Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 I>v _______71 V Tilvera Stórafmæli 90 ára_________________________ Salbjörg Halldórsdóttir, Gagnvegi, hjúkrh. Eir, Reykjavík. 85 ára_________________________ Guömundur Bachmann, Borgarbraut 67, Borgarnesi. 80 ára_________________________ Kristjana Pétursdóttir, Móabarði 4, Hafnarfiröi. Ólafur Stefánsson, Brimnesvegi 10, Ólafsfirði. Óli Kristjánsson, Skútustöðum 2a, Reykjahlíö. Sigurður Guðmundsson, Akurgerði 3f, Akureyri. 75 ára_________________________ Sigríður Kristjánsdóttir, Boðahlein 3, Garðabæ. Siguröur Björgvinsson, Borgarheiði 9h, Hveragerði. 70 ára_________________________ Guðmundur Guðmundsson, Háaleitisbraut 26, Reykjavík. Guörún Bjarnadóttir, Lækjargötu 34e, Hafnarfirði. Kristófer S. Jóhannesson, Stóragerði 36, Reykjavík. 60 ára_________________________ Ari Árnason, Hlíöargötu 24, Neskaupstað. Róbert Albert Spanó, Grundarhúsum 8, Reykjavík. Signý Ósk Ólafsdóttir, Ástúni 8, Kópavogi. 50 ára_________________________ Árný Sigríöur Benediktsdóttir, Furugrund 62, Kópavogi. Halldór Hannesson, Tröllagili 8, Akureyri. Hjalti Sigurðsson, Strandgötu 75a, Eskifiröi. Ingi Einar Sigurbjörnsson, Seilugranda 2, Reykjavík. Jón P. Einarsson, Fagrahjalla 23, Vopnafirði. Laufey Vilhjálmsdóttir, Melasíðu 6g, Akureyri. Marta Ólafsdóttir, Laufbrekku 5, Kópavogi. Ólína H. Friöbjarnardóttir, Melgötu 10, Grenivík. Ómar Bjarki Smárason, Fáfnisnesi 7, Reykjavík. Páll Pálsson, Smárarima 98, Reykjavík. Torfi Elís Andrésson, Hamraborg 18, Kópavogi. Þóra Bjarney Guðmundsdóttir, Þverholti 9, Mosfellsbæ. 40 ára ________________________ Aöalsteinn Árni Hallsson, Stekkjarholti 20, Húsavlk. Ana Maria Unnstelnsson, Barónsstíg 33, Reykjavík. Erlendur Traustason, Flúðaseli 88, Reykjavík. Gunnar Ásgrímsson, Ólafsvegi 18, Ólafsfiröi. Gústav Adolf Karlsson, Jörundarholti 196, Akranesi. Helgi Lárusson, Veghúsum 17, Reykjavlk. Indriði Jósafatsson, Arnarkletti 14, Borgarnesi. Ingvar Magnússon, Brekkutúni 5, Sauöárkróki. Páll Siguröur Jónsson, Þverási 5a, Reykjavík. Sigrún Eydís Jónsdóttir, Steinahlíð lh, Akureyri. Siguröur Ölvir Pálsson, Stakkhömrum 16, Reykjavík. Unnur Karlsdóttir, Skeiðarvogi 117, Reykjavík. Jarðarfarir Anna Vigdís Ólafsdóttir, Miðleiti 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 25.4. kl. 13.30. Útför Halldórs Bachmann, Grænumörk 5, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 15.4. kl. 15.30. Kristín Róbertsdóttir frá Sigríöarstöðum I Ljósavatnsskaröi veröur jarösungin frá Hálsi, Fnjóskadal, laugard. 15.4. kl. 14. Ernst P. Sigurðsson, Grænumörk 3, Selfossi, verður jarösunginn frá Selfosskirkju laugard. 15.4. kl. 13.30. Margrét Guömundsdóttir, Raftahlíð 23, Sauöárkróki, verður jarösungin frá Sauðárkrókskirkju, laugard. 15.4. kl. 14. Ingimundur H. Kristjánsson frá Svignaskarði verður jarösunginn frá Borgarneskirkju laugard. 