Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 Fréttir Affallsrör úr iðnaðarhverfi liggja í Elliðaár: Borgar verkfræði ngu r athugar úrbætur - laxagengd hefur minnkað um rúmlega helming Á síðustu fjórum árum hefur ganga laxa í Elliðaámar minnkaö úr 2000 til 3000 fiskum í 1000, að sögn Þórólfs Antonssonar, fiski- fræðings hjá Veiðimálastofnun. Um helmingur heildargöngunnar veiðist. Meginskýringin er lélegar endur- heimtur úr hafi auk annarra óljósra ástæðna. Þórólfur sagði í viðtali við DV að margar skýringar gætu verið á fækkuninni, til dæmis fæðuskU- yrði í hafinu. Ein hugsanleg skýring er að það sé eitthvað í ánum eða ósasvæðinu sem geri seiðin veikari fyrir. Borgin hleypir affallsvatni út í ámar, regnvatni sem safnast af göt- um borgarinnar. Mest af þessu vatni kemur af húsagötum og inniheldur þá tUtölu- lega lítið af olíuefni og málmum úr bifreiðum og vélum, salt af götum og sink af húsþökum. Hluti vatnsins kemur frá steypustöðvum og iðnað- arhverfi nærri ánum þar sem meiri hætta er á eiturefnum. Veiðimálastofnun mælir mengun í ánum. Mælist hærri efnastyrkur í þurrki og hláku en þegar meira vatn er í ánum þynnast efnin og minni mengun mælist, sagði Þórólf- ur. Auk affaUsröranna gætu haf- skipa- og smábátahafnimar haft áhrif á seiðin. Veiðimálastofnun, sem hefur rannsakað EUiðaámar í 12 ár, hefur lagt til að fækka hugsanlegum áhættuþáttum með því að breyta rennsli affallsröranna. Eins hefur Orkuveita Reykjavíkur jafnað rennsli í ánum og séð tU þess að lág- marksrennsli sé haldið við. Þetta er tiltölulega nýbyrjað og áhrif á laxa- göngu eru ekki farin að sýna sig, sagði Gunnar Aðalsteinsson hjá Orkuveitunni. Ólafur Bjamason, yfirverkfræð- ingur hjá Borgarverkfræðingi, sagöi að samkvæmt skýrslu Raunvísinda- stofnunar Háskólans væri mengun í ánum undir hættumarki. Borgarverkfræðingur hefur samt í huga að fjarlægja þessi affaUsrör og sagði Ólafur að þeir hjá Borgar- verkfræðingi ætluðu sér að gera áætlun á þessu ári um úrbætur í þessu máli. Eftir að fjármagn fæst fyrir úrbótunum verður þeim svo komið í framkvæmd, sagði Ólafur. „Það mælist ekki neitt nálægt einhverjum mengunarmörkum, við erum bara að reyna að gera betur,“ sagði Ólafur. Stangaveiðifélag Reykjavíkur leigir árnar frá Orkuveitu Reykjavíkur og selur veiðUeyfi í EUiðaárnar. Formaður stjórnar Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur, Kristján Guðjóns- son, sagði að félagið styddi aUar að- geröir tU þess að minnka efnastyrk í ánum. „Við erum mjög hlynntir því að farið sé í einhverjar aðgerðir varð- andi þessi mál,“ sagði Kristján. -SMK Deilur um umhverfismat svínabús: Ákvörðun ráðherra dæmd ógild Byssuþjófur handtekinn Lögreglan í Reykjavík hand- samaði byssuþjóf i gær. Brotist var inn í kompu í húsi í Grafarvoginum á miðvikudag og óhlaðinni haglabyssú og skotum stolið. í gær handsamaði lögreglan mann á fertugsaldri sem hafði byssuna í fórum sínum. Byssan var hlaðin þegar lög- reglan fann hana og var eitt skot í hlaupi og tvö í magasíni byssunnar sem var tilbúin til notkunar. Lögreglan viU minna fólk á að geyma skotvopn og skotfæri á sem tryggUegastan hátt eins og lög gera ráð fyrir. -SMK Sogavegurinn: Hámarkshraði óbreyttur Skipulags- og umferðarnefnd Reykjavíkurborgar ákvað nýverið að halda hámarkshraða á Sogaveg- inum eins og hann er. Til umræðu kom að lækka há- markshraðann niður i 30 kílómetra á klukkustund á öllum Sogavegin- um. Þrjátíu kUómetra hámarkshraði er á hluta af Sogaveginum, eöa frá Bústaðaveginum að Réttarholtsveg- inum. Frá Réttarholtsveginum að Grensásvegi er hámarkshraðinn 50 kUómetrar á klukkustund. Steinunn Óskarsdóttir, sem situr í nefndinni, sagði að ákvörðunin um að halda hámarkshraðanum eins og hann er hefði verið tekin með tilliti tU Strætisvagna Reykja- víkur sem keyra um Sogaveginn. -SMK Hæstiréttur ógilti í gær ákvörðun Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráð- herra um að fyrirhugaðar bygging- ar og rekstur