Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Blaðsíða 8
8
Viðskipti
Un^jón: Viðskiptablaðiö
Islenskir fjarfestar i viöræðum
um kaup á rekstri Vífilfells
Drykkjaframleiðendurnir Carls-
berg og Coca-Cola hafa hafið við-
ræður við íslenska fjárfesta varð-
andi kaup á rekstri Vífilfells hf.,
umboðsaðila Coca-Cola á íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem
fyrirtækin tvö sendu frá sér í dag.
Fram kemur að markmið íslensku
fjárfestanna sé að hafa framleiðslu
og sölu á vörum Coca-Cola áfram í
höndum íslensks fyrirtækis.
Carlsberg og Coca-Cola hafa átt í
viðræðum slðan í júni sl. um að
sameinast um framleiðslu, dreif-
ingu og sölu á vörum Coca-Cola á
Norðurlöndunum og segir í tilkynn-
ingunni að samningaviðræður við
íslensku aðilanna sé annað tveggja
skrefa sem fyrirtækin hafi tekið til
að fá endanlega mynd á það sam-
starf. Búist er við því að sú mynd
verði orðin endanleg í kringum ára-
mótin.
Hitt skrefið sem um ræðir var
tekið í Finnlandi en þar hafa
bruggverksmiðjan Sinebrychoff,
sem er að 100% í eigu Carlsberg, og
Coca-Cola Juomat, umboðsaðili
Drykkjaframleiðendurnlr Carlsberg og Coca-Cola hafa hafiö viöræöur viö ís-
lenska fjárfesta varöandi kaup á rekstri Vífilfells hf., umboösaöila Coca-
Cola á íslandi.
Coca-Cola í Finnlandi, skrifað undir
viljayfirlýsingu varðandi það að
Sinebrychoff taki yfir alla fram-
leiðslu, dreifmgu og sölu á vörum
Coca-Cola í landinu. Undirrituð
viljayflrlýsing er skilyrði til að fyr-
irtækin geti hafið samningaviðræð-
ur.
Samruni rekstrar Sinebrychoff og
Coca-Cola Juomat er háður því að
samningar takist milli Carlsberg og
Coca-Cola fyrirtækisins en einnig
munu finnsk samkeppnisyfirvöld
þurfa að leggja blessun sína yfir
hann áður en hann næst í gegn.
Samningaviðræður Carlsberg og
Coca-Cola varðandi stofnun sér-
staks fyrirtækis um gosframleiðslu
og -sölu á Norðurlöndunum, Coca-
Cola Nordic Beverages, hófust í
kjölfar þess að Carlsberg og norska
fyrirtækið Orkla tilkynntu i lok maí
sl. áætlanir um að færa framleiðslu
Orkla yfir í nýtt fyrirtæki, Carls-
berg Breweries. Coca-Cola Nordic
Beverages er að 51% í eigu Carls-
berg og að 49% í eigu Coca-Cola.
Frank Björklund ráðinn fram-
kvæmdastjóri Járnblendifélagsins
Tal til íslands-
banka
Tal hf. hefur ákveðið að flytja öll
bankaviðskipti sín frá Landsbanka ís-
lands hf. til Íslandsbanka-FBA hf. í
því felst m.a. að Íslandsbanki-FBA
verður almennur viðskiptabanki Tals
og tekur einnig yfir þátt Landsbank-
ans í alþjóðlegu sambankaláni fyrir-
tækisins. Sambankalánið er frá árun-
um 1998 og 1999 og var tekið til að fjár-
magna uppbyggingu Tals á sínum
tíma. Fjárhæð lánsins er 24,5 miiljón-
ir Bandaríkjadala og bankar í því
samstarfi eru Merita Nordbanken
(New York-útibú) og ABN AMRO
(Kaupmannahafnar-útibú). Stjórnend-
ur Tals telja að Íslandsbanki-FBA
komi vel til móts við þarfir Tals sem
er ört vaxandi fyrirtæki á alþjóðleg-
um fjarskiptamarkaði.
Stjórn Islenska jámblendifélags-
ins hf. réð Norðmanninn Frank
Björklund sem framkvæmdastjóra
félagsins á fundi sínum í morgun.
Frank mun taka við starfinu um
næstu áramót en Bjami Bjamason
mun gegna starfinu fram til þess
tíma. Þá hefur Helgi Þórhallsson
veriö ráðinn aðstoðarfram-
kvæmdastjóri félagsins.
Frank Björklund er 43 ára gam-
all vélaverkfræðingur með
meistaragráðu í framleiðslutækni.