15.4. kl. 14. Hundrað ára Hundrað ára Rannveig Kristjánsdóttir fyrrum húsfreyja á Tunguvöllum Rannveig Kristjánsdóttir, fyrrum húsfreyja á Tunguvöllum, Tjörnesi, nú á Sjúkrahúsinu á Húsavík, verð- ur hundrað ára á morgun. Starfsferill Rannveig fæddist á Kaldbak á Tjömesi en flutti þaðan tveggja vikna með foreldrum sínum að Hall- bjamarstöðum á Tjörnesi. Þar var fjölskyldan í tvö ár en flutti þá í Saltvík. Tveimur árum síðar fluttu þau í Rauf á Tjömesi þar sem for- eldrar hennar bjuggu allan sinn bú- skap eftir það. Um eða innan við tvítugt hleypti Rannveig heimdraganum, fór þá til Akureyrar til þess að læra karl- mannafatasaum. Saumar voru hennar aðalstarf fram yfir 1930, fyrst við saumaverkstæði á Akur- eyri og síðan á Húsavík. Þótti þar fara saman dugnaður og verklagni. Akureyrarárin var hún til húsa hjá Elínu Lyngdal, frænku sinni, og manni hennar, Magnúsi Lyngdal skókaupmanni. Eftir að Rannveig gifti sig hófu þau hjónin búskap í Ytri-Tungu á Tjörnesi. Þau byggðu síðan nýbýlið Tunguvelli út úr landi Ytri-Tungu 1942 og bjuggu þar í rétt fjörutíu ár, en fluttu þá í Hvamm, dvalarheimili aldraðra á Húsavík. Fjölskylda Rannveig giftist 24.11. 1931 Jó- hannesi Jónssyni, f. í Árbæ á Tjör- nesi 9.6. 1903, d. 17.8. 1993, bónda. Hann var sonur Jóns Jakobssonar, f. 18.5. 1875, d. 7.5. 1915, listaskrifara og bónda í Árbæ á Tjörnesi, og k.h., Sigurlaugar Jóhannesdóttur, f. 8.10. 1872, d. 22.3. 1954, húsfreyju. Böm Rannveigar og Jóhannesar: Jón, f. 14.5. 1932, læknir á Akranesi en kona hans var Jóhanna Jensdótt- ir og er dóttir þeirra Rannveig Kristjana, f. 8.5. 1967, búsett í Mos- fellsbæ, auk þess sem sonur Jó- hönnu af fyrra hjónabandi og stjúp- sonur Jóns er Ómar Ragnarsson, búsettur í Borgarnesi, en sambýlis- kona hans er Guðrún R. Kristjáns- dóttir kennari og sonur þeirra Kristján Örn, f. 1.9. 1997, en börn Ómars og fyrri sambýliskonu eru Jón Örn Tómasson, f. 31.7. 1982, og Edit Ómarsdóttir, f. 28.3. 1988; Krist- ján, f. 28.6. 1933, d. 19.5. 1988; Sigur- björg Hulda, f. 27.5.1937, sérkennari í Kópavogi en maður hennar er Her- mann Guðmundsson, fyrrv. skóla- stjóri, og eru böm þeirra Jóhannes, f. 7.2. 1960, sjávarútvegsfræðingur í Kópavogi en kona hans er Guðrún v. Ágústa Jóhannsdóttir rekstrarfræð- ingur og böm þeirra Hrafn, f. 13.2. 1981, nemi, Húni, f. 2.8. 1982, nemi, Hermann, f. 27.2. 1989, Hulda Svein- dís, f. 6.5. 1990, og Erlendur Helgi, f. 7.4. 1991, Hrafn, f. 12.1. 1964, d. 22.9. 1980, Fanney Kristín, f. 11.1.1972, líf- efnafræðingur í Kaupmannahöfn, en maður hennar er Guðmundur Fertram Sigurjónsson fram- kvæmdastjóri og eru böm þeirra Aðalbjörg, f. 6.1. 1996, og Hermann, f. 31.8. 1999, Guðmundur Magnús, f. 17.6. 1973, verkfræðingur í fram- haldsnámi í Kaupmannahöfn en -J' kona hans er Sigríður Kristjánsdótt- ir lífefnafræðingur. Systkini Rannveigar: Jósías Karl, f. 10.5. 