Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 DV Fréttir Biðlistar á sjúkrastofnanir lengjast stöðugt: Yfir 7000 manns bíða - samkvæmt upplýsingum landlæknisembættisins Yfir 7000 manns voru á biðlistum á sjúkrastofnunum í febrúar sl. samkvæmt upplýsingum frá land- læknisembættinu. Þar af biðu tæp- lega 980 manns eftir bæklunarað- gerðum. Biðlistar hafa stöðugt verið að lengjast samkvæmt tölum frá embættinu. Árið 1996 voru alls á biðlistum 3603, árið 1997 voru þeir 6864, í október 1999 voru 6988 á biðlistum og 7229 i febrúar sl. Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir sagði við DV, að taka þyrfti tillit til að nú væru inni í samantektinni tölur sem ekki hafi áður legið fyrir, svo sem frá 5 daga deild á kvennadeild. Aukningin á biðlistunum væri því ekki eins mik- il og virtist við fyrstu sýn. Heildarbiðlisti á almennum skurðdeildum hefur heldur lengst frá sl. hausti, fer úr 922 í 930. Þá hef- ur biðlisti eftir augnaaðgerðum breyst lítillega. Fjölgun er á biðlista Landspitala, þar sem 417 bíða nú í stað 392 áður. Nokkru færri börn bíða meðferð- ar á bama- og unglingageðdeild heldur en áður. Hefur biðlisti á deildina ekki verið svo stuttur síðan 1996. Þó eru 19 börn á innri biðlista deildarinnar, þ.e. hafa fengið grein- ingu en bíða eftir frekari þjónustu deildarinnar. Bið’listi eftir aðgerðum á bæklun- ardeild hefur verið að styttast frá 1998. Árið 1997 biðu 1458 eftir slík- um aðgerðum en 977 nú. Færri bíða nú endurhæfingar heldur en sl. haust. Biðlisti á háls-, nef- og eyrnadeildir hefur hins veg- ar lengst úr 856 sl. haust í 907 nú. Hið sama hefur átt sér stað á hjarta- deildum. Biðlisti eftir hjartaþræðingu hef- ur stöðugt lengst frá árinu 1996. Þá biðu 158 eftir aðgerð en 252 nú. Um almenna fjölgun er að ræða á biðlistum kvensjúkdómadeilda. Sama máli gegnir um þvagfæra- Biðlistar á sjúkrahúsum ^ qqq 'Dnsar tölur eni tíl fyrir áríð 1998 6.000 5.000 6.874 4.000 3.000 2.000 2000 fjöldi 3.603 7.229 okt. '99 fob. 'OO •1 skurðlækningar og lýtaiækningar. arlækningum nokkru lengri nú en Þá er heildarbiðlisti eftir öldrun- áður -JSS Þórunn Siguröardóttir Haföi betur í keppni viö 10 aöra. Stjórnandi Listahátíðar: Þórunn valin Á fundi full- trúaráðs Listahátíðar í Reykjavík í gær tilkynnti formaður nýrrar stjórn- ar, Halldór Guðmunds- son, val á list- rænum stjóm- anda hátíöar- innar í sam- ræmi við breytta skipan yfirstjórnar ________ hennar. Starf- ið var auglýst í ársbyrjun hér heima og í alþjóölegu tímariti sem fjallar um listræn stjórnunarstörf og sóttu ellefu manns um það, sjö erlendir og fjór- ir innlendir. Þykir þessi háa tala er- lendra umsækjenda bera vott um vaxandi álit á Listahátíð í Reykja- vík. Að vandlega athuguðu máli var Þórunn Sigurðardóttir, núverandi stjórnandi Reykjavíkur menningar- borgar Evrópu árið 2000, valin úr hópi umsækjenda. Hún var sem kunnugt er formað- ur framkvæmdastjómar Listahátíð- ar 1996-98 og er núverandi varafor- maður framkvæmdastjómarinnar. Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra, formaður fulltrúaráðs Lista- hátíðar, fagnaði þessari niðurstöðu, benti á að Þórunn hefði óvenju- mikla reynslu af stjórnunarstörfum í hvers konar listrænni starfsemi og sagði að mikils væri vænst af störf- um hennar. Þórunn er ráðin til alit að fjög- urra ára. í starfi listræns stjóm- anda felst listræn stefnumörkun, rekstrarstjóm og fjárhagsleg ábyrgð. Hún hefur störf 1. október í haust um leið og nýtt stjómarfyrir- komulag tekur gildi. -SA Neskaupstaður: Ráðist á lög- reglumann Ráðist var á lögreglumann að störfum í Neskaupstað um síðustu helgi. Tveir lögreglumenn vom að handtaka ölvaðan mann síöastliðið laugardagskvöld og brást maðurinn iUa við. Til átaka kom og réðst maðurinn á annan lögregluþjóninn með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka í andliti og fékk heilahristing. Þurfti lögreglan að nota táragas til þess að yfirvinna manninn, handjárna hann og koma honum í bílinn. Samkvæmt læknisráði var lög- reglumaðurinn, sem er afleysinga- lögregluþjónn í Neskaupstað, frá vinnu í þrjá daga. -SMK Deilt um gjaldskrá í Öskjuhlíð: Kvennakór slæst við Karlakór Hart er deilt um gjaldskrá vegna af- nota af tónlistarsal í nýju húsi Karla- kórs Reykjavíkur við Öskjuhlíð. Þar eigast við Kvennakór Reykjavíkur og Karlakór Reykjavíkur. „Karlakórsmenn em með nýtt hús sem þeir verða að reka og til þess verða þeir að fá tekjur. Þar sem við erum fastir leigjendur að sal þeirra í húsinu viljum við fá afslátt en deilan snýst um hversu mikill hann á að vera,“ sagði Þuríður Pét- ursdóttir, formaður Kvennakórs Reykjavíkur, en karlakórsmenn hafa boðið konunum 10 prósenta af- slátt haldi þær færri en fimm tón- leika á ári en 15 prósenta afslátt séu tónleikamir fleiri en fhnm. „Karlakórinn er með gjaldskrá sem er á mjög svipuðum nótum og í gildi er í Tónlistarhúsinu í Kópa- vogi og verður hver að dæma um hvort það sé sanngjarnt," sagöi Þur- íður formaður en hún er í forsvari fyrir 450 konur sem skipta sér í fimm kóra undir hatti Kvennakórs Reykjavíkur. Karlarnir í Karlakór Reykjavíkur eru færri í þessum slag sem enn sér ekki fyrir endann á. -EIR Ætlaöi á loft - fauk á hvolf Fiugvél í eigu Flugskóla Reykjavíkur fauk á hvolf er hún ætlaöi aö taka sig á loft á flugvellinum á Selfossi í gær en flugmann sakaöi ekki. Ofsarok var á Suöurlandi og tepptist umferö viö Ingólfsfjall um tíma þegar vöruflutningabílstjór- ar beittu bílum sínum upp í vindinn, þversum á þjóöveginum. Þá skemmdust bílar víöa er þakplötur fuku og á bílasölu viö Ölfusá skemmdust bílar afgrjótfoki. Sauðfjársamningur samþykktur: Góður stuðningur - segir Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri bændasamtakanna Nýgerðir sauðfjársamningar upp á 15 milljarða til 7 ára voru sam- þykktir í atkvæðagreiðslu bænda með 63,9% atkvæða á móti 33,9%. Samningurinn var gerður á milli Bændasamtaka íslands og ríkis- valdsins og fjallar um framleiöslu sauðfjárafurða til 2007. Hann var undirritaður 11. mars sl. og sendur bændum til umfjöllunar og at- kvæðagreiðslu og felur í sér 2,2 milljarða króna styrk við bændur á ári fyrir utan rúmar 900 milljónir til uppkaupa á greiðslumarki í byrjun samningstímabilsins. Sendir voru út 2916 atkvæðaseðlar en atkvæði greiddu 1932, eða 66,33%. Auðir og ógildir seðlar voru 44, eða 2,2%. Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri bændasamtakanna, segir þetta góðan stuðning við samninginn. Varla sé þó við öflugri stuðningi aö búast. „í fyrsta lagi heyröi maður svolitla óánægju hjá bændum sem vildu meiri peninga inn í samninginn. Það var búið að Sigurgeir Þorgelrsson: „Sumir vildu halda óbreyttum stuöningnum á grundvelli greiöslumarks. “ Aöalsteinn Jónsson: „Jákvæöast er aö þetta er samningur til sjö ára og menn hafa þar starfs- öryggi. “ byggja upp svolítiö meiri væntingar og þingmenn töluðu svolítið glanna- lega í þá