greifynju
af Wessex og eiginkonu Játvarðar
prins, og Elísabetar Englandsdrottn-
ingar. Blaðið Sun vitnar í bréf sem
Sophie á að hafa skrifað viðskipta-
vinum almannatengslafyrirtækis
sins. Fullyrðir blaðið að Sophie hafi
neitað að láta undan þrýstingi
drottningar um að velja á milli
starfs síns og konunglegra skyldu-
starfa.
Blaðið Daily Mail heldur því fram
að konungsfjölskyldan hafi áhyggj-
ur af tveggja vikna viðskiptaferð
Sophie til New York í næsta mán-
uði.
Samkvæmt Daily Mail höfðu
Sophie og Játvarður vonast eftir
stuðningi Karls prins. Hann á hins
vegar að hafa neitað þar sem hann
hafi miklar áhyggjur af árekstri á
milli fyrirtækjarekstrar Sophie og
Sophie, eiginkona Játvarðar prins.
Símamynd Reuter
Játvarðar og skyldustarfa þeirra
fyrir konungsfjölskylduna.
Játvarður hefur gert heimildar-
mynd um bresku konungsfjölskyld-
una sem fyrirtæki hans hefur selt
bandarískum sjónvarpsstöðvum.
Sophie hefur auglýst allt frá lúxus-
bifreiðum til glæsilegra verslana.
Hún hefur að undanfornu sætt
harðri gagnrýni fyrir að hafa látið
taka myndir af sér á bilasýningunni
í Frankfurt við nýjustu gerð Rover.
Sagt er að viðskiptasamningur
hennar við bílaframleiðcmdann hafi
hljóðað upp á um 30 milljónir is-
lenskra króna.
Sagt er að drottningin hafi verið
undrandi á því að tengdadóttir
hennar hefði fallist á að láta taka
auglýsingamynd af sér.
Fjölmiðlar hafa gagnrýnt Sophie
og segja hana nota tengsl sín við
bresku konungsfjölskylduna í hagn-
aðarskyni.
Þessi tíbetska búddanunna gat ekki varist því að flissa svolítið þegar hún var búin að setja á sig nýju húfuna sem
hún fékk í heimsókn sinni í kanadíska þinghúsið í Ottawa. Stöllur hennar fyigjast með af athygli. Ellefu nunnur frá
Katmandú í Nepal eru í menningarreisu um Norður-Ameríku og fengu allar húfur þegar þær heimsóttu Ottawa.
Blaðamaður drepinn
Yfirmaður friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna í Dili, hér-
aðshöfuðborg Austur-Tímor,
sagði í morgun að svo virtist sem
vígasveitir sambandssinna væru
aftur komnar á kreik, á sama
tíma og flóttamenn væru famir
að snúa aftur til síns heima.
Viðvörunin var gefln út eftir að
hollenskur blaðamaður, sem
starfaði fyrir breska blaðið Fin-
ancial Times, var skotinn til bana
í einu úthverfa Dili þegar skyggja
tók í gær. Sjónarvottar segja að
hann hafi verið skotinn af mönn-
um í einkennisbúningum
indónesíska hersins.
Ráðist var á tvo aðra vestræna
fréttamenn og austur-tímorskan
bilstjóra þeirra í gær. Þar voru að
verki vígasveitir stuðningsmanna
Indónesíustjórnar. Hersveitir SÞ
björguðu fréttamönnunum.
Hundmð hungraðra íbúa Aust-
ur-Tímor létu greipar sópa um
matvælageymslur í eigu hins op-
inbera í Dili í morgun. Þeir tóku
sér hrísgrjón, hveiti og annað.
$ SUZUKI
-////------
Suzuki Baleno WG, 4 wd, skr.
4/97, ek. 63 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 1.220 þús.
Suzuki Baleno WG 4 wd, skr.
10/96, ek. 113 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 980 þús.
Suzuki Baleno GL skr. 1/96,
ek. 77 þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 720 þús.
Ford Mondeo GHIA skr. 1/98,
ek. 18 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 1.750 þús.
Hyundai Accent GSL, skr.
7/97, ek. 24 þús. km, beinsk., 3
d.
Verð 970 þús.
Daihatsu Feroza EL, skr. 7/94,
ek. 70 þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 820 þús.
Suzuki Baleno GLX skr. 6/96,
ek. 40 þús. km, ssk., 4 d.
Verð 990 þús.
Suzuki Vitara JLX skr. 11/98,
ek. 24 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 1.850 þús.
Suzuki Vitara JLX skr. 9/95,
ek. 72 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 1.230 þús.
Suzuki Swift GX skr. 2/97, ek.
55 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 680 þús.
Suzuki Swift GL skr. 7/94, ek.
75 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 480 þús.
Suzuki Sidekick skr. 9/97, ek.
117 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 760 þús.
Renault Clio RT, skr. 9/91, ek.
108 þús. km, beinsk.
Verð 480 þús.
Opel Astra ST, skr. 3/98, ek. 30
þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 1.195 þús.
Jeep Cherokee skr. 7/95, dísil,
ek. 82 þús. km, 5 d., beinsk.
Verð 1.380 þús.
Nissan Sunny WAG, 4 wd, skr.
5/93, ek. 72 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 750 þús.
Einnig nokkrir bflar
á sértilboði.
Kynntu þér málið!
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibiiar.is
BSH TAXI
Bifreiðastöð
Hafnarfjarðar
Bókið tímanlega.
Við getum líka vakið þig fyrir flug.
1-4farþ. 5-8farþ.
Hafnarfj./Garðab./Bessasthr./Kópav. - Leifsstöð kr. 4.200 5.000.
Reykjav./Seltjarnarnes/Mosfellsbær - Leifsstöð kr. 4.700 5.800.
VÍSA
Electron
MastetCarti I Maestro