Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Jörg Haider sagði óvænt af sér formannsembættinu:
Leikflétta til að
verða kanslari
Skothvellir og
mótmæli við
komu Wahids til
Austur-Tímor
Skothvellir og mótmælaaðgerð-
ir truíluðu timamótaheimsókn
Abdurrahmans Wahids
Indónesíuforseta til Austur-Tímor
I morgun.
Portúgalskir hermenn í friðar-
gæsluliði Sameinuðu þjóðanna
skutu tveimur viðvörunarskotum
upp í loftið til að róa mannfjöld-
ann þegar Wahid ók inn í höfuð-
borgina Dili frá flugvellinum.
Indónesískir ráðamenn hafa
ekki fyrr heimsótt Austur-Tímor
eftir að þeir létu af tilkalli til yfir-
ráöa þar í kjölfar þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði á síðasta
ári. Sjálfstæöissinnar fóru meö
öruggan sigur af hólmi og leiddu
úrslitin til mikils blóðbaös og
vígaferla sveita sem voru hliðholl-
ar indónesískum stjórnvöldum.
Um þrjú hundruð reiðir mót-
mælendur kröfðust þess í Dili að
indónesísk stjórnvöld segðu sann-
leikann um hvað hefði oröið af
baráttumönnum fyrir sjálfstæði
Austur-Tímor sem hefðu horfiö á
undanfómum 24 árum.
Bandaríkin gefa
meira fé til
fórnarlambanna
Bandarísk stjórnvöld hafa
ákveðiö að gefa eina milljón doll-
ara til viðbótar til Mósambík þar
sem flóð hafa valdið gífurlegu
tjóni að undanfómu. Peningana á
meðal annars að nota til að bjarga
fólki sem orðið hefur að leita
skjóls uppi í trjákrónum eða á
húsþökum. Þá veröa sendir tveir
flugvélafarmar af hjálpargögnum
til flóðasvæöanna.
Flóðin í Mósambík og öðrum
ríkjum í sunnanverðri Afríku
hafa orðið að minnsta kosti 350
manns að' bana og 650 þúsund
hafa misst heimili sin.
Hundruð þúsunda manna eru
enn i hættu vegna nýrra flóða.
Sjúkdómar ógna líka lífi og heilsu
fómarlamba flóðanna.
Rúmlega eitt hundrað þúsund
íbúar í Mósambík biðu þess í
morgun að vera bjargaö og hjálp-
arstofnanir fóm fram á meiri að-
stoð.
Rauði Ken gerir
Blair enn og
aftur lífið leitt
Vinstrisinninn Ken Living-
stOne hélt áfram að gera Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
líflð leitt í morgun þegar hann
neitaði að láta undan þrýstingi
æðstu manna og hætta við fram-
boð sitt til borgarstjóra í London
sem óháður frambjóðandi.
Livingstone, sem fjölmiðlar
hafa uppnefnt Rauða Ken vegna
vinstrisinnaðra skoöana hans,
nýtur gífurlegs fylgis meðal al-
mennings en ráðandi öfl í Verka-
mannaflokki Tonys Blairs vildu
ekki sjá hann sem frambjóðanda
flokksins. Skoðanakannanir
benda til aö Livingstone gæti far-
ið með sigur af hólmi'í kosning-
unum 4. maí.
Hægriöfgasinninn Jörg Haider
sagði óvænt af sér embætti for-
manns Frelsisflokksins í Austurríki
í gær. Vinir hans og óvinir sögðu
hins vegar að ákvörðun hans hefði
aðeins verið leikflétta gerð til þess
að komast á kanslarastólinn síðar.
Lýðskrumarinn fimmtugi til-
kynnti seint í gærkvöld að hann ætl-
aði að láta stjórnartaumana í flokkn-
um í hendur Susanne Riess-Passer.
Hún er varakanslari í þriggja vikna
gamalli stjórn Wolfgangs Schússels.
