Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 11
11
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
X>V Skoðun
Barneign og
feitur fiskur
„Já, ég verð að sjálfsögðu viðstaddur
enda er ég öllu vanur síðan á sjónum,“
sagði væntanlegur faðir kotroskinn
við fæðingarlækni sem tilkyrmti hon-
um að það væri móður og bami fyrir
bestu að gripið yrði til keisaraskurðar.
Læknirinn fullvissaði hinn aldur-
hnigna fóður um að lítil sem engin
áhætta fylgdi umræddri aðgerð sem
fólst í að opna móðurina og ná baminu
út þá leiðina. Hjónin vom bæði að eig-
in mati á endimörkum bameignaald-
urs og höfðu þegar skilað frá sér ættar-
sprotum sem vom langt umfram þær
meðaltalsvístölur sem vísuðu til þess
að tæplega eitt og hálft bam sé meðal-
afrakstur á hver hjón. Hin hefðbundna
íslenska vísitölufjölskylda var á þeim
tíma 3,4 einstaklingar en við síðustu
talningu á fjölskyldunni reyndist hún
innihalda 6 einstaklinga. Fjölskyldu-
faðirinn hafði fengið því framgengt
með lagni að einum yrði bætt við sem
gerði þessa ágætu fjöldskyldu að ríf-
lega tvöfaldri visitölu0ölskyidu. „Betra
er bam en brók,“ var viðkvæðið með-
an hann vann þeirri hugmynd sinni
fylgi að enn yrði fjölgað í bamahópn-
um.
Meðgangan
Hann var sannkallaður öfgamaður
sem alltaf vildi hafa helmingi meira en
aðrir væri þess nokkur kostur. Til þess
að hægt væri að uppfylla þessa kröfu
lagði hann sitt af mörkum en konan sá
„Betra er barn en brók, “
var viðkvœðið meðan
hann vann þeirri hug-
mynd sinni fylgi að
enn yrði fjölgað í
barnahópnum.
um meðgönguna svo sem gerist í öðr-
um vístölufjölskyldum. Eftir að hann
hafði náð sínu fram var komið að því
að stimpla inn hinn nýjasta meðlim
fjölskyldunnar og skáka rækilega hin-
um íslenska meðaljóni. Sjálfúr tók
hann fúllan þátt í meðgöngukvillum og
þeirri áráttu sem gjaman herjar á
verðandi mæður. Þegar konan varð á
24. viku vitlaus í harðflsk beit hann í
sig sömu áráttu 'og hjónin mauluðu
saman verstflrskan steinbít svo lengi
sem hin brennandi þörf entist. Þegar
hún síðan skipti yfir í súkkulaðihúðað-
ar rúsínur fylgdi hann með og varð
ólmur í það kjamafæði. Svona liðu
vikumar ein af annarri og hinn verð-
andi tvöfaldi vísitölufaðir tók af ein-
lægni þátt í flestum athöfnum sem
fylgja meðgöngu. Taugaveiklun varð
nokkur sem olli honum undrun þar
sem slíkt hafði ekki hrjáð hann á yngri
árum þegar gömlu bömin vom á leið-
inni. Þegar flökurleiki gerði vart við
sig hjá frúnni þá varð honum líka flök-
urt. Hann varð eins meðvirkur og
hugsast gat.
Feitur fiskur
Um tíma hélt hann jafnvel að gömul
þjóðsaga hefði tekið sig upp og skollið
á honum af fúllum þunga. Það var sag-
an um bóndann sem þráði það öllu
öðm fremur að eignast bam. Þráin eft-
ir erflngja heltók hann svo að hann
fékk ekki sofið fyrir þráhyggjunni. Svo
var það einn sumardag að álfkona birt-
ist og gaf honum eina ósk. „Ég vil
bam,“ svaraði bóndinn að bragði. Álf-
konan sagði honum þá að fara á til-
teknum degi á fyrir fram ákveðinn
stað við bæjarlækinn. Þar myndi hann
sjá tvo silunga, annan feitan en hinn
horaðan. Hann átti að taka báða sil-
ungana og fara með þá heim í bæ og
matreiða. Síðan skyldi hann gefa konu
Reynir
Traustason
blaðamaður
sinni feita silunginn og snæða sjáifur
þann horaða. Þegar dagurinn rann
upp gekk allt eftir svo sem álfkonan
hafði sagt fyrir um. Bóndinn veiddi sil-
ungana tvo upp úr bæjarlæknum, hélt
með þá heim og brá potti á hlóðir. Þar
sem flskurinn var soðinn hafði sá hor-
aði skroppið enn meira saman og var
lítt fýsOegur. Aftur á móti var feiti sil-
ungurinn svo matarlegur að bóndinn
stóðst ekki ffeistinguna og át hann en
gaf óbyrjunni konu sinni þann horaða.
