Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1999, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1999, Blaðsíða 46
r 54 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 DV afrnæli Ellert B. Schram Ellert B. Schram, forseti íþrótta- og Ólympíusambands íslands, Sörla- skjóli 1, Reykjavík, verður sextugur á morgun. Starfsferill Ellert fæddist i Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ 1959, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1966 og öðlaðist hdl-réttindi 1966. Ellert var lögfræðingur hjá lög- » mönnunum Eyjólfi Konráð Jóns- syni, Jóni Magnússyni og Hirti Torfasyni 1966, skrifstofustjóri borg- arverkfræðings 1966-71, alþm. Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík 1971-79 og 1983-87, ritstjóri Vísis 1980-81 og DV 1981-95, formaður KSÍ 1973-89, varaforseti ÍSÍ1990-91, forseti ÍSl frá 1991, formaður Ólympíunefndar ís- lands 1997 og forseti íþrótta- og Ólympíusambandsins frá 1997. Ellert var ritstjóri KR-blaðsins 1960-69, ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema og varaformaður Orators 1963- 64, formaður Stúdentaráðs HÍ 1964- 65, ritstjóri Stefnis 1967-69, for- maöur SUS 1969-73, fulltrúi Alþingis á allsherjarþingi SÞ 1972, formaður - fulltrúaráðs sjáifstæðisfélaganna í Reykjavík 1977-80, formaður ís- lensku þingmannanefndarinnar hjá Alþjóða þingmannasamtökunum 1974-79, varaformaður Útvarpsráðs 1974-79, stjórnarmaður í UEFA, Knattspymusambandi Evrópu, 1982-86 og 1990-94 og hefur unnið að mörgum sérverkefnum á vegum UEFA undanfarin ár. Hann var rit- stjóri afmælisrits KR, Fyrsta öldin, vegna aldarafmælis félagsins. Greinasafn eftir Ellert, Eins og fólk er flest, kom út 1991. Þá hefur t hann um árabil skrifað ógrynni greina og pistla í blöð og tímarit. Ellert varð íslandsmeistari með meistaraflokki KR í knattspyrnu 1959, 1961, 1963, 1965 og 1968 og bikarmeistari 1960-64, 1966 og 1967. Hann lék tuttugu og þrjá landsleiki með ís- lenska landsliðinu á ár- unum 1959-70. Ellert hefur verið sæmdur gullmerki KR, heiðurskrossi ÍSÍ og heiðurskrossi KSÍ. Hann er heiðursformað- ur KSÍ frá 1990. Fjölskylda Eiginkona Ellerts er Ágústa Jóhannsdóttir, f. 25.10. 1957, á Akureyri, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún er dóttir Jóhanns Pálssonar, f. 28.11. 1920, fyrrv. verkamanns, og k.h., Huldu Sigur- bjömsdóttur, f. 1.10. 1917, húsmóð- ur. Böm Ellerts og Ágústu em Eva Þorbjörg, f. 23.3. 1990; Ellert Björg- vin, f. 5.12. 1991. Böm Ellerts frá fyrra hjónabandi, og Önnu Ásgeirsdóttur, em Ásdís Björg, f. 30.5. 1963, flugfreyja í Reykjavík, og á hún tvö böm; Ama, f. 15.3. 1968, blaðamaður í Reykja- vík, gift Katli Magnússyni heim- spekingi og eiga þau eina dóttur; Al- dís Brynja, f. 5.5. 1969, nemi við Ferðamálaskólann, búsett í Reykja- vík; Höskuldur Kári, f. 21.2. 1972, BA í bókmenntum og sögu, sambýl- iskona hans er Gyða Björnsdóttir myndlistarmaður. Sonur Ellerts og Ásdísar Þórðar- dóttur er Amar Þór Jónsson, f. 2.5. 1971, lögfræðingur í Garðabæ, kvæntur Hrafnhildi Sigurðardóttur kennara og eiga þau einn son. Systkini Ellerts: Bryndís, f. 7.7. 1938, sendiherrafrú í Washington DC í Bandaríkjunum; Margrét, f. 18.1. 