Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Börn grafin í tvo tíma undir snjóhengju í Biskupstungum:
Björgunarsveitarmenn
á heimleið til hjálpar
- björgunarsveitarmenn voru 10 mínútur á staöinn
DV, Biskupstungum:
„Börnin voru búin að vera aö
leik uppi á fjárhúsþaki og stukku
ofan af því í snjóskafl, þá hrundi
hengja yfir þau og gróf þau undir
metraþykkum snjó.
Þau voru þama fjórir krakkar,
tvö þeirra voru komin inn i bæ.
Þegar hin tvö skiluöu sér ekki inn
var strax farið að svipast um eftir
þeim og fljótlega uppgötvaðist
hvað gerst hafði,“ sagði Ingvi Þor-
finnsson, formaður björgunarsveit-
ar Biskupstungna við DV. Björgun-
arsveitir af Suðurlandi voru kall-
aðar út í gærkvöld til að leita aö
tveim börnum á bænum Austur-
hlíð í Biskupstungum sem grófust
undir stórri snjóhengju sem féll
yfir þau. Vel gekk að ná börnunum
upp úr snjónum eftir að björgunar-
sveitarmenn fundu þau í skaflin-
um með snjóflóðastöngum. Þá
höfðu börnin verið undir farginu á
þriðja tíma.
„Það sem skipti sköpum í þessu
útkalli var það að við björgunar-
sveitarmenn vorum staddir uppi á
Börnin úr Biskupstungum voru hress viö komuna á Sjúkrahús Reykjavíkur. Þau lágu grafin undir snjófargi í tvo tfma
áöur en komiö var til bjargar. Hér eru mæögurnar Melkorka Rut Bjarnadóttir, 11 ára, og Kristín Heiöa Kristinsdóttir
og mæöginin Níels Magnús Magnússon, 14 ára, og Guörún Poulsen eftir komuna á sjúkrahúsiö. DV-mynd S
Hilmar klár meö
tertuna. ..Tertur
eru þaö besta
sem eg fæ."
DV-mynd gk
Akureyri:
Bæjarverkstjórinn
orðinn „16 ára“
DV, Akureyri:
Hilmar „Marri“ Gislason, bæjar-
verkstjóri á Akureyri, á afmæli i dag í
16. sinn. Já, hann er hlaupársdags-
bam, fæddur 29. febrúar árið 1936.
Hann er því í rauninni 64 ára, en af-
mælisdagamir til dagsins í dag hafa
engu að síður ekki verið nema 16 tals-
ins.
„Þetta var voðalegt i æsku, mér var
endalaust strítt á því að ég ætti ekki af-
mælisdag og mér fannst það hábölvað
að eiga ekki afmælisdag eins og aðrir
nema á 4 ára fresti,“ sagði Hilmar þeg-
ar við hittum hann að máli hjá Bakar-
anum við brúna á Akureyri í gær. Til
stóð að Andrés Magnússon bakari þar
hefði tilbúna afmælistertu handa bæj-
arverkstjóranum en bakarinn var veð-
urtepptur í Reykjavík svo við létum
minni tertu nægja.
Hilmar segir að það hafi alltaf verið
haldið upp á afmæli hans þegar hann
var ungur, þótt hann ætti ekki fastan
afmælisdag. „Síðan ég varð eldri er
haft aðeins meira við á fjögurra ára
fresti þegar 29. febrúar kemur, fjöl-
skyldan kemur saman en yfirleitt er ég
lítiö fyrir afmælistilstand," segir Hilm-
ar og við óskum honum til hamingju
með daginn. -gk
Geysi á heimleið úr útkalli þar
sem við vorum að leita að vélsleða-
mönnum úr Hveragerði, það liðu
því aðeins tíu mínútur frá útkall-
inu þar til að við vorum komnir á
staðinn," sagði Ingvi Þorfinnsson.
Hann sagði að snjórinn sem böm-
in voru grafm undir hafi verið orð-
inn mjög þéttur þegar þau náöust
undan farginu en tíminn hafi skipt
öllu máli í björgunaraðgerðinni.
Ingvi sagði að mikið væri búið
að snjóa í Biskupstungum og mik-
ill skafrenningur sé þar. Það séu
því víða hættulegar hengjur og
vissara að fara gætilega við þær til
að komast hjá óhöppum.
„Það var ákveðið að senda böm-
in með sjúkrabíl til Reykjavíkur til
aðhlynningar.
Hvað ég best gat vitað vom þau
óbrotin, en þau vom náttúrlega
köld og hrakin þegar þau björguð-
ust úr skaflinum. Það var ekki
nein meiðsl að sjá á þeim að öðra
leyti en að þau vora sjokkeruð og
köld og ég vonast til að þau nái
fullri heilsu mjög fljótlega. En það
er ljóst að þama fór betur en á
horfðist, því börnin voru orðin
mjög föst í snjónum," sagði Pétur
Skarphéðinsson, læknir i Laugar-
ási, við DV í gærkvöld.
DV ræddi við bömin og aðstand-
endur þeirra við komuna á Sjúkra-
hús Reykjavíkur í gærkvöld. Þau
sögðust þá vera hress að því und-
anskildu að eymsli væru hér og
þar.
„Mér líður bærilega og held að
vi’ höfum sloppiö vel. Ég finn bara
til í öxlinni,“ sagði Níels Magnús í
samtali við DV í gærkvöld.
