Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1999, Side 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá T síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Heildarsamtökin og hestamiöstöð í Skagafirði:
. Samningum lok-
ið á sama tíma
- segir landbúnaðarráðherra
„Það hefur alltaf verið markmið-
ið að ljúka þessum samningum við
heildarsamtökin áður en endanleg
ákvörðun næst um samninga um
hestamiðstöðina í Skagafirði. Von-
andi verður lokið við báða þessa
samninga á sama tíma,“ sagði
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
4^ herra við DV. Guðni sagði, að
hestamiðstöðin í Skagafirði væri
sérstök tilraun, sem Skagflrðingar
hefðu lagt á borðið og ætluðu að
leggja 100 milljónir á fimm árum
sjálfir.
í gær kynnti landbúnaðarráð-
herra drög að samningi um efL-
ingu hrossaræktar milli landbún-
aðarráðuneytisins, Bændasamtak-
anna, Landsambands hestamanna-
félaga, Félags hrossabænda og Fé-
lags tamningamanna. Markmiðið
með þessum samningi er að stuðla
'7* að aukinni fagmennsku í grein-
inni, styrkja samstöðu hrossa-
Gluggagægir á
myndbandi
Gluggagægir var handtekinn við
Álftamýrarskóla klukkan rúmlega
tíu i gærkvöld. Sést hafði til manns-
ins gægjast á glugga við Háaleitis-
braut og gerðu sjónarvottar að at-
hæfi mannsins lögreglu viðvart.
Auk þess sem maðurinn játaði brot
sitt við yfirheyrslur á lögreglustöð-
inni gátu vitnin lagt fram mynd-
bandsupptöku af gægjunum, allt á
hreinu þar. Maöurinn sagðist hafa
horft inn um tvo glugga og inn um
annan þeirra séð konu afklæðast.
Gluggagægirinn er 36 ára gamall og
býr í Grafarvogi. -GAR
Fíkniefnaeigandi:
Týndi veski og
var handtekinn
Hann var heldur seinheppinn eig-
andi fimm gramma af hassi á veit-
ingastað í Austurstræti í nótt. Gest-
ur á staðnum fann seðlaveski sem
hann hugðist skila eiganda sínum
en fann hassið í veskinu þegar hann
var að athuga skilríkin. Gesturinn
hringdi strax á lögreglu sem kom á
staðinn og handtók eiganda veskis-
ins en hann hefur áður komið við
sögu lögreglu.
-GAR
bænda, aðlaga
stærð hrossa-
stofnsins mark-
aðsaðstæðum og
markmiðumum
hæfilega land-
nýtingu, og bæta
fjárhagslega af-
komu.
í samnings-
drögunum
skuldbindur rík-
ið sig m.a. til að
leggja næstu fimm árin fram upp-
hæð, sem enn hefur ekki verið
fastsett, að sögn Guðna, til eflingar
hrossaræktar, náms á sviði grein-
arinna og rannsóknum m.a. á
sumarexemi.
Á fundinum kom enn fremur
fram, að Eiðfaxi International
verður nú geflnn út í 40 þúsund
eintökum vegna þessa átaks. Er
fyrirhugað að senda blaðið sem
flestum eigendum íslenska hests-
ins í heiminum. Að þessu átaki
standa ýmsar stofnanir, félög og
fyrirtæki. -JSS
Guðni Ágústs-
son.
Rottugangur á Hlemmi
- ónotakennd í farþegum SVR
„Rottan virðist hafa gengið hér
inn um dymar og ætlar ekki út aft-
ur. Við settum upp þrjár gildrur í
fyrradag en rottan er enn óveidd,"
Ein af rottugildrunum á Hlemmi.
DV-mynd S.
sagði Helgi, gæslumaður í biðskýli
SVR við Hlemm, sem barist hefur
við óboðrinn gest undanfama daga.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef
séð rottu héma í biðskýlinu. Hún
hefst við í blómabeðinu við aðal-
dymar og við sjáum hana endrum
og sinnum,“ sagði Helgi.
Mikil ónotakennd er í farþegum
SVR sem nota biðskýlið á Hlemmi
daglega en fjölmargir þeira hafa
orðið rottunnar varir. Illa hefur
gengið að finna hana í blómabeðinu
í anddyrinu þrátt fyrir mikla leit
meindýraeyðis og svo virðist sem
hún leynist undir steinum í botni
blómabeðisins. Hún skýtur þó alltaf
upp kollinum aftur þegar meindýra-
eyðirinn er farinn.
„Ég er farinn að biða úti,“ sagði
strætisvagnafarþegi við DV í morg-
un. „Ég horfði í augun á henni í gær
og ætla ekki að gera það aftur.“
-EIR
Vesturbyggð:
Deilt um byggðakvóta
Mikill órói er á Patreksfirði og
Bíldudal vegna 205 tonna byggðakvóta
sem bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur
enn ekki komið sér saman um hvern-
ig beri að úthluta. Skorað hefur verið
á bæjaryfirvöld að skipta kvótanum
jafnt á milli umsækjenda. Jón Þórðar-
son, verslunarmaður á Bíldudal og
bæjarfulltrúi, segir engan fót fyrir
þeim sögusögnum að hann hygðist
rjúfa meirihlutasamstarf ef kvótinn
færi ekki allur til Bíldudals, Hann
sagðist hins vegar hafa ákveðið að
standa utan við umræður í bæjar-
stjórn um málið. Varðandi það hvort
fyrirhugað væri samstarf á milli
hans, Odda hf. á Patreksfirði og Þórs-
bergs á Tálknafirði um stofnun sjáv-
arútvegsfyrirtækis á Bíldudal sagði
Jón að hugmyndir hefðu verið settar
fram um fyrirtækjarekstur á staðn-
um. Ekkert væri þó komið á koppinn
í þeim efnum.
-HKr.
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
Veðurblíðan var með eindæmum í höfuðborginni í gær. Flykktist fólk út til að
njóta veðursins vel vitandi að þetta væri með síðustu hlýviðrisdögum árs-
ins. Töluvert var af börnum í Nauthólsvík sem léku sér í sandinum og busl-
uðu. Þykir í raun með ólfkindum að þessi mynd skuli tekin í gær, 21. sept-
ember.
DV-mynd S
Grunur um ölvunarakstur:
Tveir óökufærir
Tveir fólksbílar voru fluttir óöku-
færir á brott af Bíldshöfðanum á ell-
efta tímanum í gærkvöld eftir
árekstur. Ökumaður annars bílsins
er grunaður um ölvun. Hann hrufl-
aðist á andliti en ökumaður hins
bílsins meiddist á hné og farþegi
hans á hálsi. Kalla þurfti til slökkvi-
lið til að hreinsa upp olíu eftir slys-
ið.
Veðrið á morgun:
Bjart og hlýtt
suðvestanlands
Á morgun, fimmtudag, verður
hæg austlæg eða breytileg átt.
Þokuloft verður með norður-
ströndinni og þokusúld austan-
lands. Dálítill rigningu er spáð
suðaustantil en nokkuð björtu
veðri suðvestan- og vestanlands.
Hiti verður líklega á bilinu 8 til 14
stig sunnan- og vestanlands en
annars 5 til 10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 37.
MERKILEGA MERKIVÉLIN
brother pt-1
islenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær linur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Simi £
fæst í apótekinu
í Leifsstöð
J APÓTÉK
S^llDJÖlflíS^JA