Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 62
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 DV 5“ 70 Ættfræði___________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson i - -mmmm i 90 ára______________________ Jósef H. Sigurösson, A Drápuhiíö 44, Reykjavík. 85 ára______________________ Sigríður Magnúsdóttir, Háaleitisbraut 37, Reykjavík. Séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, Akurgeröi 3f, Akureyri, veröur áttræöur á morg- un. Séra Siguröur tekur á móti gestum í Frímúrara- húsinu, Akureyri, þriöjud. 19.4. kl. 19.00 * 75 ára_________________________________ Svanhvít Magnúsdóttir, Útgaröi 6, Egilsstööum. 70 ára_________________________________ Ingimar Bjarnason, Jaöri, Höfn. Jónas Þór Pálsson, Fornósi 11, Sauöárkróki. Sigurður Björnsson, Fellsenda dvalarh., Dalasýslu Snorri Karlsson, Huldubraut 23, Kópavogi. 60 ára ________________________________ Ástbjörg Ólafsdóttir, Nóatúni 15, Reykjavík. Gert Brovail, Frostaskjóli 63, Reykjavík. Guðrún Einarsdóttir, Suöur-Götum, Vík. --ý Guðrún L. Bergsveinsdóttir, Sunnubraut 45, Kópavogi. Margrét Jónsdóttir, Kjalarlandi 24, Reykjavík. 50 ára___________________ Páii Pálsson, Smárarima 98, Reykjavik, veröur fimmtugur á morg- un. Eiginkona hans er Hafdís Halldórsdóttir. Þau eru í útlöndum. Einar Axelsson, Lágengi 19, Selfossi. Hanna Dóra Birgisdóttir, > Fornuströnd 15, Seltjarnarnesi. Knútur Signarsson, Vesturbrún 37, Reykjavík. Ottó Valdimarsson, Arnarbakka 7, Bíldudal. Ragna Ragnarsdóttir, Bjarkargrund 41, Akranesi. Ragnar B. Þorgilsson, Hammersminni 16, Djúpavogi. Sigrún Valgerður Gestsdóttir, Seilugranda 12, Reykjavík. Þorgerður Steinþórsdóttir, Noröurbraut 2, Höfn. 40 ára_________________________________ Agla Hreiöarsdóttir, Furuhlíö 12, Hafnarfiröi. Anna Hjartardóttir, Rétturima 33, Reykjavík. Baldvin Þór Jóhannesson, Kóngsbakka 9, Reykjavík. Gani Elís Zogaj, Grýtubakka 26, Reykjavík. Gísli Hjartarson, Neshömrum 7, Reykjavík. Guömundur Ólafur Halldórsson, Kóngsbakka 6, Reykjavík. Hallgrímur H Brynjarsson, Brún, Akureyri. Hans Henttinen, Ásgarði 145, Reykjavík. Hreinn Jakobsson, Krókamýri 56, Garðabæ. Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir, Gránufélagsgötu 21, Akureyri. Jesus Maria Sanchez, Eggertsgötu 32, Reykjavík. Jóhann Snorri Arnarson, Suðurtanga 2, ísafiröi. Samúel Ingi Þórarinsson, Svarthömrum 28, Reykjavík. Viöar Jónsson, Ásbúðartröö 1, Hafnarfirði. 80 ara Frú Vigdís Finnbogadóttir ádur forseti íslands Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands 1980-1996. Frú Vigdís Finnbogadóttir er fyrsta konan í heiminum sem kjörinn var þjóöhöföingi í lýöræöislegum kosningum. Vinsældir hennar í embætti voru meö fádæmum, hér á landi, á Noröurlöndunum og víöar erlendis. Frú Vigdís Finnbogadóttir, áður forseti Islands, er sjötíu ára í dag. Starfsferill Vigdís fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1949, stundaði nám í frönsku og frönskum bók- menntum við háskólann í Grenoble og Sorbonne i París, með leikbók- menntir sem sérsvið, 1949-53, og nám í leiklistarsögu við Kaup- mannahafnarháskóla 1957-58. Auk þess tók hún BA-próf í ensku og frönsku við Hl og lauk þaðan prófi í uppeldis- og kennslufræði. Vigdis var blaðafulltrúi Þjóðleik- hússins og ritstjóri leikskrár 1954-57 og 1961-64. Hún var um skeið leiðsögumaður