Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
Viðskipti__________________________________________________________________________________________________pv
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ, 338 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 288 m.kr. ... Mest viðskipti með Samherja, 118
m.kr. ... Búnaðarbankinn lækkaði um 6% ... TM og OLÍS lækka um 4% ... Hans Petersen hækkaði um 9,2% ...
Flugleiðir hækka um 4,2% ... Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% og er nú 1776 stig ...
Ný samskiptalausn á
markað frá OZ.COM
Netfyrirtækið OZ.COM hefur sett á
markað samskiptalausn sem hlotið
hefur nafnið mPresence. í frétt frá
OZ.COM kemur fram að um sé að
ræða víðtæka þjónusta fyrir netvið-
skipti sem fjarskiptafyrirtæki geta
boðið notendum sínum. „Segja má að
mPresence sé fyrsta skrefið í átt að
þráðlausum netviðskiptum en
0Z.C0M er að kynna nýtt hugtak í
Mikil hagnað-
araukning hjá
Hans Peter-
sen hf.
- gert ráð fyrir
áframhaldandi vexti
Hagnaður Hans Petersen hf. árið
1999 var 52 milljónir króna og hækk-
aði um 38% frá árinu á undan. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi var 85
milljónir og hækkaði um 124% milli
ára. Veltufé frá reksti'i var 135 miiljón-
ir en var 79 miiljónir árið áður.
Heildarvelta
Hans Petersen
hf. í fyrra var
1.055 milljónir
króna en 971
milljónir króna
árið 1998, veltu-
aukning er 8,6%
miili ára þrátt
fyrir að vöru-
flokkum hafi
verið fækkað
með sölu um-
boða á árinu
1998. Rekstrar-
hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir
skatta varð 85,1 milijónir króna sam-
anborið við 37,9 milljónir króna árið
1998. Hagnaður ársins af heildarstarf-
semi félagsins eftir skatta varð 51,9
milljónir króna sem er svipað og áætl-
un gerði ráð fyrir. Arðsemi eigin fjár
Hans Petbrsen er 20,16%, en árið 1998
var arðsemin 19,66%.
1 frétt frá Hans Petersen hf. segir að
um þriðjungur af söluaukningu fyrir-
tækisins á árinu 1999 hafi komið frá
stafrænni tækni en tveir þriðju hlutar
frá hefðbundinni ljósmyndatækni.
Heildsala til endursöluaðila og heild-
sala á rekstrarvörum til fyrirtækja
jókst um 12% á síðastliðnu ári en smá-
salan um 4%, heildsala fyrirtækisins
stendur nú fyrir 56% af heildarsölu
fýrirtækisins en smásalan fyrir 44%.
Árið 1999 var fyrsta heila ár fyrir-
tækisins á Verðbréfaþingi íslands en í
lok árs 1998 voru hlutabréf félagsins
skráð á Verðbréfaþingi íslands í kjöl-
far lokaðs hlutafjárútboðs. Skráð
gengi í árslok 1999 er kr. 5,40 en var
kr. 5,10 í ársbyrjun. Miðað við skráð
gengi í árslok er markaðsverðmæti fé-
lagsins um 544,4 mihjónir króna og
voru hluthafar alls 102 í lok árs 1999.
Stjóm félagsins leggur til að hluthöf-
um verði greiddur 15% arður af hluta-
fé á aðalfundi félagsins.
Áætluð sala Hans Petersen hf. árið
2000 er 1.200 milijónir króna og hagn-
aður 60 milljónir króna. í áætlun árs-
ins er gert ráð fyrir að þréfalda sölu
tengda stairænum vöram og þjónustu
og má þá gera ráð fyrir að sú sala
verði um 15% af heildarsölu fyrirtæk-
isins.
Samkvæmt þessari rekstraráætlun
fyrirtækisins halda umsvifin áfram að
aukast en vöxtur veltu milli 1999 og
2000 verður nærri 14%.
Hildur Petersen,
framkvæmda-
stjóri Hans Pet-
ersen hf.