1943, húsmóðir í Reykjavík; Björgvin, f. 6.5. 1945, viðskiptafræð- ingur og kerfisfræðing- ur i Reykjavík; Magda- lena, f. 11.8. 1948, d. 9.6. 1993, sagnfræðingur í Reykjavík; Ólafur, f. 25.5. 1950, starfrækir ferðafyrirtækið Fjalia- ferðir, búsettur á Flúð- um; Anna Helga, f. 25.9. 1957, leiklistarkennari í Reykjavik. Foreldrar Ellerts: Björgvin Schram, f. 3.10. 1912, fyrrv. stór- kaupmaður í Reykjavík og fyrrv. formaður KSÍ, og k.h., Aldís Þor- björg Brynjólfsdóttir, f. 23.3.1917, d. 5.5.1991, húsmóðir. Ætt Björgvin er sonur Ellerts Schram, skipstjóra í Reykjavík, Kristjánsson- ar Schram, b. og timbursmiðs í Inn- ri-Njarðvík, Ellertssonar Schram, formanns í Vestmannaeyjum, Christianssonar Schram, kaup- manns á Skagaströnd, ættfóður Schramættarinnar á íslandi. Móðir Björgvins var Magdalena Ámadóttir, fræðimanns í Reykja- vik, Hannessonar, lytjafræðings í Syðri-Görðum, Árnasonar, pr. á Hálsi í Hamarsfirði, Skaftasonar. Móðir Áma var Guðríður, systir Ragnheiðar, ömmu Jóhanns Gunn- ars Sigurðssonar skálds. Guðriður var dóttir Árna, skálds á Borg í Miklaholtshreppi, Jónssonar, og Guðríðar Káradóttur, b. í Munaðar- nesi, Ólafssonar, bróður Þorbjarnar, afa Ólafs, langafa Bjarna Benedikts- sonar forsætisráöherra, föður Bjöms menntamálaráðherra. Móðir Magdalenu var Margrét Gestsdóttir, b. á Innra-Hólmi, Jóns- sonar, og Helgu Halldórsdóttur, pró- fasts á Melstað, Ámundasonar, smiðs og málara í Syðra-Langholti og vefara í Innréttingunum í Reykjavík, Jónssonar, föður Guð- rúnar, langömmu Jóhanns, afa Jó- hanns Hjartarsonar stórmeistara. Aldís var dóttir Brynjólfs, b. og síðar sjómanns í Reykjavík, Jóns- sonar, b. í Klauf í Landeyjum, Brynj- ólfssonar, b. á Fornu-Söndum undir Eyjafjöllum, bróður Hlaðgerðar, langömmu Guðrúnar, móður Ragn- ars Arnalds. Brynjólfur var sonur Þórðar, b. í Hvammi undir Eyjafjöll- um, Þorlákssonar, klausturhaldara í Teigi í Fljótshlíð, Þórðarsonar Thor- laciusar, klausturhaldara í Teigi, Brynjólfssonar Thorlaciusar, sýslu- manns á Hlíðarenda í Fljótshlíð Þórðarsonar, biskups í Skálholti, Þorlákssonar, biskups á Hólum, Skúlasonéir. Móðir Þorláks var Steinunn Guðbrandsdóttir, biskups á Hólum, Þorlákssonar. Móðir Brynjólfs Jónssonar var Þorbjörg Nikulásdóttir, systir Jóns, langafa Magnúsar L. Sveinssonar, form. VR. Móðir Aldísar var Margrét, systir Herdísar, ömmu Magnúsar H. Magnússonar, fyrrv. ráðherra, föður Páls sjónvarpsstjóra. Margrét var dóttir Magnúsar, b. á Litlalandi, Magnússonar, b. á Hrauni, bróður Jórunnar, langömmu Steindórs bíla- kóngs, afa Geirs Haarde fjármála- ráðherra. Magnús var sonur Magn- úsar, b. í Þorlákshöfn, Beinteinsson- ar, lrm. á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimundarsonar, b. i Hólum, Bergssonar, ættfóður Bergsættar- innar, Sturlaugssonar. Móðir Magn- úsar á Hrauni var Hólmfríður Árna- dóttir, systir Valgerðar, ættmóður Briemættarinnar, ömmu Tryggva Gunnarssonar og langömmu Hann- esar Hafstein. Ellert B. Schram. Erlingur Guðmundsson Erlingur Guðmundsson vörubíl- stjóri, Heiðvangi 4, Hellu, Rangár- völlum, varð sextugur þann 17.9. sl. ' Starfsferill Erlingur fæddist að