og kynningarfulltrúi Ferðaskrif- stofu rikisins á erlendri grund og gagnvart erlendum rithöfundum og kvikmyndatökumönnum hér á landi, auk þess sem hún skipulagði námskeið fyrir leiðsögumenn á veg- um Ferðaskrifstofu ríkisins um ára- bil. Vigdís var frönskukennari við MR 1962-67, kenndi frönsku við MH 1967-72 þar sem hún skipulagði jafn- framt frönskunám skólans, sá um frönskukennslu í sjónvarpi 1970-71 og kenndi franskar leikbókmenntir við HÍ 1972-80. Vigdís var leikhússtjóri Leikfé- lags Reykjavíkur 1972-80. Hún var einn af stofnendum til- raunaleikhússins Grímu 1962, var forseti Alliance Francaise 1975-76, sat í ráðgefandi nefnd um menning- armál Norðurlanda 1976-80 og for- maður 1978-80. Vigdís var kjörin forseti íslenska lýðveldisins 1980 og er fyrsta konan í heiminum sem kjörin er þjóðhöfð- ingi í lýðræðislegum kosningum. Hún var endurkjörinn 1984, 1988 og 1992 en gaf ekki kost á sér til endur- kjörs 1996. Frá því Vigdís lét af embætti for- seta íslands hafa henni verið falin margvísleg trúnaðarstörf á alþjóða vettvangi. Hún er velgjörðarsendi- herra Sameinuðu þjóðanna fyrir tungumál mannkyns og formaður Heimsráðs um siðferði í visindum og tækni, hjá UNESCO, sem m.a. fjallar um tölvutækar upplýsingar. Þá hefur hún nýlega verið skipuð velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna í baráttu gegn kynþátta- fordómum og útlendingaandúð með tilliti til undirbúnings á heimsþingi um málefnið á vegum Sameinuðu þjóðanna í Suður-Afriku árið 2001. Loks á hún sem formaður stóran þátt í undirbúningi að Den Nord- Atlantiske Brygge, menningar-, rannsókna- og viðskiptasetri í Kaupmannahöfn fyrir Norðvestur Atlantshafsþjóðimar. Fjölskylda Kjördóttir Vigdísar er Ástríður Magnúsdóttir, f. 18.10. 1972, snyrti- sérfræðingur en unnusti hennar er Eggert Elmar Þórarinsson húsa- smiður og er dóttir þeirra f. 21.3. 2000. Bróðir Vigdísar var Þorvaldur, f. 21.12. 1931, d. 3.8. 1952, verk- fræðistúdent. Foreldrar Vigdísar voru Finnbogi Rútur Þorvaldsson, f. 22.1. 1891, d. 6.1. 1973, prófessor i verkfræði í HÍ, og k.h., Sigríður Eiríksdóttir, f. 16.6. 1894, d. 23.3.1986, hjúkrunarkona og formaður Hjúkrunarfélags íslands til fjölda ára (nú Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga). Ætt Bróðir Finnboga var Búi mjólkur- fræðingur, faðir Kristjáns, guð- fræðiprófessors, Þorvaldar eðlis- fræðings, Þórðar verkfræðings, og Magdalenu Jórunnar hjúkrunar- fræðings. Finnbogi var sonur Þor- valds, pr. í Sauðlauksdal, bróður Jóns, langafa Hans G. Andersens sendiherra. Annar bróðir Þorvalds var Ingimundur, langafi Ragnars Tómassonar lögfræðings. Hálfsystir Þorvalds, sammæðra, var Sigríður, langamma Friðriks Pálssonar for- stjóra. Þorvaldur var sonur Jakobs, pr. í Steinnesi, bróður Ásgeirs, dbrm, á Lambastöðum, langafa Önnu, móður Matthíasar Johann- essens, skálds og Morgunblaðsrit- stjóra. Ásgeir var einnig langafi Lárusar Blöndals bókavarðar, fóður Benedikts Blöndals hæstaréttadóm- ara, Halldórs Blöndals alþingisfor- seta og Haralds Blöndals hrl. Móðir Þorvalds var Þuríður, systir Sigríð- ar, konu Ásgeirs. Þuríður var einnig systir Guðrúnar, langömmu Þorsteins Ö. Stephensens leikara og Guðrúnar, móður Ögmundar Jónas- sonar alþm. Bróðir Þuríðar var Ólafur, pr. i Viðvík, langafi Þorvald- ar í Arnarbæli, föður Ásdísar Kvar- an