Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Page 30
50
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
Tilvera J3V
Danger in the Dark:
Björk
lét illa
Björk lét illa við tökur á kvikmynd
Lars Von Triers, Danger in the Dark,
að sögn þeirra sem fylgdust með gerð
myndarinnar. Þetta kemur fram á
veftímariti um tónlist, Dot Music.
Hún er sögð hafa viðhaft þau orð að
aldrei framar myndi hún taka þátt í
gerð kvikmyndar. Þau orð féllu eftir
rifrildi við leikstjórann og höfund
myndarinnar, Lars Von Trier.
Lætin byrjuðu þegar henni leist
ekki á blússu sem hún átti að klæðast,
reif hana í tætlur áður en hún storm-
aði út af sviðinu. Einn þeirra sem
vann við kvikmyndina segir í Dot
Music að þegar tveir sterkir persónu-
leikar komi saman sé oft ekki von á
góðu. Annar segir að Björk vilji
stjórna öllu en hún hafi íljótlega kom-
ist að raun um að það gat hún ekki.
Von Trier er sagður vera ánægður
með myndina, sem og Björk. Hins veg-
ar voru þau ekki sérstakir vinir við
gerð kvikmyndarinnar en eru þó bæði
ánægð með útkomuna í dag.
-DVÓ
Ein af mörgum
Það hefur mikið verið skrafað um
samband Brittney Spear og Justins
Timberlakes úr N Sync að
undanfomu. Eru þau saman eða
ekki? Um daginn greindum við frá
því þegar Brittney sótti drenginn
heim til að láta hann nudda á sér
bakið en nú virðist vera komiö
annað hljóð í strokkinn. Hinn
hrokkinhærði Justin mun nefnilega
vera sá sem hefur vafið söng-
konunni um fingur sér en ekki
öfugt. Samkvæmt heimildarmanni
sem kemur úr innstu herbúðum N
Sync er Brittney ekkert meira en
peð á stóðlifstaflborði Justins sem á
kærustu í hverri höfn. Þrátt fyrir
þetta munu Brittney og N Sync fara
á tónleikaferðalag saman.
Með áhyggjur
af dóttur sinni
Kvikmyndaleikarinn Jon Voight
er með áhyggjur af dóttur sinni,
kvikmyndaleikkonunni Angelinu
Jolie. Pabbi gamli er ekki hrifinn af
húðflúri stúlkunnar. Angelina er
ekki bara þekkt fyrir afrek sín á
hvíta tjaldinu. Hún hefur einnig
vakið athygli fyrir að leyna ekki tví-
kynhneigð sinni, hrifningu sinni á
hnífum og fyrir allt húðflúrið. Jon
Voight er hræddur um að húðflúrið
komi í veg fyrir að dóttirin fái hlut-
verk. Angelina hefur hins vegar
alltaf verið þrjósk og farið sínar eig-
in leiðir. Hún segir pabba að hægt
sé að setja farða á húðflúrið.
Námskeið
til aukinna ökuréttínda
heíjast vikulega
Sveigjanlegur námstími (áfangakerfi), próf á rútu, leigubíl, vörubíl og vörubíl
með eftirvagn. Reyndir kennarar, góðir bílar, fullkomin aðstaða.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.
ÖKU
£KOUNN
IMJODD
Kennsla og skrifstofa: Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík, sími 567 0 300
Skemmtiatriði
17. júní2000...
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkurborgar óskar
eftir tilboðum í atriði sem flutt yrðu á 17. júní i
ár. Um er að ræða leikþætti, tónlistarflutning
og skemmtiatriði fyrir börn og fullorðna.
Skemmtidagskrá mun standa í miðbænum
kl. 14.00 - 17.30 og 20.00 - 01.00.
Umsóknum skal skila fyrir 15. maí á skrifstofu
ITR Fríkirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar fást.
Nánari upplýsingar í síma 510 6600.
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur.
Iþrótta- og tómstundaráð.
