Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
5
DV
Fréttir
Sendibílstjóri í Þrengslunum:
Björgunarsveitarmaður
hékk á hliðarspeglinum
„Rokið þarna var ofboðslegt.
Björgunarsveitarmenn sögðust hafa
mælt vindhraða upp á 56 metra á
sekúndu en það er meira en ég hef
heyrt af áður og hvað þá lent í,“
sagði Gunnar Birgisson sendibil-
stjóri sem lenti í ofsaveðrinu og
þurfti aö yfirgefa bil sinn í Þrengsl-
unum aðfaranótt mánudagsins. „Ég
lagði upp í Þrengslin upp á von og
óvon og ég er ekki frá því að það
hafi verið 300 bílar á undan mér og
álíka margir á eftir. Ég komst ekki
langt þrátt fyrir góðan útbúnað því
þarna var allt stopp. Ég er á stórum
bíl sem tekur á sig mikinn vind í
svona veðri og dansaði hann því á
svellinu fyrir bragðið. Ég var því
fegnastur þegar hann festist í skafli
og þannig yflrgaf ég hann um
þrjúleytið um nóttina," sagði Gunn-
ar sem á tímabili var að hugsa um
að fylla sendibíllinn með snjó til að
þyngja hann. Um svipað leyti voru
björgunarsveitarmenn að bjarga
óléttri konu úr einum bílanna til
byggða og hross stóðu ókyrr í hest-
aflutningavagni rétt fyrir framan
Gunnar og vissu vart hvaðan á þau
stóð veðrið.
„Rokiö var þvílíkt að einn björg-
unarsveitarmannanna þurfti að
hanga í hliðarspeglinum hjá mér til
Ég var að hugsa um að fylla bílinnaf snjó svo hann fyki ekki, sagði Gunnar Birgisson sendibílstjóri.
DV-myndir Teitur
að fjúka ekki út i myrkrið. Ég hef Gunnar sem komst til Þorlákshafn- beið þess enn í gær að geta losað bíl
aldrei áður séð slíka sjón,“ sagði ar með björgunarsveitarmönnum og sinn. -EIR
Heklufarar enduðu í næturkaffi í Þorlákshöfn.
Fjöldahjálparstöð í Þorlákshöfn:
300 manns
í kaffi
- hjarta- og sykursjúkir fengu lyfin sín
„Ég held að 300 manns hafi drukk-
ið kaffi hjá okkur hér um nóttina og
svo þurftum við að útvega og gefa
fólki lyf sem það hafði skilið eftir
heima. Hér voru hjartasjúklingar,
sykursýkisjúklingar og einn floga-
veikur. En þetta fór allt vel,“ sagði
Bergdís Siguröardóttir, hjúkrunar-
fræðingur í Þorlákshöfh, sem setti
fjöldahjálparstöð á laggimar í heima-
byggð sinni þegar óveðrið skall á í
Þrengslunum og hundruð manna
tepptust í bílum sínum. „Við erum
ijórar hér í bænum sem höfum fariö
á námskeið hjá Rauða krossinum í
björgunarstörfum og við settum
hjálparstöðina á laggimar þegar við
sáum í hvað stefndi. Ætli hundrað
manns hafl ekki gist í skólanum og
annað eins i heimahúsum og þá er
fjöldinn varlega áætlaður," sagði
Bergdis sem er orðinn flokksstjóri í
björgunarmálum eftir námskeiðið
hjá Rauða krossinum.
Ferðalangamir sem nutu aðstoðar
Bergdís Siguröardóttir.
og skjóls hjá Bergdísi og öðrum íbú-
um Þorlákshafnar vora svo að tinast
til síns heima fram eftir degi í gær.
Langflestir höfðu lagt upp frá Reykja-
vík til að skoða gosið í Heklu sem
aldrei sást en enduðu þess í stað í
næturkaffl í fjöldahjálparstöðinni í
Þorlákshöfn. -EIR
Síödegis í gær var hluti gestanna enn hjá presti enda nóg eftir af brauöi og
guösoröi sem fylgdi meö.
Presturinn í Þorlákshöfn:
Sofandi hundar og
hótelmorgunverður
„Ég býst við að um 20 manns hafi
gist hér hjá mér í prestsbústaðnum
óveðursnóttina og tveir hundar að
auki. Þeir sváfu líka vært,“ sagði
séra Baldur Kristjánsson, sóknar-
prestur í Þorlákshöfh, sem opnaði
heimili sitt fyrir veðurtepptum úr
Þrengslunum um helgina. „Menn
komu hingað slæptir um tvöleytið
um nóttina og fengu að liggja á dýn-
um sem hjálparsveitin lagði til. Hér
sváfu allir vært og um morguninn
var gerður út leiðangur í kaupfélagið
til að kaupa vistir. Síðan var slegið
upp morgunverði eins og hann gerist
bestur á flnum hótelum," sagði séra
Baldur sem var ákaflega ánægður
með að hafa fengið svo marga góða
gesti óvænt á heimili sitt. Síðdegis í
gær var hluti gestanna enn hjá presti
enda nóg eftir af brauði og guðsorði
sem fylgdi með. -EIR
Litla kaffistofan á Sandskeiði:
120 í 60 stólum
Guömundur Stefánsson i Litlu kaffistofunni.
„Hér vora 120
manns þegar mest var
en staðurinn tekur að-
eins 60 í sæti,“ sagði
Guðmundur Stefáns-
son, sonur veitinga-
mannsins í Litlu kaffl-
stofunni á Sandskeiði
sem skaut skjólshúsi
yflr blauta og hrakta
ferðalanga sem lentu í
óveðrinu í Þrengslun-
um á sunnudaginn.
„Fólk beið hér rólegt,
tók í spil, var mikið í símanum og
pönnukökupannan hafði vart undan,"
sagði Guðmundur sem var ánægður
eftir nóttina og þá sérstaklega með
peningakassann sem var vel fullur.
Guðmundur bauð upp á kaffi og stóð
vaktina ásamt fjölskyldu sinni í hríð-
arbylnum sem var þvílíkur að vart
sást á milli manna ef tveir fóra út.
„Þá vora margar konumar fegnar að
komast á salernið hjá mér. Ég hef
sjaldan mætt þakklátari augum,"
sagði Guðmundur í Litlu kaffistof-
unni. -EIR
Upplysingan
í síma:
557 6011
Toyota Land Cruiser 100 Vx, 11/99,
sjálfsk., upph., 35“ breyting, leður o.fl.,
ek. 16 þ. km., dökkblár.
Verð 7.250 þús., sk. ód.
Grand Cherokee Laredo 4,0 1,1/00,
sjálfsk., allt rafdr., nýr bíll, grár.
Verð 5.050 þús. stgr., sk. ód.
___________
Grand Cherokee Limited 5,9 1,98,
sjálfsk., leður, toppl., álfelgur, CD o.fl.,
svartur, ek 31 þús.
Bílalán 2.500 þús.
Verð 4.190 þús., sk. ód.
___________________ _____________I
Range Rover, 4,6, Hse, 99,
sjálfsk., leður, toppl. og margt fl., grænn.
Verð 7.950 þús., sk. ód.
Opel Vectra 2,0, CD, STW, 98,
sjálfsk., allt rafdr., ABS, spólvörn, ek 30
þ. km, vínr. Bílalán 900 þús.
Verð 1.730 þús., sk ód.
M Benz C-180 Classic 96,
5 g., ek 44 þ. km, toppl., silfurgrár,
toppeintak.
Bílalán 1.750 þús. Verð 2.150 þús.
S. 557 6011
S. 864 6012