1895, d. 7.3. 1978, bóndi og alþm. í Eyvík á Tjömesi og á Húsa- vik; Sigfús, f. 23.12. 1902, d. 9.4. 1936; Katrín, f. 16.1.1907, húsmóðir Akur- eyri. Foreldrar Rannveigar voru Krist- ján Frímann Sigfússon, f. 20.9. 1865, d. 26.2. 1921 og k.h., Jakobína Al- bertína Björg Jósíasdóttir, f. 11.10. 1868, d. 10.12. 1948, húsfreyja. Sjötíu og fímm ára Sigurbjörg Hreiðarsdóttir húsmóðir og húsvörður á Flúðum Sigurbjörg Hreiðarsdóttir, húsmóð- ir og húsvörður, Vesturbrún 18, Flúð- um, er sjötiu og fimm ára í dag. Starfsferill Sigurbjörg fæddist í Grafarholti í Mosfellssveit og ólst upp lengst af á Engi í Mosfellssveit. Hún var í bama- skóla á Brúnalandi og lauk gagn- fræðaprófi í Kvennaskólanum í Reykjavík 1942. Sigurbjörg flutti með manni sínum að Hvammi í Hrunamannahreppi 1944. Þau hjónin byggðu síðan nýtt garðyrkjubýli úr Hvammslandi, Garð, og bjuggu þar til 1986 er Sigurbjörg missti mann sinn. Hún bjó þar áfram til 1987. Sigurbjörg var bæði húsfreyja og garðyrkjubóndi í Garði. Hún söng í kirkjukór í tæp fjörutíu ár og í fleiri kórum, lék með ungmennafélagi Hrunamanna um árabil og er heiðurs- félagi þess, var formaður kvennfélags- ins í níu ár, sat í stjóm skógræktarfé- lagsins og var formaður styrktarfé- lags aldraðra t sex ár. strönd, kvæntur Vig- dísi Elísabetu Reynisdóttur húsmóður og eiga þau fjögur börn; Björn Hreiðar, f. 7.2. 1948, húsasmíðameistari í Hruna- mannahreppi, kvæntur Margréti Ósk- arsdóttur húsmóður og eiga þau þrjá syni. Fóstursonur Sigurbjargar erEiður Örn Hrafnsson, f. 24.5. 1954, vélvirki í Vogum á Vatnsleysuströnd, kvæntur Hrönn Sigurðardóttur húsmóður og eiga þau tvo syni. Systkini Sigurbjargar era Kristrún, f. 24.6. 1923, kennari í Reykjavík; Gunnfríður, f. 6.1.1932, skrifstofumað- ur á Akureyri; Sigurður Hreiðar, f. 28.3.1938, blaðamaður við DV, búsett- ur í Mosfellsbæ. Foreldrar Sigurbjargar vora Hreið- ar Gottskálksson, f. 1896, d. 1975, bóndi á Engi og á Hulduhólum í Mos- fellssveit, og Helga Sigurdís Björns- dóttir frá Grafarholti, f. 1898, d. 1972, húsfreyja. Fjölskylda Sigurbjörg giftist 23.10. 1943 Einari Emi HaÚgríms, f. 26.2. 1922, d. 2.6. 1986, garðyrkjubónda. Hann var sonur Hallgríms T. Hallgrímssonar, kaup- manns í Reykjavík, og Guðrúnar Sess- elju Einarsdóttur, húsmóður og fisk- verkakonu. Einar kom að Hvammi til sumardvalar 1930 og átti þar sitt ann- að heimili. Börn Sigurbjargar og Einars eru Helga Ragnheiður, f. 19.3. 