Síðastliðin þrjú ár hefur Frank
verið framkvæmdastjóri kísil-
málmverksmiðja í Meraker og í
Thamshavn í Noregi en þær eru
báöar í eigu Elkem. Meðal annarra
starfa sem Frank hefur gegnt má
nefna framkvæmdastjórn fyrir
Fimdia Profiler í Noregi og tækni-
stjórastarf í manganverksmiöju í
Sauda í Noregi. Á árunum
1985-1988 starfaði Frank fyrir
Norsk Veritas í Austur-Asiu. Hann
er kvæntur Kersti Björklund og
eiga þau 5 böm. Gert er ráð fyrir
að fjölskyldan flytjist til íslands í
upphafi næsta árs.
Helgi Þórhallsson hefur verið
ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri
félagsins frá sama tíma en hér er
um nýtt starf að ræða. Helgi hefur
meistaragráðu í efnaverkfræði frá
Noregi og hefur hann starfað hjá
íslenska járnblendifélaginu um 15
ára skeið, þar af sem framleiðslu-
stjóri í 8 ár. Hann hefur einnig
starfað sem framleiðslustjóri og
framkvæmdastjóri jámblendiverk-
smiðju í Bjölvefossen í Noregi en
hann er nú markaðsstjóri íslenska
járnblendifélagsins.
Glæsilegt úrval
Glæsilegt úrval af handunnum
rúmteppum, dúkum, Ijósum og
gjafavörum.
Matta rósin 20% afsl.
Pelsar í úrvali
Sigurstjarnan
virka daga 11-18, í bláu húsi við Fákafen.
laugard. 11-16 Sími 5384545.
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Reykjavík
Neshaga
Melhaga
Njálsgötu
Grettisgötu
Vitastíg
Flókagötu
Háteigsveg
Háaleitisbraut
Stigahlíð
Lindargötu
Skúlagötu
Blesugróf
Jöldugróf
Kópavogur
Birkigrund
Furugrund
Brekkuhvarf
Dimmuhvarf
Vatnsendablett
Birkihvamm
Fífuhvamm
Reynihvamm
Garðabær
Hegranes
Blikanes
Haukanes
Mávanes
Sendlar óskast
á blaðadr. DV eftir hádegi.
Æskilegur aldur 13-15 ára.
► j Upplýsingar í síma 550 5000
Síminn segir dæmigerða
reikninga ódýrari hjá sér
Vegna yfirlýsinga
Íslandssíma að und-
anförnu um hagstæð-
ari verðskrá varð-
andi innanlandssím-
töl hefur Landssím-
inn sent frá sér
fréttatilkynningu
þar sem m.a. kemur
fram að miðað við
dæmigerðan reikn-
ing einstaklings eða
fjölskyldu sé hag-
stæðara að skipta
við Landssímann.
Síminn segir
nauðsynlegt að þegar
verðskrá fyrirtækj-
anna beggja sé borin
saman sé litið á
heildarmyndina.
Fram kemur að allir
viðskiptavinir Sím-
ans fá 150 króna afslátt á mánuði í
formi notkunar sem er innifalin í
fastagjaldinu. Ef tekið er mið af
meðalfjölda mínútna í fastlínukerf-
inu innanlands á mánaðarlegum
símreikningi samsvarar þetta
10-15% afslætti. Tii viðbótar eiga
sömu viðskiptavinir kost á sparnað-
arleiðum sem lækka símareikning-
inn enn frekar.
Ef reiknað er með sparnaðarleið-
inni Vinir & vandamenn er fimm
mínútna símtal á dagtaxta 40 aurum
ódýrara hjá Símanum. Á kvöldin er
sama símtal hins vegar sex aurum
ódýrara hjá Íslandssíma.
Bent er á að í kynningu íslands-
síma á nýrri innanlandsþjónustu sé
því haldið fram að kvöldtaxti ís-
landssíma sé 11% lægri en taxti
Simans og að dagtaxtinn
sé 5% lægri. Eitt ein-
stakt símtal á kvöld-
taxta Íslandssíma þarf
hins vegar að vera 84
mínútur til að viðskipta-
vinir fyrirtækisins njóti
11% afsláttar. Þess má
geta að meðallengd sím-
tals á kvöldin er um sex
mínútur.
Upphafsgjald símtala
er það sama hjá báðum
fyrirtækjum og verð-
munur liggur eingöngu
i mínútuverði.