þráðlausa fiarskiptaheimin-
um; „M-business“ eða
„Mobile business".
mPresence er hannað
með samskipti einstaklinga
í fiarskiptakerfum í huga og
býður m.a. upp á hraðar og
öruggar sendingar skila-
boða. mPresence byggist á
iPulse-tækninni sem þróuð
var i samvinnu OZ.COM og
Ericsson og sameinar notk-
un Netsins, farsímaneta og
hefðbundinna símneta. Með
mPresence geta fyrirtæki í fiarskipta-
og netþjónustu boðið notendum m.a.
að spjalla á Netinu, finna aðra not-
endur hvar sem er í heiminum,
stunda netviðskipti og tengjast bæði
landssíma- og farsímakerfum.
OZ.COM sér um rekstur kerfisins og
þjónustu við það.
„mPresence tengir notanda á auð-
veldan hátt við seljendur vöru og
þjónustu á Intemetinu, lausnin inni-
heldur alhliða notendaskrá, einnig
samhæfða gjaldfærslu við
viðkomandi símfyrirtæki
og persónulega þjónustu
fyrir notendur. Þessa eig-
inleika geta t.d. síma- og
farsímafyrirtæki sniðið að
þörfum sinna eigin við-
skiptavina," segir í frétt
frá OZ.COM.
Enn fremur er bent á að
milljónir manna hafa nú
vanist þeim þægindum
sem fylgja samskiptum og
viðskiptum á Netinu. Meg-
inmarkmiðið með mPresence er að
flytja þau þægindi yfir á þráðlausa
netmarkaðinn. mPresence gerir not-
endum einnig kleift að nýta til fulls
og stjóma aðgengi sem þeir vilja að
aðrir hafi að þeim um hin ýmsu sam-
skiptanet. Þetta gerir mPresence með
vitrænni stýringu (intelligent rout-
ing) um síma- og tölvunetkerfi.
mPresence gefur notendum sínum
færi á samskiptum með einkatölvum,
farsímum, lófatölvum, boðtækjum
eða hefðbundnum simum, auk þess
að bjóða upp á mismunandi form
samskipta, hvort sem um er að ræða
texta, tal, myndir eða tölvugögn.
OZ.COM hefur átt í nánu samstarfi
við sænska fiarskiptafyrirtækið Er-
icsson. Þegar fyrirtækin kynntu iPul-
se kom í ljós verulegur áhugi fiar-
skiptafyrirtækja á að geta boðið
heildarlausnir fyrir viðskiptavini
sina. Svarið við þessum kröfum er
mPresence sem tengir saman þjón-
ustu á síma-, farsíma- og netmörkuð-
unum, sem raunar eru óðum að
renna saman í einn. mPresence er
samhæft öllum nýjustu samskipta-
stöðlunum.
„mPresence mun bæta samkeppn-
isstöðu fiarskiptafyrirtækja um allan
heim, ekki síst þeirra sem minni eru
í sniðum,“ segir Skúli Valberg Ólafs-
son, framkvæmdastjóri OZ.COM.
„Við erum að bjóða þjónustu sem ger-
ir þeim kleift að keppa við stærri fyr-
irtæki á þessum markaði og auka
tekjur sínar."
Skúli Valberg
Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri
OZ.COM.
Hraðfrystihús Eskifjarðar með
103 milljóna króna hagnað
- hagnaður af reglulegri starfsemi 29 milljónir
Hraöfrystihús Eskifjaröar hf.
Á nýliðnu ári var Hraðfrystihús
Eskifiarðar hf. rekið með 102,9 millj-
óna króna hagnaði samanborið við
212,2 milljónir króna árið áður.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
var 29 milljónir króna og kemur
fram í frétt frá fyrirtækinu að sú
niðurstaða sé nokkuð í samræmi
við það sem áður hefur verið upp-
lýst um rekstur félagsins á árinu.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
árið áður var um 142 miiljónir
króna.
