Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
9
r
Þetta vil ég sjá
fimmtudaginn 21. október, kl. 20.30.
Elizabeth Dole
ekki lengur með
í kapphlaupinu
Elizabeth Dole, fyrrum ráð-
herra í stjórn Bandaríkjanna, hef-
ur dregið sig út úr kapphlaupinu
um að verða forsetaefni
Repúblikanaflokksins í kosning-
unum á næsta ári. Hún segist
ekki eiga nægilegt fé til barátt-
unnar.
„Peningai- eru það sem þetta
snýst um. Það væri til einskis að
halda áfram,“ sagði hin 63 ára
gamla Dole. Hún er fjórði
repúblikaninn sem dregur sig út
úr kosningabaráttunni þar sem
George W. Bush, ríkisstjóri í
Texas, hefur mikla yfirburði.
Gorbatsjov
dreymir látna
eiginkonu sína
MíkhaU Gorbatsjov, fyrrum
Sovétleiðtoga, dreymir enn skýra
drauma um Raísu eiginkonu sína
og hann hefúr átt erfitt með að
einbeita sér að vinnu eftir lát
hennar.
„Siminn hringdi allt í einu I
gærkvöld," sagði Gorbatsjov í við-
tali við Reuters-fréttastofuna,
hinu fyrsta eftir útfór Raisu í síð-
asta mánuði. „Ég tók upp tólið og
heyröi sagt haUó. Þetta var Raísa.
Ég sagði við hana: Hvaðan hring-
irðu? Þá lauk símtalinu og ég
vaknaði."
Írína dóttir hans og tvær dætur
hennar hafa flutt inn tU Gorbat-
sjovs honum til halds og trausts.
Hinn sjö ára gamli Karma Kunsang á Nýja-Sjálandi leikur sér eins og önnur börn á hans aldri. Sá er þó munurinn á
að hann hefur verið útnefndur sem tíbetskur æðstiprestur endurholdgaður og leiðtogi Karma Kagyu búddatrúar-
hópsins f Tíbet. Hann er næstur í virðingarröðinni á eftir Dalaí Lama, trúarleiðtoga Tíbeta.
Húsleit hjá Benjamin Netanyahu:
Lögreglan bar út illa
illa fengna dýrgripi
ísraelsk lögregla leitaði I gær á
heimili, skrifstofu og geymslu
Benjamins Netanyahus, fyrrverandi
forsætisráðherra, vegna gruns um
að hann hefði tekið með sér gjafir
og önnur verðmæti úr stjórnarráð-
inu þegar hann lét af starfi. Lagði
lögreglan hald á mörg málverk og
guU- og silfurmuni við húsleitina.
Lögmenn Netanyahus sögðu lög-
regluna hafa þjófstartað. Hann hefði
ætlað að ná samkomulagi við ríkið
um opinberar gjafir sem borist
heföu í embættistíð hans. Sam-
kvæmt ísraelskum lögum eru gjafir,
sem forsætisráðherra fær í valdatíð
sinni, eign ríkisins en ekki persónu-
legar gjafir.
„ Eiginkona Netanyahus, Sara, var
ein heima þegar lögregluna bar að
garði. Netanyahu kom ekki fyrr en
mörgum klukkustundum seinna.
Þrír lögreglumenn fóru inn í íbúð
þeirra hjóna en um tuttugu stóðu
vörð fyrir utan.
Lögreglan leitaði einnig að sönn-
unargögnum vegna ásakana um að
Netanyahu hefði þegið mútur frá
byggingaverktaka á meðan hann
var forsætisráðherra. Bæði Net-
anyahu og Sara hafa verið yfirheyrð
vegna mútumálsins. Það var við
rannsókn á því sem grunur vaknaði
um að þau hefðu í fórum sínum gjaf-
ir til forsætisráðherraembættisins.
