Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2000, Page 53
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 61 ‘
DV Tilvera
Lokið
Það er Hinrik Ólafsson leikari
sem er matgæðingur vikunnar að
þessu sinni.
Það er nóg við að vera hjá hon-
um þessa dagana og virðist hann
þeim eiginleika gæddur að geta
búið til 25. tímann í sólarhring-
inn.
Hann er að leikstýra í Bústaða-
kirkju, Popppassíu, síðustu dög-
um Krists. Uppsetningu með
popphljómsveit, stúlknakór (Bú-
staðakirkju) og poppsöngvurum
sem verður síðan flutt miðviku-
daginn 19. apríl kl. 20 og aftur kl.
22.
Síðan er hann að gera sjón-
varpsþátt um íslenska hestinn í
Bandaríkjunum, hann er einnig
með námskeið í skólum í Reykja-
vík á vegum Reykjavíkur menn-
ingarborgar/leiklistarnámskeiða.
Ekki nóg með það heldur er hann
að líka að leika í kvikmyndinni
Villiljósi eftir Huldar Breiðfjörð
og sér þess á milli um að skrifa
um hesta.
„Ég laga oftast mat á mínu
heimili, ekki af því að ég sé betri
en konan mín heldur einfaldlega
af því að ég er fljótari en hún. Síð-
an þarf ég minna hráefni en hún.
Henni finnst aldrei neitt vera til
þegar hún á að laga mat. Þá stekk
ég út í búð og færi björg í bú. Hún
þarf að gera allt svo vel og vand-
lega að hver dl þarf að vera upp á
hár nákvæmur og uppskriftimar
á reiðum höndum, enda klikkar
hún sjaldan þegar hún tekur sig
til. Ég fer sjaldan eftir uppskrift-
rnn. Ég vil helst bara heyra
hvernig viðkomandi gerði þetta
svo geri ég mína útfærslu. Þetta
er áhættusamara en á móti meira
skapandi eldamennska.
Ég hef gaman af því að elda og
finnst það afslappandi. Stundum
laga ég mat mjög hratt án þess að
vita hver endanleg útkoma verð-
ur. Ég bið svo spenntur eftir við-
brögðum smakkaranna, stundum
er lukka og stundum ólukka en
oftast þó lukka,“ sagði Hinrik.
Blaðamanni lék forvitni á að
vita hvort hann myndi ekki eftir
neinni skemmtilegri sögu i kring-
um matargerð sína. „Á mínum
fyrstu hjúskaparárum man ég eft-
ir einu sérstöku matarboði. Ég
átti von á mörgum gestum og lag-
aði ofnbakaðan flsk eftir minu
höfði og allt gekk vel. Eitthvað
KHBÉÍ
Humar í hvít-
laukssósu með
grænmeti
Fyrir 6
1 kg skelflettur humar
1/2 meðalstór spergikálshaus
10 meðalstórir sveppir
1/2 meðalstór blaðlaukur
1 paprika, rauð
3 belgbaunir
salt og pipar
olía til steikingar
Hvítlaukssósa
2 dl fisksoð (eða vatn og fiski-
kraftur)
2 dl rjómi
100 g rjómaostur
3 hvitlauksgeirar (fínt saxaðir)
1 msk. sítrónusafi
1/2 búnt steinselja
2 súputeningar
salt og pipar
Meðlætið
6-8 franskbrauðsneiðar, ristaðar
smjör
Byrjið á að laga sósuna. Skerið
grænmetið smátt. Steikið humarinn
í olíu á pönnu við snarpan hita,
kryddið með salti og pipar. Setjið í
eldfast mót. Bætið olíu á pönnuna
bráðnaði yfir fiskréttinn
- og fiskurinn varö seigur og teygjanlegur
Fer sjaldan eftir uppskriftum
„Ég vil helst bara heyra hvernig viökomandi gerði þetta, svo geri ég mína út-
færslu. Þetta er áhættusamara en á móti meira skapandi eldamennska. “
seinkaði gestunum sem voru jafn-
aldrar mínir. Ég ákvað að taka
réttinn úr ofninum þar sem hann
var tilbúinn og lagði lok ofan á
fatið. Síðan komu gestimir og
eitthvað var komið óðagot á mig
yflr seinkun þeirra. Tók ég þá
ofnfasta fatið ásamt lokinu, sem
var úr plasti, og setti í ofninn
ásamt meðlæti.
Síðan fór ég að skrafa við gest-
ina. Og eins og gefur að skilja
bráðnaði lokið ofan i fiskréttinn
ósköp pent og fínt, alla vega tók
ég ekki eftir því þegar ég vitjaði
fisksins. Ákvað ég þá að setja að-
eins meiri ost á réttinn áður en ég
bæri hann fram og þá yrði allt
og steikið
grænmetið
meyrt, setjið
yfir humarinn.
Hellið sósunni
yfír og bakið í
200' C heitum
ofni í 2-3 mín-
útur. Berið fram með ristuðu brauði
og smjöri.
Hvítlaukssósa
Öllu blandað saman í pott og
bragðbætt með súputeningi, salti og
pipar.
