Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V immwtmmm Bílstjóri í Þýskalandi hræddi vitið úr þúsund konum: Lést eftir símtal frá geðvillingi Hann kynnti sig alltaf sem lækni eða Ingreglumann á vakt þegar hann hræddi vitið úr konunum sem hann hringdi í. Ursula Massov í Bispingen á Luneborgarheiði var ein kvennanna sem fékk djöfuUega simhringingu. „Þetta er doktor Klasing frá sjúkrahúsinu í Hameln. Þér þurfið að senda manninn yðar til okkar strax því að dóttir yðar og fjölskylda hennar liggja á gjörgæsludeildinni hjá okkur eftir alvarlegt bílslys. Gjörið svo vel og verið við símann svo að ég geti látið yður fylgjast með hvernig fjölskyldu yðar vegnar." Tíu mínútum síðar hringdi síminn aftur. Þá var Rúdiger Massov þegar á leið til sjúkrahússins. í þetta skipti hljómaði röddin í símanum dónalega. „Ég var að nauðga dóttur yðar. Nú liggur hún og kveinkar sér. Maðurinn hennar og börnin tvö eru bundin og kefluð við hlið mér. Nú bíðum við félagi minn bara eftir manninum yðar. Hann mun einnig þjást. En ef þér viljið bjarga honum þá gerið þér eins og ég segi. Farið í pils með fóðri, helst úr tafti. Kveikið á kerti og kveikið i gardínunum yðar, sófanum og borðdúknum. Þegar það er farið að loga almennilega skuluð þér setjast þar sem mest logar og haldið logandi kertinu undir pilsinu yðar. Það er ekki jafnsársaukafullt að brenna til bana eins og þér kannski haldið.“ Kveikti í stofunni og sjálfri sér Þótt ótrúlegt sé gerði Ursula Massov eins og geðveiki maðurinn í símanum sagöi. Hún var viti sinu fjær af skelfingu yfir því sem hún heyrði um fjölskyldu sína og hún kveikti í stofunni og sjálfri sér. Hún hefði að öllum líkindum brunnið til bana hefði sjónvarpið hennar ekki Bílstjórinn Gert Löffler var meö afbrigöilega kynhneigö. sprungið. Við hvellinn kom hún til sjálfrar sín. Hún fleygði símanum frá sér, hljóp út á svalir og hrópaði á hjálp. Skemmdimar af völdum eldsins í íbúðinni voru metnar á um 4 milljónir íslenskra króna. Allt árið 1998 hræddi bílstjórinn Gert Löfler, sem var fimmtugur, allt að eitt þúsund þýskar konur með geðveikislegum símhringingum. Það var fyrst þegar eitt af fórnarlömbum hans lést, svo að segja úr hræðslu, sem hann var afhjúpaður, handtekinn og ákærður fyrir morð, 22 morðtilraunir, fkveikju og líkamsmeiðingar. Öllu þessu kom hann til leiðar í gegnum símann. Bílstjórinn sá aldrei fórnarlömb sín. Lést úr hræðslu Klukkan 5.38 3. nóvember 1998 hringdi síminn hjá Lydiu Vogtlaender sem var 69 ára. „Ég er með dóttur yðar hérna hjá mér. Hún er bundin og getur ekki hreyft sig. Ég nauðga henni ef þér gerið ekki nákvæmlega eins og ég segi. Kveikið í gardínunum yðar og pilsinu." Gamla konan, sem var í meðferð vegna hjartakvilla, gerði eins og brjálaði maðurinn í símanum sagði henni. Hún kveikti í íbúðinni sinni og sjálfri sér. Þegar það fór að loga glatt varð hún skelfingu lostin. Hún fékk hjartaáfall og lést. Lögreglunni tókst að rekja þetta símtal og önnur og þannig tókst að hafa hendur í hári Gerts Löfflers. Það tók eina klukkustund að lesa upp 22 ákæruatriði saksóknarans í réttarsalnum. Þegar upplestrinum lauk var grafarþögn í salnum. Saksóknarinn hafði meðal annars greint frá upphringingu sem Ute Beinke í Krefeld hafði fengið fimmtán mínútum fyrir eitt að nóttu. Henni var tjáð með ákafri röddu að maðurinn hennar þyrfti að koma samstundis á sjúkrahúsið. Sonur þeirra hefði lent i alvarlegu umferðarslysi. Kai-Uwe Beinke ók strax af stað. Fengu alvarleg brunasár Tíu mínútum síðar hringdi siminn á ný. „Farið í svart pils,“ krafðist nú skerandi röddin. „Ef þér gerið það ekki skuluð þér vita að ég er með son yðar og vinkonu hans. Ég mun nauðga stúlkunni og síðan skera son yðar á háls. Gerið því eins og ég segi yður. Búnar? Ágætt. Nú skuluð þér kveikja í gardínunum yðar og rúminu. Það logar nú þegar, er það ekki?