Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
Neytendur
Verökönnun á fiski:
Ysan hefur hækkað
um 25% á einu ári
Dagana 22. og 23. febrúar kannaöi
Samkeppnisstofnun verð á fiski í 17
fiskbúðum og 12 matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu. Sambærileg
könnun fór fram á sama tíma í
fyrra. Sem dæmi um verðbreytingar
á einstökum tegundum má nefna að
ýsuflök hafa hækkað um 20% á
tímabilinu, heil ýsa um 26% og
rauðsprettuflök um 22%. Fiskur hef-
ur hækkað mikið að undanfömu og
má m.a. nefna að ýsuflök hafa að
meðaltali hækkað um 44% á síðast-
liðnum tveimur árum.
Gífurlegur munur
Þegar verömunur milli verslana
er skoðaður kemur í ljós að hann er
í mörgum tilfellum mjög mikill.
Stórlúða í sneiðum er ódýmst í
Fjarðarkaupum í Hafnarfirði á 898
krónur kílóið en dýrast í fiskbúð-
inni Nethyl 2 á 1398 krónur kílóið.
Verðmunurinn er 56%.
Heil smálúða er ódýrust í flskbúð-
inni Amarbakka 4-6 á 590 krónur
kílóið en dýrust í Fiskbúðinni okk-
ar og Nóatúni á 998 krónur kílóið.
Munurinn er 69%.
Smálúðuflök voru ódýrust í Fisk-
búð Einars á 890 krónur kílóið en
dýrast í Nýkaupi og Nóatúni á 1198
krónur kílóiö. Munurinn er 35%.
Rauðsprettan misdýr
Saltfiskur, eins og sjávarútvegsráöherrann heldur á, hefur hækkaö um 17% á einu ári.
Heil ýsa sem hefur hækkað um
26% á einu ári er ódýrust í fiskbúð-
inni Sæbjörgu á 365 krónur kílóið
en dýrust í Nóatúni á 498 krónur
kílóið. Verðmunurinn er 36%.
Fiskhakk úr ýsu er ódýrast i Ný-
kaupi á 599 krónur kílóið en dýrast
í Fiskbúðinni okkar á 998 krónur
kílóið. Verðmunurinn er 67%.
Þeir sem era hrifnir af tilbúnum
fiskréttum ættu að kaupa ýsu í
sósu hjá fiskbúðinni Árbjörgu þar
sem hún er ódýrast á 730 krónur.
Dýrust er ýsa í sósu í Nýkaupi á
998 krónur. Verðmunurinn er 37%.
Útvötnuð saltfiskflök eru ódýrast
í fiskbúðinni Skaftahlíð 24 á 650
krónur kílóið en dýrust í Fiskbúð-
inni okkar á 995 krónur. Verðmun-
urinn er 53%.
Þeir sem vilja kaupa rauösprettu
í soðið ættu að vanda valið því
verðmunur á rauðsprettu milli
verslana er gífurlegur. Rauð-
sprettuflök eru ódýrust í Nóatúni á
639 krónur kílóið en dýrust í Fisk-
búðinni okkar á 1150 krónur. Verð-
munurinn er 80%.
Það er því ljóst að betra er að
kanna verðið vel áður en nokkuð
er keypt í soðið.
-GLM
Verðkönnun á fiski
Lægsta verö Hæsta verö Mismunur á hæsta j og lægsta
Stórlúöa í sneiöum 898 1398 56%
Smálúða heil 590 998 69%
Smálúöuflök 890 1198 35%
Ýsa, heil, hausuð og slægö 365 498 36%
Ýsuflök meö roöi 675 899 33%
Rskhakk (Ýsa) 599 998 67%
Ýsa i sósu 730 998 37%
Saltfiskflök, útvötnuö 650 995 53%
Ýsuflök, reykt 639 1150 80%
Franskur kjúklingur
Þessi franski kjúklingaréttur
er sannkallaöur herramannsrétt-
ur.
Uppskrift
1 msk. ólífuolía
1 niöurskorinn laukur
1 hvítlauksrif, niðursneitt
1/2 bolli beikon
1 kjúklingur
2 msk bráðið smjör
2 sellerístilkar, skornir i femt
8 litlar gulrætur
2 litlir kúrbítar, skomir í bita
8 litlar kartöflur
2 1/2 bolli kjúklingakraftur
2/3 bolli þurrt hvítvín
fersk basillauf
ferskt rósmarín
1 msk. mjúkt smjör
1 msk. hveiti
salt og svartur pipar
Aðferö
1) Hitiö ofninn í 200 gráður.
Hitið ólífuolíuna á pönnu og
steikið laukinn, hvítlaukinn og
beikonið í 5-6 mínútur.
2) Penslið kjúklinginn með
bráðnu smjöri og kryddið hann
vel. Setjið hvítlaukinn, beikonið
og laukinn i eldfast mót og
kjúklinginn þar ofan á. Raðið
öllu grænmetinu þar í kring.
Hellið kjúklingakraftinum og
Þessi franski kjúklingaréttur er
sannkallaöur herramannsréttur.
hvítvíninu yfir kjúklinginn. Lát-
ið kjúklinginn steikjast í 20 mín-
útur og penslið hann þá aftur
með smjöri og látið hann steikj-
ast í 25-30 mínútur í viðbót.
