Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1999
7
Fréttir
Hillary Clinton og íslensku hestarnir:
Geysilega
hrifin
- segir Einar Bollason
„Hillary Clinton var geysilega
hrifin af hestunum og hestasýning-
unni. Þetta var mikill sigur fyrir is-
lenska hestinn," segir Einar Bolla-
son sem var einn hinna fjölmörgu
sem unnu aö því að gera gjöf ís-
lenskra barna til bandarískra að
raunveruleika í tengslum við komu
forsetafrúar Bandaríkjanna hingað
til lands. Hestamir voru afhentir
þegar Hillary Clinton heimsótti
Þingvelli á laugardaginn. Af því til-
efni var efnt til stuttrar sýningar á
íslenska hestinum.
Hestana tvo gaf íslenska ríkið
bandarískum bömum í nafni ís-
lenskra barna. Að framkvæmd
málsins unnu, auk aðila af hálfu ís-
lenska ríkisins, Einar, Félag hrossa-
bænda og Félag tamningamanna.
Einar sagði að Hvíta húsið myndi í
samráði við forsætisráðuneytið
ákveða hvar hestunum yrði komið
fyrir ytra.
„Hrossin eiga að verða fýrir
bandarísk böm. Þá er talað um reið-
skóla fyrir böm eða heimili fyrir
böm. En Hillary vill sjálf fá að at-
huga það mál. Hestarnir verða
geymdir hjá formanni Félags
hrossabænda þar til búið verður að
ganga frá því hvert þeir fara. For-
setafrúin mun síðan aíhenda þá í
Bandaríkjunum."
Einar sagði að Hillary Clinton
Hillary Clinton ásamt Davíð Oddssyni í víkingaskipinu íslendingi. Hillary fór
með sjóferðabæn um borð og fékk að hlýða á íslenskan fimmundarsöng.
DV-mynd ÞÖK
hefði vitað allnokkuð um íslenska
hestinn. Hún hefði m.a. spurt eftir
hinum sérstaka gangi hans þegar
hún horföi á sýninguna á Þingvöll-
um sem Félag tamningamanna sá
um.
Það er greinilegt að íslenski hest-
urinn hefur vakið hrifningu er-
lendu gestanna því í gærmorgun
bragðu ritari og aðstoðarblaða-
fulltrúi forsetafrúarinnar sér í reið-
túr með Ishestmn. -JSS
Hillary Clinton var mjög hrifin af hestasýningunni sem Félag tamningamanna skipulagði á Þingvöllum. Þakkaði hún
hverjum og einum sýnanda fyrir með handabandi.
Eins og útivistarfólk veit hefur íslensk náttúra einstakt lag á að koma á óvart. Fegurð landsins birtist
okkur þegar minnst varir. En íslenskt veður er líka óútreiknanlegt. I einu vetfangi breytist hlýr andvari
í hávaðarok og dökk ský dregur fyrir sólu. Ertu til?
NANOQ#