Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
9
DV
Tyrkland:
Stjórnmálamenn
halda Öcalan á
Kúrdar í Hamborg efndu í gær til mótmæla vegna staðfestingar á
dauðadóminum yfir Kúrdaleiðtoganum Abdullah Öcalan. Símamynd Reuter
Líkumar á að Kúrdaleiðtoginn
Abdullah Öcalan verði tekinn af
lifl minnka stöðugt þrátt fyrir stað-
festingu áfrýjunardómstóls á
dauðadóminum yfir honum.
Hundruð Tyrkja fögnuðu í gær
fyrir utan áfrýjunardómstólinn í
Ankara þegar tilkynnt var að
dauðadómurinn hefði verið stað-
festur. „Lengi lifi réttlætið“, hróp-
aði manníjöldinn meðal annars og
gekk til þinghússins til þess að
krefjast þess að þingmenn sam-
þykktu strax dóminn.
Sú verður ekki raunin. Bæði
þingið og forsetinn, sem verða að
staðfesta dóminn áður en hægt
verður að framfylgja honum, hyggj-
ast vinna tíma í málinu.
„Ferlinu er ekki lokið enn,“ sagði
Suleyman Demirel forseti í gær.
í fjölmiðlum og á meðal stjóm-
málamanna hefur krafan um að
Öcalan verði tekinn af lífi ekki ver-
ið jafnhávær og áður. „Þeim fjölgar
sem hafa komist á þá skoðun að af-
taka muni bitna á Tyrklandi
sjálfu," segir talsmaður mannrétt-
indasamtakanna Mazlum-Der.
Að gera Öcalan að píslarvætti
gæti haft í fór með sér enn frekari
átök við Kúrda. Margir líta svo á
að ekki eigi að fóma fleiri tyrk-
neskum hermönnum vegna Öcal-
ans.
Sambandið við Evrópu er önnur
ástæða fyrir því að Tyrkir hika við
að taka Öcalan af lífi. Fordæming
mannréttindasamtaka og mikil-
vægra Evrópusambandslanda í
kjölfar staðfestingar áfrýjunardóm-
stólsins í gær sýnir að möguleikar
Tyrkja á aðild að Evrópusamband-
inu munu snarminnka verði
dauðadóminum fullnægt. Þessu
gera Tyrkir sér grein fyrir.
Líklegt þykir að Bulent Ecevit,
Utlönd
vilja
lífi
forsætisráðherra Tyrklands, sem
sjálfur hefur oft lýst því yfir að
hann væri andvígur dauðarefs-
ingu, muni þess vegna bíða álits
mannréttindadómstóls Evrópu áð-
ur en hann lætur tyrkneska þingið
fialla um málið.
Það mun að minnsta kosti taka
eitt ár og jafnvel tvö og það er
einmitt það sem tyrknesk stjóm-
völd em talin vilja.
Á meðan mannréttindadómstóll-
inn í Strasbourg fiaUar um mál
Öcalans þarf tyrkneska þingið ekki
að bera ábyrgð á því að helsta óvini
þjóðarinnar skuli haldið á lífi.
Samtímis losna Tyrkir við þrýsting
frá Evrópusambandinu.
Enn er þó ekki talið víst að mað-
urinn, sem tyrknesk yfirvöld segja
að beri ábyrgð á dauða 30 þúsunda
manna í stríðinu við kúrdíska að-
skilnaðarsinna, sleppi við gálgann.
Þjóðernissinnar, sem eru sam-
starfsflokkur flokks Ecevits,
komust til valda meðal annars
vegna andrúmsloftsins sem ríkti í
kjölfar handtöku Öcalans. Þessi
flokkur vill að Öcalan verði tekinn
af lífi. Verði Tyrkjum enn einu
sinni neitað um aðild að Evrópu-
sambandinu getur það leitt til þess
að dauðadóminum verði fullnægt.
Eiginkonan er
reið út í Archer
Mary Archer, eiginkona breska
íhaldsmannsins Jeffreys Archers,
segist vera reið út í bónda sinn.
Það breyti því þó ekki að henni
fmnist hann góður maður. Þetta
kemur fram á vefsíðu BBC.
Archer varð aö hætta við fram-
boð sitt til borgarstjóraembættis
Lundúna vegna uppljóstrana um
að hann heföi beðið vin sinn að
veita sér falska fiarvistarsönnun
vegna meiðyrðamáls fyrir þrettán
árum.
„Ég er reiö út i Jeffrey en ég
hef myndað mér þá skoðun að
hann sé ærlegur og örlátur maður
á 35 árum og það breytist ekki á
einni helgi, eða á nokkrum helg-
um,“ sagði Mary Archer í yfirlýs-
ingu sem hún sendi frá sér í gær.
Þá segir eiginkonan að Archer
sé mannlegri en flestir aðrir
menn.
Lögreglan rannsakar nú hvort
höföa beri sakamál á hendur Jef-
frey Archer.
Þessi besti vinur barnanna tók þátt í mikilli skrúðgöngu vöruhússins Macy’s niður Breiðgötuna einu og sönnu í New
York í gær, á sjáifan þakkargjörðardaginn þegar landsmenn troða sig út af kalkúnakjöti og fyllingu.
Vont fyrir Færeyinga að missa ríkisstyrkinn:
9 leitis
íslenska leitarvélin á Netinu
Dregur
Verði Færeyingar af beinum rík-
isstyrk frá Danmörku upp á tíu
milljarða íslenskra króna á ári blas-
ir ekki annað við en velferðin á eyj-
unum minnki um sautján prósent.
Þetta kemur fram í útreikningum
frá Hagfræðistofnun Háskóla ís-
lands fyrir færeysku landstjómina
vegna fyrirhugaðra sjálfstæðisáætl-
ana frænda okkar.
í skýrslu Hagfræðistofnunar er
því slegið föstu að ef ríkisstyrkur-
inn frá Danmörku verði felldur nið-
ur, á sama tíma og opinber útgjöld
haldist óbreytt, muni það leiða til 27
prósenta skattahækkunar þegar til
lengri tíma er litið og fiárhagsaf-
koma fiölskyldna í Færeyjum versn-
ar um 24 prósent.
Einnig kemur fram í plagginu frá
ur velferðinni
Hagfræðistofnun að samkeppnis-
staða Færeyja muni batna falli rík-
isstyrkurinn niður. Þar kemur til
að kostnaður mun almennt lækka
og við það skapast jarðvegur fyrir
meiri fiárfestingar og aukinn út-
flutning.
Efnahagsnefnd landstjómarinnar
hefur farið yfir útreikningana frá
íslandi og bendir á að taka verði
niðurstöðunum með miklum fyrir-
vara.
„Við höfum kosið að líta á stöð-
ima út frá því að ríkisútgjöldin
verði ekki skorin niður. Það mun
leggja þunga skattabyrði á þegnana
og leiða til þess að velferðin minnk-
ar umtalsvert," segir í yfirlýsingu
frá nefndarmönnum.
Þeir benda jafnframt á að í út-
reikningunum frá íslandi sé ekki
reiknað með að fiskveiðar Færey-
inga geti farið vaxandi.
□ Ragnar Björasson eM.
Dalshraun 6, Hafnarfirði
Súni 555 0397 • fax 565 1740
■
Nýr a la ’carte-matseðill
Veitinga- ogskemmtistaðurinn Klaustrið fyrít* matargesti,
Kmpparstíg 26 • Sími 552 6022