Meginástæður minni hagnaðar
eru þær að veiðar á uppsjávarfisk-
um, loðnu og kolmunna gengu mjög
illa seinni part árs, auk þess sem af-
urðaverð loðnuafurða hefur verið
lágt. Rækjuveiðar gengu líka illa á
árinu. Bókfært eigið fé félagsins er
nú 1.405 m.kr. og hefur aukist um
11% á milii ára. Hlutfall eiginfiár af
heildareignum er nú um 27% en var
28,7% árið áður.
Heildarfiárfestingar félagsins
námu 930 milljónum kr. Settar voru
stærri aðalvélar i Hólmaborg og
Jón Kjartansson, ásamt nýjum spil-
um og ýmsum búnaði fyrir veiðar
með flottroll. Lokið var uppbygg-
ingu rækjuverksmiðjunnar og hófst
vinnsla þar í byrjun maí. Steypt var
þró umhverfis lýsistanka, ásamt
ýmsum fleiri framkvæmdum við
fiskimjölsverksmiðjuna.
Veiðar á loðnu hafa gengið mjög
vel eftir áramót og er það ekki hvað
síst að þakka veiðum
eigin skipa í flottroll,
en Jón Kjartansson
og Hólmaborg fengu
tæp 30 þúsund tonn í
flottroll áður en veið-
ar í nót hófust að
nokkru marki. Verð á
lýsi og mjöli er þó
lágt um þessar mund-
ir, sérstaklega á lýsi.
Á meðan svo er hefir
verið brugðið á það
ráð að brenna lýsi í
stað svartolíu, en
verð á henni er tals-
vert hærra en það
sem hugsanlega fengist fyrir lýsi.
Nokkur óvissa ríkir um verðþró-
un þessara afurða á næstunni.
Rækjuveiðar á heimamiðum dróg-
ust mjög saman sl. ár en virðast
heldur vera að glæðast í dag. Verk-
smiðjan mun því sem áður byggja
töluvert á vinnslu iðnaðarrækju. Þá
er verð á bolfiskafurðum hagstætt.
Umbreyting á smásölumarkaði
handan við hornið
- segir Viöskiptastofa Landsbankans
Viðskiptastofa Landsbankans tel-
ur líklegt að opnun og umbreyting
fyrirtækja á smásölumarkaði sé
handan við homið. í Markaðsyfir-
liti í gær segir að markaðsaðstæður
séu hagstæðar og munu fyrirtækin
verða kærkomin viðbót við þau fyr-
irtæki sem nú eru skráð á Verð-
bréfaþinginu og gera fyrir-
tækjaflóru Veröbréfaþingins enn
fiölbreyttari.
Á heildina litið ætlar Viðskipta-
stofa Landsbankans að afkoma fyr-
irtækja í smásöluverslun hafi verið
ágæt á nýliðnu ári. í Markaðsyfirliti
segir þó að það veki athygli að þrátt
fyrir stórar rekstrareiningar séu
mörg félög í smásöluverslun enn
lokuð fyrir fiárfestum, t.a.m. í mat-
vöru- og byggingavöruverslun.
Bent er á að mikil samkepnni hef-
ur rikt á smásölumarkaði síðustu
misseri og hefur það leitt til aukinn-
ar samþjöppunar. Rekstrareiningar
hafa verið að stækka en um leið hef-
ur aðilum verið að fækka. Samfara
uppgangi í efnahagslífinu hefur
einkaneysla aukist og velta fyrir-
tækja í smásöluverslun aukist að
sama skapi. Viðskiptastofa Lands-
bankans bendir á að þjóðhagsspá
gerir ráð fyrir áframhaldandi aukn-
ingu einkaneyslu þó svo aukningin
verði nokkuð minni en síðustu 2 ár.
„Gera má ráö fyrir áframhaldandi
aukningu í byggingavöruverslun,
m.a. vegna hraðvaxandi uppbygg-
ingar á höfuðborgarsvæðinu og eins
mun framboð verslunar aukast tölu-
vert þegar Smáralindin kemst í
gagnið," segir í Markaðsyfirliti
Landsbankans.