Þetta heföi hann betur látið ógert því
getnaðurinn fór fram með tilstilli feita
fisksins. Hann varð sjálfúr óffískur og
endirinn varð sá að taka varð bamið,
sem reyndar var hið efnilegasta, með
eins konar keisaraskurði niður um
pung hans. Þessi saga
varð verðandi fóður
umhugsunarefni
þar sem hann
kastaði upp
einn morgun-
inn. Hann
mundi þó
ekki til þess
að hafa átt
orðastað við
álfkonu um
fiskmeti. Það
eina sem hann
mundi var að
þau hjónin
höfðu sam-
eiginlega rif-
ið í sig vest-
flrskan
steinbít og
þá var
hún
þegar
orðin
áber-
andi
ófrísk,
auk
þess
að
harðflsk-
ur begg
var jafn i
ur. Þessar
hugleiðing-
ar hans
leiddu til
þeirrar nið-
urstöðu að
allt væri
með
eðlileg-
um
hætti og
konan
ófrísk en 1
hann sjálfur
einfaldlega með
virkur.
Keisara-
skurður
Meðgangan
leið viðburða-
lítið með þátt-
töku beggja
allt frá byij-
unarreit. Að
vísu varð
taugaveiklun hans til þess að hann
missti í tvígang stjóm á sér og hringdi
á sjúkrabíl sem flutti hann og konuna
á fæðingardeildina við lágvær mót-
mæli hennar. Jafnoft vom verðandi
foreldrar sendir heim aftur með þeim
formerkjum að bamunginn væri ekki
tilbúinn í heiminn. Þar kom svo að
konan var kölluð inn á þeim degi sem
áætlað hafði verið að fæðingarstundin
ætti við. Faðirinn mætti líka og eftir
að hún hafði verið skoðuð var ákveðið
að barnið kæmi óhefðbundna en al-
genga leið í heiminn. Keisaraskurður
var ákveðinn og faðirinn aldurhnigni
ákvað að láta ekki á neinu bera en axla
sína ábyrgð af karlmennsku og fylgja
sinni konu til skurðstofu. Stór stund
var að nálgast í lífi beggja og hann
vildi vera viðstaddur þegar það mark-
mið næðist að fjölskyldan yrði tvöföld
í skilningi vísitölunnar. Hann íklædd-
ist hvítum sloppi og fékk þvottapoka.
Hans hlutverk var að lina þrautir
konu sinnar með nærvem sinni.
Þvottapokann notaði hann til að
strjúka yfir enni hennar. Hann var föl-
ur og fár en bar sig karlmannlega þar
sem hann sá hilla undir lokatakmark-
ið. Þar sem byrjað var að skera konu
hans fann hann til ógleði en dreifði
huganum með því að hugleiða aldurs-
muninn á sjálfúm sér og baminu
ófædda.
Clint og Ellert
„Clint Eastwood leikari var sjötugur
þegar hann eignaðist sitt yngsta bam
og Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Kefla-
vík, varð einnig faðir þegar hann var
kominn af léttasta skeiði. Þetta er ekki
áhyggjuefni þar sem ég er sjálfur nokk-
uð yngri en Clint og Ellert," hugsaði
hinn verðandi faðir með sér þar sem
hann stóð náhvítur við höföalag konu
sinnar. Hann horfði á konu sína sem lá
opin á skurðarborðinu á meðan lækn-
ar og hjúkrunarfólk unnu ömggum
höndum að því að ná í enn einn erf-
ingja þeirra hjóna i gegnum keisara-
skurð. Faðirinn var ýmsu vanur þar
sem að fæðingum kom enda vom þeg-
ar fjögur böm að komast á legg. Áður
hafði hann þó aðeins verið viðstaddur
hefðbrmdnar fæðingar þar sem bömin
komu þá boðleið sem náttúran ætlaði
þeim. Hann herti upp hugann og
mundaði þvottapokann en síðan sortn-
aði honum fyrir augu og meðvitundin
fjaraði út. Hjúkranarliðið þusti til og
stumraði yfir manninum sem lá með-
vitundarlaus við sjúkrabeð konu sinn-
ar. Hann komst til meðvitundar
skömmu síðar og æpti upp yfir sig í
skelfingu þar sem hann skynjaði að
læknir var að stumra yfir honum. „Ég
borðaði ekki feita fiskinn." Þegar
skikk komast á hugsanir hans og raun-
veruleikinn blasti við sá hann konu
sína á skurðarborðinu þar sem læknar
vom að sauma fyrir keisara-
skurðinn. Örlítið stúikubam
grét hástöfúm og honum
létti óskaplega. Hann
kallaði lágum rómi til
konu sinnar: „Það er
komið nóg af bömum.
