Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
I>V
25
Fréttir
þessi fyrirtæki gera út á það sama;
íslenska þekkingu og reynslu sem
nýst hefur útgerðum annarra landa
til að rísa úr öskustónni.
Erfitt í Þýskalandi
En það hefur ekki öllum tekist að
breyta íslenskri þekkingu í gull og
ber hátt erfiðleika Samherja hf. að
fóta sig á erlendri grundu. Samherji
er fyrirtæki sem náð hefur glimr-
andi árangri í útgerð á íslandi en
ekki er sömu sögu að segja af
rekstri þeim sem er í útlöndum. í
Þýskalandi á Samherji útgerðarfyr-
irtækið Deutsche Fishfang Union
sem reynst hefur þungur baggi. Tap
sem ræðst af einhverju leyti af afla-
bresti í Barentshafi er hlutskipti
DFFU og afleiðingin er sú að móður-
fyrirtækið á Islandi skilar ekki við-
unandi hagnaði. í Bretlandi rekur
fyrirtækið útgerðarfélagið Onward
Fishing Company sem að sögn gekk
„þolanlega". í Bandaríkjunum á
Samherji útgerðarfélagið Atlantic
Trawlers sem átti tvö skip. Annað
skipanna sökk og nú er það yfirlýst
stefna Samherja að losa sig frá
rekstrinum. í Færeyjum eru blikur
á lofti í rekstri dótturfélagsins
Framherja sem glímir við samdrátt
í aílaheimildum. Þar mun þó horfa
betur á þessu ári. Alvarlegasta stað-
an er hjá DFFU í Þýskalandi en þar
fetar Samherji sama stíg og Útgerð-
arfélag Akureyringa sem glímdi við
mikla erfiðleika i rekstri austur-
þýska útgerðarfélagsins Mecklen-
burger Hochseefischerei. Eftir fjög-
urra ára erfiðleika var ákveðið að
selja það í heilu lagi og ÚA slapp
með skrekkinn. Tíminn einn leiðir í
ljós hvernig stjórnendur Samherja
klóra sig út úr þessum vanda.
Bónussformúlan
Baugur er í mikill sókn þar sem
uppfinning Jóhannesar Jónssonar í
Bónus virðist ganga vel 1 útlend-
inga. Bónusformúlan virðist renna
út ef marka má að Baugur hefur fest
kaup á 50% hlut í Bonus Dollar
Stores-keðjunni í Bandaríkjunum.
Félagið rekur nú sjö verslanir und-
ir nafninu Bonus Dollar Stores og
hefur verið gengið frá húsaleigu-
/ framhaldi af kaupum
á Stoke eru aðrir
fjárfestar með enn
háleitara markmið og
vilja kaupa
úrvalsdeildarlið í
Englandi.
samningum fyrir 2 aðrar verslanir.
Reiknað er með að verslanir félags-
ins verði orðnar um 20 nú í árslok.
Áður hafði Baugur stofnað til far-
sællar Bónusverslunar í Færeyjum
í samvinnu við heimamenn. Baugur
er einnig í samstarfi við sænsku
verslunarkeðjuna Debenham sem
reiknað er með að opni verslun i
Stokkhólmi á næstu árum. Rekstur
þeirrar verslunar verður undir
stjóm Baugs en innkaup og lager-
hald undir stjóm Debenhams. Rúm-
fatalagerinn hefur einnig náð að
fjölga sér og rekur verslanir í Fær-
eyjum og í Kanada.
Bankarnir
Útrás íslenskra banka og fjár-
málastofnana hefur ekki verið mik-
il fram undir það að í september
1996 stofnaði Kaupþing, fyrst ís-
lenskra verðbréfafyrirtækja, dóttur-
fyrirtæki erlendis, Kaupthing
Management Company í Lúxem-
borg, sem er sjóðafyrirtæki. Árið
1998 stofnaði Kaupþing annað dótt-
urfyrirtæki í Lúxemborg, Kaupt-
hing Luxembourg S.A., sem fæst við
verðbréfamiðlun og fjármálaráðgjöf.
Sama ár var áhættufjárfestingar-
sjóðurinn Uppspretta - Icelandic
Capital Venture S.A. settur á fót í
Lúxemborg. Nú hyggur Kaupþing á
enn frekari alþjóðavæðingu með
stofnun dótturfyrirtækis í New
York. Þá er fyrirtækið að heíja
rekstur í Svíþjóð, auk þess að til
stendur einnig til að opna útstöð í
Færeyjum á næstunni.
