Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
31
I>V
Helgarblað
Sviösljó
Allir
Von á erfingja?
óhugnaðinn
- Gwyneth Paltrow sækist eftir hlutverki
Clarice Starling
Lucas hunsaður
Þokkadísin Gwyneth Paltrow er
eitthvað ósátt þessa dagana, að
sögn kunnugra. Svo segir sagan að
hún hafi sóst mjög eftir hlutverki
Clarice Starling í framhaldi mynd-
arinnar Silence of the Lambs. Líkt
og lesendur kannski muna hafnaði
Jodie Foster þvi þar sem henni
þótti viðbjóðurinn keyra fram úr
öllu hófi. Það var aftur á móti hin
þokkafulla Julianne Moore sem
hreppti hnossið Paltrow til mikilla
vonbrigða. Hún deyr þó ekki ráða-
laus og mun að öllum líkindum
leika aðalhlutverkið í Taking
Lives. Persónan sú er starfsmaður
bandarísku alríkislögreglunnar
sem á í höggi við fjöldamorðingja
sem étur fómarlömbin sín. Kunn-
uglegt? Til að toppa þessa frásögn
verður myndinni leikstýrt af Tony
Scott sem er bróðir Ridleys sem
leikstýrir einmitt Hannibal, fram-
haldi Silence of the Lambs - verk-
efni sem leikstjórinn Jonathen
Demme frábað sér, líkt og Jodie,
sakir viðbjóðs. Má nú gera ráð fyr-
ir að bræðurnir etji kappi hvor við
annan í útfærslu viðbjóðsins.
George Lucas hefur lengi þótt
konungur brellumeistaranna í
Hollywood (þótt hann telji sig ekki
til hjarðarinnar og eigi sér búgarð
fjarri sviðsljósinu). Þrátt fyrir það
þurfti hann að bíða árum saman eft-
ir tækninni til að geta framleitt Star
Wars 4. Og ekki voru lýsingarorðin
lítil eða fjárútlátin þegar kom að
tæknibrellunum. Mikið lifandi
skelfingar ósköp hlýtur maðurinn
því að hafa orðið svekktur þegar
hann horfði á óskarsverðlaunaaf-
hendinguna. Ekki var nóg með að
The Matrix hirti öll verðlaunin af
Lucas-samsteypunni heldur þökk-
uðu aðstandendur The Matrix aka-
demíunni sérstaklega fyrir að velja
Eftir óskarsverðlaunaafhending-
una var aldeilis djammað og djúsað
í Hollywood. Stjörnurnar blönduðu
saman geði hver við aðra - með
nokkrum undantekningum þó.
Hinn íðilfagri og ágæti leikari Matt
Damon gerði víst hvað hann gat til
að forðast gömlu kærustuna sína,
Minnie Driver. Þess í stað lét hann
mynda sig alls staðar með þeirri nú-
verandi, hinni sjarmerandi Winonu
Ryder, og reyndi þannig að kæfa
sögusagnir um vinslit þeirra. Hann
hió þó að hugmyndum um að þau
ættu von á bami en Winona mun
víst hafa sést kaupa þungunarpróf.
mynd þar sem brellurnar þjónuðu
sögunni. Varla er annað hægt en að
líta á þetta sem hvasst skot á Star
Wars 4 en söguþráður þeirrar
myndar er í molum. Þar sönnuðust
þau gömlu sannindi að það er ekki
útlitið sem skiptir máli heldur inn-
rætið.
Þessar sögusagn-
ir hafa fengið byr
undir báða vængi
eftir að hún sást
kasta upp á bíla-
stæði fyrir stuttu.
Ef Winona reyn-
ist ólétt mun
Sviðsljósið að sjálfsögðu upplýsa
lesendur um það strax og það fæst
staðfest.
Grjótháls 1
Síini 575 1200
Söludeild 575 1220
Méganc Berline kostar frá 1.358.000 kr
Berline er stallbakurinn í hinni öruggu Mégane íjölskyldu. Krafturinn
er í stíl við sportlegt útlitið enda fæst hann bæði með 1400 vél og
16 ventla 1600 vél sem skilar alls 110 hestöflum.
Veldu meiri kraft. Prófaðu Renault Mégane Berline.
RENAULT