Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1999, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 37 Nærmynd Hillary Clinton lék við hvern sinn fingur þegar hún kom með flugvél bandaríska forsetaembættisins til Islands sfðdegis í gær. Hún átti greinilega ekki von á að hitta Strobe Talbot, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á flugvellinum eins og sjá má. Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra ísland í Bandaríkjunum, og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra horfa hugfangnir á forsetafrúna sem var rétt búin að heilsa þeim. DV-mynd ÞÖK og stytta móður sinnar þegar fjölmiðlafárið vegna Sfmamynd Reuter m verður tvítug á næsta ári, var stoð íálsins var sem mest. bernsku forsetans. Þá greindi hún frá þvi hvernig hann hefði skaddast vegna togstreitu móðurinnar og ömmunn- ar. Þessi ummæli voru tengd saman og þess vegna leit út eins og Hill- ary hefði skýrt framhjá- haldið með erfiðleikum í æsku. I ástarsambandi við æskuvin Bills Tímaritsviðtalið var enn á vörum allra þegar fregnir bárust af meintu áralöngu ástarsambandi hennar við annan mann. Rithöfundurinn og blaðamaðurinn Christ- opher Anderson staðhæf- ir í nýútkominni bók, Bill og Hillary: Hjónabandið, að Hillary hafi um árabil haldið við æskuvin for- setans, Vincent Foster, sem varð einn lögmanna Hvíta hússins. Að því er Andersen heldur fram hófst ástar- sambandið þegar árið 1977 þegar Bill var ríkis- stjóri í Arkansas. Vincent og Hillary störfuðu þá saman á Rose lögmanns- stofunni í Little Rock. Einn aðalheimildarmaður bókarhöfundar um meint ástarsamband er einn fjögurra lögreglumanna í Arkansas sem hægrisinnaða tímaritið The American Spectator greiddi fyrir nokkrum árum þúsundir dollara fyi'ir að segja gruggugar sögur um Clinton. Skaut sig í bílnum sínum Bókarhöfundurinn staðhæfir að vinir og samstarfsmenn Bills hafi vitað af sambandinu. Anderson greinir ekki frá því hvenær sambandinu lauk en segir aftur á móti að Hillary hafi brotnað saman þegar hún frétti af dularfullu láti Fosters. Foster, sem einnig flæktist í Whitewatermálið, skaut sig í bíl sínum í skóglendi nálægt Washington árið 1995. Kenningar voru uppi um að hann hefði drepið sig annars staðar og lík hans síðan verið flutt þangað sem það fannst. Einnig voru kenningar uppi um að hann hefði hreinlega verið myrtur. Eftir dauða Fosters leituðu starfsmenn Hillary á skrifstofu hans og fjarlægðu þaðan ýmis skjöl. í kosningabaráttunni, sem HUlary hefur í raun hafið, þótt hún hafi ekki opinberlega tilkynnt um væntanlegt framboð sitt, er það henni tU framdráttar, en er ef tU vill einnig ókostur, að hún er vel þekkt. Hún þarf ekki að kynna sig fyrir þjóðinni. AUir vita hver HiUary er og næstum allir hafa skoðun á henni. Hún er annað hvort dáð eða hötuð. Veldur konum vonbrigðum Það eru sérstaklega skiptar skoðanir um hana meðal kvenna. Sumar eru vonsviknar yfir því að hún skuli ekki fyrir löngu hafa yfirgefið eiginmanninn, sem löngum hefur verið henni ótrúr, og hafið nýtt líf. Aðrar dá hana fyrir þann nær ómanneskjulega hæfileika hennar til að þola sársauka og tU að fyrirgefa. Margir velta því fyrir sér hvers vegna HUlary, sem á rólegra og sársaukaminna líf fram undan þegar BUl lætur af forsetaembætinu í janúar 2001, ætli í pólítísk kapphlaup þar sem engin vægð er sýnd. Hana skortir ekki möguleika. En Hillary þrífst í sviðsljósinu og nýtur þess að hafa völd. Stuðningsmenn hennar leggja áherslu á að hún vUji halda áfram baráttunni fyrir hugðarefnum sínum. Byggt á Reuter, Times, Aftenposten o.fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.