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
hefur einnig lagt í víking með kaup-
um á breska bankanum R. Raphaels
& son. Það skýrist síðan eftir sam-
einingu FBA og íslandsbanka hvert
framhald verður á strandhöggi er-
lendis. Lyfjafyrirtækin eru einnig
áhugasöm um landvinninga. Þannig
keypti Lyfjaverslun Islands lyfja-
verksmiðjuna II Santa UAB í Lit-
háen fyrir nokkrum árum. Rekstur-
inn hefur gengið brösulega fram að
þessu en nú sér til sólar eftir að fyr-
irtækið var endurskipulagt á dögun-
um. Helsti keppinauturinn,
Pharmaco, er einnig í landvinning-
um því það fyrirtæki hefur keypt
búlgarskan lyfjarisa, Balkanp-
harma, ásamt Björgólfl Guðmunds-
syni og syni hans, Björgólfi Þór
Björgólfssyni. Fjárfesting íslending-
anna nam 1,7 milljarði króna, auk
þess að þeir hafa skuldbundið sig til
að leggja 3,3 milljarða til uppbygg-
ingar á næstu árum.
Pitsur og tré
Byko hf. stendur að fyrirtæki i
trjávinnslu i Lettlandi. Þá hafði fyr-
irtækið, eins og fleiri, heillast af
Rússlandi og þar var stofnsett sölu-
fyrirtæki sem litlum sögum fer af í
seinni tið. Fleiri hafa verið duglegir
við að nema land, svo sem pitsufyr-
irtækin Pizza 67 sem er með útibú i
Kína, Tékklandi, Færeyjum og Dan-
mörku. Fyrirtækinu gekk illa að
fóta sig við Strikið í Kaupmanna-
höfn þar sem forseti íslands opnaði
það á sínum tima með viðhöfn. Öllu
betur gengur hjá Domino’s Pizza
sem einnig er í Kaupmannahöfn og
hefur átt glimrandi gengi að fagna.
Að því fyrirtæki standa m.a. Sigurð-
ur Gísli Pálmason, kenndur við
Hagkaup, og Skúli Þorvaldsson,
kenndur við Hótel Holt. Skúli er
reyndar stór eigandi í amerisku
skyndibitakeðjunni Arthurs Trea-
chers sem átti um hrið döpru gengi
að fagna en hefur hjarnað við eftir
að fyrirtækið varð netfyrirtæki.
Tölvufyrirtækin eru dugleg við
að koma sér fyrir erlendis. Þar ber
hátt árangur OZ sem stofnað hefur
til reksturs í Bandarikjunum og Sví-
þjóð. Tölvufyrirtækið EJS Inter-
national er með starfsemi í Ástralíu
og Hong Kong, auk margra fleiri
landa í Evrópu og Asíu. Fyrirtækið
sérhæfir sig í sölu og uppsetningu
tölvukerfa fyrir keðjur matvöru-
verslana. Mörg smærri fyrirtæki
eru einnig að fóta sig um heims-
byggðina. Hið unga fyrirtæki, ís-
landssími, hefur m.a. lýst áhuga á
því að vinna erlenda markaði.
Innn.com, sem er í eigu Kristjáns
Jónssonar (Ólafssonar), er að stofna
útibú í Þýskalandi. Fyrirtækið er
metið á 750 milljónir eftir að Kaup-
þing keypti 20 prósent.
Letsbuyit.com er sænskt vefsölu-
fyrirtæki sem er að stórum hluta I
eigu Islendinga.
Fótboltinn
Enska knattspyrnan heillar
marga íslendinga og því kemur ekki
á óvart að hópur viðskiptajöfra
réðst í kaupa slíkt félag. Stoke Hold-
ing er félag í meirihlutaeigu íslend-
inga og enn á eftir að koma í ljós
hvernig sú fjárfesting gerir sig. I
framhaldi af kaupum Stoke eru aðr-
ir fjárfestar með enn háleitara
markmið og vilja kaupa úrvalsdeild-
arlið í Englandi.
Það fyrirtæki sem komið hefur
mest á óvart þar sem litið er til er-
lendra fjárfestinga er stoðtækjafyr-
irtækið Össur hf. sem keypti banda-
ríska fyrirtækið Flex-Foot, Inc. fyrir
tæplega 6 milljarða króna, en það er
einhver stærsta einstaka fjárfesting
íslensks fyrirtækis í útlöndum.
