Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Síða 9
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 9 r Þetta vil ég sjá fimmtudaginn 21. október, kl. 20.30. Elizabeth Dole ekki lengur með í kapphlaupinu Elizabeth Dole, fyrrum ráð- herra í stjórn Bandaríkjanna, hef- ur dregið sig út úr kapphlaupinu um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins í kosning- unum á næsta ári. Hún segist ekki eiga nægilegt fé til barátt- unnar. „Peningai- eru það sem þetta snýst um. Það væri til einskis að halda áfram,“ sagði hin 63 ára gamla Dole. Hún er fjórði repúblikaninn sem dregur sig út úr kosningabaráttunni þar sem George W. Bush, ríkisstjóri í Texas, hefur mikla yfirburði. Gorbatsjov dreymir látna eiginkonu sína MíkhaU Gorbatsjov, fyrrum Sovétleiðtoga, dreymir enn skýra drauma um Raísu eiginkonu sína og hann hefúr átt erfitt með að einbeita sér að vinnu eftir lát hennar. „Siminn hringdi allt í einu I gærkvöld," sagði Gorbatsjov í við- tali við Reuters-fréttastofuna, hinu fyrsta eftir útfór Raisu í síð- asta mánuði. „Ég tók upp tólið og heyröi sagt haUó. Þetta var Raísa. Ég sagði við hana: Hvaðan hring- irðu? Þá lauk símtalinu og ég vaknaði." Írína dóttir hans og tvær dætur hennar hafa flutt inn tU Gorbat- sjovs honum til halds og trausts. Hinn sjö ára gamli Karma Kunsang á Nýja-Sjálandi leikur sér eins og önnur börn á hans aldri. Sá er þó munurinn á að hann hefur verið útnefndur sem tíbetskur æðstiprestur endurholdgaður og leiðtogi Karma Kagyu búddatrúar- hópsins f Tíbet. Hann er næstur í virðingarröðinni á eftir Dalaí Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Húsleit hjá Benjamin Netanyahu: Lögreglan bar út illa illa fengna dýrgripi ísraelsk lögregla leitaði I gær á heimili, skrifstofu og geymslu Benjamins Netanyahus, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna gruns um að hann hefði tekið með sér gjafir og önnur verðmæti úr stjórnarráð- inu þegar hann lét af starfi. Lagði lögreglan hald á mörg málverk og guU- og silfurmuni við húsleitina. Lögmenn Netanyahus sögðu lög- regluna hafa þjófstartað. Hann hefði ætlað að ná samkomulagi við ríkið um opinberar gjafir sem borist heföu í embættistíð hans. Sam- kvæmt ísraelskum lögum eru gjafir, sem forsætisráðherra fær í valdatíð sinni, eign ríkisins en ekki persónu- legar gjafir. „ Eiginkona Netanyahus, Sara, var ein heima þegar lögregluna bar að garði. Netanyahu kom ekki fyrr en mörgum klukkustundum seinna. Þrír lögreglumenn fóru inn í íbúð þeirra hjóna en um tuttugu stóðu vörð fyrir utan. Lögreglan leitaði einnig að sönn- unargögnum vegna ásakana um að Netanyahu hefði þegið mútur frá byggingaverktaka á meðan hann var forsætisráðherra. Bæði Net- anyahu og Sara hafa verið yfirheyrð vegna mútumálsins. Það var við rannsókn á því sem grunur vaknaði um að þau hefðu í fórum sínum gjaf- ir til forsætisráðherraembættisins. Verktakinn, Afnver Amedi, hafði sent forsætisráðuneytinu reikning upp á um 7 milljónir íslenskra Israelskir lögreglumenn yfirgefa heimili Netanyahus. króna fyrir ýmiss konar þjónustu, þar á meðal hreingerningu og flutn- ing á húsgögnum í einkaíbúð Net- anyahus þrátt fyrir að hann byggi i opinberum embættisbústað forsæt- isráðuneytisins. Amedi var handtekinn í síðast- liðnum mánuði og yfirheyrður. Lit- ið er á vinnu hans fyrir forsætisráð- herrahjónin sem mútur þar sem hann þáði enga greiöslu. Það var fyrst eftir að Netanyahu og flokkur hans, Likudflokkurinn, höfðu tapað í kosningunum í maí síðastliðnum sem Amedi sendi reikninginn. Net- anyahu segir alla lögreglurannsókn- ina lið í pólitísku samsæri. Margir fyrrverandi samstarfsmanna hans hafa einnig verið yfirheyrðir. Maurice Papon flýr í útlegð frá réttvísinni Maurice Papon, lögreglustjóri undir Vichystjórninni í Frakk- landi, tilkynnti í gær að hann væri kominn í útlegð. Papon, sem er orðinn 89 ára, átti að koma fyr- ir rétt í dag þar sem taka átti fyr- ir áfrýjun hans vegna dóms yfir honum í fyrra. Þá var Papon dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að flytja 1590 gyðinga frá Bordeaux til útrýmingarbúðanna í Auschwitz. Elisabeth Guigou, dómsmála- ráðherra Frakklands, kvaðst hafa beðið saksóknara að gefa út hand- tökuskipun á Papon. Lionel Jospin forsætisráðherra for- dæmdi flóttann og sagðist myndu krefjast framsals Papons skyti hann upp kollinum í öðru landi. Pólitískur ferill Papons að lok- inni heimsstyrjöldinni var lang- ur. Hann var meðal annars fjár- lagaráðherra. Italskir vinstrimenn: Friðrik Þór Friðriksson velur verk eftir listamennina Krefjast svara um kjarnavopn Vinstrisinnaðir ítalskir stjóm- málamenn kröfðust þess í gær að stjómvöld í Róm gerðu hreint fyrir sínum dyrum og greindu frá því sem þau vissu um bandarískar kjamorkusprengjur sem talið er að hafi verið geymdar í herstöðvum í landinu. Krafa stjórnmálamannanna kom í kjölfar fregna frá Washington um skýrslu þar sem segir að 150 banda- riskar kjarnorkusprengjur séu enn geymdar í sjö aðildarlöndum At- lantshafsbandalagsins. ítalskir fjölmiðlar höfðu eftir ein- um höfundi skýrslunnar, Robert Norris, að um þrjátíu kjarnorku- sprengjur væra á Ítalíu. ítalskir fjöl- miðlar fjölluðu mikið um skýrsl- una, enda var það trú manna að öll kjarnorkuvopn hefðu verið fjarlægð í lok kalda stríðsins. Endurreisnarflokkur kommún- ista sagði að það væri brot á samn- ingum um takmörkun á útbreiðslu kjamavopna að geyma slík vopn á ítölsku landi. Vamarmálaráðherra Italíu, Carlo Scognamiglio, mun reifa málið í öld- ungadeildinni í dag. Hörð Ágústsson Sigurð Guðmundsson Kristján Guðmundsson Magnús Pálsson Steingrím Eyfjörð Bjarna Þórarinsson Tolla Menningarmiðstöðin Gerðuberg Verið velkomin AEG Lækkað verð á... þvottavélum, þurrkurum og uppþvottavélu Opið laugardag 10:00 - 16:00 Nýtt greiðslukorta tímabil \mt-Bf .. r- ' -----------

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.