Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 67
Tilvera
1
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
Allir regnbogans litir
Verk Chihulys eru ekki aðeins fjölbreytt í formi og lögun heldur einkennast þau einnig af mikilli litadýrð.
Stórviðburður í listalífinu:
Chihuly á íslandi
- einn fremsti glerlistamaður heims á Kjarvalsstöðum
I gær klukkan 17.30 opnaði forseti
íslands, herra Ólafur Ragnar Gríms-
son, sýningu á verkum bandaríska
glerlistamannsins Dales Chihulys á
Kjarvalsstöðum. Sýningin, sem ber
yflrskriftina „Chihuly á íslandi -
Form úr eldi“ er haldin í minningu
frú Guðrúnar Katrínar Þorbergs-
dóttur en hún kynntist einmitt
verkum Chihulys meðan hún var i
krabbameinsmeðferð i Seattle og
hreifst mjög af þeim.
Dale Chihuly þykir einn fremsti
glerlistamaður í heiminum nú á
tímum. Hann byggir á mjög fjöi-
breyttum möguleikum glers til að
skapa umfangsmikil höggmynda-
verk og innsetningar. Verk sín teng-
ir hann gjaman saman við náttúr-
una, en einnig vinnur hann mikið
út frá sýningarstað og sögu. Um
þessar mundir stendur til dæmis
yfir viðamikil sýning á höggmynd-
um hans í Davíðsturninum í Jer-
úsalem þar sem hann tengir saman
þessar fornfrægu byggingar og
Dale Chihuly
Chihuly er án efa einn framúrstefnu-
legasti glerlistamaður heims
nú á dögum.
margbrotin höggmyndaverk úr
gleri.
Listamaðurinn ætlaði sjálfur að
koma til landsins í tengslum við
sýninguna og vera viðstaddur opn-
unina í gær en vegna yfirvofandi
verkfalls flugvirkja frestaði hann
för sinni og komst því ekki til lands-
ins í tæka tíð. Auk þess ætlaði hann
ásamt aðstoðarfólki sínu og 35 ís-
lenskum myndlistarmönnum og
nemum að vinna að innsetningum í
nágrenni Reykjavíkur.
Innsetningamar, sem eru sér-
staklega hugsaðar með hliðsjón af
íslenskri náttúru, verða gerðar
þrátt fyrir að Chihuly verði íjarri
góðu gamni. Mun aðstoðarkona
hans Jennifer Lewis hafa yfirum-
sjón með verkinu í hans stað. Lewis
er þaulkunnug verkum og ferli Chi-
hulys og hélt meðal annars fyrirlest-
ur um hann í Listaháskólanum í
Laugarnesi á fimmtudaginn var.
Upphaflega stóð til að Chihuly héldi
sjálfur fyrirlesturinn en af því gat
ekki orðið af skiljanlegum ástæð-
um.
-EÖJ
Logandi lambalæri
og súlumeyjar
DV. SANDGERÐI:______________
A árlegu herrakvöldi Lionsklúbbs
Sandgerðis í kvöld munu „súlumeyjar"
sýna listrænan dans, eftir að Jóhannes
Kristjánsson eftirherma skemmtir
körlunum. Sandgerðingamir sinna
fleiri menningarlegum málum og hefja
kvöldið með vinkynningu áður en ráðist
er til atlögu við glæsilegt sjávarréttar-
hlaðborð og logandi lambalæri.
Gosbrunnur fremur listaverk
Eiríkur Vilhelm virðir fyrir sér ísskraut
sem varö til í frostinu á föstudags-
nóttina af vatnsúðanum frá gos-
brunninum. Garðinn eiga
Anna Jónsdóttir og Finnur
Bjarnason í Vík.
Nokkur verka Elínborgar Kjartansdóttur.
Koparristur í
T i sthúsinu
Málmlistakonan Elínborg Kjart-
ansdóttir ætlar að halda sýningu í
einn dag frá kl. 14-17 í Listhúsinu í
Laugardal. Um er að ræða kop-
arristusýningu með sumarívafi eins
og listakonan segir. Á sýningunni
verður mikið úrval englamynda og
golfmyndir svo eitthvað sé nefnt og
þá geta gestir sérpantað hjá lista-
konunni. í sama sal í Listhúsinu
sem er rétt við veitingastofuna
verða einnig sýnd verk eftir Erró.