Næst verður það
barnabarn."
Ellert Eiríksson,
bæjarstjóri í Kefla-
vík, varð elnnig faöir
þar sem hann var
kominn af léttasta
skeiöi. Þetta er ekki
ekki áhyggjuefni þar
sem ég er sjálfur
nokkuö yngri,
hugsaöi faöir-
inn.
Búinn að missa æruna
„Breski sagn-
fræðingurinn
David Irving tap-
aði málinu gegn
bandarískum
starfsbróður sín-
um, Deborah Lip-
stadt, og er um
leið búinn að
missa æruna eft-
ir að breskur
dómari sagði hann gyðingahatara,
lygara og sögufalsara. Það er ráð-
gáta að hann skuli hafa þorað að
höfða mál gegn sagnfræðingi fyrir
meiðyrði þegar „meiðyrðin" saman-
stóðu að mestu leyti af lýsingu á því
sem hann hafði fullyrt bæði i ræðu
og riti. Bara þetta skref bendir til að
dómgreind Irvings, óháð siðferðis-
legu mati hans, sé á því stigi sem
gerir hann ófæran til faglegs mats á
aðferð, afstöðu og framkvæmd bæði
í nútíð og fortíð."
Úr forystugrein Aftenposten 12.
apríl
Þrýstið á Mugabe
„Einu sinni var Robert Mugabe,
forseti
Zimbabwe, frels-
ari. Þegar land
hans hlaut sjálf-
stæði 1980 var
hann hylltur
sem lýðræðislegt
afl í suðurhluta
Evrópu. En það
er langt síðan.
Eins og margar
aðrar frelsishetj-
ur sem orðið hafa harðstjórar neitar
Mugabe að viðurkenna að tíminn
hefur hlaupist á brott frá honum. Á
undanfórnum árum hefur hann í
staðinn breyst í einræðisherra sem
er reiðubúinn að ganga yfir lík til
þess að sitja áfram á forsetastólnum
ífebrúar tapaði Mugabe atkvæða-
greiðslu um nýja stjómarskrá sem
átti að gera hann að forseta til lífs-
tíðar. Síðan hafa skæruliðasveitir
hliðhollar stjórninni lagt hald á
hundruð búgarða í eigu hvítra.
Mugabe sakar ytri öfl um óeirðirn-
ar. Fyrir nokkrum dögum sakaði
hann „hommana í bresku stjórn-
inni“ um að hafa valdið vandamál-
unum. Evrópusambandið ætti að
fylgja dæmi Bandaríkjanna og
frysta aðstoð við Zimbabwe."
Úr forystugrein Aftonbladet
8.apríl.
Samvinna við norðrið
„Fáir leiðtogar í Asíu njóta jafn-
mikils siðferðilegs trausts á alþjóða-
vettvangi og Kim Dae Jung Kóreu-
forseti. Hann var lýðræðissinnaður
andófsmaður sem mátti þola
margra ára ofsóknir fyrrum herfor-
ingjastjórnar Suður-Kóreu. Frá því
hann tók við embætti 1998 hefur
hann mælt fyrir „sólskinsstefnu"
gagnvart kommúnistastjórninni í
Norður-Kóreu. Hann heldur því
fram að Suður-Kórea og bandamað-
ur hennar, Bandarikin, eigi að leit-
ast eftir stigbatnandi samskiptum
við stjórnina í norðri og beita fyrir
sig fjárfestingum, viðskiptum og að-
stoð, frekar en að sækjast eftir þvi
að bola henni frá eða stuðla að falli
hennar.“
Úr forystugrein Washington Post
12. apríl.
Ekki injög lýðræðislegt
„Ákafi Fujimor-
is (Perúforseta) til
að ná endurkjöri
varð til þess að
stjórnvöld heftu
frelsi fjölmiðla og
leiddi til meintra
falsana á meira en
einni milljón und-
irskrifta manna
sem skráðu sig í
irdag hafði þetta í
for með sér óútskýrðar tafir á taln-
ingu atkvæða og grunsamlega auk-
inn fjölda atkvæða Fujimoris. Slíkt
framferði á ekki heima í lýðræðis-
ríki. Fujimori hefur þó gert sitthvað
gott fyrir Perú þrátt fyrir vel þekkt-
ar tilhneigingar hans til einræðis."
Úr forystugrein Dallas Morning
News 14. apríl.
flokk hans. Á