Verktakinn, Afnver Amedi, hafði
sent forsætisráðuneytinu reikning
upp á um 7 milljónir íslenskra
Israelskir lögreglumenn yfirgefa
heimili Netanyahus.
króna fyrir ýmiss konar þjónustu,
þar á meðal hreingerningu og flutn-
ing á húsgögnum í einkaíbúð Net-
anyahus þrátt fyrir að hann byggi i
opinberum embættisbústað forsæt-
isráðuneytisins.
Amedi var handtekinn í síðast-
liðnum mánuði og yfirheyrður. Lit-
ið er á vinnu hans fyrir forsætisráð-
herrahjónin sem mútur þar sem
hann þáði enga greiöslu. Það var
fyrst eftir að Netanyahu og flokkur
hans, Likudflokkurinn, höfðu tapað
í kosningunum í maí síðastliðnum
sem Amedi sendi reikninginn. Net-
anyahu segir alla lögreglurannsókn-
ina lið í pólitísku samsæri. Margir
fyrrverandi samstarfsmanna hans
hafa einnig verið yfirheyrðir.
Maurice Papon
flýr í útlegð frá
réttvísinni
Maurice Papon, lögreglustjóri
undir Vichystjórninni í Frakk-
landi, tilkynnti í gær að hann
væri kominn í útlegð. Papon, sem
er orðinn 89 ára, átti að koma fyr-
ir rétt í dag þar sem taka átti fyr-
ir áfrýjun hans vegna dóms yfir
honum í fyrra. Þá var Papon
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að
flytja 1590 gyðinga frá Bordeaux
til útrýmingarbúðanna í
Auschwitz.
Elisabeth Guigou, dómsmála-
ráðherra Frakklands, kvaðst hafa
beðið saksóknara að gefa út hand-
tökuskipun á Papon. Lionel
Jospin forsætisráðherra for-
dæmdi flóttann og sagðist myndu
krefjast framsals Papons skyti
hann upp kollinum í öðru landi.
Pólitískur ferill Papons að lok-
inni heimsstyrjöldinni var lang-
ur. Hann var meðal annars fjár-
lagaráðherra.
Italskir vinstrimenn:
Friðrik Þór Friðriksson velur verk eftir listamennina
Krefjast svara um kjarnavopn
Vinstrisinnaðir ítalskir stjóm-
málamenn kröfðust þess í gær að
stjómvöld í Róm gerðu hreint fyrir
sínum dyrum og greindu frá því
sem þau vissu um bandarískar
kjamorkusprengjur sem talið er að
hafi verið geymdar í herstöðvum í
landinu.
Krafa stjórnmálamannanna kom
í kjölfar fregna frá Washington um
skýrslu þar sem segir að 150 banda-
riskar kjarnorkusprengjur séu enn
geymdar í sjö aðildarlöndum At-
lantshafsbandalagsins.
ítalskir fjölmiðlar höfðu eftir ein-
um höfundi skýrslunnar, Robert
Norris, að um þrjátíu kjarnorku-
sprengjur væra á Ítalíu. ítalskir fjöl-
miðlar fjölluðu mikið um skýrsl-
una, enda var það trú manna að öll
kjarnorkuvopn hefðu verið fjarlægð
í lok kalda stríðsins.
Endurreisnarflokkur kommún-
ista sagði að það væri brot á samn-
ingum um takmörkun á útbreiðslu
kjamavopna að geyma slík vopn á
ítölsku landi.
Vamarmálaráðherra Italíu, Carlo
Scognamiglio, mun reifa málið í öld-
ungadeildinni í dag.
Hörð Ágústsson
Sigurð Guðmundsson
Kristján Guðmundsson
Magnús Pálsson
Steingrím Eyfjörð
Bjarna Þórarinsson
Tolla
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Verið velkomin
AEG
Lækkað verð á...
þvottavélum, þurrkurum og uppþvottavélu
Opið laugardag 10:00 - 16:00 Nýtt greiðslukorta tímabil
\mt-Bf .. r- ' -----------