Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
Fréttir
DV
scmdkorn
5 ára barn lést úr heilahimnubólgu á laugardag:
Þriðja dauðsfallið á
þremur mánuðum
- leikskólafélagarnir og Qölskyldan í sýklalyfjameöferð
Fimm ára drengur lést úr heila-
himnubólgu aðfaranótt laugardags
á Landspítalanum eftir að hafa
veikst fyrr um kvöldið og verið
fluttur í ofboði með sjúkraflugi frá
Vestmannaeyjum. Allir úr nánasta
umhverfi drengsins, fjölskyldan og
félagar hans úr leikskólanum, voru
umsvifalaust settir í sýklalyfja-
meðferð.
Haraldur Briem farsóttalæknir
segir enga ástæðu til að óttast far-
aldur heilahimnubólgu en að mikil-
vægt sé að fólk hafi á sér vara gagn-
vart einkennum þessa hættulega
sjúkdóms sem algengast er að legg-
ist á börn. Haraldur segir algerlega
tilviljanakennt hvar sjúkdómurinn
ber niður, en um er að ræða svo-
kallaða meningókokka-bakteríur. 10
til 15 af hverjum hundrað íslending-
um hafi sjúkdóminn í sér á
hveijum tíma og aldrei að
vita hvar slík hastarleg
veikindi stingi sér niður
næst.
Klukkutímarnir skipta
máli
„Sjúkdómurinn byrjar oft
eins og hve önnur kvef- eða
flensupest. Það sem fólk á
að hafa í huga er breytt meðvitund-
arástand en það bendir til sýkingar
í miðtaugakerfmu. Yngstu bömin
geta fariö að hegða sér undarlega,
verða skrækari og borða ekki. Eldri
bömin eru með höfuðverk og hugs-
anlega sljó þótt þau geti líka verið
býsna vakandi. Þessu fylgir oft
ógleði og stífleiki í hnakka, sem er
líka einkenni um miðtauga-
kerfissýkingu, en yngstu
bömin era hins vegar ekki
endilega með hnakka-
stífleika þannig að það er
ekki alveg öruggt merki. En
það sem er alveg sérstak-
lega einkennandi fyrir sjúk-
dóminn eru svokallaðar
húðblæðingar. Þær era
rauðir dilar á stærð við
títuprjónshaus sem láta
ekki undan þrýstingi og þær geta
líka verið eins og marblettir," segir
Haraldur Briem.
Haraldur segir sjúkdóminn til-
tölulega fljótgreindan en ef öll ein-
kenni séu til staðar sé ekki beðið
boðanna og sýklalyfjagjöf hafin
strax. „Ef menn hafa minnsta grun
er mikilvægt að draga það ekki því
klukktímamir skipta máli. Gangur-
inn á þessu getur veriö mjög hraður
þannig að engum vörnum verður
komið við,“ segir hann.
Að sögn Haralds er heilahimnu-
bólga landlæg á íslandi og gekk hér
í stórum faraldri fyrir 25 árum.
„Síðan hefur þetta verið nokkuð
mikið á hveiju ári en algerlega til-
viljanakennt hvar sjúkdómurinn
hefur borið niður og ekki beint
hægt að tala um faraldur," segir
hann en undanfarin ár hafa um 20
manns veikst af sjúkdómnum á ári
hverju og einn af hverjum tíu hefur
dáið. Litli drengurinn er þriðja
fómarlamb heilahimnubólgunnar í
vetur en í desember létust tveir úr
þessum illvíga sjúkdómi.
-GAR
Haraldur Briem.
Snjóbfll ferðalanga viö Heklu. í fjarska sést gosmökkurinn. DV-mynd Teitur
Horfst í augu
við kölska
Mjög hefúr dregið úr krafti eldgoss-
ins í Heklu frá því á sunnudag. Að
sögn jarðeðlisfræðinga á Veðurstofu
• íslands er framvinda gossins með
ósköp eðlilegum hætti. I síðasta gosi
mallaði í einar sjö vikur í einum gig,
en áður era dæmi um að gosi hafi lok-
ið á nokkrum dögum.
Mikill fjöldi fólks fór um helgina að
Heklu eins og frægt er orðið til að líta
eigin augum hrikalegt sjónarspil nátt-
úrunnar. Ekki höfðu þó allir erindi
sem erfiði þar sem skyggni var mjög
takmarkað við Heklu lengst af á
sunnudag.
Teitur Jónasson, ljósmyndari DV,
fór fast að hraunjaðrinum við suöaust-
urhlíðar Heklu í snjóbíl ásamt jarð-
fræðingum og fleira samferðafólki. Þar
var ekki mikið um mannaferðir fyrir
utan nokkra vélsleðamenn. Annar ljós-
myndari DV, Þorvaidur ö. Krist-
mundsson, fór að hraunjaðrinum við
norðausturhom Heklu. Þar var búinn
að vera nokkur fjöldi fólks sem þangað
hafði ekið á um 60 jeppum.