lögfræðings. Hálfsystir Þuríðar var Rannveig, langamma Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrv. menntamálaráðherra, fóður Vil- mundar ráðherra og prófessoranna Þorvaldar og Þorsteins. Þuríður var dóttir Þorvaldar, pr. og skálds í Holti Böðvarssonar, pr. í Holtaþing- um Högnasonar, prestafóður á Breiðabólstað. Móðir Finnboga Rúts var Magda- lena Jónasardóttir, b. á Hallbjamar- eyri í Eyrarsveit Jónssonar, og Kristínar Bergsdóttur, b. á Hval- gröfum á Skarðsströnd Búasonar, og Kristínar Sturlaugsdóttur. Sigríður var dóttir Eiríks, tré- smiðs í Reykjavík, bróður Einars, b. í Miðdal, fóður Guðmundar frá Mið- dal, myndlistarmanns, föður Errós, Ara Trausta jarðfræðings og Egils arkitekts. Dóttir Einars var Sigrið- ur, móðir Jónínu Margrétar Guðna- dóttur sagnfræðings og Bergs Guðnasonar lögfræðings, föður Guðna knattspyrnumanns. Önnur dóttir Einars var Karólína, móðir Hlédísar Guðmundsdóttur læknis. Þriðja dóttir Einars var Inga, móðir Þuríðar Sigurðardóttur söngkonu. Systir Eiríks var Guðbjörg, móðir Grims Norðdahls á Úlfarsfelli, og Haraldar Norðdahls, föður Skúla Norðdahls arkitekts. Eiríkur var sonur Guðmundar, b. í Miðdal, bróður Margrétar, langömmu Ólafs Kr. Magnússonar, ljósmyndara Morgunblaðsins, og Gunnars, föður Magnúsar forstjóra. Margrét var einnig langamma Vilborgar Krist- jánsdóttur, fulltrúa á skrifstofu for- seta Islands, móður Heiðu arkitekts. Guðmundur var sonur Einars, b. á Álfsstöðum á Skeiðum Gíslasonar, b. á Álfsstöðum Helgasonar, bróður Ingveldar, móður Ófeigs Vigfússon- ar ríka á Fjalli, langafa Gretars Fells, og Ingveldar, langömmu Guð- ríðar í Tryggvaskála, ömmu Guð- laugs Tryggva Karlssonar hagfræð- ings. Móðir Einars var Ingveldur Jónsdóttir, systir Þorsteins, langafa Hannesar Þorsteinssonar þjóð- skjalavarðar, Þorsteins Þorsteins- sonar hagstofustjóra og Jóhönnu Þorsteinsdóttur, móður Óskars Gislasonar kvikmyndagerðarmanns og Alfreðs Gíslasonar bæjarfógeta, föður Gísla, fyrrv. þjóðleikhús- stjóra. Jóhanna var einnig amma Ævars Kvarans leikara. Móðir Guð- mundar var Margrét Hafliðadóttir. Móðir Eiríks Guðmundssonar, Vig- dís, var systir Helgu, langömmu Jóns Eiríkssonar, oddvita í Vorsa- bæ á Skeiðum. Vigdís var dóttir Ei- ríks, b. í Vorsabæ Hafliðasonar, bróður Elínar, langömmu Gunnars Guðmannssonar, forstjóra Laugar- dalshallarinnar, Sigurgeirs Guð- mannssonar, framkvæmdastjóra ÍBR, og Kristbjargar, móður Sigurð- ar Sigurjónssonar leikara. Elin var einnig langamma Gunnlaugs, föður Jóns Steinars hrl. Þá var Elín langamma ísleifs Jónssonar verk- fræðings og amma Ólafar, ömmu Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar. Elín var einnig móðir Hafliða, afa Sigurliða Kristjánssonar kaup- manns. Önnur systir Eiríks i Vorsa- bæ var Ingveldur, amma Gísla Gunnarssonar, fyrrv. pr. í Glaum- bæ, og langamma Vilhjálms, föður Manfreðs Vilhjálmssonar arkitekts. Bróðir Eiríks var Þorsteinn, langafl Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra. Móðir Sigríöar Eiríksdóttur var Vilborg, systir Guðna á Keldum, langafa Bjöms Vignis Sigurpálsson- ar blaðamanns. Vilborg var dóttir Guðna, b. á Keldum í Mosfellssveit, bróður Þorvarðar, langafa Margrét- ar Sigurðardóttur, móður Bjargar Sveinsdóttur myndlistarmanns. Guðni var sonur Guðna, b. í Saurbæ i Ölfusi, bróður Sigríðar, langömmu Halldórs Laxness og