Auk þess er önnur
notkun á sama verði hjá
báðum fyrirtækjunum,
þar með talið simtöl í
simaskrá og farsíma,
sem er stór liður í síma-
notkun heimilanna í
landinu. Síminn býður notendum
sínum einnig fjölþætta sérþjónustu
sem meðal annar felst í reikningsyf-
irliti sem sent er heim. Viðskipta-
vinir Símans geta einnig fylgst með
símanotkun sinni á Þínum siðum á
Internetinu.
Fram kemur að Síminn býður
viðskiptavinum sínum mismunandi
áskriftarleiðir sem henta ólíkum
þörfum þeirra. „Verðskrá Símans er
í stöðugri þróun og má á næstunni
vænta nýrrar áskriftarleiðar sem
fjölgar enn frekar valkostum við-
skiptavina. Þar verður m.a. lögð
áhersla á lægra mínútuverð í stað
þeirra afsláttakjara sem viðskipta-
vinir njóta í dag. Þessi nýja áskrift-
arleið verður kynnt á næstu dög-
um,“ segir í frétt frá Símanum.
Þórarinn V. Þórarinsson.
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
I>V
HEILDARVIÐSKIPTI 1576 m.kr.
- Hlutabréf 895 mkr.
- Skuldabréf 552 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
Tryggingami&stöðin 364 mkr.
: Íslandsbanki/FBA 151 mkr.
Kaupþing 109 mkr.
MESTA HÆKKUN
O Tryggingamiðstöðin 7,0 %
; © Íslandsbanki/FBA 2,0 %
© Kaupþing 1,3 %
MESTA LÆKKUN
© Össur 2,99 %
© íslenskir Aðalverktakar 2,94 %
© Nýherji 2,94 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1,381 stig
- Breyting O 0,88 %
Markaðscteild járnblendis
Elkem til Islands
Norska fyrirtækið Elkem, sem á
meirihluta í íslenska jámblendifé-
laginu hf., hefur ákveðið að skipta
kísilmálmdeild félagsins í þrjú svið
en þau eru kísilmálmsvið, járn-
blendisvið og málmsteypusvið.
Ákveðið hefur verið að Frank
Björklund verði yfirmaður mark-
aðsdeildar jámblendisviðsins innan
Elkem samtímis því sem hann tek-
ur við framkvæmdastjórastarfmu
hjá íslenska járnblendifélaginu.
í tilkynningu frá íslenska jám-
blendifélaginu segir að félagið
vænti þess að flutningur markaðs-
deildarinnar muni styrkja félagið í
markaðssókn til frambúðar.
Islandsbanki-FBA
stærsti hluthafi
Tryggingamiðstöðvarinnar
Íslandsbanki-FBA hf. hefur fest
kaup á tæplega 11% hlut í Trygg-
ingamiðstöðinni hf. og er eignar-
hiutur bankans nú 19,6% og er þar
með orðinn stærsti einstaki hluthafi
TM. Svo virðist sem íslandsbanki-
FBA hafi aðallega keypt hlutinn af
Fjárfestingarsjóði Búnaðarbankans,
ÍS-15, sem í dag tilkynnti um sölu á
9,9% eignarhlut sínum í TM.
Fram kemur í tilkynningu frá ís-
landsbanka-FBA í dag að bankinn
hafi keypt bréfin framvirkt á gjald-
daga 5. desember næstkomandi. Eft-
ir söluna á ÍS-15 engan hlut í Trygg-
ingamiðstöðinni.
ilÍDOW JONES 10687,51 O 0,20%
1 • Inikkei 14587,03 O 2,12%
BHs&p 1392,44 O 0,03%
BStInasdaq 3140,45 O 0,25%
^FTSE 6432,90 O 0,01%
F'fiDAX 6845,35 O 1,16%
||CAC 40 6274,19 O 0,28%
17.11.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
Dollar 87,530 87,980
^TaPund 124,560 125,200
i B*B Kan. dollar 56,280 56,630
; EuSal Dönsk kr. 10,0450 10,1000
rr~h Norsk kr 9,3590 9,4100
SuibS Sænsk kr. 8,6420 8,6890
ihHFi. mark 12,6027 12,6785
B 1 Fra. franki 11,4234 11,4920
B B Belg. franki 1,8575 1,8687
[I3i Sviss. franki 49,0800 49,3500
1Q Holl. gyllini 34,0029 34,2072
Þýskt mark 38,3123 38,5426
B 1 ít. líra 0,03870 0,03893
KElAust. sch. 5,4456 5,4783
1 ;.Port. escudo 0,3738 0,3760
1 ♦ ■ .ISná. peseti 0,4504 0,4531
■I • ÍJap. yen 0,80480 0,80960
1 II írskt pund 95,144 95,716
SDR 112,2600 112,9400
JjÍECU 74,9324 75,3827