Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1999, Page 14
14
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
DV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aöstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVlK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Framsóknarforysta í vanda
Páll Pétursson félagsmálaráðherra lætur forystu Fram-
sóknarflokksins fmna fyrir sér um þessar mundir. Við
stjórnarmyndunina í vor var gengið út frá því að Páll viki
fyrir Valgerði Sverrisdóttur, þingmanni og leiðtoga flokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra. Þótt ráðherraskiptin
hafi ekki verið nákvæmlega tímasett var miðað við að þau
yrðu nálægt áramótum. Gert var ráð fyrir því að Páll yrði
yfirmaður Byggðastofnunar eftir flutning hennar frá for-
sætisráðherra til iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Nú segist félagsmálaráðherrann hafa orðið fyrir von-
brigðum með frumvarpið um Byggðastofnun og ætlar
ekki að taka við verkefninu. Byggðastofnun verði veikari
og ósjálfstæðari en áður. Staðan nú sé ekki með þeim
hætti sem um var talað við stjómarmyndunina. Páll telur
sig því ekki bundinn af því samkomulagi og ætlar ekki að
biðjast lausnar.
Framsóknarflokkurinn varð fyrir áfalli í þingkosningun-
um í maí. Eftir flögurra ára stjórnarsamstarf með Sjálf-
stæðisflokknum tapaði hann umtalsverðu fylgi og þremur
þingmönnum. Sjálfstæðisflokkurinn styrkti aftur á móti
stöðu sína. Þrátt fyrir útkomuna héldu flokkarnir ríkis-
stjórnarsamstarfinu áfram. Miðað við þær skoðanakannan-
ir sem gerðar hafa verið frá stjórnarmyndun er staða
Framsóknarflokksins enn að veikjast. Þær kannanir sýna,
líkt og kosningaúrslitin, að flórflokkurinn svokaflaði held-
ur velli í íslenskum stjómmálum þótt landslag sé nokkuð
breytt. í þeim könnunum er Sjálfstæðisflokkurinn með
yfirburðastöðu og Vinstri hreyfingin - grænt framboð hef-
ur styrkt sig verulega. Samfylkingin er í tilvistarkreppu og
tapar fylgi. Útkoma Framsóknarflokksins þykir eflaust lítt
viðunandi á þeim bæ. Flokkurinn hefur jafnvel mælst með
minnst fylgi fjórflokkanna en lengst af hefur Framsóknar-
flokkurinn verið annar stærsti stjórnmálaflokkur landsins.
Afstaða Páls Péturssonar og barátta fyrir áframhald-
andi setu í ríkisstjóm er hörð. Hann hefur langa stjóm-
málareynslu og er sterkur í héraði. Ráðherrann galt þess
hins vegar í kosningabaráttunni og við stjómarmyndun-
ina að stríða við veikindi. Nú, þegar hann hefur náð
heilsu á ný, hnyklar hann vöðvana og lætur finna fyrir
styrk sínum.
Því er þó ekki að leyna að slagur Páls og Valgerðar um
ráðherrastólinn eykur vanda Framsóknarflokksins sem
var ærinn fyrir. Það gæti því komið til uppgjörs þar sem
þingflokkurinn verður að skera úr um ráðherratignina.
Fólk bak við biðlistana
Margra mánaða bið fólks eftir aðgerðum á bæklunar-
deildum sjúkrahúsa er erfið. Sjúklingamir líða kvalir og
neyta nauðbeygðir dýrra, jafnvel vanabindandi lyfja á
óvissum biðtímanum. Langur biðtíminn fer illa með sjúk-
lingana líkamlega jafnt sem andlega. Sumir geta ekki sótt
vinnu og detta úr takti við samfélagið.
Sjúklingur sem mánuðum saman hefur beðið eftir að-
gerð vakti athygli á stöðunni í DV fyrr í vikunni. Þótt að-
hald í flármálum heilbrigðiskerfisins sé nauðsynlegt em
biðlistar eftir aðgerðum mánuðum og misserum saman
ekki náttúrulögmál. Því var þörf sú ábending sjúklingsins
á biðlistanum að á bak við hvert nafn á listanum er löng
þjáningar- og raunasaga.
Vegna ábendingarinnar hefur komið fram að heilbrigð-
isráðuneytið ætlar sér að skoða stöðu mála hjá bæklunar-
deild Landspítalans og hvernig standi á allri þessari bið.