Uxahrygg I í Rangárvallahreppi og ólst þar upp. Hann hóf störf hjá Vegagerð ríkis- ins árið 1954 og tók þar fljótlega til við stjórnun vinnuvéla. Erlingur keypti vörubíl 1958 og starfaði á honum og öðrum vinnuvélum til 1963. Þá stundaði hann ræktunar- vinnu hjá ræktunarsamböndum í Rangárþingi 1961-73, lengst af hjá Ræktunarsambandi Ása-, Holta- og Landhreppa, vann við vegagerð í umdæminu og víðar um land. Hann hefur gert út vörubíl og aðrar vinnuvélar frá 1973. Erlingur er hagur jámsmiður og hefur byggt yfir bíla sína og vélar 1 sjálfur. Hann er áhugamaður um hestamennsku og skógrækt og hefur tekið virkan þátt í félagsmálum á þeim vettvangi. Fjölskylda Eiginkona Erlings er Sigurvina Samúelsdóttir, f. 1.8.1937, kaupmað- ur í Vörufelli á Hellu. Hún er dóttir Samúels Samúelssonar frá Skjaldar- bjarnarvík í Árneshreppi i Stranda- sýslu og Önnu Guðjónsdóttur frá sama bæ. Fóstri Sigurvinu er Krist- -. inn Jónsson frá Seljanesi í Ámes- * hreppi, bóndi þar og að Dröngum í Ámeshreppi. Böm Erlings og Sigurvinu eru Anna Kristín Kjartansdóttir, f. 2.11. 1956, skrifstofustjóri, búsett á Sel- fossi. Maður hennar er Hafsteinn Hjaltason og em böm þeirra íris Erla, f. 1975, Magný Rós, f. 1979, en dóttir hennar er Steinunn Alex- andra, f. 1997, Kjartan Sigurvin, f. 1987, og Harpa Dögg, f. 1990; Samú- el Öm, f. 12.11. 1959, íþróttafrétta- maður, búsettur í Kópavogi, kvænt- ur Ástu Breiðfjörð Gunnlaugsdótt- ur og em böm þeirra Hólmfríður Ósk, f. 1984, og Greta Mjöll, f. 1987; Hólmfriður, f. 3.2. 1961, sjúkraþjálf- ari, búsett í Kópavogi, gift Ásbirni G. Guðmundssyni, og era börn þeirra Aron Steinn, f. 1988, og Anna Margrét, f. 1989; Margrét Katrín, f. 4.3. 1962, bókari á Selfossi, gift Jónasi Lilliendahl og eru börn þeirra Erlingur Öm, f. 1982, Gústaf, f. 1987, og Marinó Geir, f. 1990; Ingi- björg, f. 18.1. 1967, tónlistarkennari á Hvolsvelli. Maður hennar er Helgi Jens Arnarson og era dætur þeirra Guðrún Freyja, f. 1986, Erla Vinsý, f. 1987, og Birta Rós, f. 1999. Systkini Erlings: Ingibjörg, f. 28.6. 1932, d. 13.4. 1965; Gíslína Mar- grét, f. 1934, lést ársgömul; Magnús, f. 30.6. 1936, bóndi á Uxahrygg; Dýrfmna, f. 18.5. 1938, húsmóðir á Hellu; Ámý Margrét, f. 15.1. 1943, búsett í Stykkishólmi; Ingibjörg, f. 23.1. 1946, búsett á Eyrarbakka; Gísli, f. 22.6. 1948, lögregluvarð- stjóri í Grundarfirði. Uppeldisbróðir og systursonur Erlings er Guðmundur Hólm Bjarnason, f. 15.12. 1950, bUstjóri á HeUu. Foreldrar Erlings voru Guðmundur Hreinn Gíslason, f. 30.8. 1903, d. 1987, b. á Uxa- hrygg, og k.h., Hólm- fríður Magnúsdóttir, f. 31.1. 1910, d. 1983. Ætt Systir Guðmundar var Guðný, amma Grét- ars Þorsteinssonar, for- seta ASÍ, föður Jóns Gunnars fréttamanns. Guðmundur var sonur Gísla, b. í Húnakoti í Þykkvabæ, bróður VU- hjálms, b. í Dísukoti, föður Ingvars, forstjóra ísbjarnarins. Gísli var sonur HUdibrands, b. I Vetleifs- holti, Gíslasonar, b. í Oddsparti, Gíslasonar. Móðir Gísla var Sigríð- ur Einarsdóttir, b. á Búðarhóli í Þykkvabæ, Ólafssonar, b. á Seli í Holtum, Jónssonar. Móðir Ólafs var Guðrún Brandsdóttir, b. á FeUi í Mýrdal, Bjarnasonar, ættfóður Víkingslækjarættar, HaUdórsson- ar. Móðir