Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
11
/
w w w. i s
búi Yangon, höfuðborgar Burma, hjólar á leiö til vinnu sinnar fram hjá hinu forna hofi Shwedagon, stærsta búdda-
hofi landsins. Taílendingar, nágrannar Burmamanna, afhentu þeim í morgun lyf og lækningatæki að andvirði rúm-
lega níu milljóna króna til að berjast gegn alnæmi og malaríu.
James Rubin:
Albright verður ekki
forseti Tékklands
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, ætlar ekki að
reyna að verða forseti Tékklands.
Þetta fullyrti talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins, James
Rubin, í gær.
Tímaritið Time greinir frá því í
nýjasta tölublaði sínu að Albright
hafi verið upp með sér yfir því að
Vaclav Havel, forseti Tékklands,
hafi fyrir einu og hálfu ári sagt að
hann vildi fá Albright sem eftir-
mann sinn.
Fullyrðir Time að Albright sé al-
varlega að íhuga málið.
Albright, sem fæddist í
Tékkóslóvakíu en flýði þaðan á
bamsaldri með foreldrum sínum,
fer í opinbera heimsókn til Prag í
næstu viku. Mun hún þá hitta
Havel og fleiri tékkneska ráðamenn
að máli.
Albright var upp meö sér er Havel
tilkynnti að hann vildi hana sem
eftirmann sinn. Símamynd Reuter
John McCain er hvergi smeykur:
kristna öfgamenn
áscáöa
Armúli 17, lOB Reykjavík
Slml: 533 1334 fax: 5EB 0499
FRÆSARI
FESTO
.fyrir öll verkfæri
og þú getur andað léttar!
Hægt er að tengja
FESTO-ryksuguna við
öll verkfærin frá FESTO
..það sem
fagmaðurinn
notar!
Öldungadeildarþingmaðurinn
John McCain sagði í gær að George
W. Bush, keppinautur hans um for-
setaútnefningu repúblikana, hefði
bundið trúss sitt við leiðtoga hreyf-
ingar íhaldssamra kristinna manna,
sem hefðu ekki annað að bjóða en
skort á umburðarlyndi, klofning og
rógburð. Hann hvatti bandaríska
kjósendur til að hafna stjómmálum
hatursins, eins og hann kallaði það.
John McCain hefur með yfirlýs-
ingum sínum gert það sem fáir
flokksbræður hans hafa haft kjark
til á undanfórnum árum, hann hef-
ur sagt stríð á hendur leiðtogum
Kristilegu samfylkingarinnar, ein-
hverri valdamestu blokkinni í
Repúblikanaflokkinum. Og þetta
gerði hann daginn fyrir forkosning-
John McCain á framboðsfundi með námsmönnum í Virginíu í gær.
ar í Virginíu, þar sem kristnir
íhaldsmenn eru fjölmennir, og Was-
hingtonríki. Þá koma kjömefndir
saman í Norður-Dakóta.
í harðorðri ræðu í Virginíu sagði
McCain að Repúblikanaflokkurinn
hefði villst af leið og líkti tveimur
helstu foringjum kristinna öfga-
manna, þeim Jerry Falwell og Pat
Robertson, við tvo umdeilda leið-
toga blökkumanna, Louis Farrakh-
an og A1 Sharpton. McCain kallaði
Bush meðal annars Robertsons-
repúblikana. Ræðuna hélt McCain
ekki langt frá höfuðstöðvum hreyf-
inga þeirra Falwells og Robertsons.
Bush var á kosningaferðalagi í
Washingtonríki í gær og sakaði
McCain um að gera út á trúmálin í
baráttu sinni.
Jospin skammað-
ur úr öllum átt-
um fyrir ummæli
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, fékk það óþvegið í gær
frá frönsku stjómarandstöðuflokk-
unum, líbönskum námsmönnum og
palestínskum mótmælendum fyrir
ummæli sem hann viðhafði í heim-
sókn til landanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs um helgina. Þar sagði
hann að Hizbollah-skæruliðar í Lí-
banon væru hryðjuverkamenn.
Frakkar hafa alla jafna tekið mál-
stað araba í deilum þeirra við ísra-
ela og þvi urðu margir reiðir þess-
um orðum Jospins.
Hvorki fleiri né færri en fjórir
ráðherrar í stjórn Jospins risu upp
til vamar foringjanum.
Jospin mun væntanlega gefa
skýringu á orðum sínum i fyrir-
spumatíma í franska þinginu í dag.
Hann hittir síðan Chirac forseta á
morgun. Chirac ku ekki skemmt.
Breska leyni-
þjónustan
hleraði páfann
og Díönu
prinsessu
Breska leyniþjónustan hler-
aði Díönu prinsessu, móður Ter-
esu og Jóhannes Pál páfa. Þetta
fullyrti breska blaðið Sunday
Times og vitnaði í nokkra fyrr-
verandi starfsmenn leyniþjón-
ustunnar.
Tilgangurinn með hlerunun-
um var ekki að fylgjast með
einkalifi þremenninganna held-
ur tU að reyna að komast að
upplýsingum um önnur ríki
sem þremenningarnir kynnu að
hafa komist að vegna starfa
sinna að mannúðarmálum.
Hlerunarkerfið sem var notað
er Echelon-kerfið, hið sama sem
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, á að
hafa notað tU að hlera ráðherra
sína með.
Samtökin Amnesty
Intemational og Grænfriðungar
voru einnig hleruð til að fá upp-
lýsingar um umdeUdar ríkis-
stjómir í löndum þar sem sam-
tökin starfa.
Bandaríkin, Bretland,
Kanada, Ástralía og Nýja-Sjá-
land reka Echelon-njósnakerfíð
sem sett var á laggimar í upp-
hafi kalda stríðsins. Með þessu
njósnakerfi er hægt að fylgjast
með símtölum, símbréfum og
tölvupósti um aUan heim.
Sellafield varð
forstjóra að falli
Framkvæmdastjóri bresku rík-
isstofnunarinnar sem rekur
kjarnorkuendurvinnslustöðina í
SeUafield lét undan þrýstingi í
gær og sagði af sér í kjölfar
hneykslis þar sem upplýst var að
öryggisskýrslur hefðu verið fals-
aðar i stórum stU.
Stephen Byers, viðskipta- og
iönaðarráðherra Bretlands, lýsti
yfir ánægju sinni með afsögn
Johns Taylors. Hann sagði að það
hefði verið hið eina rétta í stöð-
unni. Umhverfisvemdarsinnar
voru ekki jafnuppveðraðir.
„Það er ekkert gagn í því að
raða upp stólunum að nýju á þil-
fari sökkvandi skips,“ sagði Pat-
rick Green, félagi í samtökunum
Vinum jarðarinnar.
Búist er við að aðrir stjórnend-
ur í kjarnorkuiðnaðinum taki
pokann sinn líka.
Starfsmenn SeUafield fölsuðu
kerfisbundið öryggisskýrslur um
kjamorkueldsneyti sem búið var
aö selja tU Japans.
Kominn í stríð við