Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF, Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Hverrar krónu virði í stóra fikniefnamálinu, sem svo hefur verið kallað, var árangri lögreglunnar lýst sem unninni orrustu. Þar náðist að loka fikniefnaleið frá Kaupmannahöfn. Sú smyglleið var notuð lengi og mikið af efnum barst þannig á íslenskan flkniefnamarkað. Þessum áfanga- sigri lögreglunnar var fagnað að vonum. Hald var lagt á gnótt af hassi, e-töflum, amfetamíni og kókaíni. Sölu- verðmæti fíkniefnanna var metið á 100-150 miUjónir króna. Margir menn voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Flestir þeirra sitja enn bak við lás og slá enda er rannsókn málsins enn í gangi. En stríðið við glæpalýðinn heldur áfram þótt lögregl- unni hafi tekist að loka þessari tilteknu smyglleið. Fíkniefnasmyglarar, knúnir áfram af blindri gróðavon, leita annarra leiða til þess að koma eitri sínu á mark- aðinn. Þeir skeyta engu þótt athæfi þeirra fýlgi ógæfa einstaklinga og fjölskyldna, hörmungar og jafnvel dauði þeirra sem ánetjast. Þá varðar heldur ekkert um það þótt aðrir og alvarlegir glæpir í samfélaginu séu oftar en ekki tengdir fíkniefnaneyslu. Tíð innbrot í fyr- irtæki, heimili og bíla tengjast oft þeim sem í örvænt- ingu leita vamings sem hægt er að selja til þess eins að fjármagna áframhaldandi eiturneyslu. Hótanir, kúgun og líkamsmeiðingar eru hinn bitri veruleiki þeirra sem rata í þessa undirheima. Seljendur fíkniefnanna ganga hart eftir því að þeir sem fá efni til dreifingar eða neyslu, nema hvort tveggja sé, greiði það sem upp er sett. Þar eru grið ekki gefin. Þekktar aðferð- ir innheimtumannanna eru að leigja til ofbeldisverka svokallaðra handrukkara. Dugi ekki hótanir rukkaranna hika þeir ekki við að limlesta fórnarlömbin. Hræðsla veldur því síðan að fæstir þora að kæra hrottana. Baráttan við menn sem svífast einskis heldur því áfram. Lögreglan hefur nú fylgt eftir góðum árangri í stóra fíkniefhamálinu. Þrír menn sitja nú í gæsluvarð- haldi vegna rannsóknar á nýju, stórfelldu fíkniefna- máli. Þeir em grunaðir um að hafa ætlað að smygla til landsins 30 kílóum af hassi frá Barcelona á Spáni. Með aðgerðinni hefur lögregluyfírvöldum hér og í Barcelona tekist að loka nýrri smyglleið sem hugsanlega átti að taka við af þeirri sem lokaðist frá Kaupmannahöfn. í báðum þessum fíkniefnamálum skilar sér góð sam- vinna lögregluyfirvalda hér og ytra. Alþjóðadeild emb- ættis ríkislögreglustjóra óskaði eftir því, í Barcelona- málinu, að látið yrði til skarar skríða nú í vikunni. Meðferð málsins, í báðum löndum, hefur hins vegar staðið hátt á annað ár. íslenskir lögreglumenn voru meðal annars við störf ytra vegna málsins. Rannsókn þessara tveggja fíkniefnamála sýnir í hnot- skum hversu umfangsmikil þau em og um leið kostnað- arsöm fyrir lögregluembættin. Afrakstur hinnar miklu vinnu vekur þó vonir. Árangurinn skekur fikniefna- heiminn hér í annað sinn á stuttum tíma. Hann sýnir að lögreglan þekkir til þeirra sem að innflutningi eiturefn- anna standa, grípur inn í á réttum tíma og gómar þá. Mikilvægt e,r að áfram verði haldið á sömu braut. Það er skylda