Guðmundar var Margrét Hreinsdóttir, b. á Sperðli í Land- eyjum, Guðlaugssonar, b. í Hemlu i Landeyjum, Bergþórssonar. Bróð- ir Hólmfríðar var Andrés, b. í Vatnsdal í Fljótshlíð. Hólmfríður er dóttir Magnúsar, b. í Hvítanesi í Vestur-Landeyjum, bróður Andrés- ar, klæðskera og kaupmanns í Reykjavík, og Ágústs, b. í Hemlu, afa Ágústs Inga Ólafssonar, sveit- arstjóra á HvolsveUi. Magnús var sonur Andrésar, b. og for- manns i Hemlu i Land- eyjum, Andréssonar, b. í Hemlu, Andrésson- ar. Móðir Andrésar formanns var Guðrún Guðlaugsdóttir, systir Hreins. Móðir Magn- úsar Andréssonar var Hólmfríður Magnús- dóttir, b. á Ásólfsskála Ólafssonar, b. á Götum í Mýrdal, Ólafssonar. Móðir Hólm- fríðar á Uxahrygg var Dýrfinna, systir Gissurar, langafa Jóns Arn- ars Magnússonar frjálsíþrótta- kappa. Dýrfinna var dóttir Gísla, b. á SeljavöUum undir Eyjafjöllum, Guðmundssonar, b. á Seljavöllum, Gíslasonar, frumbúa á SeljavöU- um. Móðir Dýrfmnu var Margrét Sigurðardóttir, b. í Hvammi undir Eyjafjöllum, Sigurðssonar, b. í Efstakoti undir Eyjafjöllum, Sig- hvatssonar í Nýjabæ. Móðir Mar- grétar var Dýrfinna Kolbeinsdóttir frá Suðurkoti i Krýsuvík. Dýrfmna Gísladóttir og hinn þjóðhagi Sigur- jón Magnússon í Hvammi undir Eyjafjöllum vora systkinaböm. Erlingur og Sigurvina taka á móti ættingjum og vinum í salnum við sumarhús Mosfells á Rangárbökkum, í kvöld, laugard. 9.10., frá kl. 21.00. Erlingur Guðmundsson. 111 hamingju með afmæíið 9. október 80 ára Ingibjörg Friðjónsdóttir, Baldursheimi 2, Mývatnssveit. 70 ára Halldóra Guðrún Gísladóttir, Aðalgötu 31, Ólafsfirði. Haraldur Árnason, Hólavegi 30, Siglufirði. Hermann Sigurjónsson, Raftholti I, HeUu. 60 ára_________________ Árni Þorsteinsson, Heiðarskóla, Leirársveit. Guðni Kristján Sörensen, SólvaUagötu 64, Reykjavík. Kolfinna Gunnarsdóttir, HjaUalandi 29, Reykjavík. 50 ára Gunnlaug Hauksdóttir, Suðurgötu 28, Keflavík. Halldór H Hilmarsson, JúUatúni 4, Höfn. Helga Heimisdóttir, Ljósalandi 1, Reykjavík. Ingimar Jóhannsson, Suðurgötu 9, Sauðárkróki. Kristján Þór Hálfdánarson, Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík. Sigríður Ólafsdóttir, Melbæ 12, Reykjavík. Stefán Lárusson, Öldugötu 42, Hafnarfirði. Vilborg Baldursdóttir, Gerðhömrum 16, Reykjavík. 40 ára Elsa Björk Friðfinnsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á Landspítala og lektor við Háskólann á Akureyri Rekagranda 10, Reyl Ólafur Gunnarsson framkvæmdastjóri, Blöndubakka 14, Reykjavík, varð fertugur i gær. Eiginkona hans er Guðrún Jakobsdóttir, starfsmaður hjá Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Birna Elínbjörg Sigurðardóttir, Ásklifi 2, Stykkishólmi. Guðlaugur B Sveinsson, Miöskógum 1, Bessastaðahreppi. Guðrún Jóna Karlsdóttir, Kotárgerði 13, Akureyri. Haukur Arreboe Clausen, Rituhólum 5, Reykjavik. Marek Wegrzyn, Gerðavegi 32, Garöi. Málfríður Elídóttir, Bæjargili 47, Garðabæ. Ragnheiður Guðjónsdóttir, Sólheimum, Króksfjarðarnesi. Sigurgeir Þorleifsson, Furugrand 76, Kópavogi. Sólveig Sveinsdóttir, Farinafold 91, Reykjavík. FYRSXUR MEÐ FREXXIRIMAR http://www.umferd.ls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.