Hagnaður MP Verðbréfa 30
milljónir
Hagnaður MP Verðbréfa hf. á ár-
inu 1999 var 29,9 milljónir króna.
Hefur þá verið tekið tillit til 14,4
milljóna króna tekjuskatts. Eigið fé
félagsins nam 134,4 milljónum í árs-
lok samkvæmt efnahagsreikningi.
Niðurstöðutala hans var kr. 287,5
milljónir. Eigin-
fiárhlutfall fé-
lagsins var
33,6% í árslok
1999 en má
lægst vera 8%.
Efnahagur MP
Verðbréfa hf. er
því afar traust-
ur. Starfsmenn
eru nú 10 talsins í níu og hálfu
stöðugildi. í frétt frá MP Verðbréf-
um segir að góðan árangur fyrir-
tækisins beri að skoða í ljósi þess
að fiármálamarkaðir voru afar hag-
stæðir fyrir félög í greininni á síð-
asta ári. Margeir Pétursson er aðal-
eigandi félagsins.
Hagnaður Héðins hf. lækkar
um 64%
Héðinn hf. var rekinn með 37
milljóna króna hagnaði á árinu
1999. Árið áður var hagnaður fyrir-
tækisins 103 milljónir króna og
versnaði afkoman því um 66 millj-
ónir króna á milli ára. Helstu
ástæður versnandi afkomu eru
minnkandi fiárfesting í fiskimjöls-
iðnaði ásamt hækkun á innlendum
kostnaðarliðum, þar með talið
launaþróun ársins.
Afkomuviövörun frá Loðnu-
vinnslunni
Samkvæmt drögum að ársupp-
gjöri Loðnuvinnslunnar h/f fyrir
árið 1999 sem nú liggur fyrir kemur
í ljós að tap ársins er talsvert meira
en gert hafði verið ráð fyrir. í af-
komuviðvörun frá félaginu segir að
tap af reglulegri starfsemi sé þó
svipað og búist hafði verið við, en
til viðbótar komi sölutap vegna
sölu á m/s Hoffelli SU 80 sem selt
var í desember 1999.
Indverjar kaupa risa-tefyrir-
tæki
Miklar sviptingar eiga sér nú
stað á temarkaði heimsins en ind-
verska tefyrirtækið Tata Tea Ltd er
í þann mund að festa kaup á einu
stærsta tefyrirtæki Bretlands,
Tetley Group, fyrir 271 milljón
sterlingspund, eða sem jafngildir
rúmlega 31 milljarði íslenskra
króna. Tata Tea er í eigu stærstu
samsteypu iðnfyrirtækja í Indlandi,
Tata Enterprises. Yfirtakan á
Tetley Group er sú umfangsmesta
sem indverskt fyrirtæki hefur ráð-
ist í á Vesturlöndum.
7,1% hagvöxtur í Kína
Landsframleiðsla í Kína jókst um
6,8% í Kína á ári miðað við síðasta
ársfiórðung 1999. í heild var hag-
vöxtur á árinu 7,1% en árið á und-
an var vöxturinn 7,8%. Verðbólga
var aðeins 1,4% árið 1999 en árið
1998 var 1,3% verðhjöðnun. Svona
mikill hagvöxtur í Kina jafngildir
efnahagslægð því til að standa und-
ir nauðsynlegum fiárfestingum
vegna mannfiölda þarf hagvöxtur
að vera nálægt 11%.
Lækkun í Bandaríkjunum
dregur Evrópu niður
Dow Jones lækkaði mikið á
föstudaginn og fór niður fyrir
10.000 stig. Þetta hefur valdið þvi að
evrópsk hlutabréf hafa fylgt Dow
eftir. Dax-vísitalan í Þýskalandi
lækkað um 2% í gær, þrátt fyrir
góða afkomu Daimler Chrysler en
tekjur félagsins jukust um 19%.
FTSE-vísitalan í Englandi lækkaði
mikið strax við opnun í gærmorg-
imn en náði sér nokkuð á strik þeg-
ar líða tók á daginn. Það sama má
segja um CAC-vísitöluna í Frakk-
landi.