■
Bíogagnrýni
Bíóhöllin - Mystery, Alaska: + +
Gömul lumma í nýjum umbúöum
Hilmar
Karisson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Þær eru ekki ófáar kvikmyndirn-
ar sem gerðar hafa verið um Davíð
og Golíat í íþróttum, lítilmagnann
sem etur kappi við sér mun sterkari
andstæðing en hefur sigur að lok-
um, ef ekki á íþróttavellinum þá
móralskan sigur, því ekki gengur
slík saga upp ef sá sem engu hefur
að tapa tapar. í Mystery, Alaska er
þessi gamla og ofnotaða formúla
notuð og hinn göfgi tilgangur er að
sýna fram á að þegar kemur að
sönnum íþróttamanni þá skipta
peningar engu máli, það er hugur-
inn, viljinn og stuðningurinn sem
gerir íþróttina að göfugri keppni.
Því miður er það svo í dag að þessi
formúla stenst ekki. Hún var við
lýði áður fyrr, þegar bestu íþrótta-
mennimir voru áhugamenn, en i
dag er öllum borgað fyrir að standa
sig vel. Mystery, Alaska er því æv-
intýramynd sem ekki á sér staö í
raunveruleikanum en góð sem slík
og ekki spillir skemmtileg íþrótt og
kuldalegt en magnað landslag í
Alaska.
Mystery er lítill bær í Alaska þar
sem bæjarfélagið stendur og fellur
með hokkikeppni á hverjum laugar-
degi. Aðeins tíu manns eru í náð-
inni, stjömur bæjarfélagsins, sem fá
að sýna listir sínar og eru margir
sem bíða eftir tækifærinu. Þegar við
komum til leiks er verið að vísa að-
alpersónu myndarinnar, lögreglu-
stjóranum John Biebe (Russell
Crowe) úr liðinu þar sem hann þyk-
ir vera orðinn of gamall og seinn.
Ungur og efnilegur ishokkístrákur
er á hliðarlínunni og bíður eftir
tækifærinu. Um sama leyti birtist í
stærsta íþróttablaði Bandaríkjanna
grein um íshokkíliðið á hjara ver-
aldar. Þessi grein vekur svo mikla
athygli að sjónvarpsstöð sér gróða-
von í að fá atvinnumannaliðið New
York Rangers til að koma til My-
stery og leika við heimamenn. Eins
og nærri má geta fer bæjarfélagið á
annan endann við þessi tíðindi og
sýnist sitt hverjum um ágæti leiks-
ins.
Það er í rauninni ekkert i My-
stery, Alaska, sem kemur á óvart.
Ljóst er að leikstjórinn, Jay Roach
(Austin Powers), er að reyna að losa
myndina við væmni en hefur ekki
erindi sem erfiði. Og þótt leikurinn
sjálfur sé kannski ekki alveg sam-
kvæmt formúlunni þá er alltaf pass-
að upp á að hetjumar okkar séu
hetjur þegar upp er staðið. Það sem
forðar myndinni frá hruni er jafn og
góður leikarahópur og Alaska. Is-
hokkíið sjálft er myndræn iþrótt og
þessi mikla yfirferð gefur kvik-
myndatökumönnum tækifæri til að
sýna snilli sína, og náttúrufegurðin
er mikil. Þegar þetta er lagt saman
við gott samræmi í atburðarás þá er
Mystery, Alaska hin sæmilegast af-
þreying, stundum fyndin, stundum
væmin og stundum spennandi.
Leikstjóri: Jay Roach. Handrit: David E.
Kelley, Howard Baldwin og Sean O'Byrne.
Kvikmyndataka: Peter Deming. Tónlist:
Carter Burwell. Aöalleikarar: Russell
Crowe, Hank Azaria, Mary McCormack,
Lolita Davidovich og Burt Reynolds.
Russell Crowe
Lögreglustjórinn og fyrirliöi íshokkíliösins.