stjórnvalda að leggja fram það fé sem þarf til þess að standa undir kostnaðarsömum aðgerð- um sem óhjákvæmilega eru undirstaða þess að árang- ur náist. Takist með því að koma glæpamönnum undir manna hendur, og fækka um leið þeim sem eitrinu ánetjast, er það hverrar krónu virði og vel það. Jónas Haraldsson Gíinther Grass hlaut nóbels- verðlaun og það var efnt til dag- skrár um hann í Þjóðleikhúskjall- ara. Þar rakti Hjálmar Sveinsson í ágætu spjalli misjafnt gengi þessa merka þýska rithöfundar meðal sinnar þjóðar: seinni bækur hans hafa einatt verið rifnar niður, við sjálft liggur að yngri höfundar í landinu hati Grass og margir fleiri verða til að leggja fæð á hann. Ástæðan er sú að Grass hefur ekki verið til friðs, hann er alltaf að segja þjóð sinni sannleikann um fortíð og nútíð, hann skrifar „af- stöðubókmenntir". Hér er komið að gamalli og nýrri þrætu. Annars vegar vilja menn ekki að rithöfundar gerist svo frekir að hafa vit fyrir öðrum, taka afstöðu fyrir þá, enda viti þeir ekki meira en aðrir um deiluefni hvers tíma. Og nógir aðrir til að sinna uppeld- isskyldum og siðaboðum. Hins vegar hafa þær raddir orðið áhrifamiklar sem telja að þá rísi bókmenntir hæst ef þær óttast ekki að „taka mál til umræðu" og láta af sér vita „í stormi sinna tíða“ (Stephan G.), hika ekki við að koma við kaunin á þeim sem með völd og fé fara. Bæði rétt og rangt Allir hafa rangt fyrir sér, allir hafa rétt fyrir sér, sagði Tolstoj gamli. Afstaða má ekki gerast frek og mælsk í skáldsögu, niðurstöður eru best faldar undir steini, boð- skapur má ekki valda skáldi andar- Gúnther Grass. - Ætlar hann aldrei að vera til friðs? Hver hatar Giinther Grass? þó ekki væri nema „milli lína“ í textum sínum. Ungir þýskir höfundar eins og Grass og Heinrich Böli stóðu eftir stríð andspænis þeirri nauðsyn að segja lönd- um sínum - á því máli sem örlög og sam- skipti skáldsöguper- sóna tala - frá því af miskunnarleysi hver þeir væru og hefðu verið á nýliðnum dög- um stríðs og nasisma. Grass hefur ekki látið þar við sitja, hann hef- ur líka rýnt í samtím- ann með óvægnum „Og svo viö gleymum ekki Giinther Grass: Ef þaö er rétt aö hann sé hataöur í heimaiandi sínu þá er þaö ágætt. Höfundur sem uppsker hatur fyrir skrif sín skiptir aö minnsta kosti máii.u Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur teppu, slík ærsli verða fljótt leiðigjöm og áhrifalitil. Það er líka út í hött að heimta að rithöfund- ar upp til hópa blandi sér í deiluefnin miklu - því svo margir em allsendis ófærir um það. Á hinn bóginn er mikils misst ef menn taka upp á því að flæma burt alla af- stöðu, alla áráttu skálda til að segja les- endum beiskan sann- leika eða dæma hana marklausa. Þá eru tennur dregnar úr textum fyrirfram, þá þarf enginn að óttast að skáld sé ekki til þægðar „þeim sem með völdin fóru á landi hér“ ( Steinn Steinarr). Tímar og aðstæður senda skáldum og misjöfn skilaboö. Rússnesk skáld bjuggu lengst af við ritskoðun, einmitt þess vegna var beint til þeirra kröfum um að þau létu ekkert tækifæri ónotað til að koma að nauðsynlegri gagnrýni, hætti, minnt velmegunarfólk á neyð fólks í öðrum heimshlutum - og svo kann vel að fara að elsku andskotans lesendurnir telji sig hafa fengið nóg. Gleymum því ekki heldur að margir vilja gjama að rithöfundar séu grimmir við vald og spillingu einhvers staðar í öðrum sóknum en telji það óþarft og heimskulegt að þeir séu með einhver læti heima hjá sér: það er svo sem allt í nokkuð góðu lagi hjá okkur - til þess að gera. Góðkynja hatur Sú glíma sem sífellt vaknar milli „afstöðubókmennta" og „hreins skáldskapar" er líka tengd þeirri hvunndagslegu staðreynd að menn verða leiöir á ríkjandi veðurátt. Ef boðskaparárátta hefur ríkt lengi í bókmenntum þá verð- ur gerð uppreisn í nafni réttarins til að vera laus við boöskap. En ef sú sama árátta situr lengi í skammarkróki þá mun sú freist- ing upp koma aö „taka vandamál til umræðu". Og svo við gleymum ekki Gúnther Grass: Ef það er rétt að hann sé hataður í heimalandi sínu þá er það ágætt. Höfundur sem uppsker hatur fyrir skrif sín skiptir að minnsta kosti máli. Ef enginn nennir að leggja fæð á rit- höfund þá eru bókmenntir komn- ar ískyggilega langt út á jaðar okk- ar sjónarsviðs. Árni Bergmann Skoðanir annarra I sömu sporum eftir umhverfismat „Niðurstaðan af umhverfismati samkvæmt nýjum lögum í viöbót við það umhverfismat, sem þegar hef- ur verið gert samkvæmt eldri lögum getur ekki orð- ið önnur en sú sem þegar blasir við að umhverfisá- hrifin verði mjög mikil. Við munum því standa í ná- kvæmlega sömu sporunum eftir nýtt umhverfismat - frammi fyrir þeirri pólitísku ákvörðun hvort já- kvæð atvinnu- og byggöasjónarmið vegi þyngra en þau neikvæðu umhverfisáhrif sem óhjákvæmilega verða af virkjunarframkvæmdum." Jakob F. Ásgeirsson, í Mbl. 18. nóv. Baráttan viö bakmenn fíkniheimsins „Undanfarin ár hefur það verið nokkuð algeng skoðun að íslensk stjómvöld væru búin að tapa stríðinu við eiturlyfjasmyglarana.... Þá virtust fikni- efnin streyma inn í landið án þess að stjórnvöld gætu rönd við reist, nema hvað annað slagið tókst að hirða einhver burðardýr í Leifsstöð. ... Lögreglan hefur nú mun sterkari vopn á hendi en áður til að takast á við bakmennina í fikniefnaheiminum - þau fúlmenni sem fjármagna kaup á slíkum efnum er- lendis og „þvo“ síðan afraksturinn af sölunni hér heima. Hægt er að leggja hald á þær eigur hinna grunuðu sem taldar eru tengjast fikniefnagróðanum. ... Þetta er eitt merki um að íslensk stjómvöld ætli ekki að sýna þessum kaupahéðnum dauðans neina linkind. Það er veí.“ Elías Snæland Jónsson, í Degi 18. nóv. Skrýtnir draumar „Það er að sjálfsögðu búið að sveifla íslandi inn í hringiðu heimsins, og einangrun okkar er í raun engin, Maður sér sem betur fer að það em að kvikna hér ýmsar nýjabrumshugmyndir, þrátt fyrir stööuga drauma um álver. Mér fmnst skrýtið að draumar manna í lok þessa árþúsunds séu þeir sömu og fyrir 30 - 40 árum. Mér fmnst það skrýtið. Það hefur margt gerst á þessum 30 - 40 árum sem ætti í raun að móta drauma fólks. En sern betur fer eru margir að búa hér til góða hluti, og við höfum alla burði til þess að nýta okkur þá byltingu sem er aö eiga sér stað.“ Ólafur Jóhann Ólafsson, í viðtali í Mbl. 18. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.