3) Hrærið saman mjúku smjör-
inu og hveitinu og bætið við
vatni eftir þörfum. Látið allt
malla saman í potti og kryddið
eftir smekk. Bætið fersku krydd-
jurtunum saman við. Athugið að
sósan á að vera mjög þykk.
4) Skerið kjúklinginn í bita og
raðið græmetinu á disk með hon-
um. Hellið sósunni yfir grænmet-
ið. -GLM
Harðar inn-
heimtuaðgerðir
Tæknivals
- þrettán ára dreng hótaö lögfræðingi
„Forsaga málsins er sú að við for-
eldrar Birkis sem er 13 ára gáfum
honum og systur hans Sony
Playstation-tölvu í jólagjöf sem við
keyptum í BT-tölvum. Síðan var
ákveðið að kaupa einnig auka-
stýripinna og stýri til að hafa þetta
sem skemmtilegast. Birkir var
meira inni í þessum málum svo
hann hringdi sjálfur í BT og Tækni-
val og pantaði aukahlutina í póst-
kröfu.
Hlutirnir komu, viö greiddum
póstkröfuna og allir undu glaðir við
sitt um jólin,“ segir Þorsteinn
Sveinsson, fósturfaðir Birkis Más
Ingimarssonar, 13 ára drengs sem
fékk óskemmtilegt bréf frá Tækni-
vali á dögunum. Birkir fékk svo
sent innheimtubréf frá Tæknivali í
síðustu viku, stílað persónulega á
hann, sem innihélt lokaviövörun
þar sem hann honum var tjáð að
hann skuldaði Tæknivali 2000 krón-
ur og ef hann borgaði ekki innan tíu
daga yrði skuldin send til lögfræð-
ings.
„Auövitað var honum alls ekki
sama og okkur finnst þetta full-
harkalegar aðgerðir af hálfu Tækni-
vals. Staðreyndin var sú að skráð
var röng upphæð á póstkröfuna sem
við greiddum eða 7980 krónur en
rétt upphæð var 9980 krónur. í tölvu
Tæknivals var því 2000 króna mis-
munur. Sorglegast við þetta allt
saman er þó að ekki var haft sam-
band við Birki fyrr en með þessu
lokaviðvörunarbréfi og við það get-
um við foreldrar hans ekki unað því
hann er nú aðeins þrettán ára.“
Að sögn Klemensar Amarssonar,
fjármálastjóra Tæknivals, er hér
um einstakt tilfelli að ræða: „Versl-
unarstjórinn hefði auðvitað átt að
hafa samband við hann áður en
bréfið var sent og fyrst póstkrafan
var vitlaus er sökin auðvitað okkar.
Við erum nýbúnir að taka í notkun
nýtt tölvukerfi og sennilega hefur sá
sem gerði þetta ekki haft næga yfir-
sýn yfir málið.“
Bætiefni við
ýmsar að-
stæður
Höfuðverkur
Þessi vítamín og steinefni
hafa reynst áhrifarík gegn höf-
uðverk:
100 mg af níasíni þrisvar á
dag.
100 mg af B-vítamíni tvisvar
á dag.
Kalk og magnesíum (rétta
hlutfallið er tvöfalt meira af
kalki en magnesíum) sem eru
hin róandi lyf náttúrunnar.
Brjóstsviöi
Flest sýrueyðandi efni á
markaðnum innihalda ál sem
truflar efnaskipti kalks og fos-
fórs. Líklega er hollara að taka
5 beinmjölstöflur á dag með
mat og drekka vel af vatni í
stað þess aö taka sýrueyðandi
efni.
Gyllinæð
Næstinn helmingur fólks yfir
fimmtugt þjáist af gyllinæö.
Rangt mataræði, hreyfingar-
leysi og harðar hægðir eiga
sinn þátt í því. Kaffi, kakó, kók
og súkkulaði auka óþægindin
frekar með því að stuðla að
endaþarmskláða. Hrjái gyllin-
æð þig er gagnlegt að taka inn
eina matskeið af klíði þrisvar á
dag, auk 1000 mg af C-vítamíni
tvisvar á dag til að græða
himnur og þrjú acidophilus-
hylki þrisvar á dag.
Flugþreyta
Þeir sem fljúga mikið á milli
landa og tímabelta kannast við
þau vandamál sem fylgja rösk-
un á dægursveiflu líkamans.
Til að hjálpa kerfinu að vinna
upp á móti þessari röskun
þarftu eftirfarandi vítamín:
B-vitamín gegn streitu fyrir
og eftir hádegi, (taktu fyrstu
töfluna um borð í vélinni).
E-vítamín, 400 a.e. tvisvar á
dag.
Verkir í fótleggjum
Auktu kalkneyslu. Reyndu
eina húðaða kalk-og
magnesíumtöflu með morgun-
mat og kvöldmat ásamt húðaðri
fjölsteinatöflu. E-vítamín hefur
reynst vel við harðsperrum. Al-
gengustu skammtar við þeim
eru 400-1000 a.e. af E-vitamíni
1-3 sinnum á dag.
Tíðahvörf
Vegna þeirra áhættu sem fylg-
ir estrógenneyslu hefur fjöldi
kvenna leitað annarra leiða til
að lina óþægindi breytinga-
skeiðsins. 400 a.e. af E-vítamini
1-3 sinnum á dag getur dregið úr
hitaköstum margra þeirra. 600
mg af B-vítamíni gegn streitu
tvisvar sinnum á dag virðist líka
hjálpa konum við tíðalok.
-GLM