Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Side 13
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 13 DV Fréttir Lýst eftir munum fyrir Geysisstofu „Við auglýsum eftir gömlum myndum, upptökum, greinum, bréfum, sögum eða öðru er teng- ist Geysi í Haukadal, svæðinu í kring og gestakomum fyrr og nú, eins og komum erlendra þjóðhöfð- ingja,“ segir Már Sigurðsson á Hótel Geysi en miklar fram- kvæmdir standa nú yfír á Geysis- svæðinu við uppbyggingu á menningar- og þjónustumiðstöð. „Hugmyndin er að koma á fót veglegri miðstöð þannig að gestir fái glögga mynd af hverasvæðinu og náttúrunni hér. Öllum munum verður aö sjálfsögðu skilað nema að fólk vilji að þeir verði geymdir í miðstöðinni." -hdm Bandalag sjálfstæðra leikhúsa kærir til Samkeppnisstofnunar: Mismunun og óeðli- legir viðskiptahættir Bandalag sjálfstæðra leik- húsa hefur sent Samkeppnis- stofnun erindi vegna þess að talsmenn þeirra telja að leikfé- lögum á íslandi. sé mismunað og að óeölilegir viðskiptahætt- ir eigi sér stað á íslenskum leikhúsmarkaði. Vilja þeir fá úr því skorið hvort Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið hafi brotið samkeppnislög með því að nýta opinbera styrki til undirboða á leikhúsmiðum og útleigu á húsnæði sínu. Enn fremur vOja þeir fá svör við því hvort íslenska rikið og Reykjavíkurborg mismuni leikfélögum og hvemig megi þá leiðrétta það. Samkeppni meðal leikhúsa hefur farið ört vaxandi síðustu ár. En aðstaða íslenskra leik- húsa er með ólíkum hætti. í þvi sambandi nefnir Þórarinn Eyfjörð, formaður Bandalags sjálfstæðra leikhús, að Þjóð- leikhúsið og Leikfélag Reykja- víkur fái styrk frá hinu opin- bera sem nemur hundruðum milljóna en styrkur til sjálf- Frá blaðamannafundi í Kaffileikhúsinu í gærdag sem Bandalag sjálfstæðra leikhúsa stóð fyrir. Þórarinn Eyfjörð kynnti stöðu sjálfstæðu leikhúsanna á íslenskum mark- aði en í framhaldi var haldið til Samkeppnisstofnunar og lagt fram erindi um hvort óeðlilegir viðskiptahættir eigi sér stað á leikhúsmarkaðnum. DV-mynd Einar Ól. stætt rekinna leikhúsa skiptir tug- um milljóna. Borgum með okkur Innan Bandalags sjálfstæðra leik- húsa eru um 30 starfandi leikhús eða leikhópar. Hafa þau verið starfrækt um alllangt skeið en bylting hefur verið gerð á starfi þeirra síðustu ár. Frumsýningum hefur ijölgað úr 8-10 á ári í 32 frumsýningar árlega sl. þrjú ár. Þá hafa leikfélögin verið ötul að fLytja sýningar út á landsbyggðina og út fyrir landsteinana. „Við höfum ekki átt í neina sjóði að sækja og erum oft að borga með sjálfum okkur,“ sagði Þórarinn. „Miðaverð á leiksýningar hérlend- is hefur verið með því lægsta sem þekkist hjá nágrannalöndum okkar og fer enn lækkandi. Við viljum lágt miðaverð til að sem flestir geti sótt leikhús en þar sem við höfum fengið takmarkaða styrki getum við ekki niðurgreitt miðana eins og önnur leik- hús. Það er ekki hægt að bregðast við þessu nema láta Samkeppnisstofnun skoða þessi mál og fá úrskurð um hvort verið sé að brjóta samkeppnis- lög,“ sagði Þórarinn. -hól Sigfús A. Schopka fiskifræðingur. Talsvert rek á þorskseiðum til Grænlands: Getur skilað sér í góð- um afla eftir 6-7 ár - segir Sigfús A. Schopka fiskifræðingur DV, Akureyri: „Þessar mælingar komu fram í leiðangri Þjóðverja við Grænland í haust en niðurstöður þeirra mælinga hafa ekki enn borist okkur. Þetta er samt sem áður spennandi mál og gæti haft áhrif á þorskgengd hér við land eftir 6-7 ár,“ segir Sigfús A. Schopka, fiskifræðingur hjá Hafrann- sóknarstofnun, um að þýskur rann- sóknarleiðangur hafi mælt talsvert magn þorskseiða við Grænland sem munu vera komin af miðunum við ís- land. „Þetta er þekkt, að seiðarek hafi verið héðan til Grænlands, og þegar sá fiskur hefur orðið kynþroska hef- ur hann leitað aftur hingað til hrygn- ingar. Þegar um stóra árganga hefúr verið að ræða við