Ef marka má sagnir um að þetta
fræga eldfjall sé dyr vítis, þá hefur fólk
væntanlega komist þar næst því að
horfast i augu við kölska sjálfan. Seig-
fljótandi hraunið vall þama fram um
10 til 20 metra á klukkustund og því
fylgdi töluverður hávaði. -HKr.
Horft í eldhafiö.
Þaö var mikil umferö viö hraunjaöarinn og sumir lentu í erfiöleikum. Hér er veriö aö ýta Hummer sem réö ekki viö
aöstæöurnar. Meö samstilltu átaki tókst aö losa bifreiöina. DV-mynd Teitur
Anna Engstrám, sænskur skiptinemi í
jaröfræði viö HÍ, hugfangin meö glæ-
nýjan fslenskan hraunmola í höndum.
DV-mynd Teitur
Draumur fréttastjórans
Gosið í Heklu yfirgnæföi allt
annað í fréttatímum helgarinnar
og kepptust stöðvarnar, sérstak-
lega sjónvarpsstöðvarnar tvær, við
að flytja fyrstu fréttir og fyrstu
myndir frá þessum
viðburði. Gekk svo
mikið á að gosið
sjálft hvarf um tíma
í bakgrunn fyrstu-
myndakeppninnar.
En þá hafði gamla
gufan þegar sigrað
í þeirri lotu því í
fréttatíma hennar
klukkan átján á
laugardag var tilkynnt um að gos
væri væntanlegt á næstu mínútum
og hófst gosið áður en fréttatíminn
var úti. Ásgeiri Tómassyni og
Brodda Broddasyni, sem sátu
gosvaktina í útvarpshúsinu á
fóstudagskvöld, rataðist rétt orð á
munn þegar þeir lýstu atburða-
rásinni sem „draumi hvers frétta-
stjóra"...
Á skíðum
Margir muna deilumar um veg-
arlagningu hjá Stóra-Kroppi í
Borgarfirði. Ándstæöingar vegar-
ins í sveitinni hlæja nú dátt að
ástandinu og þykja lyktir mála ein-
kennast af vitieysis-
gangi einum saman.
Enda hefur komið á
daginn að nýi veg-
urinn, sem lagður
var samkvæmt
vilja Jóns Kjart-
anssonar á nefnd-
um bæ, er alltaf
ófær og til mestu
vandræða þar
sem hann tefur skólahald í sveit-
inni. Og ekki hljóðnaði hláturinn
þegar fréttist um sveitina að Jón,
sem var mjög atkvæðamikill í mál-
inu, hefði brugðið búi og væri
kominn tti Sviss þar sem hann
rennir sér á skíðum...
Frétt í frétt
Og nú af blindbyl og ófærð. Egg-
ert Skúlason, sem hefur ágætt lag
á að láta frásagnargleðina smita
fréttimar sem hann flytur og vekja
þá sem eru að lognast út af í leti-
stólunum framan við
imbakassann, var í
aðalhlutverki í há-
degisfréttatima
Bylgjunnar í gær.
Var hann staddur í
Þrengslunum og
lýsti því hvernig
hann þurfti að
„tala niður“ til
manna þar sem þeir
sátu grafnir í bílum sínum. I lok
fréttarinnar klykkti Eggert út með
frétt í fréttinni, nefnilega þeirri að
Stöð 2 væri föst í Þrengslunum.
Við þau orð rifjaðist upp frétta-
flutningur af fjölmiðlaveðri á Hell-
isheiði í fyrra eða hittifyrra. Þar
festist Stöð 2 einnig í skafli og
flutti af því fréttir. Þannig virðist
nær tryggt að það kemur alltaf
frétt úr vetrarferðum Stöðvar 2...
Góð ræða
Biblíudagurinn var í gær,
sunnudag, og venju fremur er
margt gert til þess að vekja athygli
á boðskap Biblíunnar. í Árbæjar-
kirkju var svokallaður maraþon-
lestur á hinni helgu
bók þar sem hver
maður las í 15 mín-
útur. Meðal lesara
vora Valgerður
Sverrisdóttir við-
skipta- og iðnaðar-
ráðherra og sr.
Hjálmar Jóns-
son alþingismað-
ur. Meðan Valgerður las úr
Mattheusarguðspjalli orti Hjálmar:
Ekki slitnar andans þráður
innihaldið rökum stutt.
Valgerður hefur ekki áður
öllu betri ræðu flutt.
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is