Ekki er ljóst hvort afsögnin léttir
þrýstingi af stjórninni.
Haider sagöi að með afsögninni
vildi hann leggja sitt af mörkum til
þess að ríkisstjóm landsins gæti
starfað á eðlilegan hátt og hann
vildi einnig sýna umheiminum að
ráðherrar Frelsisflokksins væru
ekki strengjabrúður hans. Evrópu-
sambandið hefur sett austurrísku
ríkisstjómina í pólitíska einangrun
Rússinn Oleg Blotskíj, maðurinn
á bak við meinta þýska sjónvarps-
mynd frá Tsjetsjeníu, kvaðst í gær
ætla að stefna þýsku sjónvarpsstöö-
inni N24 og fréttamanni hennar,
Frank Höfling.
Myndin sýnir rússneska her-
menn dragá lík Tsjetsjena með reip-
um og vörubil að fjöldagröf. Höfling
sagði að Tjsetsjenamir hefðu senni-
lega verið bundnir og pyntaðir áður
en þeir voru myrtir.
Nú hefur komið í ljós að þýski
sjónvarpsfréttamaðurinn keypti
myndbandið af Blotskíj sem hafði
verið á staðnum fyrir rússneska
blaðið Izvestíja.
Þetta hefur Höfling viðurkennt en
hann fullyrti samtímis að hann
hefði verið með við töku myndar-
innar. Þessu neitar rússneskur
starfsbróðir hans.
Jörg Haider útilokar ekki aö hann
vilji verða kanslari Austurríkis.
Þýski sjónvarpsmaöurinn Höfiing
hefur viöurkennt aö hafa keypt
myndbandsupptöku frá Tsjetsjeníu
af rússneskum starfsbróöur sínum.
vegna umdeildra skoðana Haiders
og ummæla um Hitler og fleiri.
Haider ætlar að gegna embætti hér-
aðsstjóra í Kárnten áfram.
„Ég vil taka það skýrt fram að ég
er ekki að hlaupast á brott frá
stjómmálum á landsvísu, heldur að-
eins að búa til nýja stjörnu i í for-
ystu flokksins okkar,“ sagði Haider
á fundi með fréttamönnum í gær-
kvöld.
Þegar Haider var spurður hvort
hann vonaðist til að verða einhvern
tíma kanslari, sagðist hann ekki úti-
loka það.
Dagblaðið Die Presse sagði að
ákvörðun Haiders væri klókindaleg
leikflétta sem gerði honum kleift að
firra sig ábyrgð á óvinsælum
ákvörðunum ríkisstjórnarinnar,
svo sem fyrirhugðum skattahækk-
unum, og gera sig kláran fyrir
næstu kosningar sem verða haldnar
innan fjögurra ára
Samkvæmt frásögn Blotskíjs, sem
sjálfur er fyrrverandi sjónvarps-
maður, sýnir myndin hermenn
safna saman tsjetsjenskum fórnar-
lömbum sínum úr orrustu og árás á
bæina Urus-Martan og Rosjni-Tju.
„Jarðarförin“ var pöntuð til þess að
vemda líkin og til þess að ættingjar
gætu borið kennsl á hina látnu. Höf-
uð hinna látnu voru látin standa
upp úr moldinni.
„Þetta voru menn sem dóu með
vopn í hönd,“ sagði Blotskíj á fundi
með fréttamönnum i Moskvu.
Ritstjóri Izvestíja, Michail
Kozjokin, sagði að lögmenn blaðsins
myndu aðstoða Blotskíj við máls-
höfðunina. Frank Höfling var í gær
kallaður til Múnchen þar sem hann
á að gera stjóm sjónvarpsfyrirtæk-
isins sem á stöðina N24 fyrir mála-
vöxtum.
Kveöjukoss f Teheran. írönsk kona kyssir eiginmann sinn áöur en hann heldur í pílagrímaferð til Mekka í Sádi-Arabíu.