Athugunin er tímabær.
Jónas Haraldsson
„Á Reyðarfirði mun vera besta hafnarstæði af náttúrunnar hendi á landinu."
Hafnir og
heiðalönd
Sýn nokkra bar fyrir
skyggnan frænda minn
er hann heimsótti Norð-
flörð á fjórða áratugn-
um, en þar bjuggu þá
foreldrar mínir. í vestri
var sem sæist gegnum
fjöll og hálsa og við
blasti tilsýndar Reyðar-
fjörður með tignarlegum
skipum á miðjum firði
og háum húsum á
ströndinni. Virtist hon-
um bær þessi aðlaðandi.
Sýn þessari lýsti frændi
minn þá er hann var í
heimsókn hjá mér löngu
seinna vestanfialls í
Noregi og við sigldum
inn Sognsæ, dýpsta fiörð
landsins, og nutum feg-
urðarinnar allt um
kring.
Kjallarínn
Þór Jakobsson
veðurfræðingur
ríkjum, hafisinn.
Eigi lítil hindrun,
en með síbættri
tækni í fiarkönnun,
fiarskiptum, veður-
spám og skipstjóm-
arreynslu minnkar
hún smám saman. í
tómstundum hef ég
fylgst með þróun
mála úr fiarlægð
ásmnt fáeinum öðr-
um sem em skyggn-
ir á framtíðina, svo
sem þeim Gesti
Ólafssyni skipulags-
fræðingi, áhuga-
manni um nýjar
víddir, og Ólafi Eg-
ilssyni sendiherra
Reyðarfjörður og
Norður-lshaf
Á Reyðarfirði mun
vera besta hafharstæði
af náttúrunnar hendi á
landinu. Það var því
eðlilegt að bent væri á
sínum tima á Búðareyri
sem hugsanlega um-
skipunarhöfn í tengsl-
um við vöruflutninga
um norðurhöf þegar
svonefnd norðausturleið um Norð-
ur-íshaf var rædd á ráðstefnum
hér á landi fyrir 12 árum. Ráð-
stefna var skipulögð og haldin í
Reykjavík af Skipulagsstofu höfð-
uðborgarsvæðisins og nokkru
seinna var hugmyndin kynnt á
Qölmennum fundi á Búðareyri.
Þess skal getiö að norðausturleiðin
um íshaf, norðan Síberíu, mUli
Atlantshafs og Kyrrahafs, hefur
eflst síðan og er enn umræðuefni á
erlendum ráðstefnum um siglingar
um norðurhöf og framtíö þeirra á
næstu öld.
Hin eina hindrun siglinga þar
um slóðir er nú, að liðnum Sovét-
„Sýn frænda míns mun rætast og
snotur smáborg rís viö Reyðar-
fjörð þegar tímar líða. En mættí
ekki huga að öðrum ráðum til að
svo megi verða en herja á lífríki á
heiðum uppi, heimkynni þúsunda
plantna, ogafsakið lesandi minn,
herra maður, herra jarðarinnar,
heimkynni milfjóna skordýra?“
sem stutt hefur með ráðum og dáð
hugmyndina um þátt íslands í sigl-
ingum um Norður-íshaf. Brot af
þeim flutningum sem fram undan
eru og kæmu um íslenskar hafnir
yrði íslendingum búbót.
Næsta sumar verður haldin
mikil ráðstefna um norðurslóðir í
Sankti Pétursborg. Það er sú borg
sem áður var kennd við Lenín.
Liggur hann nú múmía, föl og fá, í
grafhýsi við Kreml í Moskvu. Vildi
svo til að ég var staddur einn með
Lenin drykklanga stund fyrir
nokkrum árum er ég sótti fund í
Moskvu um norðausturleiðina og
átti leið um Rauðatorgið að lokn-
um fundinum. Voru þar nú öngvar
biðraðir trúmanna að liðast um úti
á Rauðatorgi að bíða þess að líta
augum hina helgu múmíu. Ég var
einn í rökkri grafhýsisins hjá
þessu ógnvænlega tákni glæstra
vona sem brugðust. Þar til ung-
menni í hermannabúningum
bentu mér kurteislega að staldra
ekki lengur við þar sem ég stóð við
fótagaflinn. Ég veit ekki af hverju
þeir koma honum Lenin ekki heim
til mömmu. En það var við hliðina
á henni sem hann vildi liggja.
