Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 28
40
MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1999
Hringiðan
Tískufatagalleríiö
Gallerí Mót, þar sem
ísiensk hönnun fær
notið sín hvað best,
er eins árs. Á laugar-
daginn var þessum
tfmamótum fagnað í
búðinni á Lauga-
veginum. Eigendurn-
Ir, Guðrún Kristín og
Björk, voru að von-
um hressar.
Hið árlega landsmót Sam-
fés, samtaka félagsmið-
stöðva á íslandi, var haldið
um helgina. Það var sett í
sundlaugarpartíi í Suður-
bæjarlauginni á föstudag-
inn. Frá Gufunesbæ í Graf-
arvogi og igló í Kópavogi
komu meðal annarra þau
María, Ellen, Anna Rut,
Solla, Sissa, Andri, Erla
Rún og Anna Guðrún.
pu Leikritið Frankie og
■ Johnny var frumsýnt í
■ Iðnó á föstudaginn. Að
wEj lokinni sýningu föðm-
W uóust allir að leikara-
W'’ sið. Halldóra Björns-
SlF' dóttir, sem leikur
f Frankie, er hér í faðmi
Viðars Eggertssonar, leik-
stjóra verksins.
Stefánsblóm opn-
uðu verslun og
listagallerí í List-
húsinu í Laugar-
dal á laugar-
daginn. Búðín á
Laugaveginum er
þó enn á sínum
stað með sömu
þjónustu. Eigend-
urnir, Bergur
Thorberg og Ey-
dís Ólafsdóttir,
tóku á móti
gestum á nýja
staðnum á
laugardaginn.
Gaflari ársins var valinn í fyrsta sinn á
Gaflarahátíð í Hraunholti f Hafnarfirði á
laugardaginn. Fyrir valinu varð stofn-
andi og eigandi Fjarðarkaupa, Sigur-
bergur Sveínsson. A myndinni er „Gafl-
arinn“ ásamt veislustjóra kvöldsins,
Magnúsi Ólafssyni.
Félag íslenskra myndlistarmanna opnaði á laugardaginn þema- og örsýningu í Listasafni ASI. Þetta er í
annað sinn sem svona þemasýning er haldin á vegum félagsins. Fyrir tveimur árum var haldin sýning þar
sem sauðkindin var í aðalhlutverki en í ár var yfirskrift sýningarinnar Úr djúpinu. Sara Vilbergsdóttir, Guð-
björg Lind Jónsdóttir og Ólöf Oddgeirsdóttir, sem sitja í stjórn FÍM, ræða hér ilstina við systur Ólafar, Odd-
gerði Oddgeirsdóttur.
Leikarinn Stefán Karl Stefáns-
son er hér ásamt leikarahjón-
unum Björk Jakobsdóttur og
Gunnari Helgasyni á frumsýn-
ingu leikritsins Frankie og
Johnny í Iðnó á föstudaginn.
Páll Óskar Hjálmtýsson var í essinu sínu á Spotlight á
laugardaginn. Þá frumflutti hann efnið af nýju plötunni
sinni, „Deep inside Paul Oscar“, sem kemur út eftir þrjár
vikur. Páll var klæddur f einn flottasta „glimmergalla"
sfðan, Ja, bara sfðan Eivis klæddist hvftu búningunum
sínum á áttunda áratugnum. DV-mynd Hari
I Gestir á skemmtistaðnum Spotllght
gáfu sér tauminn lausan þegar Páll
Oskar frumfluttl lögin af nýju plötunni
sinni á laugardaginn.