“ Ute Beinke svaraði skjálfandi röddu. „Það logar í gardínunum en það er bara smáglóð í rúminu." Þá var henni skipað að leggjast á rúmið og henni óskað fallegs, hægs og heits andláts. Á sama augnabliki sneri Kai-Uwe Beinke heim eftir fýluferð til sjúkrahússins. Hann sá konu sína liggja stífa af hræðslu á glóandi rúminu. Hvert atriðið af öðru af svipuðum toga var lesið upp í dómsalnum. í eitt skipti hafði geðvillingurinn hrætt unga konu svo mjög að hún kveikti bæði í sjálfri sér og aldraðri móður sinni. Báðar konurnar fengu alvarleg brunasár. Afbrigðileg kynhneigð Ástæðan fyrir hringingunum djöfullegu var sögð vera afbrigðileg kynhneigð. Bílstjórinn fékk aðeins fullnægingu viö eldsvoða og við að vita af konum í neyö. Hann var dæmdur i 12 ára fangelsi auk þess sem hann átti að dvelja á heimili fyrir geðvillinga um óákveðinn tíma. Á meðan á vistinni stendur má hann hvorki eignast síma né koma í námunda við síma. Eva Stappert var ein þeirra kvenna sem geðvillingurinn skelfdi Eva og Karl-Heins Stappert Eva trúöi því aö systir henriar væri í lífshættu. Lydia Vogtlaender Hún var hjartveik og lést úr hræöslu þegar geövillingurinn hringdi í hana og hótaöi henni. „Tíu mínútum síöar hringdi síminn á ný. „Farið í svart pils,“ krafðist nú skerandi röddin. „Ef þér gerið það ekki skuluð þér vita að ég er með son yðar og vinkonu hans.“ með símhringingu. „Það hringdi í mig maður og sagði mér að náinn ættingi minn hefði orðið fyrir hræðilegu slysi. Hún hafði gefið honum símanúmerið mitt og hann sagði að ég hlyti að geta sagt honum hver það væri sem hefði orðið fyrir slysinu. Hann kynnti sig sem lækni á sjúkrahúsinu og sagði: „Talið við hana. Annars fellur hún í dá aftur.“ Ég talaði því næst við konu. Hún var kjökrandi og hljómaði eins og Anne systir mín. Skyndilega varð þögn og svo kom læknirinn aftur og sagði að systir mín hefði aftur misst meðvitund. Ég hringdi í manninn minn og sagði við hann að hann yrði að fara til sjúkrahússins því læknirinn hefði beðið um það. Ég átti að vera við símann og reyna að fá lif í systur mina á ný með því að tala við hana. Maðurinn minn ók strax af stað og þegar læknirinn hafði fullvissað sig um að ég væri ein varð tónninn í rödd hans allt annar. „Við höfum í raun rænt systur yðar og nauðgað henni til skiptis." Ég heyrði systur mína stynja. „Hjálpaðu mér, hjálpaðu mér. Því næst heyrðist í þessum hræðilega manni á ný. „Nú bíðum við bara eftir manninum yðar. Þegar við náum honum afskræmum við andlitið á honum svo að þér þekkið hann ekki aftur.“ Ég var alveg miður mín og vissi ekki hvað ég ætti að segja. Þetta var allt svo hræðilegt. Ég spurði aðeins hvort þau myndu bæði lifa þetta af og hvort hann myndi sleppa þeim. „Ég veit það ekki enn en ef þér leggið á nú sker ég systur yðar á háls.“ Þvi næst hló hann sigrihrósandi og svo hrópaði hann. „Ha, nú erum við búnir að góma manninn yðar.“ Stuttu síðar heyrði ég aftur systur mína stynja. „Eva, hjálpaðu mér.“ Allt í einu var eins og þokunni létti og ég varð skýrari í höfðinu. Ég spurði manninn „Hvað heita böm systur minnar? Á sömu sekúndu lagði hann á.“ Eva Stappert hringdi því næst fyrst til systur sinnar en hún hafði verið heima allt kvöldið og horft á sjónvarp. Þegar Eva hringdi svo til lögreglunnar var henni tjáð að hún væri ekki sú eina sem brjálæðingurinn hafði hringt í. En lögreglan kvaðst vera komin á slóð hans. Leyndarmál ekkjunnar Þriðja konan kom upp inn djöfullegt morð. §§g i;?- 'A t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.