Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1999 Rafstöðvar Barnaflíspeysur kr 990.Ó Mikið úrval bensín og dísil rafstöðva. Hagstætt verð! YANMAR S(mi 568 1044 alla Sólgleraugu á bílinn Ekki bara glæsileikinn, einnig velliðan, en aðalatriðið er öryggið! Lituð filma innan á gler tekur ca 2/3 af hita, 1/3 af glæra og nær alla upplitun. Við óhapp situr glerið í filmunni og því er minni hætta á að fólk skerist. Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 Ásetning meöhita - fagmenn Fréttir DV Forskot á sæluna: Sviðakjammar fyrir slátrun DV, Hveragerði: Óhætt er að segja að ekki hafi verið margt um manninn í Flatey á Breiðafirði einn laugardag í haustbyrjun þegar fréttaritari DV brá sér út fyrir bæjarleið. Með Flóabátnum Baldri mátti telja far- þega á fingrum annarrar handar og flestir voru á leið til Brjánslækj- ar. Þegar lagt var að Flateyjar- bryggju var kalt veður en bjart, þannig að sérkenni eyjarinnar sáust vel í sólinni. Fyrir utan skemmu á hafnarbakkanum voru tveir myndarlegir menn í óðaönn að svíða hausa þegar fréttaritara bar að. Þetta voru þeir feðgar Haf- steinn Guðmundsson og Hafþór Hafsteinsson. Hafsteinn býr í Flat- ey allt árið ásamt konu sinni, Ólínu Jónsdóttur. Hafþór býr einn, nema á sumrin, en þá dvelur 6 ára dóttir hans hjá honum. Önnur fjöl- skylda, bændurnir Svanhildur Jónsdóttir og Magnús Jónsson, býr einnig í Flatey allt árið en var að heiman þennan dag. Að sögn Hafsteins var aðeins ver- ið að svíða í mat ofan í fjölskylduna en féð væri enn ekki farið til slátr- unar. Sterka og góða lykt lagði frá litlum kofa skammt frá bryggjunni og þegar betur var að gáð héngu þar nokkur sauðalæri til síðari nota, einnig fyrir fjölskylduna. „Tekjur okkar hér eru aðallega af fiski, dúnsölu og sauðfjárrækt," svaraði Hafsteinn aðspurður. „Veðráttan í sumar hefur haft mik- il áhrif á aflabrögð og dúntekju. Auk þess hefur ráðið miklu við Feðgarnir Hafsteinn og Hafþór voru önnum kafnir að svíða svið fyrir fjölskyldur sínar. dúnsöluna að fjármagnsmarkaðir í Japan eru okkur mjög óhagstæðir og verðið lágt.“ Hafsteinn vildi koma því að að hann væri mjög ósáttur við kvótakerfíð og taldi það vera að drepa niður tekjumögu- leika sinna manna. Flatey er m.a. þekkt fyrir fjöl- skrúðugt fuglalíf. Um 70 kindur eru á eynni og öllum hefur verið gefið nafn. Féð er mjög spakt og forvitið, ekki síst hrútarnir. Einn gamall hundur er í Flatey en enginn köttur, „sem betur fer“ varð Hafsteini að orði. -eh Réttað í Þæfusteinsrétt: Áttræður réttarstjóri DV, Snæfellsbæ: Fyrir skömmu var réttað í Þæfu- steinsrétt en hún er á svokallaðri Breið sem er á milli Ólafsvíkur og Hellissands. Nafnið fær réttin eftir bæ sem stóð þar stutt frá en er kom- inn í eyði fyrir löngu. Réttin er not- uð af bændum úr Neshreppi utan Ennis eins og hann hét áður en af sameiningu bæjarfélagana varð. Þæfusteinsrétt er þriggja ára gömul en réttin sem áður var notuð hét Hraunskarðsrétt og var ofan við Hellissand. Alls eru 16 búfjáreigend- ur á Hellissandi og Rifi og það komu um 750 fjár af fjalli eftir því sem Ótt- ar Sveinbjörnsson, bóndi og versl- unarmaður á Blómsturvöllum, sagði. Leitarsvæðinu er skipt I 4 svæði og komið var með safnið niður að réttinni um hádegisbil og margir tóku þátt í smöluninni. Vel gekk að draga féð í sundur. Réttarstjóri í Þæfusteinsrétt er Guðbjartur Þorvarðarson. Hann varð áttræður nú í september og hefur verið réttarstjóri í yfir 20 ár og er hann með talsvert af kindum sjálfur. Hann er léttur á fæti og fer í leitirnar fótgangandi og gefur Guðbjartur Þorvarðarson réttarstjóri og Óttar Sveinbjörnsson, bóndi og verslunarmaður, í réttunum. Hans Sigurbjörnsson og Jensína Guðmunds- dóttir fylgjast með. DV-mynd PSJ þeim sem yngri eru ekkert eftir við smölunina. Eins og oft er í réttum er mikið af fólki sem kemur til að fylgjast með og ekki síst er það áhugavert fyrir unga fólkið að fá að taka þátt í þess- um störfum. -PSJ Aufúsugestir á ferð: Fjárveitingavaldi tekið með virktum DV, SnæteUsbæ: Fjárlaganefnd Alþingis var, ásamt yfirmönnum nokkurra stofn- ana rikisins, á ferð í Snæfellsbæ á dögunum. Þetta er árleg kynnisferð sem nefndin fer um landið ásamt mökum og er farið í kjördæmin til skiptis. Að þessu sinni fór hún í Vesturlandskjördæmi. Tilhögun ferðar Fjárlaganefndarinnar í Snæ- fellsbæ var sú að Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, ásamt Ásbimi Óttarssyni, forseta bæja- stjórnar, tóku á móti nefndarmönn- um í Búlandshöfða. Ekið var til Ólafsvíkur þar sem Bæjarstjóm Snæfellsbæjar bauð til hádegisverðar á Hótel Höfða. Að honum loknum var farið í skoðun- arferð, undir leiðsögn Kristins bæj- arstjóra, um Ólafsvík og þaðan út á Rif og til Hellissands og endað á Gufuskálum. Þar voru þær fram- kvæmdir sem nú eru í gangi kynnt- ar ferðalöngunum en verið er að undirbúa húsnæðið fyrir æfingaað- stöðu björgunarskóla á vegum Slysavarnafélags íslands sem hefj- ast mun fljótlega. -PSJ Fjárlaganefnd ásamt fulltrúum Snæfellsbæjar og fleiri fyrir framan Hótel Höfða f Ólafsvík. DV-mynd Pétur Hvalijörður: Aukin byggð sumarhúsa DV, Akranesi: Arið 1994 hóf Hallfreður Vil- hjálmsson, bóndi á Kambshóli í Svínadal í Hvalfjarðarstrandar- hreppi, að bjóða land undir sum- arbústaði í landi Kambshóls. Siðan þá hefur hann leigt 40 sumarbústaðalóðir og hann segir að með opnun Hvalfjarðarganga hafi skapast nýr markaður fyrir sumarbústaöabyggð í Hvalflrði. „Það er stutt hingað frá höfuð- borgarsvæðinu og þó svo að mik- ið sé af sumarbústöðum í Borg- arfírði þá er Hvalfjörðurinn líka ægifagur. Svæðið allt er i skipu- lagningu og ég reikna með því að 60-70 lóðir verði á svæðinu. Einkum er það fólk frá höfuð- borgarsvæðinu og Keflavík sem hefur keypt sér bústaði og finnst gott að vera hér í friðsældinni og fallegu umhverfi," sagði Hall- freöur i spjalli við DV. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.