Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1999 Útlönd Stuttar fréttir :dv Borís Jeltsín er á batavegi Borís Jeltsín Rússlandsforseti er á batavegi á sjúkrahúsi í Moskvu. Hann var lagður inn um helgina með flensu og háan hita. Forsetinn hitti starfsmannastjóra sinn í gær, að sögn embættis- manna, og ræddu þeir um þau mál sem efst eru á baugi. Ekki var greint nánar frá hvaða mál það væru. „Borís Jeltsín er enn á sjúkra- húsi þar sem hann fær viðeigandi meðferð," sagði talsmaður rikis- stjórnarinnar í gær. „Honum líð- ur ögn skár og hitinn hefur lækk- að.“ Ekki er vitað hve lengi forset- inn þarf að liggja inni. Missir rétt til öryggiseftirlits Fyrirtækið Railtrack, sem sér um rekstur járnbrautarteina og tilheyrandi búnaðar í Bretlandi fær ekki lengur að hafa umsjón með öryggismálum kerfisins. Breska ríkisstjómin ákvað þetta i gær í kjölfar lestarslyssins nærri Paddington-stöð í Lundúnum í síðustu viku. John Prescott, samgönguráð- herra Bretlands, sagði að í skýrslu um slysið hefði verið bent á að nýja stofnun þyrfti til að hafa yfirumsjón með öryggi járn- brautakerfisins. Lögreglan sagði í gær aö líklega yrði endanleg tala látinna á bilinu 30 til 40. Major varar íhaldsmenn við John Major, fyrrum forsætis- ráðherra Bretlands, varaði for- ystu íhaldsflokksins breska við því að einstrengingsleg andstaða við Evrópusamstarfið gæti leitt flokkinn í miklar ógöngur og gert hann ókjósandi í augum almenn- ings. í viðtali við breska sjónvarp- ið, BBC, var Major ákaflega sár yfir þeim góðu viðtökum sem Margaret Thatcher fékk á lands- fundi íhaldsflokksins fyrir helgi. Á sama tíma var lítið gert úr stjórnarárum Majors sjálfs. Þýskir jafnaðarmenn fá á baukinn í Berlín: Versta útreiðin frá stríðslokum Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders Þýskalandskanslara galt mikið afhroð í fylkisþingskosning- unum í Berlín í gær. Flokkurinn fékk þar verstu útreið sina frá lok- um heimsstyrjaldarinnar síðari. Ósigurinn í gær var sá sjötti í röð í fylkiskosningum frá því Schröder komst til valda fyrir einu ári. Kristilegir demókratar unnu yfir- burðasigur, fengu 40,6 prósent atkvæða samkvæmt útgönguspám, en jafnaðarmenn fengu aðeins 22,4 prósent. „Þetta eru mikil vonbrigði," sagði Franz Múntefering, aðalritari jafn- aðarmannaflokksins, um niðurstöð- urnar. Úrslit kosninganna í gær sýndu svo ekki verður um villst að enn er breitt bil milli austur- og vestur- hluta þýsku höfuðborgarinnar, þótt Eberhard Diepgen, borgarstjóri Berlínar og leiðtogi kristilegra demókrata, er ánægður með kosn- ingaúrsiitin í gær. tíu ár séu nú liðin frá því Berlínar- múrinn féll. Fyrrum kommúnistar fengu hvorki meira né minna en 40 prósent atkvæðanna i austurhluta borgarinnar en aðeins 4,5 prósent í vesturhlutanum. Jafnaðarmenn fengu 37,8 prósent atkvæða í Berlín þegar Schröder komst til valda. Nú fengu þeir hins vegar að gjalda fyrir óvinsælar að- haldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar og reikula stefnu hennar. Ekki bætti úr skák að kosningabarátta jafnað- armanna í Berlin nú þótti afar slök. Leiðtogi kristilegra, Eberhard Diepgen borgarstjóri, sagðist vOja halda áfram „breiöfylkingunni" með jafnaðarmönnum. Það hefði í för með sér að ekki yrðu breytingar í efri deild sambandsþingsins þar sem þýsku fylkin 16 þurfa að sam- þykkja stefnu stjórnvalda. Stjórnarandstæðingar í Serbíu efndu rétt einu sinni til mótmælaaðgerða gegn Slobodan Milosevic forseta og stjórn hans í höfuðborginni Belgrad í gærkvöld, tuttugasta daginn í röð. í hópi mótmælenda var þessi kona sem lét óánægju sína með stjórnarfarið í Ijós með því að blása duglega í flautu og með því að halda á lofti þessari mynd þar sem búið er strika yfir Milosevic og eiginkonu hans. Þátttaka í mótmælunum hefur verið misjöfn. BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI Rafstöðvar Mikið ún/al bensín og dísil rafstöðva. Hagstætt verð! CIA rannsakar faraldur í New York: Grunar að gerð hafi verið tilraun til sýklahernaðar Bandaríska leyniþjónustan CIA rannsakar nú hvort nýlegur