Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Side 33
33 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000___________________________ I>V _________________________________________________________ Helgarblað Það er engm leið að hætta - getur verið að fólk verði háð notkun varasalva og breytist í áburðarfíkla? Getur veriö aö fólk veröi háö notkun varasalva? Á Netinu er hægt aö finna heimasíöu samtaka fólks sem skilgreinir sig sem varasalvafíkla og nýtir aöferöir AA-sam- takanna til aö vinna bug á fikn sinni. Þaö kann að hljóma einkennilega en svo virðist sem fjöldi fólks, sérstak- lega í Bandaríkjunum, standi í þeirri trú að það sé alvarlega háð notkun varasalva og þurfi og vilji leita sér að- stoðar til að losna úr klóm fíknarinn- ar. Á hinum alræmda Veraldarvef er að fmna heimasíðu samtaka sem kalla sig Lip Balm Anonymous sem eru sjálfshjálparsamtök þeirra sem hafa lent í klóm áburðarflknar. Þar er hægt að lesa margt um einkenni flkn- arinnar, innihald varasalva, hugsan- legt samsæri framleiðenda varasalva, sem er mjög líklegt að setji eitthvert dularfullt vanabinandi efni í salvann, og siðast en ekki síst eru þar tugþús- undir vitnisburða frá fólki sem telur sig eiga um sárt að binda. Ertu fikill? Þar er einnig að flnna spurninga- lista sem hver getur svarað fyrir sig til að komast að þvi hvort hann eða hún muni vera haldin áburðarfíkn. Dæmi um spumingar á listanum eru: Notar þú oft meiri varasalva en þú ætlaðir? Finnurðu til sektarkenndar eftir notkun varasalva? Kemstu í vímu af tilhugsuninni um að þú sért að fara að nota varasalva? Notarðu meiri varasalva þegar þú ert undir miklu álagi? Hefur notkun á varasalva áhrif á orðspor þitt? Hefur þú notað varasalva án þess að muna eftir því? Hefur þú stolið varasalva? Ef þú svarar einhverri af spuming- unum játandi ertu sennilega háður varasalva og þá geflir þú skoðað 12 spora kerfi til þess að venja sig af notkun salvans. Meðal átakanlegra vitnisburða frá fórnarlömbum má lesa frásagnir fólks sem telur sig nota varasalva í svefni, smyr á varir sér allt að 108 sinnum á dag og fólki sem geymir túpu af vara- salva í öllum yfirhöfnum sínum, að baðsloppnum meðtöldum. Sumir segj- ast fara i felur með notkun sína á varasalva og kjósa að smyrja varir sínar i laumi, fjarri öðmm. Fólk seg- ist hafa orðið fyrir aðkasti á vinnu- stöðum vegna óhóflegrar notkunar og jafnvel þurft að skipta um vinnu. Fólk lýsir því hvemig það hefur gert hveija árangurslausu tilraunina eftir aðra til þess að losna úr klóm varasal- vans en jafnan flúið á náðir hans á ný eftir erfiða og taugastrekkjandi daga sem það eyddi að mestu í að hugsa um varasalva. Ekki er alit sem sýnist Sjálfsagt er einhverja lesendur far- ið að gruna að hér sé ekki allt með felldu og því sjálfsagt að upplýsa að heimasíða varasalvafíklanna er ekki raunveruleg í þeim skilningi að eng- in slík samtök eru til. Hitt er stað- reynd að síðan er til og var sett upp af manni sem heitir Kevin C., er sér- fræðingur í almannatengslum og býr í Kalifomíu. Hann notaði allar skil- greiningar og aðferðafræði sem AA- samtökin byggja á við að lýsa fíkn- inni í varasalva og skipti aðeins á orðunum varasalvi og áfengi. Það sem er sérkennilegt við þetta allt saman er að Kevin berast að jafnaði 30 þúsund bréf á ári frá fólki sem telur sig vera haldið flkn í vara- salva og hann giskar á að um 75% þeirra séu rituð í fullri alvöru og ein- lægni. Bandariska veftímaritið Salon gerði úttekt á þessu máli og spurði meðal annars húðsjúkdómasérfræð- inga um meinta flkn í salvann. Fyr- ir svörum varð Charles Zugerman, sem starfar við Northwestern-há- skólann í Chicago, og hann fullviss- aði lesendur Salon um að þetta ætti sér enga stoð í raunveruleikanum. Hann bætti þvi reyndar við aö hann hefði svarað bréflega rúmlega 200 fyrirspurnum um þetta efni frá áhyggjufuUum snyrtifræðingum sem væru að leita upplýsinga fyrir við- skiptavini. Ef menn vUja skemmta sér frekar á kostnað þeirra sem eru haldnir þráhyggju um að varasalvi sé vana- bindandi á einhvern hátt þá er vef- slóðin: http://www.kevdo.com/lip- balm/addict.html. Einnig mætti slá orð eins og lip balm eða Lip Balm addict t.d. inn í nýjustu Google leit- arvélina á Netinu og sjá aUt sem flæðir inn af alheimsströndum Nets- ins. Jarðvegsþjöppur Allar stærðir, bensín eða dísil. Einnig „hopparar" Sími 568 1044 Tilboð á hjúkrunarúrum JEMIS Ódýr vinnuúr fyrir hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og aðra sem þurfa ódýr og gangvirk úr. Tilboðsverð 2990. l.fe Álfabaf Mjóddii Axel Eiríksson cka 16 ^ Aöalstræti 22 1 nni ísafiröi 1 Sími 587 0706 Simi 456 3023 íb!i Filll'd f/ nnifi'juf'jj'jr Silfurkristalskrossinn Kr: 8.850.- Gullkross með kristal Kr: 5.950.- Framtíðareign. Komið og sannfærist. (M RISTALL Kringlunni - Faxafeni 3 MACH16 Ný tækni i RCA (Pre-out) útgangi sem tryggir minnsta suð sem völ er á. 4 Octaver Hljóðbreytir sem aðskilur bassan. Pioneer er tyrsti biltækja- framleiðandinn sem notar þessa tækni sem notuð er af hljóðfæra- 1 Mosfet 45 Stærsti Mosfet útgangs- magnari sem völ er á í dag 4x45W. Kostír Mosfet eru línulegri og minni bjögun en áður hefur þekkst. Aðeins vönduðust hljómflutningstæki nota MOSFET. Pioneer hefur einkarétt i 1 ár. 2 MARCX Nýjasta kynslóð útvarpsmóttöku, mun næmari en áður hefur þekkst. framleiðendum. EEQ Tónjafnari sem gefur betri hljóðmöguleika, á einfaldan hátt. 5 forstilltar tónstillingar. DEH 2000 4x45 W magnari • RDS • Stafrænt útvarp • FM MW LW • 24 stöðva ■ ‘ .....................nhlið • t minni • BSM • Laudness • Laus framh ■ Aðskilin bassi/diskant sem skapa Pioneer afdráttarlausa RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn 27.900 g Þegar hLjowtaekL skipta waLt B00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.