NH/-S
Súðavík:
Vélsleðamað-
ur fórst
DVj Vestfjörðum:
Karlmaður á sextugsaldri lést í
vélsleðaslysi í Súðavík í gær. Lög-
reglunni á ísafirði barst tilkynning
um slysið kl. 17.38. Tildrög voru þau
að maðurinn fór á vélsleðanum
fram af hengju og féll við það um
þrjá metra niður. Slysið varð
skammt ofan við gömlu byggðina í
Súðavík. Þegar að var komið reynd-
ist ökumaður vélsleðans látinn og
lifgunartilraunir báru ekki árang-
ur.
Vegurinn frá ísafirði til Súðavík-
ur hefur verið lokaður síöan á
sunnudag vegna snjóflóðahættu, og
þurfti lögreglan á ísafirði að fara
sjóleiðina með björgunarbátnum
Gunnari Friðrikssyni til að sinna
störfum sínum á slysstað. Ekki er
unnt að greina frá nafni hins látna
að svo stöddu.
-KS
Bolungarvík.
Enn snjóflóðahætta
DV, Vestfjöröum:
Á sunnudag voru níu hús rýmd
vegna snjóflóðahættu í Bolungar-
vík, af þessum sökum þurftu um
tuttugu og fimm manns að yfirgefa
heimili sín og halda til annars stað-
ar í bænum og var þetta ástand enn
viðvarandi á mánudagskvöld. Að
sögn lögreglunnar í Bolungarvík
átti að meta aðstæður fyrir nóttina
hvort fólkinu yrði leyft að snúa til
síns heima.
Mjög slæmt veður hefur verið hér
fyrir vestan um helgina, og vegna
snjóflóðahættu lokuöust vegimir til
Bolungarvíkur og Súðavíkur frá
ísafirði á sunnudag. Óshlíð var opn-
uð síðdegis í gær en vegurinn til
Súðavíkur var enn lokaður. -KS
Samkeppni út:
íslandsflug
mun draga veru-
lega saman
rekstur sinn og
leigja sínum
helsta keppi-
naut, Flugfélagi
íslands, báðar
ATR-vélar fé- __________
lagsins. 30 starfsmönnum við rekst-
ur vélanna og viðhald hefur verið
sagt upp og þjónusta félagsins mun
dragast saman. Forsvarsmenn ís
landsflugs segjast ætla að leggja
meiri áherslu á þjónstu og við
skipti á erlendum vettvangi í von
um að ná fram hagnaði.
Enginn í skóla
Öllu skólahaldi i grunnskólum Ak-
ureyrar var aflýst í gær vegna
ófærðar og óveðurs.
Meiri íbúðaveita
Velta í viðskiptum með íbúðarhús-
næði hefur aukist 54% síðustu tvö
árin. það jafngildir 1,2 milljóna
hækkun á hverja ftögurra manna
fjölskyldu. Vísir.is greindi frá.
Framleiða sushi
Fyrirtækið Sindraberg hf. á ísafirði
er nú farið að framleiða ferska
sushirétti fyrir heimamarkað og
fljótlega verða réttirnir fluttir út til
Bretlands.
Örsögum fagnað
Dansstuttmyndin „Örsögur úr
Reykjavík" hlaut frábærar viðtök-
ur á Hivernales-danshátíðinni í
Avignon í Frakklandi í síðustu
viku. Myndin var sýnd tvisvar
sinnum fyrir fullu húsi og danshöf-
undar sátu fyrir svörum um gerð
myndarinnar.
Maður fannst
Maður á fimmtugsaldri fannst í
Grasagarðinum í Laugardal í gær-
morgun ofkældur og meðvitundar-
laus. Hann var fluttur í skyndi á
sjúkrahús. Ekki er vitað um tildrög
þess að maðurinn fannst svona á
sig kominn. Vísir.is greindi frá.
Félagsfundur
Félagsfundur
hefur verið boð-
aður hjá aðildar-
félögum Flóa-
bandalagsins
næstkomandi
fimmtudag þar
sem ætlunin er
að skýra frá
stöðu mála í samningaviðræðum
við Samtök atvinnurekenda en
næsti samningafundur viðsemj-
enda hefur verið boðaður hjá sátta-
semjara á miðvikudag.
Nafnbreyting
Frá og með 1. mars næstkomandi
verður nafni Navís-Landsteina hf.
breytt í Landsteinar Island hf.
Kennitala verður sú sama og áður.
Vbl. greindi frá
Hagnaður MP
Hagnaður MP Verðbréfa hf. á árinu
1999 var 29,9 milljónir króna. Hefur
þá verið tekið tillit til 14,4 milljóna
króna tekjuskatts. Mbl. greindi frá.
Bíðu og biðu
Milli 500 og 700 manns létu sig hafa
það að bíða við verslun ELKO í
Kópavogi í gærmorgun, sumir í
nokkrar klukkustundir, til að geta
nýtt sér afmælistilboð fyrirtækis-
ins.
Hreindýr í byggð
Undanfama daga hafa hreindýr i
hópum farið alveg niður í byggð á
Eskifirði. Mbl. greindi frá.
Ný staða
Umhverfisvinir
hafa sent frá sér
fréttatilkynn-
ingu þar sem
þeir skora á rík-
isstjórnina að
endurskoða af-
stöðu sína til
Fljótsdalsvirkj-
unar. Ný staða sé komin upp í mál-
efnum Fljótsdalsvirkjunar eftir
ákvörðum Sivjar Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra um að fella úr
gildi úrskurð skipulagsstjóra um
álver í Reyðarfirði. Nægur tími sé
til lögformlegs umhverfismats.
Mbl. greindi frá. -hlh