1944, hús- móðir á Selfossi, gift Sigurdór Karls- syni trésmíðameistara og eiga þau þrjú börn; Jón, f. 28.3.1945, garðyrkju- meistari á Flúðum, kvæntur Marit Anný Einarsson húsmóður og eiga þau þrjú böm; Hallgrímur, f. 7.2.1948, verkstjóri í Vogum á Vatnsleysu- Ætt Hreiðar var sonur Gottskálks, b. á Vatnshóli í Landeyjum og síðar for- manns í Vestmannaeyjum, Hreiðars- sonar. Móðir Hreiðars var Sigurbjörg Sigurðardóttir, b. í Hvammi Sigurðar- sonar og Dýr-finnu Kolbeinsdóttur. Helga var dóttir Björns, alþm. og hreppstjóra í Gröf og Grafarholti Bjarnarsonar, b. í Vatnsholti í Skorra- dal Eyvindssonar. Móðir Björns í Grafarholti var Sólveig, systir Árna, langafa Bjöms Th. Björnssonar list- fræðings. Móðir Helgu var Kristrún Eyjólfs- dóttir, b. á Stuðlum i Reyðarfirði, Þor- steinssonar. Sigurbjörg verður með börnum sínum og tengdabörnum í París. Anton Guðlaugsson fyrrv. skipstjóri og fiskmatsmaður Anton Guðlaugsson, fyrrv. sjó- maður og ferskfiskmatsmaður, Karlsbraut 13, Dalvík, er áttræður i dag. Starfsferill Anton fæddist í Miðkoti við Dal- vík og ólst upp á Dalvík. Hann stundaði nám við skipstjóra- og stýrimannaskólann á Siglufirði og útskrifaðist með skipstjómaréttindi 1943. Anton stundaði sjómennsku frá unglingsárum og var eins og títt var á vertíð á vetrum og síld á sumrin. Hann var lengi skipstjóri á dekkbát- um sem hann átti í félagi við aðra og voru gerðir út frá Dalvík og Siglufirði. Árið 1965 keypti hann Fiskbúð Dalvíkur og rak hana í tólf ár. Meðfram því réðst hann til Fisk- mats ríkisins þar sem hann starfaði til 1994 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Anton var félagi í Lionsklúbbi Dalvíkur í tíu ár. Hann er enn virk- ur félagi í Karlakór Dalvíkur en með kómum hefur hann sungið í tugi ára. Á yngri árum starfaði hann með Leikfélagi Dalvíkur. Anton hefur haldið dagbækur í meira en hálfa öld og á seinni árum hefur hann skráð talsvert af minn- ingarbrotum um menn og málefni. Fjölskylda Anton kvæntist 26.1. 1947, Sigur- laugu Ásgerði Sveinsdóttur, f. 10.9. 1924, húsmóður. Hún er dóttir Sveins Mikaels Sveinssonar, bónda á Tjörn í Skagahreppi í Austur- Húnavatnssýslu og Guðbjargar Rannveigar Kristmundsdóttur hús- freyju. Börn Antons og Sigurlaugar eru Guðbjörg, f. 26.6. 1947, starfskona á Dalbæ á Dal- vík, var gift Níelsi Krist- inssyni en þau skildu og eru börn þeirra Ant- on Páll, Birgitta og Þorleifur Krist- inn; Elín Sigrún, f. 4.12. 1948, verk- efnastjóri hjá Akureyrarbæ, gift Skafta Hannessyni og eru börn þeirra Hanna Maria, Sigurlaug Ás- gerður, Hannes Jarl og Lovisa Björk; Anna Dóra, f. 3.10. 1952, kennari, gift Sveini Sveinssyni og eru synir þeirra Þorgeir Freyr og Teitur Már; Ama Auður, f. 20.6. 1955, meinatæknir, gift Hreini Páls- syni og eru böm þeirra Sigurlaug María og Jóhann Páll auk þess sem Arna á Ástu Brynju úr fyrri sam- búð; Þórólfur Már, f. 30.8. 1957, líf- fræðingur, kvæntur Hrönn Vil- helmsdóttur og eru börn þeirra Ant- on Heiðar og Embla Sól; Árdis Freyja, f. 26.5. 1967, félagsráðgjafi. Barnabarnaböm Antons og Sig- urlaugar eru fjórtán talsins. Systkini Antons: Sigurjón Páll, f. 27.3. 1910, d. 31.3.1997; Ámi Jóhann, f. 10.6. 1912, d. 7.11. 1987; Jóhannes Friðrik, f. 20.11. 1914, d. 29.9. 1931; Gunnar Kristinn, f. 19.5. 