Stór og rótgróin fyrirtæki eru
með rekstur um víða veröld. Þannig
er Eimskipafélagið með fleiri skrif-
stofur en fært sé að telja upp í stuttu
máli. Það eru fá lönd þar sem ekki
má finna einkennismerki félagsins.
Hampiðjan hf. er einnig víða með
rekstur. Það fyrirtæki hefur sannað
sig sem eitt hið fremsta á sviði veið
arfæragerðar og í samræmi við það
spannar reksturinn mörg lönd. Fjar-
slægasta starfstöðin er á Nýja-Sjá-
landi þar sem rekið er netaverk-
stæði. Annað er í Namibíu og hið
þriðja í Seattle í Bandaríkjunum. Þá
á Hampiðjan fyrirtækið Swan-nets á
írlandi og dreifingarfyrirtækið Hafi
í Bergen í Noregi. Loks rekur fyrir-
tækið garnverksmiðjuna Balmar í
Portúgal. J. Hinriksson hefur einn-
ig getið sér gott orð fyrir fram-
leiðslu toghlera og annars veiðar-
færabúnaðar. Það fyrirtæki hefur
verið sameinað Hampiðjunni og þar
með útibúið Poly Ice Mexico. Fyrir-
tækið Sæplast á Dalvík, sem sérhæf-
ir sig i framleiðslu fiskikara, rekur
verksmiðjur á Indlandi, í Noregi og
Kanada, auk þess að vera með sölu-
skrifstofur víða um lönd.
Stórfyrirtækin Flugleiðir, SÍF,
SH, Samskip og Atlanta eru með
söluskrifstofur um allt. Engin leið
er að gera grein fyrir öllum þeim
rekstri í stuttu máli en fisk-
sölurisarnir eiga það sameiginlegt
að hafa hörfað frá Rússlandi eftir
stórtap. Skipafélagið Atlantsskip er
með fyrirtæki í Bandaríkjunum.
Meðal þeirra fyrirtækja sem eru í
Kína er fyrirtækið Isbú sem sérhæf-
ir sig í ráðgjöf og sölu, tengdri sjáv-
arútvegi. Það fyrirtæki var einnig í
Rússlandi þar sem það rekur ásamt
Hniti hf. fyrirtækið Kamphnit.
Reksturinn hefur legið niðri að und-
anfömu vegna ástandsins í Rúss-
landi en aðstandendur þess bíða
þess að skikk komist á rússneskt
efnahagslíf. Meðal minni fyrirtækja
sem lofa góðu er skófyrirtækið X-18
sem er að gera það gott víða um
heim og er með umboðsmenn í 12
löndum Evrópu og Ameríku og
selur til 32 landa. Þá eiga íslending-
ar fjölda smærri fyrirtækja um allt.
Þar má nefna fyrirtæki í Bandaríkj-
unum sem kennir tölvum að tala.
Þessi upptalning er engan veginn
tæmandi og víst að margir eru ekki
upptaldir sem nú gera það gott á
heimsvisu. Niðurstaðan er sú að ís-
lendingum í heimsbyggðinni er ekk-
ert óviðkomandi þar sem kemur að
rekstri fyrirtækja og á næstu árum
mun útrásin væntanlega halda
áfram sem aldrei fyrr.
Fjórhjól og jeppar,
12 volt.
Össur á fleygiferö
Hér mátar amerískur hjólreiöamaöur gervifót frá Össuri hf. Fyrirtækiö hefur siegiö í gegn meö framleiöslu sinni og
nýveriö keypti þaö miiijaröafyrirtæki / Bandaríkjunum.
Þýskar útgerðir skeinuhættar
Stórfyrirtækin á Akureyri, Samherji og ÚA, eiga þaö sameiginlegt aö hafa
keypt þýsk útgerðarfyrirtæki sem reynst hafa þungur baggi aö bera. ÚA
slapp meö skrekkinn en Samherji er enn að súpa seyöiö. Hér má sjá skip
hins þýska dótturfélags ÚA \ höfn á Akureyri.
Amerísk leiktæki,
sambyggð. Gott verð
Sól- og öryggisfilmur
á glerið,
300% sterkara
Brunastigar, fyrir lífið,
kr. 4.8Ó0
Gas-viðvörunartæki,
kr. 5.800
Innbrotsfælitæki,
kr. 2.800
Vatnsþrýstibyssa
m/sápuhólfi,
kr. 2.800
Dalbrekku 22, slmi 544 5770.