veru, margir hveijir. í öðru lagi voru ákaflega deildar meiningar á meöal bænda. Sumir vildu halda óbreyttum stuðningnum á grundvelli greiðslumarks sem er gömul framleiðsluviðmiðun. Aðrir vildu flytja stuðninginn að miklu eða mestu leyti yfir í beina fram- leiðslutengingu. Ég er því sannfærð- ur um að nokkrir segja nei vegna þess að það vantar framleiðsluteng- inu og aðrir segja nei vegna þess aö það er of mikil framleiðslutenging. í þriðja lagi er svo gæðastýringar- nálgunin. Það er auðvitað einhver hluti manna sem er svolítið ragur við þetta. Ekki síst þeir sem óttast að ráða ekki við að fá landvottun." Aðalsteinn Jónsson, formaður sauðfjárbænda, segir andstöðuna fyrst og fremst þá að mönnum finn- ist of lítið fjármagn í samningnum og sumir óttist ákvæði um landnýt- ingu. „Það er í sjálfu sér óútfylltur víxill. Ég er sáttastur við að okkur tókst að fara að mestu eftir þeim áhersluatriðum sem aðalfundur sauðfjárbænda hefur lagt áherslu á síðustu tvö árin. Jákvæðast er að þetta er samningur til sjö ára og menn hafa þar starfsöryggi til lengri tíma en áður.“ -HKr. IEB-: Ólafur í afmæli Margrétar Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grimsson, fer í dag til Kaupmanna- hafnar til að taka þátt í hátíðarhöld- um í tilefni af 60 ára afmæli hennar hátignar Margrétar Danadrottningar. Kemur í maí Gert er ráð fyrir að Árni Friðriks- son RE 200, nýtt hafrannsóknaskip sem verið hefur í smíðum í Chile, komi til landsins um miðjan maí- mánuð. Hafrannsóknastofnun mun ekki bera skaða af þeim töfum sem orðið hafa á afhendingu skipsins. Fækka skrifstofum Flugleiðir hyggjast draga úr sum- arráðningum og nýráðningum til fé- lagsins en leggja enn meiri áherslu á sölu í gegnum intemetið en hlut- verk þess í þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini hefur aukist veru- lega. Tekin hefur verið ákvörðun um að loka skrifstofunni aö Lauga- vegi 7 í Reykjavík. Aukin verðbólga Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði en án hús- næðis hækkaði vísitalan um 0,5% frá mars. Þetta er örlítið hærra en spár gerðu ráð fyrir. Slagurinn á mánudag Slagurinn um Islandsmeistaratit- Uinn í körfuknattleik karla hefst á mánudaginn en þá mætast Grinda- vík og KR í fyrsta úrslitaleik lið- anna um titilinn eftirsótta og fer hann fram á heimavelli Grindvík- inga. Siv fer til Ástralíu Siv Friðleifsdótt- ir umhverfisráð- herra mun taka þátt í ráðherrafundi um Kyoto bókunina og bindingu kolefn- is með ræktun sem haldinn verður í Perth í Ástralíu. Skíðavikan hefst Skíðavikan á Isafirði verður sett formlega í Tungudal næstkomandi sunnudag. Fiölbreytt dagskrá verð- ur í boði alla vikuna og hægt að finna eitthvað við allra hæfi. Enn lækka hlutabréf Viðskipti með hlutabréf á Verð- bréfaþingi íslands í dag námu alls 158 milljónum króna. Úrvalsvísitala Aðallista lækkaði um 0,4% og er nú 1746,5 stig. Mest hækkaði gengi hlutabréfa í Opnum kerfum hf., um 6,3%, en mest lækkaöi gengi hluta- bréfa í Pharmaco hf., um 5,4%. íslandspóstur tapar íslandspóstur hf. var rekinn með 98 miUjóna króna tapi af reglulegri starfsemi á síðasta ári. Að teknu til- liti til hagnaöar af sölu eigna nemur taprekstur ársins um 59 milljónum. Rekstrargjöld félagsins jukust um 11% frá fyrra ári, í 4 milljarða króna, á meðan rekstrartekjur juk- ust um 7% í tæpa 3,9 milljarða króna. Viðskiptavefurinn á Vísi.is greindi frá. - H J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.