1917; Dóróthea Sigrún, f. 30.5. 1924. Hálfsystkini Antons: Svava Krist- insdóttir, f. 29.1. 1931, dó á barns aldri; Svava Ragnheiöur Kristins dóttir, f. 20.1.1933, d. 29.7.1951; Arn grímur Ægir Kristinsson, f. 11.4 1935. Foreldrar Antons voru Guðlaug ur Sigurjónsson, f. 29.11. 1884, d 10.1. 1924, bóndi og sjómaður í Miö koti við Dalvík, og k.h., Anna Mar ía Jónsdóttir, f. 9.10. 1889, d. 12.6 1973, húsmóðir. Anton verður að heiman á afmæl isdaginn. Fímmtugur Sturla Bragason framhaldsskólakennari Sturla Bragason framhaldsskóla- kennari, Eyrarholt 1, Hafnarfirði, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Sturla fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lærði framreiðslu 1965-68 á Hótel Sögu og í Kaup- mannahöfn 1968-70. Sturla var framreiðslumaður samfellt til 1980 er hann flutti á Blönduós. Þar stundaði hann fram- reiðslu, var hótelstjóri, verkamaður og vann við tölvuviðgerðir. Hann hefur verið kennari við Fjölbrautaskóla Suðumesja frá 1995 og starfar þar enn sem yfirmaður og deildarstjóri tölvudeildar. Sturla hefur starfað í skátahreyf- ingunni frá 1960 og verið m.a. fé- lagsforingi auk annarra trúnaðar- starfa meðal skáta. Starfsferill Sturla kvæntist 23.9. 1973 Hrafn- hildi Guðnadóttur, f. 10.2. 1951, sundlaugarverði. Hún er dóttir Guðna Gestsonar og Jónínu Egils- dóttur í Hafnarfirði. Böm Sturlu og Hrafnhildar eru Snorri, f. 19.2. 1974, vélstjóri á línu- bát, í sambúð með Guðrúnu Jóns- dóttur og eiga þau einn son, Daníel Frey, f. 10.1.1997; Guðni öm, f. 3.11. 1980, nemi. Bræður Sturlu eru Þór Bragason, f. 18.9. 1951, rafvirki; Jón Bragason, f. 23.9. 1952, verslunar- maður í Hafnarfirði; Einar Bragi Bragaon f. 11.8. 1965, hljóðfæraleikari, kennari og skólastjóri á Seyðisfirði Foreldrar Sturlu: Bragi Einars- son, f. 11.6. 1930, d. 9.12. 1994, prent- ari og hljómlistarmaður í Garðabæ, og Margrét Bettý Jónsdóttir, f. 9.9. 1930, d. 15.5.1997, saumakona. Ætt Bragi var bróðir Guðjóns Einars- sonar, hljóðfæraleikara, fréttaljós- myndara og síðar skrifstofustjóra í Reykjavik. Bragi var sonur Einars, yfirprentara og eins af stofnendum Steindórsprents og píanóleikara Jónssonar, skipstjóra í Reykjavík Steinasonar. Móðir Einars var Guð- ríður Eyjólfsdóttir. Móðir Braga var Jónína Þorbjörg Sveinsdóttir, Nína Sveins, leikkona, dóttir Sveins Gunnlaugssonar, út- vegsb. í Hamarskoti, Fitjum og Flankastöðum, og Hlaðgerðar Gísla- dóttur. Margrét Bettý var dóttir Jóns, málara og kennara í Reykjavík, Björnssonar, frá Vallaneshjáleigu, Stefánssonar. Móðir Jóns var Mar- '** grét Katrín Jónsdóttir frá Hjarðar- holti í Dölum. Móðir Margrétar Bettýjar var Gréta Agnes Margreta Bjömsson listmálari. Sturla og Hrafnhildur taka á móti gestum í Skátaheimilinu Hraun- byrgi, Hafnarflrði, laugardaginn —- 15.4. kl. 17.00-19.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.