75 ^
Palomino YEARLING
HOLDUR
Akureyri
un
HELGINA
LAUGARDAGog SUNNUDAG
4Sv
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Eyjarslóð 7 • Reykjavík • Sími 511 2200
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
StQra gVÍOiO k|, 20,QQ;
LANDKRABBINN
eftir Ragnar Arnalds
7. sýn. í kvöld lau. 15/4, uppselt, 8.
sýn. miö. 26/4, örfá sæti laus, 9. sýn.
fim. 27/4, örfá sæti laus, 10. sýn. fös.
5/5, nokkur sæti laus, 11. sýn. lau. 6/5,
nokkur sæti laus, 12. sýn. fös. 12/5,
nokkur sæti laus, fim. 18/5.
GLANNI GLÆPUR í
LATABÆ
eftir Magnús Scheving og Sigurð
Sigurjónsson
Sun. 16/4 kl. 14, örfá sæti laus, og kl.
17. örfá sæti laus, sun. 30/4 kl. 14,
uppselt, sun. 7/5 kl. 14, örfá sæti laus,
sun. 14/5 kl. 14, nokkur sæti laus, sun.
21/5 kl. 14.
ABEL SNORKO BYR EINN
eftir Eric-Emmanuel Schmitt
Sun. 30/4.
Takmarkaður sýningafjöldi.
KOMDU NÆR
eftir Patrick Marber
Mið. 31/5.
Svninain er hvorki við hæfi barna né
viðkvæmra.
Litla svióió kl. 20.30:
HÆGAN, ELEKTRA
eftir Hrafnhildi Hagalín
Guðmundsdóttur
í kvöld lau. 15/4, örfá sæti laus, sun.
16/4, sun. 30/4.
Smíðaverkstæ6ið.kl,.20.00:
VÉR MORÐINGJAR
eftir Guðmund Kamban
l' kvöld lau. 15/4, fös. 28/4, lau. 29/4.
Sýningum fer fækkandi.
Listaklúbbur
Leikhú$kj9llarans
17. apríl kl. 20.30.
Gullkistan
í tilefni af 50 ára afmæli
Pjóðleikhússins verður fjallað um
leikskáldið Guðmund Steinsson.
Flytjendur eru Ingvar E. Sigurösson,
Halldóra Björnsdóttir, Stefan Jónsson,
Erlingur Gislason og Margrét
Guðmundsdóttir.
Umsjón hefur Jón Viðar Jónsson.
Miðasalan er opin mán.-þri. kl.
13-18, miö.-sun. kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
S. 551 1200
thorey@theatre.is
BORGARLEIKHÚSIÐ
STÓRA SVIÐ:
KYSSTU MIG, KATA
Söngleikur eftir Cole Porter, Sam og
Bellu Spewack
9. sýn. 15/4 kl. 19, uppselt.
Sun. 16/4 kl. 19, uppselt.
Fim. 27/4 kl. 20,
Fös. 28/4 kl. 19, uppselt.
Lau. 29/4 kl. 19, uppselt.
Sun. 30/4 kl. 19.
Fim. 4/5 kl. 20, laus sæti.
Fös. 5/5 kl. 19, uppselt.
Lau. 6/5 kl. 19.
Sun. 7/5 kl. 19.
AFASPIL
Höfundur og leikstjóri:
Örn Árnason.
Sun. 16/4 kl. 14, nokkur sæti laus, sun.
30/4 kl. 14, nokkur sæti laus.
LITLA SVIÐIÐ
LEITIN AÐ VÍSBENDINGU
UM VITSMUNALÍF í
ALHEIMINUM
eftir Jane Wagner
Lau. 15/4 kl. 19, örfá sæti laus, lau. 29/4
kl. 19, fös. 5/5 kl. 19.
l'SLENSKI PANSFLQKKURINN
Diaghilev:
GOÐSAGNIRNAR
eftir Jochen Ulrich
Tónlist eftir Bryars, Górecki, Vine,
Kancheli
Lifandi tónlist: GusGus
Lau. 29/4 kl. 14.
Síðasta sýning!
Miöasalan er opin virka daga frá kl. 12-18,
frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og
fram aö sýningu sýningardaga. Simapant-
anir virka
daga frá kl. 10.
Greiöslukortaþjónusta
Sími 568 8000 Fax 568 0383
/
IJrval
-960síðuráári-
fróðleikur og skemmtun
sem lifir mánuðum og
árumsaman
m