Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Page 21
21
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000_________________
1>V_____________________________Helgarblað
„Fólki líst náttúrlega oft
á tíðum ekkert allt of vel
á að þurfa að sofa með
grímu en þetta kemst
upp í vana og menn
hœtta að kippa sér upp
við þennan búnað. “
Aðspurður um hvort ekki stafi
hávaði af tækinu segir hann hávað-
ann í lágmarki, hljóðið sé eins og í
lítilli ryksugu, en nýrri útgáfur af
búnaðinum séu þó hljóðlátari en
þær eldri. Þegar talið berst að því
hvort makar þeirra sem nota tækið
kvarti ekki undan hávaða segir
hann tækið hafa mælst vel fyrir í
alla staði, enda þyki mökum jafnan
betra að hlusta á hljóðin í tækinu
en hrotumar í bólfélaganum.
Fræðsla í boði
í samtali við Þórarin Gíslason
lækni kemur fram að byrjað var að
nota tæki af þessum toga árið 1987
og má því finna einstaklinga sem
hafa sofið með slönguna á fjórtánda
ár. Hann segir viðbrögð fólks við
tækinu misjöfn, enda mikið sjokk
fyrir marga sem kvarta vegna
þreytu að fá þann úrskurð að þeir
þurfi að sofa með öndunarvél.
Bryndís St. Halldórsdóttir hjúkr-
unarfræðingur tekur í sama streng
en hún vinnur við að kenna fólki
með kæfisvefn á umræddan útbún-
að. „Fólki er boðið að koma með
sínum nánustu þar sem því er boð-
in fræðsla um notkun búnaðarins.
Þá sefur sjúklingurinn eina nótt á
spítala þar sem við mælum og
ákvörðum hæfilegan þrýsting á
tækinu. Að því loknu fer fólk heim
með búnaðinn og kemur síðan aftur
eftir mánuð og sefur aðra nótt til að
við getum gengið úr skugga um að
ailt sé eðlilegt. Þar að auki erum við
í símasambandi við sjúklinga
þannig að ef eitthvað kemur upp á
þá geta þeir alltaf hringt í okkur,“
segir Bryndís.
Hallur Guðmundsson
prentsmiður
„Vandamálið hjá mér var að ég
komst aldrei lengra en á 1. og 2. stig
í svefninum á meðan eðlilegt er að
menn komist á 3. og 4. stig sem
flokkast undir djúpsvefn," segir
Hallur Guðmundsson sem þjáist af
kæfisvefni en hann kveðst hafa ver-
ið vansvefta og átt við svefntruflan-
ir að stríða í 8 eða 9 ár áður en hann
leitaði loks ráða og fékk bót meina
sinna.
Dottaðl við stýrið og
tölvuskjáinn
„Foreldrar mínir höfðu lengið
kvartað undan hrotunum i mér og
sömuleiðis vinirnir sem gátu varla
sofið nálægt mér í útilegum. Þetta
var lika farið að koma niður á sjálf-
um mér og vinnunni. Ég átti það til
að sofna við tölvuskjáinn á vinnu-
tíma og í fyrrasumar dottaði ég und-
ir stýri og var mesta mildi að ég
skyldi ekki hafa lent í slysi,“ segir
Hallur en hann þakkar kvörtunum
konu sinnar og vinnuveitanda að
hann ákvað loks að leita sér læknis-
aðstoðar.
Hallur segir sérfræðinginn hafa
skoðað ofan í öndunarveginn á sér
og í kjölfarið hafi hann verið send-
ur upp á Vífilsstaði í frekari rann-
sókn þar sem hann var látinn sofa í
tvær nætur. „Þeir bundu belti um
mig miðjan, settu skynjara við nefið
og aðrar slöngur og mæidu hér og
þar.“
Niðurstaða rannsóknanna varð
sú að Hallur þyrfti að sofa með loft-
blásturstæki og frá þvi í desember
síðastliðnum hefur hann notað bún-
aðinn og hefur árangurinn ekki lát-
ið á sér standa.
„Ég er alveg nýr og breyttur mað-
ur og sem dæmi um það hafði kon-
an mín á orði þegar ég kom af spít-
alanum eftir tveggja nátta rannsókn
að ég væri unglegri en ég átti að
mér að vera. Ég er hættur aö sofna
yfir sjónvarpsdagskránni á kvöldin
- nema hún sé enn þá leiðinlegri en
venjulega - og ég hef meira úthald
en áður.“ -KGP
Atti erfitt með svefn í nokkur ár
Hallur haföi lítiö sofiö i 8 eöa 9 ér þegar hann lét loks slag standa
og dreif sig í meöferö viö kæfisvefni.
Ora-sarJínur. Tvœr nýjar og spennanJi hragcltegunJir.
Tahtu eftir nýju umhúáunum!
Fi
ióðl
'iarsioaur
' 1 £'
ur najmu
Óvenjuhátt kalkhlutfall
í ORA-sardínum kemur beinunum til góéa!
Vissir þú að í 100 g af sardínum úr dós væru yfir 400 mg
af kalki, sem er helmingurinn af ráðlögðum dagskammti
fullorðinna?*
Þetta mikla kalk ásamt próteinum, omega-3 fitusýrum og
vítamínum gera sardínur að áhugaverðum og æskilegum
kosti fyrir unga sem aldna.
Ora-sardínur fást í vatni, salsasósu, tómatsósu eða olíu
Ora-sardínur eru lostæti með góðu brauði og harðsoðnu
eggi, í eggjaköku, hvers kyns pastarétti, salöt og sem liður
í góðum morgunverði eða kvöldsnarli.
Niðursuðuaðferðin gerir notkun rotvarnarefna óþarfa.
• Samkvæmt upplýsingum frá Manneldisráði íslands er ráðlagður dagskammtur af kalki, fyrir 19 ára og eldri, 800 mg.
Fyrir unglinga, vanfærar konur og konur með böm á brjósti er ráðlagður dagskammtur 1200 mg.
Talaðu út með Telson
Þeir sem skrá sig í Frímínútur - ódýr
milliiandasímtöl Íslandssíma - eiga nú kost
á þráðlausu gæðasímtæki á tilboði.
Verð: 3.980
Þyngd símtóls: 150 gr.
Litur: Svartur
Búnaður:
• Endurval á síðasta símanúmeri
• 10 númera skammvalsminni
• Langdrægni innanhúss < 300 m
• Langdrægni utanhúss < 600 m
• R-hnappur f. stafræna þjónustu
• Ending rafhl. í biðstöðu 30 klst.
• Ending rafhl. í notkun > 4 klst.
• Hægt að nota fleiri símtól
• (slenskur leiðarvísir
• Kallkerfi milli tækis og móðurstöðvar
Telson símtæki
a
v>
ai
Skráðu þig í Frímínútur í síma 594 4001 eða á friminutur.is og
fáðu símann sendan heim með íslandspósti - engin útborgun,
burðargjald innifalið. Tilboðið gildirtil 15. maí.
Þeir sem þegar eru skráðir í Frímínútur geta pantað eða fengið nánari upplýsingar
í síma 594 4001.
Fáðu pakkann heim
að dyrum...
með Póstinum
Frímínútur
- þegar hringt er út!