Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2000, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
DV
11
Fréttir
Fyrsta sláturtíð Norðlenska gengur vel:
Metútflutningur á fersku
kjöti til Bandaríkjanna
DV, AKUREYRI:__________________________
Fyrsta sláturtlð Norðlenska ehf. hef-
ur gengið vel en félagið var sem kunn-
ugt er stofnað fyrr á árinu með sam-
runa Kjötiðnaðarsviðs KEA og Kjötiðj-
unnar á Húsavík. Öll sauðfjárslátrun
var færð til Húsavíkur og hefur þessi
breyting í meginatriðum komið vel út.
Hefðbundinni sláturtíð hjá félaginu
mun ljúka 31. október nk. og alls verð-
ur slátrað tæplega 60 þúsund dilkum
og um 6 þúsund ám. Meðalþyngd dilka
þegar þetta er skrifað er 15,26 kg. Með-
al þess sem hæst ber er óvenju mikill
útflutningur á fersku kjöti tO Banda-
ríkjanna og hefur hann skilaö hærra
verði til bænda en áður hefur fengist.
Að sögn Helga Jóhannessonar,
framkvæmdastjóra Norðlenska, hafa
gæði og afköst við slátrunina verið
með ágætum. Má það m.a. þakka þeim
breytingum sem gerðar voru á slátur-
línunni í haust og heppnast hafa
prýðilega en meö þeim varð bæði
vinnan léttari og færra fólk þarf við
slátrunina. „Að mínu mati hefur slát-
urhúsið verið sérlega vel mannað í
haust sem á ekki minnstan þátt í því
hversu vel hefur gengið. Við hækkuð-
um aíkastabónus og það samhliða
auknum afköstum hefur bætt kjör
þeirra er starfa við slátrunina og
einnig skilað sér í betri vinnugæðum
og aukinni verkgleði," segir Helgi. Um
60 manns hafa starfað við slátrunina,
þar af um 10-15 útlendingar að jafnaði.
Norðlenska bauð flutning á sláturfé
út sl. sumar og borga innleggjendur
fast verð fyrir hvert kg. Til ilutning-
anna eru notaðir bUar með sérsmiðuð-
um 240 dUka flutningskössum á tveim-
ur hæðum og hefur í stærstum drátt-
um veriö góð reynsla af þessu fyrir-
komulagi. Farið verður yfir reynsluna
af flutningunum í lok sláturtíðar svo
gera megi breytingar til batnaðar.
Verulegt magn af fersku lambakjöti
hefur verið flutt út til Bandaríkjanna í
haust og hefur það aldrei verið meira
en nú. Sérstaklega var mikið að gera
fyrstu vikur sláturtíðar enda slátur-
húsið á Húsavík þá eina vinnslan sem
hafði leyfi til útflutnings á þennan
markað. Kjötinu er pakkað í neytenda-
umbúðir og hafa 10 manns unnið við
þetta. „Þrátt fyrir nokkuð háan kostn-
að við vinnsluna, m.a. vegna þess að
við getum ekki nýtt allan skrokkinn,
hefur allnokkru betra verð fengist fyr-
ir kjötið á þessum markaði en útflutn-
ingur hefur skOað til þessa. í ljósi þess
ákvað Norðlenska að greiða bændum
sem skipta við félagið hærra verð fyr-
ir útflutning en áður hafði verið
ákveðið, eða 175 kr. á hvert kg. Ávinn-
ingnum af þessu starfl er þannig veitt
tO bænda enda tOgangurinn með út-
flutningsvinnslu sá að skila hærra
verði fyrir útflutt kjöt,“ segir Helgi
DV-MYND DANIEL V. OLAhSSON.
Utankvótamenn
Þeir Aron Freyr og Hafþór Ingi, 9 ára, aö veiöum viö Akraneshöfn. Þeim er veiöiskapurinn í blóö borinn.
Veiða þorsk, ufsa og kola kvótalausir
DV. AKRANESI:______________________
DV rakst á þá Hafþór Inga og
Aron Frey, níu ára gutta, sem
voru að veiöum við Akraneshöfn,
kvótalausir auðvitað. Þeir sögðu
að þeir fengju ýmislegt góðgæti á
stöngina, það væri til dæmis ufsi,
koli, þorskur en stundum mar-
hnútur.
Þeir sögðu að það væri góð
skemmtun að veiða og til öryggis
nota þeir alltaf björgunarvesti
eins og krakkar sem veiða við
bryggjunar eiga að gera.
