Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Qupperneq 24
36
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 TVW
(jBfetörtn
^ JSl _________________
ReYniviður
á íslandi
í kvöld kl. 20.30 halda skógrækt-
arfélögin á höfuðborgarsvæðinu
opinn fræðslufund í sal Ferðafé-
lags íslands, Mörkinni 6. Aðaler-
indi kvöldsins
flytur Siguröur
Blöndal, fyrrver-
andi skógrækt-
arstjóri. Fjallar
hann um trjáteg-
undina reynivið
en hann hefur
viðað að sér afar
miklum fróðleik
um þessa áhuga-
verðu trjátegund. Sigurður mun
auk þess að fjalla um reynivið
sýna myndir og miðla af sínum
mikla fróðleik.
Fyrrverandi reykingafólk, sem
hefur sótt námskeið á vegum
NFLl í Hveragerði, heldur stuðn-
ingsfundi kl. 17.30 á þriðjudögum
í Menningarmiðstöðinni i Gerðu-
bergi.
Kvenfrelsis- og
jafnréttismál
Málefnahópur Samfylkingar-
innar í Reykjavík um kvenfrelsis-
og jafnréttismál kemur saman í
húsnæði Hlaðvarpans við Vestur-
götu kl. 20. Efni fundarins eru
drög að nýjum jafnréttislögun sem
til meðferðar eru í nefndum þings-
ins og væntanleg eru til umræðu
á vordögum í endurbættri mynd.
Samkomur
Guðrún ögmundsdóttir þing-
kona mætir á fundinn og gerir
grein fyrir meginmuni gömlu og
nýju laganna, væntanlegri með-
ferð málsins og löngu tímabærum
umbótum í meðferð jafnréttismála
hér á landi.
Allir sem áhuga hafa á málefn-
inu eru velkomnir á fundinn.
Félag aðstandenda
alzheimerssjúklinga
FAAS heldur félagsfund á dval-
arheimilinu Hrafnistu við Laugar-
ás i Reykjavík kl. 20.30 í kvöld.
Björn Einarsson öldrunarlæknir
ílytur erindi um sjúkdóminn lewy
body og picks í tengslum við
alzheimer. Allir velkomnir.
Verðbréfaviðskipti
Endurmenntunardeild Félags
háskólakvenna er með námskeið
29. febrúar og 7. mars um verð-
bréfaviðskipti og fjárfestingar-
kosti. Námskeiðiö er haldið i
Odda. Stjómandi námskeiðisins
er Steinþór Baldursson, sjóðstjóri
hjá Fjárvangi. Námskeiðið er opið
öllum.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
í dag verður skák kl. 13 og al-
kort kennt og spilaö kl. 13.30. Þá
mun leikhópurinn Snúður og
Snælda sýna leikritið Rauðu
klemmuna á morgun.
Siguröur
Blöndal.
Örlygur Smári, höfundur sigurlagsins í Söngvakeppni Sjónvarpsins:
Spennctndi tími
fram undan
„Þetta var afskaplega skemmtOeg
reynsla, ég átti tvö lög af þeim fimm
sem valin voru til flutnings, þannig
að ég gerði mér smávonir um sigur,
enda fer maður ekki í svona keppni
nema til þess að vinna. Ég var samt
afskaplega hissa þegar ég fékk að
vita að tvö lög eftir mig hefðu náð
inn í keppnina," segir Örlygur
Smári, höfundur Hvert sem
er, en það lag sigraði í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
2000 og verður það framlag
Islands í Eurovision í Svíþjóð í vor.
Örlygur var spurður hvort hann
hefði samið lög sín tvö, Hvert sem er
og Segðu mér, sérstaklega fyrir þessa
keppni: „Alls ekki, ég átti þau í fór-
um mínum. Þannig var að ég ákvað
ekki fyrr en á síðustu stundu að
senda inn lag og þá var enginn tími
til að fara að setjast niður og semja
svo ég fór í nokkuð stórt lagasafn
sem ég á og pikkaði út tvö sem ég
taldi passa fyrir tilefnið og bæði
komust þau síðan áfram, sem var
frábært."
Örlygur segir að nú taki tími við
sem fari í að gera lagið skothelt
eins og hann segir: „Ég fæ góða
aðstöðu og tíma til að fínpússa
lagið. Þar sem ekki er lengur
hljómsveit í Eurovisionkeppn-
inni sjálfri þá er lagið fullunn-
ið hér heima og tónlistin
verður flutt af bandi en
söngvarar og bakraddir
flytja að sjálfsögu sitt „live“.
Ég reikna ekki með að
breyta laginu, alla vega er
það ekki i myndinni eins og
er, heldur aðeins slípa það
til, en segja má að ég sé ekki alveg
kominn niður á jörðina enn þá svo
það er aldrei að vita hvemig lokaút-
gáfan verður."
Örlygur hefur aldrei áður sent
lög í lagakeppni þótt hann sé
lengi búinn að vera í músík-
inni og semja lög: „Ég hef
verið í mörgum hljómsveit-
um, enda byrjaði ég
snemma, í alls konar
skólahljómsveitum og
bílskúrssveitum, og hef
víða komið við á ferlin-
um sem hefur samt ekki
verið mjög áberandi hing-
að til. Þetta hefur allt ver-
ið gert af einskærum
áhuga hing-
að til.
Sú hljómsveit sem ég var í og lang-
lífúst var hét Kirsuber og fórum við
víða í henni og spiluðum. Þá söng ég
i uppfærslunni á Carmen Negra í ís-
lensku óperunni en
hef lltið gert síðan.
