Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2000, Blaðsíða 28
44 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 Tilvera lí fiö Norrænt kvennakóramót Kvennakór Reykjavíkur býður til fyrsta norræna kvenna- kóramótsins, sem haldið er hér á landi. Gert er ráð fyrir að þátttakendur á mótinu verði um 900 og mun sá hópur mynda sameiginlegan kór sem syngur á lokatónleikum mótsins, laugardaginn 29. apríl. Heiðursgestur á mótinu er hinn viðfrægi kvennakór Glier tónlistarskólans í Kíev í > Úkraínu. í kvöld syngur kórinn 1 Háteigskirkju og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Krár ■ CÁFE ROMANCE Breski píanó'-^ leikarinn Simone Young hamrar á pí- anóið af öllum lífs og sálar kröftum. ■ LEYNIFJELAGH) Á GAUKNUM Leynifjelagiö mætir með nýtt efni á r Gaukinn og ekki nóg með það held- ur mætir grúppan einnig með nýja söngkonu sem heitir Guðbjörg. Hún hefur verið í ýmsum showum á Hót- el íslandi viö góöan orðstír enda með ægifagra rödd. Leikhús LANDKRABBÍNN Islenska verð- launaleikritið Landkrabbinn eftir Ragnar Arnalds veröur sýnt í Þjóð- leikhúsinu klukkan 20. Þetta er hressilegt verk sem fjallar um lífið um borö í rammíslenskum togara. Meðal leikenda eru Erla Rut Haröar- dóttir, Gunnar Hansson og Jóhann Siguröarson. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Sími í miðasólu er 551 1200. ■ LEIKIR Iðnó sýnir Leiki eftir Bjarna Bjarnason í hádegisleikhús- inu en þar snæða gestir léttar veit- ingar meöan þeir njóta stuttrar leik- sýningar. Opnað er í salinn laust fyr- ir klukkan 12 og þá er matur borinn á borð. Um klukkan 12.20 hefst sýningin. Fundir ■ ITC FIFA ITC Fífa ítrekar að fund- urinn verður ekki 19. apríl eins og var á yfirliti vetrarins. Hann verður haldinn í ITC-deildinni Rfu í dag, 26. apríl, aö Gjábakka í Kópavogi. Fræðsla verður um gagnlega gagn- rýni. Allir velkomnir. Heimasíða sam- takanna er www.simnet.is/itc v Bíó ■ FRANSKT BIO Alllance franpalse bíður í bíó á myndina Taxi. Þetta er grínmynd frá árinu 1997 með ís- lenskum texta. Leikstjóri: Gérard Pires. Sýn'ogin hefst kl. 20 og þaö er ókeypís inn.. Sjá nánar: Líflö eftlr vinnu á Vísi.is Kippir í kyniö Ég er blessunarlega laus vió sjóveiki og sjóhræðslu en er, eins og afi minn og langafi, illa þjakaóur afsjóriöu, “ segir Róbert Trausti Árnason. Róbert Trausti Árnason þekkir vel til Keflavíkurverktaka og starfseminnar á varnarsvæðinu: Forsetaritari í forstjórastól „Mér líst prýðilega á þetta starf en í því felst meðal annars að stýra daglegum rekstri undir handleiðslu stjómar Keflavíkurverktaka," segir Róbert Trausti Árnason, nýráðinn forstjóri Keflavíkurverktaka. „Það má segja að ég þekki nokk- uð til hér þar sem ég var skrifstofu- stjóri Varnarmálaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins í nokkur ár og hafði þá samskipti við Keflavíkur- verktaka," segir Róbert sem var ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneyt- isins um tíma en hann var forseta- ritari síðastliðið ár. Ætlaði að verða skipasmíður „Ég hef haldgóða staðarþekkingu hér og þekki vel allar aðstæður bæði hér uppi i heiðinni og byggð- inni í kring og starfsreynsla fyrri ára nýtist mér því mjög vel í þessu nýja starfi.“ Róbert var sendiherra í Dan- mörku um nokkurra ára skeið jafn- framt því að sinna starfi sendiherra í Litháen, Tyrklandi og Bosníu- Herzegóvínu með aðsetur í Kaup- mannahöfn. Hann var ánægður með veru sína í Danmörku. „Það var gott að starfa í Danmörku. Danir eru mjög vinveittir íslendingum og við njótum álits þar. Samskipti ríkj- anna eru líka í prýðilegum farvegi. Samskipti ríkjanna í 500 ár gera það að verkum að tengslin fá á sig ann- an blæ en samskipti við önnur ríki.