Grænland, sem eru komnir úr seiðareki við ísland, hafa þeir í talsverðum mæli skilað sér hingað til lands og verið búbót í ver- tíðaraflanum. Þess eru fjölmörg dæmi, t.d. vissum við að 1945 voru að vaxa upp seiði við Grænland sem ör- ugglega voru komin úr klakinu hér við land. Þegar þessi seiði voru 8 ára árið 1953 gengu þau hingað inn á miðin og voru hér í veiðinni 1954 og 1956 í talsverðum mæli. Þá veiddust 550 þúsund tonn á íslandsmiðum og hluti þess var úr þessari göngu,“ seg- ir Sigfús Schopka. Talið er að þetta seiðarek frá ís- landsmiðum að Grænlandi hafi átt sér stað tvö sl. haust og að seiðin hafi nú betri lífsmöguleika þar en oft áður, m.a. vegna þess að sjór sé hlýrri en verið hafi um tíma. Þessi seiði gætu svo skilað sér til baka að 6-7 árum liðnum og þýtt stærri hrygningarstofn og stærri veiðistofn einnig. „Það tekur um 6-8 ár að þessi seiði skili sér, það segir reynslan okkur. En fari saman núna góð skil- yrði við Grænland og stjórn á veið- um þá má reikna með að þetta eigi eftir að skila sér vel til baka,“ segir Sigfús. Hann segir að klakið við Island í ár hafi verið mjög gott en hversu mikið magn hafi farið til Grænlands liggi ekki fyrir. „Það verða ávallt mikil affóll af þessum seiðum og margt sem kemur til, s.s. sjálfrán. Hins vegar eru ekki miklar líkur á því við Grænland núna vegna þess að þar er svo til enginn þorskur fyrir. Það er þvi hugsanlegt, ef ekkert ann- að kemur upp á og lífsskilyrði seið- anna að öðru leyti verða góð, að seið- in ættu að hafa þetta af þangað til þau komast aftur hingað á miðin," segir Sigfús. -gk Aflmeiri vélar í Sultartanga en búist var viö: Aukabónus í raforku - Þjórsá nægir ekki til aö keyra þær á fullu Önnur hinna nýju véla Sultar- tangavirkjunar hefur gefið meiri orku en gert var ráð fyrir í upp- hafi. Um er að ræða tvær vélar sem áttu að vera 60 megavatta. Önnur þeirra var tekin í notkun í fyrradag samkvæmt áætlun. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, blaðafulltrúa Landsvirkjunar, er talið að hún geti skiíað 68-70 megavöttum. Ekki verður hægt að keyra báðar vélamar af fullum þunga því vatnsmagnið í Þjórsá nægir ekki til þess. Þá þykir ekki ráðlegt að keyra vélarnar svo hart að staðaldri. „Við höfum alla Þjórsána til að knýja aðra vélina núna,“ sagöi Þorsteinn. „Hún getim tekið ákveðinn hluta af vatninu sem hin myndi annars nota. En þetta kemur vel út, vélarnar nýta betur vatnið heldur en kröfur voru gerðar til. Þetta gefur okkur aug- ljóslega aukið svigrúm í raf- magnsframleiðslu, e.t.v. tíu megavött í aukabónus. Hins vegar verður að reikna dæmið til enda. Flytja þarf raf- magnið frá vélinni, út úr stöðinni og inn á raforkukerfið. Þar er ým- is annar búnaður og þar er veikasti hlekkurinn sem skil- greinir hversu mikla orku er hægt að nota að staðaldri. Ríflega 65 megavött virðast geta gengið." Hin vélin í Sultartangavirkjun verður tekin í notkun í lok janú- ar, samkvæmt þeim áætlunum sem liggja fyrir. -JSS Qgppin) Léttur næringardrykkur Léttur næringardrykkur inniheldur nauðsgnleg vítamín og bætiefni sem líkaminn þarf og er jafnframt hitaeiningasnauður. Léttur er blanda flókinna kolvetna, mysuprótein og trefjar sem innihalda gerla FOS (Fructo Ollgosaccharides) sem aðstoða við að viðhalda góðri meltingu og vinna gegn óvinveittum gerlum í þörmum. Rannsóknir í Japan og Bandaríkjunum hafa sýnt að FOS getur bætt bakteríu flóru í þörmum og aðstoðar líkamann við að framleiða sjálfur góðar bakteríur í þörmum (Bifidobacteria) ,£g er hressari og á auðveldara með að viðhalda kjörþgngd með léttum næringardrgkk" ZElva 'Bíörk ‘Barkaraóttír Sölustaðir: fæst í íþrótta- og útivistarverslunum, Fjarðarkaup, Hagkaup, Hraðkaup, Nýkaup, Nóatún, 11-11, KÁ. og fleiri matvöruverslunum um allt land. Sjá nánar á www.leppin.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.