Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1999 9 DV Rússar halda áfram hernaöi í Tsjetsjeníu: Ráðist á Grozní gerist þess þörf Rússneskir ráðamenn hétu því í gær að halda áfram hernaðarað- gerðum í Tsjetjseníu og útvíkka ör- yggissvæðið í héraðinu. Þeir sögðu að hugsanlega yrði ráðist gegn höf- uðborginni Grozní gerðist þess þörf. „Við ætlum að marka okkur ör- yggissvæði í þeim hluta Tsjetsjeníu þar sem hersveitir okkar eru nú, og einnig á öðrum svæðum," sagði Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, i sjónvarpsviðtali eftir fund með landvarnaráðherra Rúss- lands og seðlabankastjóra. Pútín sagði að markmiðið væri að uppræta alla skæruliðahópa og bæði pólitískum og hemaðarlegum meðölum yrði beitt í því skyni. ígor Sergeijev landvamaráðherra sagði við sjónvarpsfréttamanninn að ef raunverulegir Tsjetsjenar bæðu Rússa að frelsa Grozní myndu Þessi tsjetsjenska kona er tilbúin að berjast við Rússa í Tsjetsjeníu. þeir gera það. Pútín sagðist vera á sama máli. Rússneskar hersveitir hafa lagt undir sig nyrðri þriðjung Tsjetsjen- íu í baráttu sinni gegn því sem rúss- neskir ráðamenn kalla íslamska öfgamenn sem starfa óháð leiðtog- um tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna. Rússneskar hersveitir hurfu á brott frá Tsjetsjeníu eftir hrapallega útreið í átökum við aðskilnaðar- sinna á árunum 1994 til 1996. Frönsk stjórnvöld hvöttu Rússa í gær til að fara varlega þar sem nauðsynlegt væri að jafnvægi ríkti í Kákasushéraðinu við suðurlanda- mæri Rússlands. „Við ítrekum þá ósk okkar að þeir leiti raunverulegrar pólitískrar lausnar," sagði Hubert Védrine, ut- anríkisráðherra Frakklands, í sjón- varpsviðtali í gær. Það er ekki á hverjum degi sem rúmlega þrjátíu ára gamlir blæju-Trabantar sjást á götum úti. Það gerðist þó í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, í gær þegar fjöldi Trabanta tók þar þátt í rallakstri. Keppnin var haldin á lokadegi bíla- sýningarinnar í Búkarest. Trabant þessi var framleiddur 1968 fyrir austur-þýska herinn sem notaði hann til eftirlits við Berlínarmúrinn. Blæju-Trabantarnir voru framleiddir í mjög takmörkuðu upplagi. ______________Utlönd Hvítbókin lögð fram í færeyska lögþinginu Högni Hoydal, sem fer með sjálfstæðismálin í færeysku land- stjórninni, lagði hvítbókina um sjálfstæði Fær- eyja fram i lög- þinginu á föstu- dag. Bókin á að verða grundvöll- ur að viðræðum við dönsk stjórn- völd um aukið sjálfstæði eyjanna. Lögþingið fjallar um bókina á fimmtudag og í kjölfarið mun stjórnin móta stefnuna í sjálfstæð- isviðræðunum. Tveir stærstu stjómarand- stöðuílokkamir á lögþinginu, Sambandsflokkurinn og jafnaðar- menn, hafa gagnrýnt Hvítbókina harkalega. Sambandsflokksmenn lögðu fram tillögu í þinginu á föstudag um að efnt verði til ráð- gefandi þjóðaratkvæðis um hvort Færeyingar vilji að efnt verði til samningaviðræðna við Dani áður en viðræðurnar hefjast. MORE& MORE A LIFE PHILOSOPHY Glæsibæ - sími 588 8050 Opið virka daga frá 10.30 til 18, laugardaga 11 til 16. ust '99 Stuttir og síðir frakkar. Aðskornar síðar kápur, með eða án hettu. Hattar og húfur í úrvali. Opið laugardaga, kl. 10-16. Mörkinni 6, sími 588 5518. MMC Space Wagon, 4x4, f.skrd. 01.10.1992, ssk., 5 dyra, ekinn 134 þ.km, hvítur, verð kr. 1.180.000. Mersedes Benz E220 CDi.f.skrd. 26.10.1998, ssk., 5 dyra, ekinn 43 þ.km, blár, ýmsir aukahlutir, verð kr. 3.700.000. Nissan Maxima QX, f.skrd. 12.05.1996, ssk., 4 dyra, ekinn 36 þ.km, svartur, verð kr. 1.890.000. Nissan Terrano II 5 SE, dísil, f.skrd. 14.04.1998, bsk., 5 dyra, ekinn 19 þ.km, blár/grár, leður, lúga, verð kr. 2.660.000. Toyota Rav 4, f.skrd. 19.06.1996, ssk., 5 dyra, ekinn 13 þ.km, blár, verð kr. 1.690.000. Opel Vectra, 1600, f.skrd. 04.11.1997, bsk., 5 dyra, ekinn 30 þ.km, svartur, verð kr. 1.420.000. Jeep Cherokee, f.skrd. 18.08.1992, ssk., 5 dyra, ekinn 82 þ.km, vínrauður, verð kr. 990.000. Borgartúni 26, ámar 561 7510 & 561 7511 23.01.1997, bsk., 14 farþega, ekinn 145 þ.km, hvítur, verð kr. 2.100.000. BILASALAN Urval no+aí»ra bíla aí ö||o»j s-fær&ow) og ger*owj / Margar bifreiðar á söluskrá okkar er hægt að greiða með Visa eða Euro raðgreiðslum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.