Nú er bara að
vona að einhver
breyting verði
þar á. Það er
alla vega mjög
gott púst að
vinna í keppni
sem þessari.
Örlygur hefur
að undanfömu
unnið á fast-
eignasölu og
segir að fyrir
utan tónlistina
séu íþróttir helsta
áhugamál hans. Ör-
lygur er í sambúð með
Svövu Gunnarsdóttur
og eiga þau eina
dóttur á öðru -
ári sem
heitir
Malín.
-HK
Maður dagsins
Loönan hefur mikiö aö segja um afkomuna í sjávarútveginum og miklu skiptir hvort loönuveiöin er góö eöa ekki. All-
an febrúarmánuö hafa loönuskipin veriö aö veiöum og þótt veiöin hafi fariö rólega af staö þá var um tíma mokveiði
og viröist sem þessi loönuvertíö verði allgóö. Á myndinni sést Faxi, skip Faxamjöls, koma til hafnar í Reykjavik eft-
ir vel heppnaöan loönutúr. DV-mynd S
* Vt X A# 1
Í I w
m Íl / -m
k A
í && .
wk H*
Hvítt: Gylfi Þórhallsson
Svart: Thomas Emst
Hvítur á leik
Einhver frægasta skák
Gylfa Þórhallsonar frá
Gausdal 1992. Sænski stór-
meistarinn Thomas Emst
fékk fékk heldur betur á
baukinn
29. Rg8+ Hxg8 30. DÍ7+
Kd6 31. Hdl Hg7 32. Ba6+
Ke5 33. Df2 Dh4 34. g3
Hxc2 35. Hel+ Kd5 36.
Bb7+ Kd6 37. Df8+ Kc7 38.
gxh4 Hg6 39. h5 Kxb7 40.
hxg6. 1-0.
Skákþing Akureyrar
2000, febrúar 2000: Guð-
mundur Daðason sigraði
með 5 vinninga i 7 skákum.
í 2.-3. sæti urðu Ólafur
Kristjánsson og Jón Björg-
vinsson með 4V2VÍnning.
Skúli Torfason sigraði í b-
flokki með 5'/2 vinning í 7
skákum. Hraðskákmót Ak-
ureyrar 2000: Jón Björg-
vinsson sigraði með 16
vinninga í 19 skákum. Ann-
ar varð Gylfi Þórhallsson
með 15*/2 vinning. í 3.-4.
sæti urðu Áskell öm Kára-
son og Þór Valtýsson meö
15 vinninga.
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Aflamark Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi.
Víkingur hefur forystuna í deildar-
keppninni í 1. deild kvenna
FH-Víkingur
keppa um deildar-
meistaratitilinn
Deildakeppninni í handboltan-
um fer nú að ljúka og við tekur
úrslitakeppnin um íslandsmeist-
aratitilinn. Mikil spenna hefur
verið hjá konunum í 1. deildinni í
vetur og er ekki mikill munur á
öllum þeim átta liðum sem keppa
munu um titilinn. í síðustu um-
ferðinni í kvöld fyrir úrslita-
keppnina leika FH og Víkingur og
mun þessi leikur
skera úr um það
hvort liðið verð-
ur deildarmeistari. Vikingur
stendur mun betur að vígi þar
sem liðið þarf aðeins að ná jafn-
tefli til að vinna deildina, er með
tvö stig á FH sem aftur á móti er
með hagstæðara markahlutfall og
þar sem FH er á sínum heimavefli
í Kaplakrikanum eru líkumar
nokkrar á sigri þess.
Tveir aðrir leikir í deildinni
eru í kvöld. Á Seltjamarnesi leika
Grótta KR-Fram, en bæði þessi lið
eru ömgg um sæti í úrslitakeppn-
inni, og ÍBV-Valur sem einnig
munu taka þátt í úrslitakeppn-
inni. Fjórði leikurinn er svo ann-
að kvöld og munu þá Haukar taka
á móti ÍR í Strandgötunni í Hafn-
arfirði.
Á morgun verður leikin heil
umferð í 1. deild karla og eru
margir spennandi leikir á dag-
skrá.
íþróttir
Bridge
Það skiptir verulegu máli fyrir
vestur hvaða útspil hann velur gegn
þremur gröndum eftir tiltölulega
einfaldar sagnir. Þegar spilið kom
fyrir í sveitakeppni í Danmörku
fann vestur útspfl sem var ansi dýr-
mætt þegar upp var staðið. Þeir sem
hafa gaman af því að spreyta sig á
sama vandamáli skoði aðeins hönd
vesturs og sagnimar áður en lengra
er haldið. Norður gjafari og enginn
á hættu:
* DG9732
* 75
* G743
* D
* K1054
V KD43
* K98
* 74
* Á
4» 10862
* -
* ÁKG108652
Norður Austur Suður Vestur
2 ♦ pass 3 grönd p/h
Tveggja tígla opnun norðurs var
multisagnvenja, sýndi veik spil með
6 spil í öðrum hvorum hálitanna.
Suður ákvað að taka mikla áhættu
þegar hann stökk í
þrjú grönd. Sú
áhætta hefði vel
getað tekist ef vest-
ur hefði ekki hitt á
rétta útspflið. Vest-
ur hugsaði sig um í
5 mínútur áður en
hann spilaði út
tíguláttunni. Vömin tók þannig 9
fyrstu slagina á rauðu litina (vestur
kallaði í hjarta með hjartaþristi)
áður en sagnhafi komst að í spilinu.
Ef vestur hefði valið að koma út í
svörtum lit hefði sagnhafi tekið 9
fyrstu slagina. Hvaða útspil valdir
þú, lesandi góður?
ísak öm Sigurðsson