Spergill með
mousseline-sósu
Fyrir 6
1,8 kg ferskur grænn spergill
(aspas)
Mousseline-sósa
6 eggjarauður
6 msk. vatn
200 g smjör
2 tsk. estragon
safi úr 1 sítrónu
Nykaup
Þarseniferskleikiwi býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
klappað og klárt. Mér fannst nú
samt eitthvað skrýtin lykt en lét
það fram hjá mér fara af þvi ég
hef svo gaman af að gera hluti
stundum hratt.
„Gjöriði svo vel, elskurnar."
Eitthvað reyndist fiskurinn seig-
ur og teygjanlegur. Alla vega
komumst við að því að þetta
reyndist vera plastfiskréttur,"
sagði matgæðingur vikunnar,
Hinrik Ólafsson.
„En að þessu sinni ætla að hafa
reyktan kjúkling, enn eina út-
færsluna á þvi hráefni frá fjöl-
skyldunni. Mér finnst reyktur
kjúklingur miklu betri en
kalkúnn og svo er hann ódýrari.
2 dl rjómi
cayenne-pipar á hnifsoddi
salt
Afhýðið spergilinn frá toppnum
og niður. Skerið frá neðstu 2 cm af
stilkunum. Leggið spergilinn í sjóð-
andi saltvatn (má vera salt) í 5-7
mínútur eftir stærð, setjið síðan á
volgan disk og hellið sósunni yfir.
Fallegt getur verið að sjá spergilinn
undir grilli.
Sósan
Bræðið smjörið í potti og takið
siðan af hellunni. Eggjarauðumar
eru settar í stálskál ásamt vatni,
sítrónusafa og estragon. Þetta er
þeytt þannig að myndist létt froða.
Smjörinu er bætt í fyrst í dropatali
og svo mjórri bunu. Þeytt vel á með-
an. Kryddað með cayenne-pipar og
salti. Rjóminn er léttþeyttur og
blandað saman við.
Hollráð
Þennan rétt má einnig nota sem
forrétt, þá má skera uppskriftina
niður um helming.
Yfirleitt eru þeir aðeins minni en
kalkúnn!" sagði Hinrik.
Reyktur kjúklingur
Reyktur kjúklingur, 2 1/2 kg - 3 1/2
kg
epli
4 gulrætur
3 laukar
1/2 blaðlaukur
hunang
ítölsk kryddblanda
sveskjur
Gammel dansk.
hvítlaukur.
Skerið það sem að ofan er talið
í bita og fyllið kjúklinginn, helst
1/2 sólarhring áður en steikt er.
Gammel dansk, eitt eða tvö
staup, helli ég inn í kúklinginn og
gefur hann mikið bragð, þessu
mega menn sleppa ef þeir eru
„þorstaheftir", orðatiltæki Flosa
Ólafssonar um þá sem eru famir
á snúruna. Hvítlauksmagninu
mega menn ráða, mér fmnst gott
að hafa mikið. Gott er að smyrja
hunangi utan á kjúklinginn. Sagt
er að 40 mín. á 1 kg sé nægjanlegt
við ca 180' hita.
Setjið kjullann í eldfast fat með
eða án loks, hellið reglulega yfir
hann soðinu sem kemur frá kjöt-
inu.
Með þessu er hægt að hafa hrís-
grjón eða bakaðar kartöflur eða
sætar kartöflur og grænmetissal-
at. Ég mæli með víni frá Rijoga.
Sósa gerð úr soðinu, með ijóma
ef menn vilja.
Eftirlæti hestamannsíns
Auðvelt og gott og engin tak-
mörk með bragð, skreytingu og
stærð.
Makkarónukökur á botninum,
15-20 kökur eftir smekk og stærð
skálar.
Rjómablanda:
60 g flórsykur
2 eggjarauður
3 dl rjómi
200 g rjómasúkkulaði með hnet-
um
Ávextir eftir smekk.
Myljið makkarónukökumar í
botninn, hellið örlitlu af líkjör
yfir eða ávaxtasafa.
Þeytið saman rauður og flór-
sykur, blandið saman við þeyttan
rjómann og saxað súkkulaðið,
setjið yfir makkarónukökumar,
brjótið marengsinn niður og .
stingið honum í rjómann, skerið
ávexti niður og raðið yfir. Hitið
ijómann að suðu og hellið yfir
saxað súkkulaðið, hellið yfir rétt-
inn og setjið hann í kæli í 3 tíma.
„Ég ætla að lokum að skora á
Erlu Kristófersdóttur sem er al-
ger snillingur í matargerð," sagði
Hinrik að lokum.
Nýjar vörur
Handofin rúmteppi, tveir púSar fylgja.
Ekta síðir pelsar.
SíSir leSurfrakkar.
Handunnin húsgögn.
ÁrshótíSar- og fermingardress.
Handunnar gjafavörur.
Kristall - matta rósin, 20% afsl.
Satínrúmföf
Sigurstjarnan
laugard. 11-15 í bláu húsi við Fákafen.
ViSskiptanetíS SífTlÍ 588 4545.
IUS D'ORANGE
PARIS