Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 13 Fréttir DV, Akranesi: Stórtónleikar verða á sal Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi kl. 20.30 fimmtudaginn 23. september. Bergþór Pálsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja söng- dagskrá, byggða á lögum Sigfúsar Haldórssonar auk laga úr vinsæl- um söngleikjum. Undirleikari er Jónas Ingimundarson. Þau Berg- þór og Sigrún hafa flutt þessa dag- skrá í fjögur skipti á höfuðborgar- svæðinu, alltaf fyrir fullu húsi. Uppselt er á tvenna tónleika til viðbótar dagana 27. og 30. septem- ber. Áheyrendur jafnt sem gagn- rýnendur hafa lokið lofsorði á flutning þremenningana. -DVÓ Bandaríska sendiráöið: Hert öryggis- gæsla Öryggisgæsla við bandaríska sendiráðið á Laufásvegi hefur verið hert til muna á undanfórn- um mánuðum og færð til sam- ræmis við þá gæslu sem er við sendiráð Bandaríkjanna annars staðar. Til dæmis er nú leitað vandlega á fólki og farartækjum sem erindi eiga í sendiráöið. Ástæðu hins herta eftirlits er þó ekki að finna hér innanlands heldur mun hún að stórum hluta vera hinar mannskæðu spreng- ingar í sendiráðum Bandaríkj- anna í Tansaniu og Keníu í fyrra. Þær sprengingar færðu Banda- ríkjamönnum heim sanninn um það að slíkir atburðir gætu átt sér stað hvar sem er í heiminum og því var ákveðið að gera sömu ör- yggiskröfur við öll sendiráð landsins. -GAR Eldur í ruslafötu Eldur kom upp í ruslafotu hjá einum vistmanna á Kópavogshæl- inu klukkan hálfþrjú í nótt. Starfsmenn kölluðu til slökkvilið en hafði tekist að ráða niðurlög- um eldsins áður en aðstoðin barst. Herbergi vistmannsins var reykræst. Ekki er vitað hvers vegna eldurinn kom upp í körf- unni. -GAR Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson. Tónleikar á Akranesi: Diddú og Berg- þór syngja lög Sigfúsar „Þetta er bylting og það besta sem er fáanlegt á markaðinum í dag,“ segir Hjördís Guðbjörnsdóttir, skólastjóri í Engidalsskóla, um ný húsgögn sem skólinn hefur keypt fyrir nemendur sína. Húsgögnin eru dönsk. Borðin eru þannig úr garði gerð að hægt er að hækka þau í þá hæð sem kennarinn kýs svo hann þurfl ekki að bogra yfir nemendum. Þá er stóllinn stUltur í þá hæð sem passar við borðið. Fótstig er á stóln- um sem einnig er stillt í réttra hæð. Börnin sitja því 1 réttri stöðu. „Nú er skólinn loksins einsettur og þá getum við merkt hvert borð og hvem stól þannig að nemandinn fær borð við hæfl. Sumir eru stórir og aðrir litlir þótt þeir séu í sama bekk og þá er hægt að stilla hús- gögnin eftir því sem hentar hverj- um og einum. Síðast en ekki síst eru þessi hús- gögn til þægindaauka fyrir ræsting- una. Þegar bömin fara þá renna þau setunni á stólnum inn í sleða sem er á borðinu þannig að stóllinn lyftist frá gólfi. Þetta auðveldar mjög öll þrif í kringum húsgögnin. Ef bóna á gólfin geta ræstikonurnar lyft undir aðra hliðina á borðinu. Þá koma í ljós tvö hjól þannig að hægt er að hjóla borðunum til með stól- ana áfasta. Því auðveldar þetta einnig allar breytingar í stofunni." Hjördís segir að iðjuþjálfi sé feng- „Þetta er það besta sem er fáanlegt á markaðinum í dag,“ segir HJördís Guðbjörnsdóttir, skólastjóri í Engidalsskóla, um ný húsgögn sem skólinn hefur keypt fyrir nemendur sína. DV-myndir GVA þannig að sjö ára börn hafi notað sömu húsgögn og tólf ára nemend- ur. Þá hafi húsgögnin passaö ,jafn- vel“ fyrir báða hópana. Nýju húsgögnin séu heldur dýr- ari en íslensk framleiðsla. Ákveðið hafi verið að kaupa húsgögn erlend- is frá því framleiðsla af nákvæm- lega þessu tagi sé ekki fáanleg hér. -JSS Húsgögn af nákvæmlega þessu tagi eru ekki fáanleg hér á landi. inn til að fylgjast með að húsgögnin séu rétt stillt. Áður hafi skólinn verið tvísettur Ný nemenda- og kennaravæn húsgögn í Engidalsskóla: Þetta er bylting - segir skólastjórinn Fyrstu al-íslensku námstefnunni á ameríska vísu í Borgarleikhúsinu 27. september 1999 kl. 19:40 | Einstakri upplifun þar sem fleiri hundruð sölumenn og þjónustufólk verða saman komin á einn stað með það eitt í huga að auka árangur sinn Fyrirlesari: Gunnar Andri Þórisson Gunnar Andri hefur víðtæka reynslu í verslun og sölumennsku, reynslu sem spannar tæp 20 ár. Hann hefur hlotið fjöldann allan af viðurkenningum og verðlaunum og hefur skipað toppsæti sölumanna í Evrópu og Skandinavíu. Á síðustu tveimur árum hafa hundruðir karla og kvenna úr öllum geirum atvinnulífsins sótt hin ýmsu námskeið hjá Sölukennslu Gunnars Andra. Núna loksins getur þú lært af einum besta sölumanni íslands. Hann hefur reynslu, þekkingu, kunnáttu og það er hans markmið að þér gangi vel. fH Góðri og hnitmiðaðri kennslu í hagnýtum aðferðum sem þú getur nýtt þér strax ■ Frábæru tilboði 2-fyrir-l SÖLUKENNSLA GUNNARS ANDRA Einkaþjálfun • Námskeið ■ Ráðgjöf - Fyrirlestrar Upplýsingar í síma 561 3530 og 897 3167 - fax 561-3538 e-mail gunnarandri@gunnarandri.com - heimasíða www.gunnarandri.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.