svínabús Stjömugríss hf. í Borgarfjarðarsýslu skyldu sæta umhverfismati. Taldi Hæstiréttur að ákvörðun ráðherra gæti haft í fór með sér umtalsverða röskun á eign- arráðum og atvinnufrelsi. Forsaga málsins er að fyrirtækið Stjörnugrís hf. keypti jörðina Mela í Borgar- fjarðarsýslu og íhugaði að reisa þar svínabú fyrir 20.000 grísi. Forsvars- menn fyrirtækisins létu vinna Siv Friðleifsdóttir Hæstiréttur úr- skuröaöi aö ákvöröun ráö- herra gæti haft í för meö sér um- talsveröa röskun á eignarráöum og atvinnufrelsi. deiliskipulag af lóð á jörðinni þar sem búið skyldi reist og samþykkti hreppsnefnd deiliskipulagið. I kjöl- far bréfs frá nágrönnum óskaði um- hverfisráðherra eftir áliti skipulags- stjóra á því hvort framkvæmdin skyldi sæta mati á umhverfisáhrif- um og lagði hann til að svo yrði og féllst ráðherra á það. Stjörnugrís höfðaði mál í kjölfarið til að fá ákvörðunina fellda úr gildi. Dæmdi Hæstiréttur Stjömugrís í hag í gær og var ákvörðun umhverfisráðherra um að fyrirhugaðar framkvæmdir á jörð Stjömugríss skyldu sæta mati á umhverfisáhrifum því dæmd ógild. Allur málskostnaður fellur á ríkissjóð. -hdm MYND REYNIR NEIL Heimkoma Flugbrautin í Neskaupsstaö var hreinsuö af snjó síðastliöinn fimmtudag fyrir flugvél Flugfélags íslands sem kom meö sjúkling frá Reykjavík til Neskaupstaðar. Sjúklingurinn haföi faríö suöur til þess aö vera undir eftirliti sérfræöinga og var aö koma heim. Utnsjón: Reynir Traustason netfang: sandkorn@ff.ls Nýi ritarinn Þórarinn Viðar Þórar- insson Lands- símaforstjóri ákvað á dögun- um að skipta um ritara og yngja upp. Hann orðaði við „garnla" ritarann að breytingar stæðu til. Engin niðurstaða fékkst í þær umræður. I byrjun síðustu viku er hringt upp til konunnar sem gegnt hefur rit- arastarfinu og henni tilkynnt að nú sé verið að koma með nýja ritar- ann. Var hún vinsamlegast beðin um að kynna þeirri nýju starfið. Ritaranum varð svo mikið um að hún fór heim og hefur ekki mætt síðan. Hins vegar mun henni hafa verið boðið starf við skjalavörslu hjá fyrirtækinu sem ekki þykir beint fýsilegur kostur fyrir starfs- mann sem gegnt hefur ritarastarfi. Mikil ólga er meðal starfsmanna vegna málsins. Árni mættur Engum dylst að Ámi John- sen er nú mættur til leiks í nýju kjördæmi þar sem Suðurnes- in sameinast Suðurlandi. Ámi stimpl- aði sig ræki- lega inn í hjörtu Suðurnesja- manna með því að lofa þeim í sjónvarpi á dögunum að flýta tvö- foldun Reykjanesbrautar um 5-7 ár. Þannig yfirspilaði hann strax í byrjun Kristján Pálsson sem hingað til hefur verið vakinn og sofinn yfir Reykjanesbrautinni. Kristjáns kann því að bíða sama hlutskipti og yngri þingmanna Sunnlendinga sem eru gersamlega í skugga hins sterka Eyjamanns... Össur biðlar Á kosninga- fundum Tryggva Harðarsonar og Össurar Skarphéðins- sonar vekur eftirtekt hversu blítt Össur talar um Jó- hönnu Sigurðardóttur. Á ísafirði var hann spurður um stefnuna í málefnum öryrkja. Össur svaraði því til að hann gæti ekki búið til betri stefnu í þeim efnum en Sam- fylkingin hefði nú þegar enda væri hún búin til af besta talsmanni sem þeir hefðu nokkru sinni eign- ast sem væri Jóhanna Sigurðar- dóttir. Hvort þetta dugar til að laða Jóhönnu yfir í búðir Össurar er óvíst enda hefur lengi legið leyni- þráður milli hennar og Hafnfirð- inga... Netkarlar Sá kunni fréttamaður, Steingrímur Ólafsson, hverfur von bráðar af Stöð 2 yfir til OZ éins og Sand- kom skúbb- aði á dögun- um. í höfuð- stöövum OZ, í gömlu Osta- og smjörsölunni við Snorra- brautina, mun Steingrímur vinna nánast við sama skrifborðið og hann sat viö fyrir rúmum áratug þegar Bylgjan var þarna til húsa. Þar unnu með Steingrími Eirík- ur Hjálmarsson, sem nú er rit- stjóri Vísis.is, og Hallgrímur Thorsteinsson, sem er ritstjóri kauptorgs.is. Hjá OZ verður Stein- grímur ritstjóri Oz.com. Þessir gömlu samstarfsmenn á Bylgjunni eru því allir orðnir sannkallaðir netkarlar...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.