sjúk- dómsfaraldur í New York hafi verið tilraun til sýklaskæruhemaðar, að því er tímaritið, New Yorker, grein- ir frá. Sjúkdómurinn, sem líkist Vestur- Nílar-hitasótt, varð fimm manns að bana fyrir skömmu og tuttugu og sjö til viðbótar urðu veikir. Taliö er að veiran sem veldur sjúkdóminum hafi borist í menn úr moskítóflug- um sem fengu hana úr smituðum fuglum. Tímaritið vitnar ekki beint í neinn starfsmann CLA en segir að þar á bæ hafi menn áhyggjur af því að veiran hafi verið send til Banda- ríkjanna af ráðnum hug. Margir sérfræðingar hafa varað við þvi árum saman að Bandaríkin Saddam Hussein íraksforseti er sagður áforma að búa til sýklavopn úr Vestur-Nílar-hitasóttarveiru. séu mjög opin fyrir árás hryðju- verkamanna með sýklavopn. Eng- inn hefur þó enn nefnt veiruna sem veldur Vestur-Nílar-hitasóttinni sem hugsanlegt vopn þar sem hún veldur alla jafna ekki alvarlegri sjúkdómseinkennum en eru af mildri flensu. Aftur á móti hafa miltisbrandur og jafnvel svarti- dauði verið nefndir til sögunnar. í greininni í New Yorker er sagt frá bók eftir mann sem segist vera landflótta íraki. Þar er því haldið fram að Saddam Hussein íraksfor- 'seti hafi áformað að láta framleiða vopn úr afbrigði af Vestur-Nilar- veirunni. Höfundur bókarinnar seg- ir að veiran geti útrýmt 97 prósent- um alls lífs í borgum. Heilbrigðisyfirvöld vestra hafa áhyggjur af veirunni. Glistrup sleppur Allt bendir til að Mogens Glistrup verði ekki rekinn úr danska Framfaraflokkinum sem hann stofnaði á sínum tíma. Á fundi kjördæmisráða flokksins var mikill meirihluti fulltrúa á móti því að boða til aukalands- fundar til að reka Glistrup. Trimble kokhraustur David Trimble, áhrifamesti stjórnmálamaður mótmælenda á Norður-írlandi, gerði í gær lítið úr skoðana- könnun sem bendir til að hann sé að tapa baráttunni inn- an eigin flokks um ágæti friðar- samningsins sem gerður var í fyrra. Samkvæmt könnun í írskri útgáfu Sunday Times myndu 55 prósent fundarmanna á lands- fundi flokks sambandssinna ekki greiða samkomulaginu atkvæði sitt nú. Naumt með evrunni Naumur meirihluta þeirra Dana sem taka afstöðu eru fylgj- andi því að evran, sameiginleg mynt Evrópusambandsins, verði tekin upp. Fjörutíu og níu prósent eru fylgjandi evrunni en 42 pró- sent andvíg, segir í skoðanakönn- un Gallups. Konur fá að veiða Hópur kvenna í spænska fiski- þorpinu E1 Palmar unnu söguleg- an sigur um helgina þegar þær fengu að veiða í fyrsta sinn í lóni við bæinn. Karlar höfðu haft einkarétt á veiðunum í 750 ár samkvæmt konungstilskipun. Bjargað frá falli Pólsku ríkisstjórninni var bjargað frá falli í gær þegar ann- ar samstarfsflokkurinn féllst á málamiðlun um stefnumál og dró til baka hótun sína um að fella Jerzy Buzek forsætisráðherra. Vændi upprætt Sænska lögreglan hefur upp- rætt vændishring þar sem grunur leikur á að 25 konur frá Austur- Evrópu hafi verið neyddai- til að selja blíðu sína. Skjálfti á Ítalíu Jarðskjálfti sem mældist 4 stig á Richter varð um miðbik ítaliu í gær. Skemmdir urðu litlar og eng- inn slasaðist svo vitað sé. í varúðarskyni Umhverfisráðherra Frakklands sagði í gær að það væri í varúðar- skyni sem Frakkar bönnuðu sölu bresks nautakjöts, ekki í verndar- skyni. Kratar unnu sigur Portúgalskir jafnaðarmenn undir forystu Antonios Guterres forsætisráðherra unnu sögulegan sigur I þingkosningunum í gær. í gærkvöld var búist við að þeir fengju hreinan meirihluta. Lögga drepin Indónesískur lögregluþjónn féll í gær í átökum við friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna á landa- mærum Vestur- og Austur-Tímor. Barak fær leyfi Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, fékk í gær leyfi stjórnar sinnar til aö uppræta ólög- legar landnema- byggðir gyðinga á Vesturbakk- anum. Að sögn embættismanna mun Barak taka ákvörðun um hvað gert verður við landnema- byggðimar, 42 að tölu, einhvern næstu daga. Foreldrar í vígahug Foreldrar bama á dagheimilum í Kaupmannahöfn ætluðu að trufla umferð í morgun til að mót- mæla niðurskurði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.