Tíminn líður
En áfram með smérið. - Á ráð-
stefnunni næsta sumar þyrfti að
vera íslendingur, jafnvel einhver
frá Reyðarfirði. Það yrði þá sam-
~L kvæmt þeim hraða sem við
landar tileinkum okkur nýjar
hugsanir, mannsaldur seinna
en aðrar þjóðir. Þegar ég vann
á Veðurstofu Kanada fyrir ald-
arfiórðungi og var formaður
Torontodeildar Kanadíska veð-
urfræðingafélagsins stóð ég að
heimboði Bandaríkjamanns
sem greindi frá reynslu landa
sinna af lögum um umhverfis-
mat í tengslum við nýjar fram-
kvæmdir. Það var þá nokkurra
ára gamalt fyrirkomulag í
Bandarikjunum.
Nú um stundir eigum við
bágt, íslendingar, er mikið talað,
orð af viti sögð og ekki af viti, en
flest væru óþörf ef við hefðum
tamið okkur holl viðhorf andspæn-
is náttúrunni og komið á nútíma-
legum reglum um umhverfismat
um leið og aðrar þjóðir.
Sýn frænda míns mun rætast og
snotur smáborg rís við Reyðarfiörð
þegar tímar líða. En mætti ekki
huga að öðrum ráðum til að svo
megi verða en herja á lífríki á heið-
um uppi, heimkynni þúsunda
plantna, og afsakið lesandi minn,
herra maður, herra jarðarinnar,
heimkynni milljóna skordýra?
Þór Jakobsson
Skoðanir annarra
Stöðugleikinn í fyrirrúmi
„Alþýðusamband íslands hefur látið framkvæma
kjarakönnun og samkvæmt henni sögðust 83,2% svar-
enda vera tilbúin að taka þátt í að tryggja stöðugt verð-
lag þótt það þýddi minni launahækkun fyrir þá. Ein-
ungis 16,8% sögðust ekki vera tilbúin til þess... Kjæ'a-
könnun þessi gefur mjög sterkar vísbendingar um að
launþegar telji það skipta mestu fyrir þá að verðbólgu
sé haldið niðri og stöðugleiki verði áfram í efnahags-
lífinu... Fólk hafnar greinilega kröfugerð, sem hefur
verðbólguskriðu í för með sér, enda einstaklingar og
heimili skuldsett um þessar mundir. Kauphækkanir í
takt við hagvöxt og framleiðniaukningu er sú leið, sem
skilar launþegum vestri kaupmáttaraukningu."
Úr forystugreinum Mbl. 25. nóv.
Uppákoma í flokkaforystu
„Undanfarin misseri hefur Samfylkingin borið höf-
uð og herðar yfir aðra stjómmálaflokka þegar kemur
að vandræðagangi í forystumálum flokksins og stefnu.
Er óhætt að segja að yfirburðir samfylkingarmanna á
þessu sviði séu ein aðalorsök þess hve illa þeim hefur
gengið að fóta sig sem það nýja stjómmálaafl sem þeir
vilja vera. Nú bendir hins vegar ýmislegt til að Sam-
fylkingin sé að missa forystu sína á þessu sviði yfir til
Framsóknarflokksins, sem þessa dagana glímir við
einhverja sérkennilegustu uppákomu í seinni tíma
stjómmálassögu... Enn hafa framsóknarmenn tækifæri
til að höggva burt þennan vandræðagang og halda
höfði - í bróðemi eða í fiandskap."
Birgir Guðmundsson í Degi 25. nóv.
Vináttan í FBA skóginum
„Líklegt er að vináttan í FBA skóginum haldist eitt-
hvað áfram, þvi þótt dýrin séu ólík eiga þau öll þá sam-
eiginlelgu hagsmuni að skógurinn vaxi og dafni. Það
tók víst tíma og fortölur að draga suma að borðinu til
að fylla töluna. Hugmyndin mun vera sú að tappa dá-
góðum sjóði af bankanum og em það góðar fréttir fyr-
ir þensluhættuna í landinu. Bankinn þarf þá ekki að
auka útlán sín til að ná betri ávöxtun eigin fiár...
Úlánaþenslan í landinu er þegar komin að suðumörk-
um og frekari útþensla FBA innanlands í því skyni að
réttlæta hátt gengi hlutabréfanna hefði tæplega verið
skynsamleg."
Margeir Pétursson i Viöskiptablaði Mbl. 25. nóv.