Guðna Jóns- sonar prófessors, foður prófessor- anna Bjarna og Jóns. Guðni var sonur Gísla, b. í Reykjakoti í Ölfusi, bróður Guðmundar, afa Ólafs, afa Þórhalls Vilmundarsonar prófess- ors og langafa Ólafs Ólafssonar landlæknis og listfræðinganna Gunnars Kvarans og Ólafs Kvarans. Annar bróðir Gísla var Jón, langafi Konráðs, langafa Júlíusar Hafstein, framkvæmdastjóra Kristnitökuhá- tíðar. Systir Gísla var Ingveldur, langamma Valgerðar, ömmu Guð- mundar H. Garðarssonar, fram- kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs versl- unarmanna og Vals Valssonar bankastjóra. Gísli var sonur Guðna, ættföður Reykjakotsættar Jónsson- ar. Móðir Vilborgar var Ástríður Finnsdóttir. Vigdís ver deginum með fjöl- skyldu sinni og einkavinum. Andlát Elín Ólafsdóttir, Bræðraborgarstíg 37, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 12.4. Grettir Jóhannesson, Gullsmára 9, Kópavogi, áðurtil heimilis á Skarði í Þykkvabæ, lést miðvikudaginn 12.4. sl. v.V Jóhann Pétur Konráðsson, Fellaskjóli, áöur Grundargötu 29, Grundarfirði, andaðist aðfaranótt miðvikudagsins 12.4. á St. Fransiskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi. * Árinu eldri Auðólfur Gunnarsson kvensjúkdómalæknir er 63 ára í dag. Auðólfur er af prestaættum, sonur Gunnars Árnasonar, sóknarprest í Kópavogi og áöur á Skútustöðum, en móðir Auðólfs var Sigríður, dóttir Stefáns Jónssonar, prests á Auðkúlu. Systir Auðólfs er Hólmfríður, kona Har- aldar Ólafssonar, prófessors og fyrrv. alþm. Anna Theodóra Rögn- valdsdóttir kvikmynda- gerðarmaður er 47 ára í dag. Anna hefur brallað ýmislegt um dagana á sviöi hreyfimyndagerðar. stuttmyndirnar Kalt borð og Hlaupár. Þá hefur hún talsvert unnið aö leiknum heimildamyndum fyrir sjónvarp og situr nú við að semja handrit að sakamála- þáttaröð fyrir sjónvarp. Jón Otti Gíslason, aöstoð- arvarðstjóri hjá Lögregl- unni í Reykjavík, er 45 ára dag. Jón hefur einkum unnið sér sjósund til frægðar en hann er I hópi vöskustu sjósundmanna lögreglunnar og a.m.k. þrettánfaldur handhafi Er- lingsbikarsins í björgunarsundi. Ekki amalegt að eiga slíka I lögregluliöi Reykjavíkur ef einhver skyldi henda sér í sjóinn. Jón er bróðir Ragnars, skóla- stjóra Foldaskóla. Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, verður 53 ára á morgun. Sigurrós er skeleggur sjálfstæöis- maður sem hefur verið á miklum skriöi í bæjarpóli- tík Kópavogs að undaförnu. Hún skrifar oft kjallarargreinar í DV og starfaði reyndar eitt sinn við ættfræöideild DV viö góðan orðstír. Og fleiri úr kvikmydabrans- anum því Ari Kristinsson verður 49 ára á morgun. Ari er helsti kvikmynda- tökumaöur hér á landi þegar um er aö ræða leiknar kvikmynd- irí fullri lengd. Hann hefurtekið flestar myndir Friðriks Þórs Friðrikssonar og sá t.d um tökur á Myrkrahöfðingja Hrafns Gunnlaugssonar. Sjálfur gerði hann handrit og leikstýrði myndinni Stikkfrí. Þá er Ari helsti eigandi ís- lensku kvikmyndasamsteypunnar, ásamt Friðriki Þór. Þó líði ár og öld, eða öllu heldurtæp hálf öld, er BO, hinn eini sanni Björgvin Halldórsson, samurvið sig, en hann verður 49 ára á morgun. Björgvin hefur veriö einn ástsælasti söngvari unga fólksins og síðan þjóðarinnar allrar um langt skeið - sannkallaöur þjóðsöngvari. Hann hefur starfað á Stöð 2 um árabil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.