„Það er hægt að fé ágætisafla
hérna við Akraneshöfn en það
mesta sem við höfum fengið af
fiskum var þegar að við vorum að
veiða við Hafnarfjarðarhöfn,"
sögðu þeir félagar.
-DVÓ
Aukinn mjólkurkvóti í Skagafirði
- bændur skipta um tanka til að koma mjólkinni fyrir
Vinstri-grænir á Norðurlandi eystra:
Forgangsverkefni að bæta
kjör öryrkja og aldraðra
DV. AKUREYRI:_________________________
Aðalfundur kjördæmisfélags
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs á Norðurlandi eystra sem haldinn
var á Akureyri skoraði á stjómvöld að
grípa þegar tO aðgerða sem bæta kjör
öryrkja og aldraðra. Líta beri á það
sem forgangsverkefni að bæta kjör
þeirra sem borið hafi skarðan hlut frá
borði eða sætt sérstaklega skertum
kjörum á undanfórnum árum.
Fundurinn lýsti þungum áhyggjum
yfir stöðu byggðamála og krafðist þess
að gripið yrði tO markvissra aðgerða
tO að koma á jafnvægi i þróun byggðar
í landinu í stað þess að láta sitja við
orðin tóm eins og núverandi og síðustu
ríkisstjómir hafi gert. Þá skorar fund-
urinn á stjómvöld að tryggja regluleg-
ar flugsamgöngur innanlands og for-
dæmdi grimmúðlega valdbeitingu ísra-
elsmanna á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna.
Valgerður Jónsdóttir, Akureyri, var
endurkjörin formaður kjördæmisfé-
lagsins en aðrir í stjóm eru Ásgrímur
Angantýsson, Þórshöfn, Anna Helga-
dóttir, Eyjafjarðarsveit, Stefán Rögn-
valdsson, Öxarfirði, Björgvin Leifsson,
Húsavík, Óli Þór Jóhannsson, Dalvík,
og Bjarkey Gunnarsdóttir, Ólafsflrði.
■gk
Risaútsala
Rýmum fyrir nýjum vörum
Ekta pelsar kr. 95.000
20% afsl. af húsgögnum
op.a Sigurstjarnan
virka daga 11-18, í bláu húsi við Fákafen.
laugard. 11-16 Sími 588 4545.
DV. SKAGAFIRDI:__________________
Þessa dagana standa margir
mjólkurframleiðendur í Skaga-
flrði í talsverðum framkvæmdum.
Þeir eru að skipta út gömlu mjólk-
urtönkunum og setja upp stærri
og fullkomnari tanka, m.a. með
sjálfvirku þvottakerfi. Nýju tank-
arnir eru 1700 til 4000 lítrar að
stærð, sá stærsti fer í félagsbúið á
Gili sem er stærsti mjólkurfram-
leiðandi í Skagafirði um þessar
mundir.
Bændurnir sjálfir standa
straum af öllum kostnaði, en í
samvinnu við Mjólkursamlag
Skagfirðinga og Verslunina á Eyri
voru fengnir tankar á hagstæðu
verði frá Hollandi, er Áræði ehf. í
Reykjavík hefur umboð fyrir.
Fulltrúi hollenska framleiðandans
vinnur með starfsmönnum RKS
við uppsetningu tankanna.
Snorri Evertsson, mjólkursam-
lagsstjóri Mjólkursamlags Kaupfé-
lags Skagflrðinga, segir að aukinn
mjólkurkvóti, stærri en færri bú,
hafi það í fór með sér að tankarn-
ir þurfi að vera stærri en áður.
Framleiðsluheimildin á svæði
mjólkursamlagsins er í dag 9,7
milljónir lítra og hefur vaxið úr
7,8 milljónum frá árinu 1995. Nýju
tankana fá 13-14 bændur. Á sama
tíma er verið að hagræða gagn-
vart mjólkurflutningunum og
stefnt að því að tveir bilar dugi til
þeirra í framtíðinni í stað þriggja
áður, þannig einn bíll verði til
vara.
Mjólkursamlagið keypti nýlega
mjólkurbfl með 14.000 lítra tanki,
sá næstelsti er með 11.500 lítra
tanki frá ‘95 og sá þriðji 8.500 frá
‘91. Áður voru mjólkurbOarnir
með 7-8.000 litra tönkum og þurfti
þá nokkurn bílaílota í flutninginn.
-ÞÁ
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON.
Meiri mjólk
Starfsmenn RKS, Kjartan Erlendsson til vinstri og Þorgeir Sigurösson
til hægri, ásamt fulltrúa hins hollenska framleiðanda tankanna, Möllers.
Nokkrir stærri bændur eru aö vélvæöast svo um munar.