Eftir aö samskipti yfirvalda í íran og Sádi-Arabíu bötnuöu 1997 hefur írönskum pflagrímum fjölgaö úr 60 þúsund í 96
þúsund. Símamynd Reuter
Stefnt vegna hryllings-
myndar frá Tsjetsjeníu
Þúsund bjargað
Um 1 þúsund Rússum var
bjargað um borð í þyrlu í gær af
risaísjaka á vatninu Ladoga. Sex
voru taldir hafa látið lífið.
Borgarstjórum sleppt
Tyrkneskur dómstóll úrskurð-
aði í gær að þrír kúrdískir borg-
arstjórar skyldu látnir lausir.
Handtaka þeirra hafði leitt til
mikilla mótmæla bæði i Tyrk-
landi og erlendis.
Teknir af lífi
38 liðsforingjar, sem höfðu tek-
ið þátt í misheppnaðri valda-
ránstilraun
gegn Saddam
Hussein íraks-
forseta, hafa
verið teknir af
lífi. Þetta kom
fram í arabíska
blaðinu Azzam-
an í gær. Greint
var frá því að liðsforingjarnir
hefðu ætlað að ráða Saddam af
dögum á þjóðhátíðardegi íraks 6.
janúar síðastliðinn.
5 milljónir reknar
Kínversk yfirvöld hafa greint
frá því að 5 mifljónum yrði sagt
upp störfum á árinu vegna upp-
stokkana í ríkisfyrirtækjum sem
rekin eru með-tapi. í fyrra var
rúmum 5 milljónum sagt upp.
Hormónamorð
Belgíska lögreglan hefur hand-
tekið þekktan belgiskan iðnrek-
anda, Alex Vervauteren, vegna
aðildar að morði á dýralækni sem
skotinn var til bana 1995. Morðið
var tengt belgísku hormónamafí-
unni sem berst fyrir því að naut-
gripum verði gefnir hormónar.
Sjónvarpsgláp er hollt
Doktor Peter Clough við há-
skólann í Hull í Englandi hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
það sé hollara fyrir marga að
horfa á uppáhaldssjónvarpsþátt-
inn sinn en að þræla sér út í lík-
amsrækt. Sjónvarpsgláp sé betra
fyrir veilíðanina leiðist manni
líkamsrækt.
Pútín sleppti Babitskí
Vladimir Pútín, starfandi for-
seti Rússlands, sagði í gær að
ekki væru næg-
ar ástæður til
að hafa rúss-
neska frétta-
manninn And-
rei Babitskí í
haldi og var
honum því
sleppt í gær í
Moskvu. Fréttir Babitskís, sem
starfar fyrir Radio Liberty, af
stríðinu Tsjetsjeníu höfðu farið i
taugarnar á Rússum. Skiptu þeir
á honum og rússneskum herfor-
ingja sem var í haldi Tjsetsjena.
Babitskí var í haldi i Dagestan
eftir að hafa horfið í Tsjetsjeníu.
Of stórar gúmmíverjur
Stöðluð stærð Evrópusam-
bandsins á gúmmíverjum er of
stór fyrir helming þeirra Þjóö-
verja sem nota slíkar samkvæmt
þýskri rannsókn. Frakkar höfðu
beðið um stækkun á stöðluðu
stærðinni.
Kúariða í Danmörku
Yfirvöld ýmissa landa hafa til-
kynnt að þau ætli að stöðva inn-
flutning á nautakjöti í Danmörku
vegna kúariðutilfellis á Jótlandi.
Sakaðir um samsæri
Serbneski ráðherrann Djura
Lazic sakaði í gær Bandaríkin og
albanska hryðjuverkamenn í
Kosovo um að efna til deilna í
suðurhluta Serbíu þar sem fjöldi
Albana býr. Svæðið er nálægt
Kosovo.
Schröder varar við
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, varaði í gær á fundi
með fréttamönnum kristilega
demókrata við aö láta einangr-
unarstefnu hægriaflanna ná yfir-
höndinni.