“ Róbert er ættaður af Suðurnesj- um í móðurætt. „Það má segja að ég sé Suðurnesjamaður að langfeðga- tali. Forfaðir minn Sæmundur Ein- arsson var síðast prestur í Útskál- um í Garði og langamma mín Eyvör Snorradóttir og langafi Sveinn Magnússon skipasmiður bjuggu í Gerðum í Garði og þar er afi minn Guðmundur Sveinsson, sem einnig var skipasmiður, fæddur svo hér eru rætur mínar," segir hann. í fóðurætt er Róbert úr Skagafirði og þar dvaldi hann á yngri árum i sveit lijá afa sínum og ömmu. Róbert er stjórnmálafræðingur, útskrifaður frá Háskóla íslands, og nam alþjóðasamskipti í Kanada. „Ég ætlaði reyndar að verða skipa- smiður eins og afi minn og langafi en úr því varð ekki,“ segir hann. Spænskunám á þjóðveginum Róbert segir áhugamál sitt vera útiveru. „Ég er hógvær útivistar- maður og stunda gönguferðir þegar ég hef tíma. Síðan hefur ágætur vin- ur minn hér í Keflavík aðgang að trillubáti og með honum fer ég á sjó- inn mér til upplyftingar og þá að sjálfsögðu í Garðsjóinn. Ef við erum ekki að renna fyrir þorsk er hægt að skemmta sér við skoða hvalina sem eru hér. Það er ólýsanleg tilflnning að vera úti á sjó, það er eitthvað ofar manns skilningi. Ég er blessun- arlega laus við sjóveiki og sjó- hræðslu en er, eins og afi minn og langafi, illa þjakaður af sjóriðu sem getur stundum verið svo slæm að þegar ég stíg upp á bryggju treysti ég mér ekki til að aka i bæinn." Róbert býr á Reykjavíkursvæð- inu en hefur ekki ákveðið hvort hann Qyst búferlum til Suðurnesja. „Enginn veit sina ævina fyrr en öll er en ég er opinn fyrir öllu,“ segir hann. Róbert Trausti miklar ekki fyrir sér að aka Reykjanesbrautina dag- lega og nýtir tímann vel á leiðinni. „Ef ég er ekki að hlusta á útvarpið hlusta ég á spænskukennslu af spólu og síðan er ég líka með Egils- sögu, Grettissögu og Njálu, svo mér leiðist ekki.“ -AG Bíógagnrýni Regnboginn - Down io You: ★ Astríðulaus rómans A1 Connelly (Freddie Prinze, Jr.) og Imogen (Jul- ia Stiles) urðu ung ástfang- in upp fyrir haus. Lifið lék við þau og þau léku sér hvort að öðru. En þau voru ung og vitlaus og með „ár- unum“ þroskuðust þau hvort frá öðru. Nú eru þau reynslunni ríkari og deila visku sinni með áhorfend- um. Þetta er auðvitað ekki nýtt þema, að fólk sem hef- ur lifað tímanna tvenna geri upp æskubrek í ljósi seinni tíma reynslu og þekkingar. En það er eitt- hvað mikið bogið við úr- vinnslu Down to You á þemanu því A1 og Imogen eru enn á táningsaldri - og ef ég má bæta við - hafa litla visku fram að færa. A1 er sonur sjónvarps- kokksins Ray (Henry Winkler) og plötusnúðsins Judy (Lucie Arnaz), elskulegs fólks sem vill allt fyrir hann gera. A1 er líkt og faðirinn meistari í eldhúsinu og stefnir á matreiösluframa en Julia Stiles lelkur hina listfengu Imogen í Down to You, heldur áhrifalítilli unglinga- mynd. Imogen er afar hæfileikaríkur mál- ari. Restin af persónunum eru dæmigerðar unglingamyndatýpur, óboðlegar með öllu. Reyndar eru að- Björn Æ. Norðfjörö skrifar gagnrýni um kvikmyndir. alpersónurnar sjálfar einnig einkar óspennandi. Freddie Prinze, Jr. er einhver sá ástríðulausasti leikari sem sést hefur á tjaldinu og fáar til- raunir hans til skapgerðarbreytinga eftirminnilegar - því miður. Þó er óþarfi að afskrifa Juliu Stiles þar til hún hefur fengið bitastæðara hlut- verk. Hún kann að leyna á sér. Down to You gerir ýmsar tilraun- ir til að brjóta upp form gelgju- mynda, t.d. með játningum aðalper- sóna beint í myndavél og uppbroti myndrammans. Þessi ofnotuðu stíl- brögð bjarga myndinni þó ekki frá pytti meðalmennskunnar. Velgjan er hér í fyrirrúmi líkt og allt of oft í unglingamyndum. Sjálfur hef ég enga sérstaka fordóma um slíkar myndir en yfirborðsmennskan keyrir hér fram úr öllu velsæmi. Líkt og sumar myndir eru bannaðar börnum yngri en 16 virðist ástæða til að meina fólki eldri en 16 aðgang á aðrar. Down to You er ein þeirra. Leikstjóri og handritshöfundur: Kris Isacsson. Aðalhlutverk: Freddie Prinze, Jr, Julia Stiles, Henry Winkler, Selma Bla- ir og Zak Orth. Þá er í myndinni lag hljómsveitarinnar Gus Gus, Lady Shave.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.